Morgunblaðið - 20.07.2007, Page 1

Morgunblaðið - 20.07.2007, Page 1
Í HNOTSKURN »Delesalle og Tochet lögðu af stað fráParís hinn 14. júlí síðastliðinn og höfðu þegar haft viðkomu á Skotlandi og í Færeyjum. »Ástæða brotlendingarinnar er talinvera óhagstætt veður sem þau hrepptu yfir jöklinum. Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is TVEIR franskir flugmenn, Delesalle og Tochet, sem brotlentu fisvél sinni á Grænlandsjökli að- faranótt miðvikudags, eru heilir á húfi og njóta nú aðhlynningar á sjúkrahúsinu í Tasilaq vegna minniháttar meiðsla. Morgunblaðið náði tali af Delesalle, en hún segir félaga sinn hafa fengið talsvert högg á sig við brotlendinguna. „Hann átti erfitt með að draga andann til að byrja með. Hann komst samt út úr vélinni og dró mig svo út. Fyrsta hálf- tímann var ég mjög ringluð og vissi ekki hvað ég hét, hvað hafði gerst, eða hvað ég var að gera þarna á jöklinum. Ég fékk einhvers konar til- finningalegt áfall.“ Biðu á ísnum í 28 tíma Ekki var hægt að koma fólkinu til bjargar fyrr en 28 klukkustundum eftir slysið vegna þess hve veður var óhagstætt, lágskýjað og slæmt skyggni, en áður hafði þó náðst að kasta til þeirra neyðargögnum. Þau segjast ekki hafa örvænt, því þau vissu að hjálp væri á leiðinni. „Við urðum vör við þyrlur fljótlega eftir brot- lendinguna, ég held að það hafi ekki liðið nema þrír tímar,“ segir Delesalle. „Við vorum vel búin og vorum með ábreiður og svolítinn mat og vatn, svo þetta var ekki sérlega slæmt.“ Þau voru flutt með þyrlu danska sjóhersins um borð í rannsóknarskipið Hvidbjørnen sem sigldi með þau til Tasilaq. Efst í huga Delesalle er þakklæti til dönsku björgunarmannanna. „Við værum ekki á lífi í dag án þeirra.“ Þau Delesalle og Tochet koma til Reykjavík- ur seinnipartinn í dag og fara síðan með flugi til Parísar á morgun. Þau hafa ekki í hyggju að reyna við þessa flugleið aftur á næstunni, enda er vél þeirra mikið skemmd. Flugmennirnir tveir voru á leið frá París til Oshkosh í Wisconsin í Bandaríkjunum, þar sem þau hugðust sækja flugsýningu. Þau voru í sam- floti við fimm þyrlur og var ætlunin að hafa við- komu í Kulusuk og fljúga þaðan til Tangerlus- suaq á vesturströnd Grænlands. „Var mjög ringluð“  Frönsku flugmennirnir komnir til byggða eftir brotlendingu á Grænlands- jökli  Þakklát dönskum björgunarmönnum: „Værum ekki á lífi án þeirra“ Morgunblaðið/Árni Sæberg ÁRNI Einarsson, forstjóri Eddu útgáfu, segir þreifingar hafa farið fram þar innan dyra um kaup á hlut Björgólfs Guðmundssonar í forlaginu, sem er 80,1%. „Í raun eru þetta mjög miklar vangaveltur enn sem komið er, ekki fast í hendi og því ekkert leyndarmál að við getum hugsað okkur að eiga stærri hluta af for- laginu sjálfir,“ segir Árni. Björgólfur sé að velta þessum málum fyrir sér en ljóst sé að hann haldi bókaklúbbunum. „Þeir sem ráða yfir Máli og menningu hafa óskað eftir því við Björgólf að kaupa hluta af bóka- útgáfunni. Hann er að skoða mál- in,“ segir Árni. Bókaforlög Eddu eru Mál og menning, Vaka- Helgafell, Almenna bókafélagið, Forlagið, Iðunn, Heimskringla og Þjóðsaga. Ríflega 40 þúsund félagar eru í bókaklúbbum Eddu og velta þeirra er um 400 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins. Velta bókaútgáfu- hlutans mun vera nálægt 900 milljónum króna. Vilja kaupa bóka- útgáfuhluta Eddu STOFNAÐ 1913 196. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is 26 79 / IG 13 Stanga sett tilbúin í veiðiferðina Þú færð IG-veiðivörur í næstu sportvöruverslun TÍSKA ER KVÖL MEÐ GLAMRANDI TENNUR Í GÚMMÍ- STÍGVÉLUM EN HALDA ÞÓ KÚLINU >> 44 FERRARI, FORMÚLA, FORSETABÍLL KAPPAKSTUR OG FYRIRSPURNIR >> BÍLAR FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is LOFTFERÐASAMNINGUR Íslands og Kanada, sem Benedikt Jónsson, sendi- herra og formaður samninganefndar Ís- lands, og Nadel Patel, aðalsamningamaður Kanada, undirrituðu í sendiherrabústað Ís- lands í Ottawa og greint var frá í gær, er mjög merkilegur að mörgu leyti, en gera má því skóna að samningurinn renni frek- ari stoðum undir viðskiptasambönd ríkjanna og menningarsamskipti. Samningurinn er „opinn“, sem þýðir að íslenskir flugrekendur mega fljúga hvert sem er í Kanada, hvenær sem er og nánast með hvað sem er. Kanada hefur gert sam- bærilegan samning við aðeins þrjú önnur ríki, Bandaríkin, Bretland og Írland, og með samningnum hafa Benedikt Jónsson og samninganefnd hans tryggt Íslandi jafna samkeppnisaðstöðu á kanadíska markaðnum og jafnvel betri vegna leiða- kerfis Icelandair í Evrópu. Um árabil hafa íslensk stjórnvöld gert ítrekaðar tilraunir til þess að skapa íslensk- um flugrekendum markaðsaðgang fyrir flugrekstur í Kanada. Stjórnmálamenn, sérstaklega í Nova Scotia og Manitoba, hafa tekið þessu vel en málið hefur fyrst og fremst strandað á hagsmunum kanadíska flugfélagsins Air Canada. Lykilmenn á réttum stöðum 27. nóvember 2006 greindi ríkisstjórn Stephens Harpers frá stefnuskrá sinni um „bláan himin“, sem er frjálslegri og við- skiptavænni í þessu efni en stefnur fyrri ríkisstjórna. Fram kom að Kanada væri fyrir bestu að slakað yrði á þeim skorðum sem settar hefðu verið við flugi til Kanada og eftir birtingu stefnuskrárinnar fóru hjól- in að snúast og það hratt. Fleiri tugir ríkja hafa óskað eftir því að gera loftferðasamning við Kanada og vekur athygli að Ísland er tekið fram fyrir þau. Í því sambandi er vert að hafa í huga aðild fólks af íslenskum ættum að málinu. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa áhrifamenn í þessum hópi, með Eric Stef- anson, fyrrverandi ráðherra í Manitoba, fremstan í flokki, beitt sér mjög fyrir lausn málsins við kanadísk stjórnvöld og sá þrýst- ingur, ásamt ýtni íslenskra sendimanna í Kanada og íslensku samninganefndarinnar, skilaði fyrst og fremst þessum árangri. Nýjar dyr opnast í Kanada Aðkoma Vestur-Ís- lendinga vó þungt Áritun Benedikt Jónsson sendiherra og Nadel Patel árita samninginn í Ottawa. Morgunblaðið/Ómar HINN almenni Harry Potter- aðdáandi má sín lítils gagnvart ofuraðdáendunum Dagmar, Borghildi og Ingibjörgu. Þær stöllur hreiðruðu um sig fyrir utan bókabúðina Nexus um kvöldmatarleytið í gær í þeirri viðleitni að verða fyrstu les- endur síðustu Harry Potter- bókarinnar á Íslandi. Bókin kemur út klukkan 23:01 í kvöld og þá geta vinkonurnar haldið til síns heima og hafið lestur, eftir að hafa eytt 29 klukku- stundum úti undir berum himni. Aðspurðar segjast þær hafa skipulagt biðina í tæp tvö ár, eða frá því að þær biðu fyrir ut- an Pennann eftir sjöttu bókinni. Sofið í poka fyrir Potter

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.