Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 15

Morgunblaðið - 11.06.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 15 MENNING KIRKJUKÓR frá Örgryte í Svíþjóð heldur tónleika í Ak- ureyrarkirkju í kvöld kl. 20. Tuttugu og fimm manns syngja í kórnum. Efniskráin samanstendur af verkum eftir Jóhann Sebastian Bach og Jó- hann Ágúst Söderman, fyrsta tónskáld Svía af rómantísku kynslóðinni. Söderman er þekktur fyrir kórtónlist sína, sem að stórum hluta er byggð á þjóðlegri hefð, en einnig fyrir sönglög og leik- hússtónlist. Alexandra Pilakouris leikur einleik á orgel, en stjórnandi kórsins er Erlan Hildén. Að- gangur á tónleikana er ókeypis. Tónlist Sænskur kór syngur Söderman Félagar í kórnum frá Örgryte MYNDSTEF auglýsir nú eftir umsóknum um verkefnastyrki og ferða- og menntunarstyrki á vegum samtakanna. Rétt til þess að sækja um verkefnastyrki hafa allir myndhöfundar. Rétt til að sækja um ferða- og menntunarstyrki hafa allir félagsmenn Myndstefs. Sérstök umsóknareyðublöð eru á vef samtakanna www.myndstef.is og þar eru einnig nánar skil- greind þau atriði sem þurfa að koma fram í um- sókninni ásamt reglum um úthlutun styrkjanna. Umsóknarfrestur rennur út 3. ágúst 2007. Myndlist Myndstef auglýsir eftir styrkjum RAX með ljósmynd ÁRSFUNDUR Stofnunar fræðasetra er haldinn á Hótel Stykkishólmi í dag. Fundurinn hefst kl. 10 og honum lýkur kl. 17. Á dagskrá verður fjöldi áhugaverðra erinda um menntun, rannsóknir, atvinnu- líf og lífsgæði jafnt á krumma- skuðum sem kjarnastöðum. Fyrirlesarar eru Rögnvaldur Ólafsson, Halldór Jónsson, Stefanía G. Kristinsdóttir, karl Benediktsson, Hjalti Þór Vignisson, Tómas Grét- ar Gunnarsson, Jón Eðvald Friðriksson, Skúli Sklúason, Siurborg Kr. Hannesdóttir og Helga Jónsdóttir. Fræði Fræðasetur bera saman bækur sínar Frá Stykkishólmi Eftir Fríðu Björk Ingvarsdóttur Eftir að hliðum Feneyja-tvíæringsins var lokiðupp fyrir almenningi ígær hurfu blaðamenn, sýningarstjórar, safnarar og mynd- listarmenn úr borginni og héldu áfram til Basel í Sviss. Þar mun stærsta myndlistarkaupstefna heims standa næstu daga áður en fólk held- ur áfram á rúntinum til Kassel í Þýskalandi á Documenta-sýninguna, er opnuð verður hinn 16. júní og síð- an þaðan til Münster þar sem mikil skúlptúrsýning hefst, er talin er ákvarða að miklu leyti hvaða gildi liggja til grundvallar list í almenn- ingsrýmum á hverjum tíma fyrir sig. Þótt tvíæringurinn í Feneyjum sé einungis annað hvert ár, er hátíðin í Kassel ekki nema fimmta hvert og sú í Münster tíunda hvert, svo það er mikið í lagt núna þegar þær reka hver aðra í sama mánuðinum. Enda kvartaði atvinnufólkið á götum Fen- eyja mikið – reyndar með kampa- vínsglasið í annarri hendi og „von- gole“ í hinni – á milli þess sem það grínaðist í hálfkæringi með það hversu erfitt „dauðadeildir fjöl- miðlanna“ (sem skrifa minning- argreinar um fræga fólkið) myndu eiga ef flugvél færi niður á leið yfir Alpana, pökkuð heimsþekktum nöfn- um valdamikilla einstaklinga. Í íslenska myndlistarheiminum hófst vertíð sumarsins auðvitað með opnun Vatnasafnsins í Stykkishólmi áður en haldið var til Feneyja, en það er einstaklega ánægjulegt að verða vitni að því hvernig sá viðburður hef- ur spurst út í alþjóðlega listheim- inum. Þá þrjá daga sem foropnanir í síðustu viku stóðu var mikið spáð og spekúlerað í hvaða þjóðarskáli væri vænlegastur til vinnings. En þar sem sú nýbreytni hefur verið tekin upp að tilkynna ekki um vinningshafa fyrr en í haust er ljóst að margir skálar munu verða í umræðunni í sumar og móta tilfinningu manna fyrir þróun listanna. Listamenn umræddra skála njóta því fyllilega ávinningsins af þátttöku sinni því mörg dæmi eru um það hvernig verk rjúka upp í verði eftir vel heppnaða sýningu í Feneyjum, auk þess sem þátttakan getur skipt sköpum fyrir frama manna að öðru leyti. Þessi ákvörðun stjórnar tvíæringsins þykir einnig gefa þeim þjóðum, sem eru utan að- alsýningarsvæðisins, meiri mögu- leika, en þær hafa sjaldan unnið til verðlauna. Það vakti nokkra eftirtekt hversu margar konur voru fulltrúar þjóða í ár, ekki síst þar sem Feneyjatvíær- ingurinn hefur ætíð – ekki síst á því tímabili þegar hann var undir list- rænni stjórn Haralds Szeemann – þótt mjög hallur undir karla. Þannig vakti innsetning hinnar frönsku Sophie Calle mikla athygli en hún sýnir í verki sínu viðbrögð og túlkun 107 kvenna við bréfi þar sem elskhugi hennar slítur ástarsam- bandi við hana. Útfærslur og skiln- ingur kvennanna á bréfinu var mjög margvíslegur og afhjúpaði áhuga- vert kort yfir kvenlegt innsæi, til- finningalíf og fjölbreytta, skapandi farvegi. Þýðandi varpar einnig afar athyglisverðu ljósi á innihald bréfs- ins og þá túlkunarmöguleika á mann- legum tilfinningum – hræsni, sjálf- umgleði, einlægni, væntumþykju – sem í því liggja. Meðal þeirra kvenna sem tóku þátt í innsetningunni með Calle eru m.a. Miranda Richardson og Jeanne Moreau, auk kynfræðings og sérfræðings Sameinuðu þjóðanna í kvenréttindinum og siðfræði. Skáli Póllands, sem að þessu sinni var lagður undir risastóran skúlptúr Moniku Sosnowska, var einnig á margra vörum – og reyndar með því besta sem undirrituð sá. Sosnowska vakti fyrst athygli blaðamanns á kaupstefnunni í Basel árið 2001 og síðan í alþjóðlega sýningarskálanum á Arsenale á Feneyjatvíæringnum 2003. Það að hún skuli hafa verið val- in fulltrúi þjóðar sinnar í ár var því afar ánægjulegt, enda stóð verk hennar fyllilega undir væntingum. Járnskúlptúrinn, sem leit út eins og beyglað burðarvirki húsbyggingar, var hvort tveggja í senn óður til mis- heppnaðrar sköpunar og áminning um veikleika innri byggingar sam- félagsins. Óhjákvæmilega vakti sýn- ing eins „óþægasta“ barns breska listheimsins, Tracy Emin, mikla at- hygli en hún sýndi teikningar, vatns- litamyndir og málverk, auk áhrifa- mikilla veggverka sem saumuð eru á rúmfatnað. Verkin eru – eins og hennar er vandi – sprottin úr per- sónulegu lífi hennar; reynslu af því að hafa verið misnotuð sem barn og af fóstureyðingu sem hún fór í fyrir nokkrum árum. Margir hafa haft orð á því hversu kvenpólitísk verk þeirra kvenna sem taka þátt í tvíæringnum eru í ár og Emin lét hafa það eftir sér í bresku pressunni að hún væri sann- færð um að hafa verið valin vegna þess að listhópurinn frægi sem kallar sig Guerilla Girls [górillu/skærulið- astúlkurnar] bentu á þá staðreynd í gjörningi á síðasta tvíæringi að Afg- anar hefðu boðið fleiri konum til þátttöku í Feneyjum en Bretar í gegnum tíðina. Meðal annarra frægra kvenna úr listheiminum, sem áttu verk í þjóðas- kálum, var Isa Genzken í þýska skál- anum, en konur áttu einni stóran þátt í sýningum Tékkóslóvakíu, Rúmeníu, Rússlands og Skotlands. Nokkur umræða skapaðist um þá ákvörðun listrænna stjórnenda bandaríska skálans að sýna verk lát- ins listamanns, Felix Gonzalez- Torres. Tvíæringurinn hefur, með örfáum undantekningum, verið álit- inn vettvangur fyrir það nýjasta og ferskasta í listheimi þjóðanna, og sú ákvörðum að sýna verk löngu látins manns mæltist því misjafnlega fyrir. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að Gonzalez-Torres var langt á und- an sinni samtíð og sýningar á verk- um hans hafa vakið athygli víða um heim undanfarið. Ef til vill ekki síst vegna þess hversu afhjúpandi verk hans eru um rætur samtímalista í hræringum áttunda og níunda ára- tugarins. Rúnti atvinnumannanna í Fen- eyjum er lokið í bili; rauðu og epla- grænu pokarnir, sem dreift var með ítarefni í ár, eru hættir að sjást í stríðum straumum á götum og veit- ingahúsum. Menn eru farnir til Basel á vit markaðsmöguleikanna – næstu stoppistöð á eftir hugmynda- fræðilegu uppbyggingunni sem á sér stað á tvíæringunum. Myndlistarrúnturinn mjakast áfram Pólski skálinn Skúlptúr Moniku Sosnowska. Óður til misheppnaðrar sköp- unar og áminning um veikleika innri byggingar samfélagsins. DAVID Juritz, fiðluleikar í Kon- unglegu bresku fílharmóníusveit- inni, ætlar að ferðast um heim- inn næstu fimm mánuði og halda tónleika í 25 lönd- um í góðgerð- arskyni. Hann stefnir að því að safna 500.000 pund- um, um 63,7 milljónum króna, til styrktar fátækum börnum í heim- inum. Juritz er einn virtasti fiðlu- leikari heims. Hann hóf tónleika- ferðina í Lundúnum í fyrradag, á lestarstöðinni Turnham Green. Fiðluleikur fyrir börnin David Juritz

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.