Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Svona vertu ekki heldur að glápa, strákur, þetta var átaksverkefni Vegagerðarinnar og
Siglingamálastofnunar til styrktar landsbyggðinni, löngu fyrir Marshall-hjálpina okkar.
VEÐUR
Svandís Svavarsdóttir kom með at-hyglisverðar upplýsingar um
samstarf R-listaflokkanna í samtali
við Morgunblaðið í gær. Svandís
staðfestir það, sem áður höfðu verið
rökstuddar grunsemdir um, að Össur
Skarphéðinsson hafi látið svilkonu
sína, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur,
standa frammi fyrir gerðum hlut,
þegar hún varð forsætisráðherraefni
Samfylking-
arinnar fyrir
kosningarnar
2003.
Svandís segir:„Þetta gerð-
ist allt mjög hratt
og ég held, að það
séu engar deilur
um það núna, að
Össur hafi farið á undan Ingibjörgu í
þessu máli. Hún réð ekki hraðanum á
atburðarásinni og hlutirnir gerðust
að mörgu leyti með meiri boðaföllum
en gott var fyrir hana sem stjórn-
málamann.“
Og Svandís bætir við: „Það dylstengum, sem þekkir Samfylk-
inguna innan frá, að sú togstreita,
sem þar hefur verið á milli fylkinga
hefur verið flokknum afar erfið.“
Með þessum orðum staðfestirSvandís það, sem Morgunblaðið
hefur haldið fram um erjur og illindi
í forystu Samfylkingarinnar.
Svandís er í raun og veru að segja,að Össur hafi platað svilkonu
sína. Ingibjörg Sólrún ætlaði ekki að
hætta sem borgarstjóri á þeim tíma,
sem hún gerði og sú atburðarás öll
var henni bæði erfið og viðkvæm og
engin spurning um að hún veikti
hana pólitískt.
Hvað vakti fyrir Össuri?
Var markmið hans að veikja Ingi-björgu Sólrúnu með því að losa
um hana í Ráðhúsinu?
STAKSTEINAR
Svandís
Svavarsdóttir
Hvað vakti fyrir Össuri?
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!"
:
*$;< ##
!"
#$#%
*!
$$; *!
$ %#
##
&
'
=2
=! =2
=! =2
$&% ( #)
(*
+#,! ("
2>
=
$ % # #! #
#%
## (*-
, ##
-
.% #
% # #! #
#
' /#
(#
#
#
( -
. ## ##
-
62
.% #"
0
# #! #0
/#
(#! ! ##(!1
! #
'(*(#! #* #
*
#' ##$
(*-
. ## ##
/#
#((#
(*
(
#
( -
20 ##33
( ##4
!#)
(*
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
- /
/
-5
- - - -
-5
5- -
6
6
/
/5
/
/
/
/
/
/
/
/5
/
/
/
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Egill Helgason | 9. júní 2007
Nýtt stöðutákn
Einkaþotum hefur
fjölgað ofboðslega und-
anfarin ár. Þetta er
nýjasta æðið meðal
ríka fólksins. Á það
hefur verið bent að
þetta er ó-umhverf-
isvænasti ferðamáti sem til er. Sá
sem fer í einkaþotu skilur eftir sig
koltvísýringsútblástur sem er marg-
faldur á við venjulega flugfarþega.
Þess vegna er ekkert að marka þá
sem nota einkaþotur þegar þeir tala
um umhverfismál.
Meira: silfrid.blog.is
Katrín Anna Guðmundsdóttir | 9. júní
2007
Karlremban deyi út
Zero herferðin hefði
getað skipað sér á bekk
með allraflottustu her-
ferðum okkar tíma því
hugsunin á bak við
hana er snilld. En í
staðinn fyrir að búa til
flotta og fyndna herferð var gerð illa
íslenskuð og fordómafull herferð.
Karlremban vill ólm setja sín fótspor
á samtímann með óafmáanlegum
hætti … Tom Cruise hvað, ég vona
að karlremban deyi bráðum út!
Meira: hugsadu.blog.is
Pétur Gunnarsson | 10. júní 2007
Fagra Ísland
Þennan sunnudags-
morgun lítur miðborg
Reykjavíkur út eins og
óeirðir hafi átt sér stað
í Bankastræti sl. nótt.
Að vísu sé ég ekki bet-
ur en rúður séu allar
heilar en samt er gangstéttin þakin
glerbrotum. Líklega voru þau gler-
brot einu sinni bjórglös og vínglös
Ætli þetta séu áhrif reykingabanns-
ins? Gestir veitingahúsanna tolla
síður innandyra og þar sem engin
borð eru til að leggja frá sér glösin,
þá eru þau bara látin falla, eða sett
til hliðar og svo stígur einhver ofan á
þau.
Túristarnir … fara varlega, horfa
forviða á ummerki næturinnar og
reyna að varast að stíga á glerbrot.
Maður sér á þeim að þeir eru að
velta því fyrir sér hvað hafi hér verið
á seyði? Þeir komu hingað til að eyða
fríinu í hreinasta og óspilltasta landi
í heimi !!
Meira: hux.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson | 10. júní
2007
Framsókn fer
til vinstri
Guðni Ágústsson, for-
maður Framsókn-
arflokksins, horfði fram
á veginn til vinstrilit-
aðrar framtíðar í
flokknum og gerði upp
hið liðna um leið í ræðu
á miðstjórnarfundi. Þar var gert upp
við tólf ára stjórnarsamstarf við
Sjálfstæðisflokkinn og afhroðið í
kosningunum 12. maí …
Það er ljóst af ræðu Guðna að hann
ætlar að leiða flokkinn til nýrra tíma,
leiða hann í aðrar áttir en forverar
hans, Halldór Ásgrímsson og Jón
Sigurðsson, gerðu í formannstíð
sinni. Horft er mjög ákveðið til
vinstri í þeim efnum.
Hann talaði mjög ákveðið í þá átt
að samstaða flokksmanna hefði
brostið og ennfremur gerði hann
Íraksmálið að umtalsefni, mál sem
hefur legið eins og mara á sál flokks-
ins allt frá sumrinu 2003 og gerði að
mjög áberandi leyti út af við pólitísk-
an styrkleika Halldórs Ásgrímssonar
í forsætisráðherratíð hans og fylgdi
flokknum áfram eftir þó að Halldór
yfirgæfi hið pólitíska svið, enda gerði
Halldór ekki upp við málið í kveðju-
ræðu á flokksþingi Framsókn-
arflokksins í ágúst 2006.
Guðni fór mjög ákveðið inn á öll
helstu veikleikasviðin sem leiddu til
kosningaósigursins í vor. Sagði hann
að Framsóknarflokkurinn hefði tap-
að kosningunum og þar væri aðeins
við flokkinn sjálfan að sakast.
Þarna kveður við nýjan tón hjá
Guðna og meiri sjálfsrýni fólgin í
þessum orðum en áður hefur verið á
þessu vori. Þarna er horfið af braut
alls tals um Baug og undarlegan
orðaflaum um að eitt blað á vegum
þeirra hafi markað stærstu þáttaskil
flokksins í kosningunum, þegar vel
er vitað að innri sundrung og átök
voru stærsta ástæða afhroðsins.
Guðni þorir að gera upp veiku hlið-
arnar og um leið að horfa til nýrra
tíma, hvernig hann geti gert þennan
flokk að sínum við þessar vondu að-
stæður.
Það hefur aldrei farið leynt að
Guðni féll ekki í kramið hjá svoköll-
uðum Halldórsarmi, nánasta sam-
starfsmannahópnum í valdatíð Hall-
dórs Ásgrímssonar. Þegar kom að
pólitískum endalokum Halldórs vildi
Guðni ekki fara með honum og gerði
tilraun til að taka flokkinn yfir. Þær
tilraunir mættu harðri andspyrnu
Halldórsarmsins sem tefldi Jóni Sig-
urðssyni fram til ráðherrasetu og síð-
ar formennsku, þó að hann væri eldri
en Halldór Ásgrímsson. Guðni hélt
þó sínum áhrifum er á hólminn kom
og varð formaður án mótspyrnu við
afsögn forverans.
Meira: stebbifr.blog.is
BLOG.IS