Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 25 Samúðar og útfaraskreytingar Bæjarhrauni 2 • sími 565 0300 Hafnarfirði ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, GUÐRÚN RÓSA SIGURÐARDÓTTIR frá Hælavík, Löngubrekku 47, Kópavogi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn 31. maí, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 11. júní kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Sunnuhlíðar. Fyrir hönd aðstandenda: Karl Hjartarson , Ragnheiður Hrefna Gunnarsdóttir, Ásdís Emilía Björgvinsdóttir, Lilja Hjartardóttir, Sigrún Hjartardóttir Guðmundur Hjartarson, Þórhalla Jónsdóttir, Stefanía Hjartardóttir, Helgi Hrafnsson, Gunnhildur Hjartardóttir, Ingibjörg Hjartardóttir, Skarphéðinn Þór Hjartarson, Guðrún Sigríður Loftsdóttir, Fríða Á. Sigurðardóttir, Gunnar Ásgeirsson, Guðný Sigurðardóttir, Hallbjörn Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGILEIF BRYNDÍS HALLGRÍMSDÓTTIR, Lynghaga 13, Reykjavík, lést 29. maí að hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 12. júní kl. 13.00. Hallgrímur Gunnarsson, Steinunn Helga Jónsdóttir, Gunnar Snorri Gunnarsson, Áslaug Gunnarsdóttir, Þór Þorláksson, og barnabörn ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANHVÍT ÓLAFSDÓTTIR frá Suðureyri við Súgandafjörð, sem andaðist 25. maí á heimili sínu, Hjúkrunar- heimilinu Sóltúni í Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju 12. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktar- félag vangefinna. Gunnar Pálsson, Hafdís Pálmadóttir, Friðbert Pálsson, Fanney Gísladóttir, Leó Pálsson, Ingunn Þorleifsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ólöf Ólafsdóttirfæddist 19. júlí 1921 að Syðra-Velli í Gaulverjabæja- hreppi. Hún lést á Gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 2. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Margrét Steins- dóttir, f. 17.5. 1890, d. 18.12. 1970, og Ólafur Sveinsson, f. 15.1.1889, d. 17.7. 1976. Systkini Ólafar eru Sigursteinn f. 6.8. 1914, Guðrún f. 30.7. 1915, Sveinbjörn, f. 17.10. 1916, Ólafur, f. 30.10. 1917, d. 12.7. 2005, Ingvar, f. 23.6. 1919, Gísli, f. 25.5. 1920 (dó nokkurra vikna gam- all), Guðfinna, f. 19.7. 1922, Krist- ján, f. 4.8. 1923, Soffía, f. 8.8. 1924, Margrét, f. 29.9. 1925, Sigurður, f. 19.2. 1928, Gísli (yngri), f. 1.4. 1929, d. 2.5. 1991, Aðalheiður, f. 4.9. 1930, Jón, f. 24.9. 1931 og Helgi, f. 2.8. 1934. Að Ólöfu genginni eru 12 systkina hennar á lífi. Ólöf kvæntist í júní 1941 fyrri manni sínum Ingólfi Pálssyni, f. og b) Ólöf , f. 28.10. 1997. Ólöf ólst upp á Syðra-Velli í stórum systkinahóp við öll venjuleg sveita- og heimilisstörf eins og tíðk- aðist í þá daga. Hún hleypti heim- draganum skömmu eftir fermingu og fór til Reykjavíkur í vist og var þar virkur þátttakandi í starfi KFUM &K á þeim tíma. Hún réðst í vist til sæmd- arhjónanna sr. Árelíusar Níelssonar og konu hans en hann hafði þá tekið við Eyrarbakkaprestakalli ásamt Stokkseyri og Gaulverjabæ. Sama ár og Ólöf kvæntist Krist- mundi hófu þau búskap á Eyr- arbakka og bjuggu þar í 9 ár, lengst af í Skjaldbreið. Fluttu þaðan í Kaldaðarnes og bjuggu þar einn vetur. Á fardögum 1954 fluttu þau að Hamri í Gaulverjabæjarhreppi þar sem þau bjuggu blönduðu sveitabúi allt til ársins 1963 en þá fluttu þau á Selfoss og bjuggu lengst af á Tryggvagötu 12. Ólöf vann öll algeng sveita- og húsmóð- urstörf þar til hún fluttist á Selfoss. Þá hóf hún störf við Sjúkrahús Suð- urlands í einhvern tíma og fór síðan yfir á Ljósheima þar sem hún vann þar til hún varð 70 ára, eða í tæpa 3 áratugi. Útför Ólafar verður gerð frá Sel- fosskirkju í dag, 11. júní, og hefst athöfnin kl. 13.30. 10.8. 1914. Hann fórst í sjóslysi á Stokkseyri í október sama ár. Seinni manni sínum kvæntist hún 11.11. 1944, Kristmundi Sig- fússyni frá Egilstað- arkoti, Villingaholts- hreppi, f. 12.6. 1909, d. 16.5. 1983. Þau eignuðust 3 syni. 1) Ingólf, f. 21.6. 1944, kvæntur Elínu Magn- úsdóttir, f. 4.8. 1944. Dóttir þeirra Svava Kristín, f. 17.2. 1963. Börn hennar a) Elín Edda, f. 17.8. 1989 og b) Jóhanna, f. 30.8. 1993. Sambýlismaður Svövu er Ásgeir Sigurvaldason 2) Eyjólf, f. 12.8. 1951, kvæntur Jóhönnu Þorsteins- dóttur, f. 19.2. 1956. Börn þeirra eru a) Óli Rúnar, f. 21.2. 1977, kvæntur Ragnhildi Hauksdóttur, f. 9.7. 1976. Börn þeirra eru Jasmín Ásta og Eyjólfur Snær. b) Unnur, f. 8.11. 1984, unnusti Ástmar Karl Steinarsson. 3) Ólaf Grétar, f. 3.2. 1958, kvæntur Halldóru Ósk- arsdóttur, f. 10.6. 1962. Börn þeirra eru a) Kristmundur, f. 28.11. 1990 Elsku mamma. Það er einkennileg tilfinning að vera að skrifa um þig minningarorð. Þig, sem varst alltaf svo hress og eng- an hefði grunað að þú ættir svona stutt eftir ólifað þegar við Ella heim- sóttum þig um miðjan maí í nýju íbúð- ina í Grænumörkinni sem þú hafðir flutt inn í fyrir rúmum tveim árum og hafðir allt til alls, meira að segja upp- þvottavél sem var þér alveg nýtt. Það hljómar grimmt, en það er víst það eina sem er öruggt í lífinu er að við kveðjum öll þennan heim og höldum á vit eilífðarinnar, enginn veit bara hve- nær nema Guð einn. Fyrstu minning- ar mínar um þig eru frá Eyrarbakka þegar ég sofnaði með handklæði sem kodda á eldhúsgólfinu í Skjaldbreið. Þú skammaðir mig ekki mikið þegar ég kom hundblautur úr fjörunni nokkrum sinnum á dag. Man þegar þú varst að kenna mér góðar kvöld- bænir sem trufluðust af vélahljóðum umhverfisins. Mér er líka í fersku minni að þú rakaðir Villa gamla á Ásabergi í nokkur ár eftir að hann hætti að geta það sjálfur. Það var eitt af fjölmörgum góðum göfugum verk- um sem þú vannst og varst ekki að miklast af. Ég á góðar minningar úr sveitinni, þar varstu á heimavelli. Ég hefði ekki viljað missa af þeim tíma þegar ég fékk tilsögn þína í sveita- störfum, bæði í útistörfum og einnig meðhöndlun matvæla að gömlum sið. Tæknin var rétt handan við hornið og ég fékk aðeins innsýn í hvernig grasið var slegið með orfi og ljá og rakað með hrífu, líkt og gengnar kynslóðir höfðu gert. Fátt færði okkur meiri gleði en að vakna að morgni í það sem pabbi kallaði „brakandi þerri“ og sjá fram á að hægt væri að koma heyi í hlöðu og allir voru ánægðir að kvöldi þrátt fyrir blöðrur í lófum eftir rakst- urinn. Ég man líka að þú varst ánægð með nýja húsið á Hamri þegar við fluttum inn haustið ’57 eftir að hafa verið í súðarbaðstofu tvo vetur. Hef á tilfinningunni að þér hafi alltaf liðið vel á Tryggvagötunni, með fínan garð sem þú notaðir óspart og ræktaðir matjurtir og blóm. Þú slóst ekki slöku við í eldhúsinu, því meðfram vinnu lengst af var nóg að gera að gefa öll- um að borða, sem var nokkuð oft, því að ekki var óalgengt að matur/kaffi væri á borðum fimm sinnum á dag og ég man ekki eftir neinum kvörtunar- tón. Það væri synd að minnast ekki á allar hannyrðirnar þínar þó að þú haf- ir ekki viljað gera mikið úr þeim. Þær spanna allt frá stórum veggmyndum niður í smæstu vettlinga og allt þar á milli. Þú varst ótrúlega dugleg að ferðast með félögum eldri borgara og erlendis, nú síðast á Spáni fyrir þrem árum þar sem þú varst hress og kát. Það sem lifir lengst og er hlýjast í minningunni um þig er öll sú um- hyggja sem þú sýndir okkur öllum og hvað þú gerðir þitt til að fjölskyldan ætti góðar stundir saman. Við sem eftir lifum söknum þín og þökkum þér fyrir þitt líf, það gaf okkur öllum bjartar minningar um góða konu. Minningin um þig mun lifa. Ingólfur. Ólöf Ólafsdóttir  Fleiri minningargreinar um Ólöfu Ólafsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Aðalbjörn Stef-ánsson fæddist í Reykjavík 22. júní 1955. Hann lést á líknardeild LSH í Kópavogi 31. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Stefán Aðalbjörns- son, f. 20. júlí 1918, d. 26. september 1991 og Sigurlaug Guðmundsdóttir, f. 10. janúar 1928, d. 10. maí 1977. Systk- ini Aðalbjörns eru Fanney, f. 6. febrúar 1946, Laufey Ninna, f. 22. maí 1950, Eygló, f. 7. júní 1952, Aðalbjörn, f. 15. febrúar 1954, d. 28. febrúar 1954, Anna 1975, sambýlismaður Jóhann Þór Sigfússon, þau eiga tvö börn, Theo- dór Bjarka og Tinnu Björgu. Sam- an áttu þau soninn Stefán, f. 25. febrúar 1981, sambýliskona Helga Irma Sigurbjörnsdóttir. Sonur Stefáns og Unnar Svanborgar Árnadóttur er Viktor Ísar. Aðalbjörn ólst upp í Árbænum og flutti síðan í gamla hverfið sitt aftur 1994. Aðalbjörn fór snemma út á vinnumarkaðinn, meðal annars stundaði hann sjómennsku eða allt til ársins 1983. 16. ára fór hann á Bakkafoss svo ekki sé minnst á Gullfoss sem hann var mjög stoltur af. Einnig vann hann hin ýmsu störf í landi, lengst af starfaði hann sem sendibílstjóri hjá Bílanausti (N1) eða allt til dauðadags. Aðalbjörn verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Björg, f. 16. júlí 1957, Guðmundur Helgi, f. 20. janúar 1961 og Guðni Falur, f. 5. febrúar 1963. Eiginkona Að- albjörns er Sig- urbjörg Ernudóttir og hófu þau búskap 1979 á Þórsgötu í Reykjavík og giftu sig 31. desember 1985. Fyrir átti hann soninn Einar Stefán, f. 14. júlí. 1975, sambýlis- kona Signý Ingva- dóttir, þau eiga þrjú börn, Alexand- er Alvin, Óttar Má og Nínu Ingibjörgu. Fyrir átti Sigurbjörg dótturina Ernu Kristínu, f. 29. apríl Kveðja frá eiginkonu Þú gafst mér gjöf, gjöf hamingjunnar á hverjum degi. Þú gafst mér ást þína án skilyrða. Með hjarta mitt í þinni umsjá, mun ég aldrei villast. Né velta fyrir mér, hvað ást er í raun og veru. Því ég veit núna að það þýðir svo margt. Skilningur og umhyggja í gegnum bæði góðu og slæmu dagana. Að deila tilfinningunum hvort sem þær eru í gleði eða sorg. Að vera til staðar fyrir hvort annað í gegnum hlátur eða grát. Að standa við hliðina á hvort öðru til æviloka. Mín eina ósk er að vera nærri þér ástin mín. Á hverjum degi bið ég þess, að þú munir ætíð, hver mín tilfinning er til þín. (Höf. ók.) Þín Björg. Elsku pabbi minn. Þegar þú kynntist mömmu var ég aðeins þriggja ára gömul og þú tókst mér eins og þinni dóttur, gerðir allt með mér sem mig lang- aði til, sérstaklega að fara niður að tjörn og út á róló. Árið 1995 var ég í Boston, þá hittumst við í Flórída og þar héld- um við saman upp á afmælin okk- ar, þú 40 ára og ég 20 ára, þið mamma eltuð uppi alla skemmti- garðana sem hægt var að fara í, bara fyrir okkur litlu börnin ykkar. Sérstaklega þótti þér gaman að fara með mömmu í mínígolf og var það líka frekar fyndið þar sem hún hitti aldrei kúlunni ofan í, alveg sama hversu nálægt hún var, þessi ferð var sú skemmtilegasta sem ég hef upplifað með fjölskyldu minni. Ég man svo vel eftir því þegar Theodór fæddist, þá biðuð þið Stefán eftir að fá að sjá litla auga- steininn. Ég gleymi aldrei hvað þú varst ánægður þegar þú fékkst hann í fangið og kallaðir hann mos- ann þinn og ekki að ástæðulausu, svo hárprúður og fallegur drengur. Þú varst ekki bara afi hans held- ur líka besti vinur, og segja má að þú hafir gengið honum í föður stað. Hann var ekki orðinn margra vikna gamall þegar þú skráðir hann í Arsenalklúbbinn og klæddir hann í rétta búninginn og horfðir á leiki með hann í fanginu enda er hann búinn að vera Arsenal-dreng- ur síðan. Ég antisportistinn, eins og þú kallaðir mig oft, átti aldrei von á því að ég færi með ykkur á völlinn en það tók þig ekki langan tíma að breyta því og nú fer ég á völlinn með börnin mín eins og ég hafi aldrei gert neitt annað. Þegar voraði var Theodór klæddur í appelsínugulan galla og rölt á völlinn allt sumarið. Þér þótti það mjög sárt þegar ég tók þá ákvörðun að flytja til Noregs með litla augasteininn þinn, þið fylgduð okkur upp á flugvöll og var sú kveðjustund alveg hrikalega erfið og mamma þurfti að keyra í bæinn vegna þess að þú grést svo mikið á leiðinni heim. Það var allt- af gaman að fá ykkur í heimsók- n.Og Theodór kom líka oft til ykk- ar á sumrin og var í langan tíma í senn. Pabbi, svo varst þú svo ánægður þegar við fluttum aftur heim. Þegar ég kynntist honum Jóa mínum þá var hann pabbi minn mjög ánægður. Og svo þegar ég sagði honum að ég væri ólétt og gengi með stelpu þá var hann svo glaður að fá litla prinsessu til að dúlla sér með. Svo fæðist litla Tinna Björg 24. janúar og voruð þið mamma og Theodór Bjarki ekki lengi að koma og skoða litlu snúlluna. Verst þykir mér að þú hafir ekki fengið að njóta hennar lengur því hún var aðeins tveggja vikna þegar þú veiktist, mikið get- ur lífið verið ósanngjarnt. Ég á eft- ir að sakna þess að síminn minn hringi kl. 7 og þú segir, ertu vökn- uð? Kveðjustundir eru mér slæmar með sanni eru þær. Mér sárnar þig að kveðja því þú ert mér svo kær. Allt annað vil ég gera en að þurfa að kveðja þig ég læt oft sem þú sért nærri það er smá huggun fyrir mig. Þegar ég horfi á eftir þér fara þá verð ég svo rosa sár ég get ekki þig kvatt án þess að komi tár (Katrín Ruth) Þú ert ljósið í lífi mínu. Ég mun ávallt elska þig Þín dóttir Erna Kristín. Aðalbjörn Stefánsson  Fleiri minningargreinar um Að- albjörn Stefánsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.