Morgunblaðið - 11.06.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 11.06.2007, Qupperneq 19
gæludýr MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 19 ÁLAFOSSHLAUPIÐ 2007 12. júní Hlaupið verður frá Álafossi um austursvæði Mosfellsbæjar. Vegalengdir verða tvær: 4 km = hlaup með ratleik (sveitir) kl. 19:15 og 9 km = hlaup kl. 19:00 - tímataka er í 9 km hlaupi. Skráning og verð: Skráning hefst tímanlega við Álafosskvosina í Mosfellsbæ kl. 18:00. Búningsaðstaða er við sundlaug Varmár (Íþróttamiðstöð) frá kl. 18:00. Fæðingarár 1994 og eldri = 1.000 kr. Fæðingarár 1995 og yngri = 500 kr. Fjölskyldur greiða = 2.000 kr. Verðlaun og annað: Allir sem ljúka hlaupi fá sérmerktan pening, hlaupanúmer eru til útdráttar og verðlaun verða veitt. Verslun og menning Álafoss kvosar býður ykkur velkomin fyrir og eftir hlaup. Upplýsingar gefur Tryggvi Jónsson í síma 553 9301 Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is E inu sinni var amma mín úti að labba með Astró í bandi. Hann sá þá allt í einu fugl og tók á rás með þeim afleiðingum að hún amma mín fór úr axlarlið og þurfti að keyra sjálfa sig svona á sig komna upp á slysadeild. En Astró skamm- aðist sín voðalega mikið eftir á, enda er hann skynsamur hundur. Hann vissi bara ekkert hvað hann var að gera, greyið,“ segir Manon Anna Victoria Robertet, sem verð- ur tíu ára í sumar og var að ljúka 4. bekk í Vatnsendaskóla. Manon var mikið búin að tuða um að fá hund þegar hún allt í einu fékk Astró í átta ára afmæl- isgjöf fyrir tæpum tveimur árum, en þá kom Astró, sem nefndur er eftir stjörnu, til hennar aðeins tveggja vikna gamall úr sveit og öllu minni en hann er í dag. „Ég var svo glöð því þetta var mín heitasta ósk að fá hund. Mamma mín fór með hann á hlýðn- inámskeið og síðan hefur Astró verið ákaflega kurteis hundur og veit nákvæmlega hvað hann má og hvað ekki. Hann geltir að skugga- legum mönnum og vaktar húsið okkar nokkuð vel, en geltir svo líka af kæti þegar hann sér ætt- ingja mína og vinkonur.“ Gaman með bolta og bein „Astro er blanda af bordier- collier og íslenskum fjárhundi og hefur ljúfa lund. Honum þykir gott að kúra í körfunni sinni á kvöldin í sjónvarpsherberginu og er mikil kelirófa. Honum hundleiðist ef hann er skilinn eftir aleinn heima og vill miklu frekar vera í bílskott- inu ef við þurfum að bregða okkur af bæ. Á milli dúra þarf hann að hreyfa sig nokkuð reglulega yfir daginn. Við förum með hann út að labba þrisvar til fjórum sinnum á dag og svo finnst honum alveg svakalega gaman að leika sér með bolta og plastbein. Þó hann eigi fullt af dóti, er hann afar nískur á það og gæti glefsað óvart ef ein- hver vogar sér að taka dótið hans þó hann týni sjálfur stundum dótinu sínu úti. Astró þykir ein- staklega góður varnarhundur þeg- ar hann er úti á fótboltavelli með okkur krökkunum enda má segja að hann sé boltasjúkur. Svo finnst honum líka gaman að reyna sig í reiptogi og í eltingaleik,“ segir Ma- non. Veikur fyrir drullupollum Astró fékk að borða tvisvar á dag á meðan hann var hvolpur, en núna hefur málsverðum verið fækkað niður í einn eftir að hann fullorðnaðist. Matseðillinn sam- anstendur af þurrum hundamat, sem bragðbættur er með AB-mjólk á morgnana til að mýkja mallakút- inn. Manon segir að Astró sé svolítið veikur fyrir drullupollum og kom- ist hann í tæri við þá sé fjandinn laus því þá velti hann sér upp úr þeim. „Einu sinni hvarf hann til dæmis og kom svo heim drullugur upp fyrir haus, og það á sjálfum afmælisdeginum sínum þegar hann varð tveggja ára, 11. maí sl. Hann hafði fengið sér göngutúr niður í Elliðaárdal þar sem hann fékk ær- lega drullu-útrás. Það tók okkur heilan klukkutíma að smúla hann með garðslöngunni þegar hann skilaði sér heim. Ég myndi sko alls ekki vilja missa Astró og er harðákveðin í að eiga alltaf hund. Reyndar myndi ég alveg vilja eiga hest líka, en það er óneitanlega talsvert meiri ábyrgð sem fylgir því. Þegar ég verð stór, finnst mér svolítið freistandi að gerast sveitakona og hafa fullt af dýrum í kringum mig,“ segir Manon að lokum. „Astró er boltasjúkur“ Morgunblaðið/G.Rúnar Prakkari Astró er dálítið veikur fyrir drullupollum. Vinir Manon Anna Victoria Robertet var búin að tuða um að fá hund þegar hún allt í einu fékk Astró í átta ára afmælisgjöf fyrir tæpum tveimur árum. tali fjálglega um nauðsyn þess að draga úr loftmeng- un, m.a. með bætt- um almennings- samgöngum, virðast þeir haldnir þeirri meinloku að það sé brýnasta verkefni þeirra í umhverfismálum að vernda náttúruna frá fuglum. Þessi þráhyggja er óskiljanleg. x x x Víkverji gladdistþegar hann las stefnuyfirlýsingu nýju rík- isstjórnarinnar, sem boðar stór- átak í samgöngumálum og aukna áherslu á umferðaröryggi og al- menningssamgöngur. Stjórnin hyggst „beita sér sérstaklega fyrir úrbótum á samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins“. Vonandi stendur hún við þetta loforð og hefur vit fyrir meirihluta borg- arstjórnarinnar. x x x Borgarstjórnin stendur sig þóágætlega á öðrum sviðum, til að mynda menntamálunum. Dóttir Víkverja greindist með ódæmigerða einhverfu og Asper- ger-heilkenni fyrir rúmu ári og hann er mjög ánægður með þá þjónustu sem hún hefur fengið í skólanum hennar, Árbæjarskóla. Kennarar og aðrir starfsmenn skólans hafa veitt stúlkunni og fjölskyldu hennar mikinn stuðn- ing, t.a.m. hefur stúlkan notið góðs af aðstoð þroskaþjálfara og fylgst er með henni í frímín- útum. Vinnubrögð starfsfólks skólans einkennast af mikilli fag- mennsku og alúð og eru til fyr- irmyndar. Rúmt ár er núliðið frá því að sveitarstjórnakosn- ingar fóru fram með tilheyrandi bjartsýni stjórn- málamanna sem sáu tækifæri í hverju horni og lofuðu öllu fögru. Allir flokkarnir í Reykjavík lögðu þá meðal annars áherslu á mikilvægi þess að efla al- menningssam- göngur í borginni. Þáverandi meiri- hluti í borgarstjórn hafði unnið stórvirki með nýju leiðakerfi strætisvagna sem bætti þjónustuna til muna fyrir allan þorra farþeganna. Fjölmiðlar gerðu lítið úr þessu leiðakerfi með því að elta uppi kverúlanta, sem fundu því auðvit- að allt til foráttu. Fulltrúar þá- verandi minnihluta tóku undir þetta stagl og töluðu fjálglega um hvernig þeir hygðust efla al- menningssamgöngurnar. Nú eru þessir sömu menn við stjórnvölinn og vinna hörðum höndum að því að efla almenn- ingssamgöngurnar með því að skerða þjónustuna. x x x Ráðamönnunum í Reykjavíkvirðist vera sérstaklega í nöp við Árbæinga. Árbærinn og Selásinn eru t.a.m. einu stóru hverfin sem eru ekki með beina strætisvagnatengingu við Kringl- una og gamla miðbæinn. Árbæ- ingar þurfa því að taka tvo stræt- isvagna til að komast í stóra skóla og vinnustaði á há- skólasvæðinu, landspítalasvæðinu og miðborginni. Þótt ráðamennirnir í borginni           víkverji skrifar | vikverji@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.