Morgunblaðið - 11.06.2007, Side 29

Morgunblaðið - 11.06.2007, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 29 pennavinir ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30. Viðtalstími hjúkrunarfræðings frá kl. 9-11. Boccia kl. 10. Félagsvist kl. 14. Árskógar 4 | Bað kl. 8-16, handavinna kl. 9-12, smíði/útskurður kl. 9-16.30, félagsvist kl. 13.30. Dalbraut 18-20 | Brids alla mánudaga í sumar frá kl. 13 í félagsmiðstöðinni að Dalbraut 18-20. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gull- smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10- 11.30. S. 554 1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 13-14. Félagsvist er spiluð í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids spilað kl. 13. Kaffitár með ívafi kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 9, leið- beinandi verður til hádegis. Lomber kl. 13. Canasta kl. 13.15. Heitt á könnunni og heimabakað meðlæti til kl. 16. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9.05 postu- línsmálun, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 handavinna, kl. 20.30 félagsvist FEBK. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Æfing í Ás- garði kl. 9 fyrir landsmót kvenna. Garðaberg opið kl. 12.30-15. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar. Frá hádegi spilasalur opinn. Á morgun kl. 13.30 „Mannrækt trjárækt“ gróðursetning í Gæða- reit, eldri borgarar og leikskólabörn, á eftir er kaffi- húsastemning í Hraunborg. Allir velkomnir. S. 575 7720. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin. Kl. 9- 16.30 opin vinnustofa. Kl. 10-11 bænastund. Kl. 12- 12.30 hádegismatur. Kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Böð- un fyrir hádegi. Frjáls spilamennska kl. 13-16. Fóta- aðgerðir s. 588 2320. Hæðargarður 31 | Allir velkomnir. Morgunganga alla morgna kl. 9. Gönguferðir í stað leikfiminnar. Púttvöllur opnaður bráðlega. Félagsvist á mánu- dögum. Ferð í Strandarkirkju 14. júní. S. 568 3132, asdis.skuladottir@reykjavik.is. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverks- og bóka- stofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Sumarferð um Reykjavík kl. 13. Uppl. í síma 552 4161. Allir vel- komnir. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 boccia, Sigurrós (júní). Kl. 11-12 leikfimi, Janick (júní-ágúst). Kl. 11.45- 12.45 hádegisverður. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, boccia kl. 10, hárgreiðslu- og fóta- aðgerðarstofur opnar frá kl. 9, handavinnustofa opin allan daginn, frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 félagsráðgjafi (annan hvern mánudag til 18. júní). Kl. 13 leikfimi (Bergþór). Kl. 14 boccia (Bergþór). Kirkjustarf Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með morgunsöng á Dalbraut 27, kl. 9.30 í dag. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Áskirkja Pennavinur | Ungur Sviss- lendingur sem er mikill áhugamaður um Ísland óskar eftir íslenskum pennavini. Vitus Castelberg Aspermonstr. 28 CH-7000 Chur Switzerland MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynn- ingu og mynd á netfangið ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja lið- inn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. dagbók Í dag er mánudagur 11. júní, 162. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum. (Sálm. 16, 5.) Tónlist Akureyrarkirkja | Sænskur kirkjukór frá Örgryte kl. 20. Kór- inn samanstendur af 25 söngv- urum í blönduðum röddum og flytur efni eftir J.S. Bach og A. Söderman. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Frítt inn. TÁKNRÆNAR vatnslitamyndir og raunsæjar ljósmyndir eru á sýningu Hlífar Ásgríms- dóttur sem verður opnuð á Mokka kaffi í dag. Vatnslitamyndirnar fjalla á táknrænan hátt um „plastískan sköpunarkraft náttúrunnar“, jarðtengd form renna saman við lausbeislaða orku þannig að úr verður táknræn sköpun, að sögn listakonunnar. Líta ber á verkin sem einskonar hugsjónastefnu. Ljósmyndirnar, aftur á móti, sýna umbreytingu plasts sem skilið hefur verið eftir á víða- vangi umvafið gróðri og náttúru.. Sýningin á Mokka stendur til 9. ágúst. Hlíf Ásgrímsdóttir opnar í dag sýningu á verkum sínum á Mokka kaffi Plastískur sköpunarkraftur ÚT ER komin hjá Máli og menningu bókin Horn- strandir – Gengið um eyði- byggðir frá Snæfjalla- strönd til Ingólfsfjarðar, eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson, blaða- og útivistarmann. Áður hefur Páll sent frá sér ýmsar ferða- og göngu- leiðabækur, s.s. bækurnar Bíll og bakpoki, Hálend- ishandbókin, Útivist- arbókin og Gönguleiðir. Hornstrandir eru einstæð og svipmikil náttúruperla sem verður flestum sem þangað koma afar hjart- fólgin. Þar er landslagið ægifagurt og harð- neskjulegt og ýmsar nátt- úrumyndir þar sannkallað furðuverk sem heillað hafa kynslóðir um aldir, segir í fréttatilkynningu. Í bókinni er fjallað um allar helstu gönguleiðirnar á svæðinu og gefin ráð um hvaðeina sem að ferðalag- inu lýtur. Gönguleiðir á Hornströndum Ekki Reyðarfjörður ÞAU tæknilegu mistök urðu við birt- ingu á grein um formlega opnun nýs álvers á Reyðarfirði í Morg- unblaðinu á laugardag að mynd af Seyðisfirði birtist í stað Reyð- arfjarðar. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTTING Vantaði kafla í viðtal við Margréti Kjart- ansdóttur Í innlitsviðtali við Margréti Kjart- ansdóttur eiganda Marimekko sl. laugardag í Dag- legu lífi féll kafli úr viðtalinu vegna tæknilegra mis- taka. Beðist er vel- virðingar á mistök- unum og kaflinn birtur hér. En hver er Margrét Kjartansdóttir? Þeir eru ófáir sem þekkja hana sem Margréti í Míru og nú í seinni tíð sem Margréti í Marimekko, enda rekur hún Marimekko-verslunina á Laugavegi. Míru rak hún hins vegar í ein sjö ár og seldi þar húsgögn sem hún flutti inn frá Austurlöndum í gá- mavís, t.d. einn gám á viku eða 52 gáma alls árið 2000! Nú handfjallar hún léttari og fínlegri hluti en hús- gögnin voru, hannaða og framleidda af frændum okkar Finnum. „Ég hef búið í Skuggahverfinu í tvö ár og er afskaplega ánægð. Lengi bjó ég í blokk Sólheimunum og líkaði vel. Síðar flutti ég í raðhús í Vatnsendalandi, rétt við Elliðavatn- ið. Þar var garðurinn alveg að ganga af mér dauðri, hann var stór, gróð- urinn mikill og vinnan gífurleg. Mér fannst ég vera komin hringinn þegar ég flutti hingað enda þarf ég ekki á neinni jarðtengingu að halda.“ Hurðirnar þvælast ekki fyrir Íbúðin er um 120 fermetrar og öll opin, nema baðherbergið. Sams kon- ar íbúðum í húsinu er skipt í þrjú herbergi, stofu og eldhús, en Margét fékk Guðbjörgu Magnúsdóttur inn- anhúsarkitekt til að hanna skipulag og innréttingar. Eldhúsið er til hægri þegar komið er inn í íbúðina og baðherbergið til vinstri og fyrir því er eina hurðin í íbúðinni fyrir ut- an hurðina fram á ganginn Margrét Kjartansdóttir ÞING Verkstjórasambands Íslands var haldið á Ísafirði 31. maí til 2. júní. Í ályktun skorar þingið á Alþingi að breyta skattalögum þannig að skattheimta af lífeyris- bótum verði 10% og leggja þannig sitt af mörkum til að bæta afkomu aldraðra. Fleiri ályktanir voru sam- þykktar, meðal annars er skorað á Alþingi að endur- skoða lög um vinnuslys og skaðabótarétt. Þá er skorað á ráðamenn þjóðarinnar að sjá til þess að borgurum verði ekki mismunað í heil- brigðiskerfinu eftir aldri. Skattheimta af lífeyr- isbótum verði 10% STOFNFUNDUR Íslenska mats- fræðifélagsins (Icelandic Evalua- tion Association) var haldinn 15. maí sl. Félagið er fagfélag há- skólamenntaðra matsfræðinga á Íslandi. Hlutverk félagsins er með- al annars að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um matsrann- sóknir sem og að kynna matsfræð- in og stuðla að vexti og viðgangi þeirra á Íslandi. Í aðal- og varastjórn félagsins voru kjörnir: Björk Ólafsdóttir, stundakennari við Háskóla Ís- lands, Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi, Halldóra Pétursdóttir, leikskólastjóri, Laufskálum, Sigur- borg Matthíasdóttir, konrektor Menntaskólans við Hamrahlíð, Ólafur H. Jóhannsson, aðjúnkt við Kennaraháskóla Íslands, Sigríður Sigurðardóttir, deildarstjóri Vatnsendaskóla og Oddný Harð- ardóttir, bæjarstjóri í Garði. Stofnaðild að félaginu verður opin til 15. júní. Íslenska matsfræði- félagið stofnað FRÉTTIR Samtök áhugafólks um atferl-isgreiningu á Íslandi (SATÍS)og Greiningar- og ráðgjaf-arstöð ríkisins hafa boðið hing- að til lands dr. Shahla Ala’i-Rosales , Ph.D., BCBA sem er sérfræðingur á sviði atferlismeðferðar á einhverfu. Hún mun halda opinn fyrirlestur í Salnum 19. júní kl. 14 og námskeið í Gerðubergi 20. júní kl. 9 til 16. Bætt tengsl við barnið Kristín Guðmundsdóttir er í und- irbúningshópi SATÍS og fyrrverandi nemandi dr. Rosales: „Vandamál við fé- lagsleg samskipti eru ein stærsta hindr- unin sem einstaklingar með einhverfu og fjölskyldur þeirra þurfa að kljást við. Einhverfa lýsir sér meðal annars í erf- iðleikum með tjáningu og tal, og getur það stundum leitt af sér hegðunarvanda þar sem barnið notar óæskilega hegðun til að tjá sig,“ segir Kristín. „Dr. Rosa- les er með doktorsgráðu í þroskasál- fræði og hefur í yfir 20 ár rannsakað at- ferlismeðferð fyrir börn með einhverfu og ætlar á námskeiðinu 20. júní að kenna foreldrum og fagfólki að efla tengslin við börnin.“ Sem vísindagrein skoðar atferlis- greining lögmál hegðunar og tengsl við umhverfið: „Á þeim grundvelli kennir dr. Rosales leiðir til að efla þroska barnanna og kenna þeim mikilvæga færni,“ segir Kristín. „Hún leggur mikla áherslu á að nýta þau tækifæri sem skapast í daglegu lífi til að kenna börn- unum, og líka að bregðast rétt við þegar börnin reyna að tjá sig.“ Fyrirlesturinn í Salnum 19. júní hefur yfirskriftina Siðfræði snemmtækrar íhlutunar: „Snemmtæk íhlutun skiptir mjög miklu máli um árangur meðferðar hjá einhverfum. Í fyrirlestrinum fjallar dr. Rosales um mikilvægi þess að þeir sem annast meðferð barnsins beri sig rétt að og hafi nauðsynlega sérþekk- ingu,“ segir Kristín. Fyrirlesturinn 19. júní og námskeiðið 20. júní fara fram á ensku en útdrætti á íslensku verður dreift. Skráning á nám- skeiðið er á heimasíðu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar á slóðinni www.grein- ing.is. Nánari upplýsingar um atferlis- greiningu má finna á heimasíðu SATÍS á slóðinni www.atferli.is Heilsa | Fyrirlestur og námskeið um atferlismeðferð og einhverfu barna Efla þroska og færni daglega  Kristín Guð- mundsdóttir fædd- ist í Reykjavík 1970. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1990, BA í sálfræði frá Háskóla Íslands 1996, meistara- gráðu í atferlisgreiningu frá Univers- ity of North Texas 2002 og er með sér- fræðivottun í atferlisgreiningu. Kristín hefur starfað við kennslu og ráðgjöf í leik- og grunnskólum en hún er nú aðjúnkt við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.