Morgunblaðið - 11.06.2007, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 11.06.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2007 39 FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Laugavegur 120 fm mikið endurnýjuð 4ra herb. íbúð á 2. hæð í steinhúsi í mið- borginni. Olíuborin eik á gólfum, fallegar hurðir og uppgerðir pott- ofnar. Nýleg innrétting í eldhúsi og rúmgóðar stofur. 2 sérgeymslur í kjallara og sérmerkt bílastæði á baklóð. Verð 35,5 millj. Strandvegur - Sjálandi - Garðabæ Íbúð á efstu hæð 118 fm íbúð á efstu hæð með allt að 4 metra lofthæð og útsýni til sjávar. Sérstæði í bílageymslu. Stórar samliggjandi stofur með út- byggðum skála, opið eldhús með eyju, vönduðum innrétt. og tækj- um, 3 herb. og baðherb., flísalagt í gólf og veggi. SV-svalir. Húsið klætt áli að utan og því viðhaldslítið. Sérgeymsla í kj. Verð 41,5 millj. Stigahlíð Glæsilegt 275 fm einbýlishús með 30 fm innbyggðum bílskúr á þess- um eftirstótta stað. Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, rúmgott hol, samliggjandi glæsilegar stofur með arni, rúmgott eldhús, þvotta- herbergi inn af eldhúsi með bakútgangi, 4 svefnherbergi auk fataher- bergis inn af hjónaherbergi, stórt bókaherbergi og 2 baðherbergi. Hellulögð suðurverönd út af stofu og útgangur á suðursvalir úr hjóna- herbergi. Hiti er í innkeyrslu að bílskúr. Falleg ræktuð lóð. Vatnsholt Vandað 240 fm parhús á þremur hæðum auk 25 fm sérstæðs bíl- skúrs á þessum eftirsótta stað. 2ja herb. aukaíbúð með sérinng. er á jarðhæð. Eignin skiptist m.a. í þrjár stórar samliggjandi stofur með útgangi á suðursvalir, rúmgott eldhús, 4 herbergi og fataherbergi auk sér 2ja herb. íbúðar á jarð- hæð. Aukin lofthæð er á aðalhæð. Verð 64,9 millj. Faxatún - Garðabæ Fallegt 171 fm einbýlishús á einni hæð auk 21,5 fm bílskúrs í Garða- bænum. Eignin skiptist í forstofu, flísalagða gestasnyrtingu, rúm- góðar og bjartar parketlagðar stof- ur, eldhús með nýlegri hvítri og tekk innréttingu, 3 herbergi auk sjónvarpsherbergis við stofu, þvottaherbergi inn af eldhúsi með bak- útgangi og baðherbergi. Ræktuð lóð. Verð 44,0 millj. Vogaland Glæsilegt 339 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 30 fm inn- byggðum bílskúr. Eignin skiptist m.a. í stórar samliggjandi stofur, rúmgóðan sólskála, eldhús með búri/vinnuherbergi inn af, 4 svefn- herbergi, 1 herbergi inn af stofu, fataherbergi, sjónvarpsherbergi og 2 baðherbergi auk gesta w.c. Svalir út af hjónaherb. í austur. K-gler í gluggum. Falleg ræktuð lóð með mikilli hellulögn og heitum potti. Hitalagnir í aðkomu að bílskúr og húsi. Nánari uppl. á skrifstofu. Aflagrandi Góð 3ja herb. 103 fm íbúð á 12. hæð, efstu, þ.m.t. geymsla í kjall- ara í þessu eftirsótta lyftuhúsi fyrir eldri borgara við Aflagranda. Íbúð- in skiptist í forstofu, geymslu, þvottaherbergi, eldhús, rúmgóða stofu, 2 herbergi og baðherbergi. Út frá stofu eru góðar svalir til suð- austurs með stórkostlegu útsýni. Á hluta svala er sólskáli/glerskýli. Nánari uppl. á skrifstofu. EFTIR sýningu 25 tíma, dansleik- hús / samkeppni LR og ÍD, sem haldin var í Borgarleikhúsinu 8. júní, vaknaði hjá mér spurningin hvað er eiginlega dansleikhús? Er nóg að hafa leikara sem dansa og dansara sem fara með texta, svo hægt sé að tala um dansleikhús? Þarf ekki meira til? Eins og upp- byggingu verksins, hvernig það rennur saman og að þær hugmyndir sem höfundur hefur í huga skili sér til áhorfenda. Hvað er það sem gerir sýningu að dansleikhúsi? Dansleikhús er hægt að útfæra á mismunandi vegu og með mismunandi hætti, með öllum þeim möguleikum sem leikhús býð- ur upp á. Sjö dansverk voru frumsýnd, þar af voru sex sem tóku þátt í sam- keppninni. Þessi samkeppni er vett- vangur til að hvetja listamenn til að takast á við dansleikhúsformið, gera tilraunir og kanna möguleikana sem eru í boði í sviðslistum. Verkin, sem voru öll ólík, sýndu að höfundar fylgdu ekki einhverju ákveðnu mynstri eða straumum heldur því sem bjó þeim í hjarta. Fyrsta atriði kvöldsins var verk Árna Péturs Guðjónssonar, Atriði úr Kirsuberjagarðinum. Hann legg- ur af stað með spurningar sem hann leitast við að svara. Hvernig nota má sígilt leikrit sem kveikju að dans- leikhúsi, hvaða leikhústækni virkar fyrir reynda dansara og svo mögu- leika um nærmyndir á stóru sviði. Hann tekur þrjár persónur úr Kirsuberjagarðinum eftir Tsjekhof og sýnir áhorfandanum samband þeirra á milli. Notkun á myndbands- vél, með því að varpa myndum á baktjaldið, reyndist góð leið til að skapa meiri nánd á stóru sviði. Í verki Steinunnar Ketilsdóttur, Sápa, vinnur hún þá hugmynd að raunveruleikinn sé oft óraunveru- legur og öfugt. Kona bíður, hittir mann, hittir síðan annan mann, síð- an kemur inn önnur kona. Við erum að leita, finnum, viljum leita lengra og ekkert er nógu gott. Verk Stein- unnar var vel upp byggt, vel unnið og hafði skýra sögu. Hreyfingar voru einfaldar og komu því vel til skila þeirri sögu sem sögð var. Verkið Blink of an eye er af allt öðrum toga. Á baktjald er varpað myndbandi af auga sem blikkar, síð- ar birtist kona, mikið máluð, svip- brigðalaus, eins og með grímu. Á sviðinu eru tveir líkamar er hreyf- ast, nálgast, svo úr verður eitt. Þær myndir og form sem þeir mynda eru eins og dýr eða skepnur – mann- skepnur. Hvað gerist er við deplum augunum? Hverju missum við af og hvað sjáum við bak við augnlokið? Hver erum við inn við beinið? Mynd- bandið var mjög fallegt og gæti vel staðið sjálfstætt, en mannverurnar á sviðinu leyfa okkur að sjá þá hlið sem er ekki alltaf sýnileg. Þetta verk vann dómaraverðlaun kvölds- ins. Í Monday eftir Andreas Constant- inou er fagurfræði höfundi hugleikin og andstæður í hinu klassíska og hversdagslega. Hann notar þrjú við- fangsefni, unglingstúlkur er dansa á táskóm, unglingspilta og hversdags- legar athafnir þeirra og síðan óp- erusöng. Atriði unglingspiltanna var vel unnið og meðferð þeirra með sóf- ann var skemmtilegt. Söngurinn var fallegur en hreyfingar söngvaranna voru stífar og stirðbusalegar. Ein- hvern veginn rann verkið ekki nógu vel saman og var of laust í böndum. Verk Irmu Gunnarsdóttir, On hold, hlaut áhorfendaverðlaun kvöldsins. Hún notar skemmtilegt sjónarhorn keilna í keiluhöll, er standa og vonast til að brautin þeirra verði notuð. Í verkinu eru bjartir litir, glaðleg andlit og fjörug músík. En það var samt skrýtið að keilurnar heita amerískum nöfnum, en tala íslensku, svo allt í einu tala þær „amerísku“ og síðast íslensku með „amerískum“ hreim. Einnig var stundum erfitt að heyra hvað þær voru að segja þar sem talað var ofan í sönglag. Síðasta verk samkeppninnar var svo Finndu mig, ég fann þig, eftir Ásgerði G. Gunnarsdóttir og Katr- ínu Gunnarsdóttir. Er tjaldið fór upp var fjöldi fólks á sviðinu í ljósum fötum. Inn kemur ungur maður og reynir að ná sambandi við fólkið. Með því ýtir hann við öðrum sem byrja einnig að færa sig á milli og reyna að ná sambandi við hina. Flesta er lítið hægt að ná sambandi við, þó svo það sé ýtt við þeim. Hug- myndin að verkinu er góð, vinna og útfærsla var einnig fín. Þetta er verk ungra höfunda og spennandi verður að fylgjast með þeim í fram- tíðinni. Eftir hlé kom svo afrakstur hins nýja dansleikhúss LR, Þvílík gleði, eftir þau Mörtu Nordal og Peter Anderson, en það var ekki hluti af keppninni. Þau hafa bæði unnið til verðlauna í dansleikhús / samkeppn- inni. Þarna var á ferðinni vel upp- byggt dansleikhúsverk, þar sem leikarar dönsuðu og dansarar fóru með texta. Þarna var hið talaða orð til jafns við vægi og hreyfingar. Verkið rann vel saman og þátttak- endur stóðu sig vel og réðu vel við dansleikhúsformið. Lýsing var mjög góð sem og búningar. Dansleikhús / samkeppni LR og ÍD er góður og spennandi vett- vangur fyrir þá er vilja spreyta sig á að skapa og kanna óendanlega möguleika dansleikhússins. Óendanlegir mögu- leikar dansleikhússins Margrét J. Gísladóttir Morgunblaðið/Golli DANSLEIKHÚS Dansleikhús / samkeppni 2007 í Borgarleikhúsinu, 8. júní 2007 25 tímar On Hold „Í verkinu eru bjartir litir, glaðleg andlit og fjörug músík.“ Blink of an eye „Mannverurnar á sviðinu leyfa okkur að sjá þá hlið sem er ekki alltaf sýnileg.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.