Morgunblaðið - 11.06.2007, Blaðsíða 40
MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 162. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Guðni blæs til sóknar og
stefnir að 25% fylgi
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði á mið-
stjórnarfundi í gær að flokkurinn
gæti aukið fylgi sitt hratt eftir ósig-
urinn í þingkosingunum 12. maí.
Hann rifjaði upp sigur flokksins árið
1979 eftir slæman ósigur árið áður
og sagði framsóknarmenn eiga að
stefna að 25% fylgi. » 2
Óbreytt hvalveiðistefna
Einar K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra býst ekki við
neinni stefnubreytingu hjá rík-
isstjórninni varðandi hvalveiðar þótt
Þórunn Sveinbjarnardóttir hafi látið
í ljósi andstöðu við hvalveiðar í við-
tali við Morgunblaðið. » Forsíða
Orkuverðlaunin afhent
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
afhenti Þorsteini I. Sigfússyni Al-
heimsorkuverðlaunin um helgina.
Eftir afhendinguna flutti Pútín ræðu
um stöðu orkumála í heiminum.
» Forsíða og 6
Flokkur Sarkozy sigraði
Hægriflokkur Nicolas Sarkozy,
nýkjörins forseta Frakklands, sigr-
aði í fyrri umferð þingkosninganna í
gær, fékk um 40% atkvæða. Sósíal-
istar fengu um 25% fylgi. » 14
Kosovo fái sjálfstæði
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hvatti til þess í gær að Kos-
ovo-hérað fengi sjálfstæði frá Serbíu
þrátt fyrir harða andstöðu stjórn-
valda í Rússlandi. » 14
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Hefur sjónvarpið
lækningamátt?
Staksteinar: Hvað vakti fyrir
Össuri?
Forystugreinar: Verðskulduð viður-
kenning | Ný staða í hvalveiðum
UMRÆÐAN»
Olíuhreinsunarstöð í Vesturbyggð
Heilbrigðisráðh. og leikaraskapur
Þorskurinn og ákvörðun um
heildarafla
Gifstappinn – íslensk uppfinning
Enn eitt brunaslys af heitu vatni
Reklar
FASTEIGNIR»
Heitast 17 °C | Kaldast 10 °C
Fremur hæg norð-
læg átt. Bjart suð-
vestanlands. Sums
staðar þokubakkar.
» 10
Ljóðin eru falleg og
vel samin og lögin
einnig en hljómur
plötunnar er þó ekki
upp á marga fiska,
segir í dómi. » 33
PLÖTUDÓMUR»
Lélegar út-
setningar
FLUGAN»
Flugan fór á fjöruga
tónleika. » 32
Gísli Árnason kynnti
sér vefsíðu Guten-
berg-verkefnisins,
en þar má finna tug-
þúsundir bóka end-
urgjaldslaust. » 36
VEFSÍÐA VIKUNNAR»
Bókasafn án
gjalds
DANSLEIKHÚSDÓMUR»
Hvað gerir sýningu að
dansleikhúsi? » 39
HÖNNUN»
Fjögurra stjörnu
spennumynd. » 35
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Dýrt að mæta of seint á blm.fund
2. KR sigurlaust eftir tap gegn ÍA
3. Ósáttur við brottrekstur
4. Paris Hilton unir dómi
SÍGARETTUSTUBBAR og plast-
glös blöstu við augum vegfarenda
miðborgar Reykjavíkur þegar þeir
gengu þar um snemma í gærmorg-
un. Það er ekki nýtt að miðborgin líti
illa út eftir skemmtanahald en
merkja má greinilega aukningu í
kjölfar þess að reykingabanni var
komið á 1. júní sl.
Samkvæmt upplýsingum frá
framkvæmdasviði Reykjavíkur-
borgar hafa þó engar kvartanir bor-
ist vegna sóðaskapar viðskiptavina
ölstofa en þar á bæ munu menn
fylgjast vel með ástandinu á næstu
vikum. „Borgarstjóri benti á að
þetta gæti orðið fylgifiskur bannsins
og við ætlum að skoða á næstu
tveimur, þremur vikum hvort þetta
sé vandamál og þá hvernig við mun-
um taka á því,“ segir Sighvatur Arn-
arsson, skrifstofustjóri á skrifstofu
gatna- og eignaumsýslu á fram-
kvæmdasviði Reykjavíkurborgar.
Sighvatur segir að best væri ef
veitingamenn settu sjálfir upp
stubbahús eða -stampa og sæju um
að tæma þá. Verkefnin séu næg fyrir
og best sé að þeir sem standi næst
vandamálinu leysi það. Annars má
gera ráð fyrir einhverjum auka-
kostnaði fyrir Reykjavíkurborg.
Sígarettu-
stubbar og
plastglös
GUÐMUNDUR Oddur Magnússon,
prófessor í grafískri hönnun við
Listaháskóla
Íslands, segir
merki Ólymp-
íuleikanna í
Lundúnum
2012 vera það
verst hann-
aða í sögu
leikanna.
Guðmundur
segir merkið
minna á
sprengjubrot
og við fyrstu sýn líta út fyrir að vera
minnismerki um hryðjuverk. „Ótrú-
legir stælar og laust við allt sem
prýða má gott merki,“ segir Guð-
mundur, betur þekktur sem Goddur.
Merki ÓL 2012 hefur verið harð-
lega gagnrýnt í Bretlandi, bæði af al-
menningi og ráðamönnum.
Goddur tekur út merki nokkurra
Ólympíuleika í grein í blaðinu og
bendir á hver séu vel hönnuð og hver
illa. Merki Tókýóleikanna 1964 og
leikanna í Mexíkó 1968 eru til fyr-
irmyndar, að mati Godds. | 37
„Ótrúlegir
stælar“
Illa hannað Merki leik-
anna í Lundúnum 2012.
ÞAÐ blæs ekki byrlega fyrir KR-ingum, en þeim hafði
verið spáð öðru sæti í Landsbankadeildinni í sumar. Í
gærkvöldi fóru KR-ingar upp á Skipaskaga og máttu
þola þar enn einn ósigurinn, 1-3 gegn ÍA, og sitja nú
einir á botni deildarinnar eftir fimm umferðir með að-
eins eitt stig. Og það er ekki víst að fyrsti sigurinn sé í
augsýn, a.m.k. geta næstu andstæðingar KR vart talist
auðveldir, sjálfir Íslandsmeistarar FH koma í heimsókn
í Vesturbæ á fimmtudaginn. Þykir ljóst að farið sé að
hitna undir þjálfara liðsins, Teiti Þórðarsyni. | Íþróttir
Ljósmynd/Gísli Baldur
Á botninum eftir enn eitt tapið
Vesturbæjarveldið í djúpum öldudal
TALIÐ er að jákvæð afkoma af
uppbyggingarverkefni sem flug-
málastjórn og Flugstoðir ohf. taka
þátt í á alþjóðaflugvellinum í
Pristina í Kosovo nemi um 100
milljónum króna fyrir síðustu 3 ár.
Forstjóri Flugstoða, Þorgeir Páls-
son, segir hins vegar óeðlilegt að
ræða um gróða í þessu samhengi.
„Við fengum enga fjármuni frá
hinu opinbera í þetta verkefni og
það hefur alltaf legið fyrir að við
mættum ekki líða fjárhagslegt tap
af þessari starfsemi. Þessum
rekstri fylgir hins vegar ýmis
áhætta, til dæmis gengisáhætta og
svo hefur verið talsverður órói á
svæðinu, sem við verðum að geta
brugðist við ef í harðbakka slær,“
segir Þorgeir.
Frá því að flugmálastjórn, og síð-
an Flugstoðir ohf., tóku við því
hlutverki að beiðni Sameinuðu þjóð-
anna að vera bakhjarl Pristina-flug-
vallar hafa 6.300 vinnustundir verið
unnar af starfsmönnum þeirra í
tengslum við verkefnið og samtals
um 70 starfsmenn Flugstoða hafa
farið til Pristina til að sinna þessum
verkefnum. Flestar voru vinnu-
stundirnar árið 2005, þegar umsvif
Íslendinga á flugvellinum voru sem
mest.
Íslensku starfsmennirnir annast
eftirlit með starfsemi flugvallarins í
Pristina, auk þess sem þeir veita
heimamönnum ráðgjöf um rekstur
og endurbætur á flugvellinum.
Ávinningurinn | 8
100 milljónir í hagnað
Jákvæð afkoma af verkefni flugmálastjórnar og Flugstoða
ohf. á alþjóðaflugvellinum í Pristina í Kosovo
Ljósmynd/Jóhannes Long
Aðstoð Flugvöllurinn í Pristina.
Í HNOTSKURN
» Fimm íslenskir starfsmenneru í Kosovo um þessar
mundir á vegum Flugstoða ofh.
»Starfsleyfi flugvallarins ergefið út samkvæmt heimild
frá Flugmálastjórn Íslands en
Flugstoðir ohf. bera ábyrgð á
allri flugumferðarstjórn á flug-
vellinum í Pristina.
♦♦♦