Morgunblaðið - 11.06.2007, Page 16

Morgunblaðið - 11.06.2007, Page 16
16 MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND Árleg MA-hátíð verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 16. júní Miðapantanir á Netinu til 13. júní - www.bautinn.muna.is - en tekið verður við greiðslu og miðar afhentir í Höllinni 15. og 16. júní kl. 13.00-17.00. Verð á hátíðina er 7.500 kr. nema fyrir eins árs stúdenta, þeir greiða 4.500 kr. Húsið verður opnað kl. 18.00. Fordrykkur frá 18:00-18:45 Hljómsveitin Í svörtum fötum leikur fyrir dansi. Miðar á dansleik verða seldir við innganginn, verð kr. 2.500. Afmælisárgangar eru hvattir til að fjölmenna. Samkvæmisklæðnaður. 25 ára júbílantar MA - stúdentar 1982 - www.ma1982.blog.is FJÖLMENNUM Á MA-HÁTÍÐ Borgarnes | Borgfirðingahátíð fór fram núna um helgina og var því mikið um að vera í Borgarfirði. Borgarbyggð og Skorradalshreppur stóðu í sameiningu að hátíðinni sem orðin er að árvissum viðburði fyrri- hluta júnímánaðar. Að þessu sinni hafði Ungmennasamband Borg- arfjarðar veg og vanda aF dag- skránni og tvinnaðist IsNord- tónlistarhátíðin með skemmtilegum hætti inn í. Forskot var tekið á sæluna þar sem UMSB stóð fyrir göngu á Eld- borg á fimmtudagskvöldinu auk þess sem Stebbi og Eyfi héldu tón- leika á Lyngbrekku. Á föstudeg- inum var örlistahátíð í Safnahúsi Borgarfjarðar þar sem opnuð var ljósmyndasýning Ragnheiðar Stef- ánsdóttur. Bakkabandið lék og söng nokkur lög, vinningshafar í smá- sagnakeppni UMSB lásu sögur sín- ar og Margrét Jóhannsdóttir frá Há- hóli rifjaði upp þjóðsögur úr héraðinu. Um kvöldið fór fram knattspyrnuleikur milli Skallagríms og Álftaness í 3. deild og á Indr- iðastöðum í Skorradal var bað- stofukvöld þar sem tónlistarmenn á vegum IsNord-tónlistarhátíðinnar komu fram. Á laugardeginum var frítt í sund eins og víða annars stað- ar á landinu, og ungmenni frá sund- félögunum stóðu fyrir léttum leikj- um. Fjallganga á Hafnarfjall var á vegum UMSB og eftir hádegið voru ýmis atriði til skemmtunar á íþrótta- svæðinu í Borgarnesi, m.a. útimark- aður, söngatriði leikskólabarna, götuleikhús vinnuskólans, hoppu- kastalar, klifurveggur, kakó og vöfflusala. Á Hvanneyri var handa- vinnusýningin „Heimanmundurinn sem villtist af leið,“ sýning á verkum Ragnheiðar Sigurðardóttur frá Kolsstöðum. Tónleikar voru í Borg- arneskirkju á vegum IsNord- tónlistarhátíðarinnar og kvikmynda- sýning í Óðali. Um kvöldið voru úti- tónleikar í boði Sparisjóðs Mýrasýslu og voru þar ýmsir flytj- endur, bæði heimamenn og aðkomn- ir. Mörgum þykir hápunktur Borg- firðingahátíðar vera morgunmat- urinn sem ætíð er í Skallagrímsgarði á sunnudagsmorgninum. Svo var einnig í ár en matvælafyrirtæki á svæðinu bjóða upp á afurðir sínar. Þá var útimessa kl. 11 að venju. Á Miðfossum fór fram Gæðingakeppni Faxa og var keppt í A-flokki, B- flokki, barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki. Á Hvanneyri var einnig margt um að vera, t.d. gröfufimi, stórbílaleikni auk þess sem stórleikur var á milli Orkuveitu Reykjavíkur og Borgarbyggðar í furðufótbolta. Útitónleikar voru haldnir í Grábrókarhrauni á vegum IsNord. Má segja að þessi fjölskylduhátíð hafi sannarlega skapað sér sess í menningarlífi Borgarfjarðar og nú er hægt að hlakka til næsta árs! Morgunblaðið/Guðrún Vala Sykursætt Candy-flossið er ómiss- andi en verra þegar það fer í hárið– Orri Sveinn Jónsson ásamt syni sín- um Baldri. Ég skal Ung blómarós reynir sig við klifur. Allir í kór Tónlistaratriði frá Leikskólunum - ,,Vertu til er vorið kallar á þig“. Skemmtileg Borgfirðingahátíð LANDIÐ HAFÍSSETRIÐ á Blönduósi var formlega opnað almenningi á laug- ardag en þetta er annað sumarið sem safnið er opið og hafa viðtökur verið góðar. Voru margir við- staddir opnunina á laugardag. Dr. Þór Jakobsson veðurfræð- ingur kom færandi hendi við opn- unarhátíðina en hann hafði með sér brot úr borgarís sem hann ásamt fleirum náði í á Scoresbysundi á Grænlandi. Klakabrotinu var kom- ið fyrir við veðurathugunarstöðina sem er á safninu og er því ætlað að bráðna ofan í svörð Hafíssetursins. Ef menn vilja bera þetta mörg þús- und ára ísbrot augum þá er rétt að hafa hraðan á því hlýtt er í veðri og mun ganga hratt á klakabrotið. Á myndinni standa við klakabrotið þau (f.v.) Erla Gunnarsdóttir, Lúð- vík Blöndal, Þór Jakobsson, Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri á Blönduósi og Jóhanna Jóhann- esdóttir, eiginkona Þórs Jak- obssonar. Erla Gunnarsdóttir er for- stöðumaður Hafíssetursins á Blönduósi og verður það opið alla daga í sumar frá kl. 11-17. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Búið að opna hafíssetrið á Blönduósi Grímsey | Séra Magnús Gunnarsson prestur á Dalvík lagði á sig sjö tíma siglingu til að hafa barnamessu í Miðgarðakirkju þar sem væntanleg fermingarbörn aðstoðuðu við mess- una. Sólin skein glatt og litlu börnin lögðu frá sér leikföngin og héldu til kirkju til að heyra Guðs orð. Virki- lega gleðileg stund þar sem litla fólkið lifði sig inn í boðskapinn eins og börnum einum er lagið. Eftir góða athöfn og spjall við væntanleg fermingarbörn sigldi presturinn séra Magnús heim á ný. Morgunblaðið/Helga Mattína Sjö tíma sigling vegna barna- messu og ferm- ingarfræðslu ÞAÐ var þekkt hér á Blönduósi í lok tuttugustu ald- ar að hún Ingibjörg Steinþórsdóttir, löngum kennd við skólahúsið í Þingi, hefði ketti sína í bandi og voru þær Ingibjörg og kötturinn hennar hún Dísa vel þekktar í samfélagi A-Húnvetninga. Að hafa kött í bandi var í huga Ingibjargar ill nauðsyn því heyrnarskertur köttur kann ekki að varast hættur umhverfisins. Hún Eva Guðbjartsdóttir og kettlingur hennar urðu á vegi fréttaritara og rifjaðist þá upp í huga hans það sem áður er ritað og frá hefur verið sagt í Morgunblaðinu í október 1993. Nú fjórtán árum seinna endurtekur sagan sig og aftur sést köttur í bandi norður í landi. Þessi uppeldisaðferð og eftirlit með köttum er fuglum himinsins mikið gleðiefni og ef fleiri fylgdu þessu fordæmi þessarar ungu konu þá kæmust að minnsta kosti fleiri þrastarungar á legg. Köttur í bandi norður í landi Morgunblaðið/Jón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.