Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ICELANDAIR hefur ákveðið að hefja beint
áætlunarflug milli Íslands og Toronto í Kanada
þegar næsta vor. Jafnframt hyggst Icelandair
halda áfram flugi til Halifax og skoðar nú mögu-
leika á flugi til borganna Montreal, Winnipeg,
Ottawa og St. John’s í Kanada. Ákvörðun um
þetta var tekin í framhaldi af þeim samningi um
gagnkvæm flugréttindi milli landanna sem ís-
lensk og kanadísk stjórnvöld undirrituðu í
Ottawa í síðustu viku.
„Við teljum að þessi samningur geti haft mikla
þýðingu. Við höfum lengi unnið að og hvatt til
þess að þessi samningur væri gerður, vegna þess
að Kanada er eðlilegt markaðssvæði fyrir áætl-
unarflug Icelandair, bæði vegna legu landsins og
íbúanna sem þar eru,“ segir Guðjón Arngríms-
son, upplýsingfulltrúi Icelandair, í samtali við
Morgunblaðið.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, fagnar
þessum tímamótum mjög. „Við höfum beðið lengi
eftir því að fá frjálsan aðgang að þessum markaði
og erum tilbúin að fara inn á hann með krafti,
bæði hvað varðar farþegaflug og fragtflug. Þrátt
fyrir miklar takmarkanir á undanförnum árum
hefur Icelandair haldið uppi flugi milli landanna
og sú viðleitni hefur öðru fremur orðið til þess að
setja þrýsting á kanadísk stjórnvöld í málinu. Nú
er málið í höfn og það færir okkur mikil og spenn-
andi tækifæri til að þróa leiðakerfi félagsins inn á
nýjar brautir,“ er haft eftir Jóni Karli í frétta-
tilkynningu sem Icelandair sendi frá sér í gær.
Í samtali við Morgunblaðið segir Guðjón eðli-
legt að horft sé til Toronto með áætlunarflug í
huga sökum þess að Toronto er langstærsta
borgin í Kanada og helsta samgöngumiðstöð
landsins. Segir hann stefnt að flugi Icelandair
milli Íslands og Toronto allt árið og að flogið
verði 5-7 sinnum í viku. Bendir hann á að flugtím-
inn sé svipaður og til Baltimore eða Washington,
þ.e. fimm og hálfur klukkutími. Eftir sem áður
verður flogið til Halifax þrisvar í viku yfir sum-
artímann.
Samkvæmt upplýsingum frá Gunnari Má Sig-
urfinnssyni, framkvæmdastjóra sölu- og mark-
aðssviðs Icelandair, sjá menn þar á bæ fyrir sér
að Toronto geti gegnt svipuðu hlutverki í leiða-
kerfi Icelandair og Boston og New York þegar
fram í sæki.
„Við munum sækja inn á þennan markað með
krafti. Borgin verður án efa eftirsótt af Íslend-
ingum, því hún er lifandi fjölmenningarborg sem
gaman er að heimsækja auk þess sem hún býður
upp á frábær tækifæri til áframhaldandi tengi-
flugs innan Kanada og Bandaríkjanna. Þau rétt-
indi sem við fáum með samningi Íslands og Kan-
ada gefa okkur líka spennandi tækifæri í flugi t.d.
milli Norðurlandanna og Kanada með viðkomu á
Íslandi,“ er haft eftir Gunnari Má.
Þýðingarmikill samningur
Icelandair hefur áætl-
unarflug til Toronto í Kan-
ada næsta vor á grundvelli
nýs loftferðasamnings
Morgunblaðið/RAX
Nýr áfangastaður Stefnt er að 5-7 ferðum Ice-
landair í viku milli Íslands og Toronto allt árið.
TOYOTA á Íslandi mun á næstu
árum auka stuðning sinn við skóg-
rækt á Íslandi. Mun bílaumboðið
veita Skógræktarfélagi Íslands
fimm milljóna króna árlegt fram-
lag og einnig afnot af Toyota-
bifreiðum til skógræktarvinnu og
annarrar starfsemi félagsins en sá
þáttur samningsins er metinn á
um eina milljón króna. Skrifað var
undir samninginn í gær í skóg-
lendinu í Esjuhlíðum að viðstaddri
Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrver-
andi forseta og sérstökum heið-
ursfélaga Skógræktarfélagsins.
Í fréttatilkynningu frá Toyota
kemur fram að fyrirtækið hafi
verið einn helsti stuðningsaðili
Skógræktarfélags Íslands frá
árinu 1990. Samningurinn sem
skrifað var undir í gær er í raun
endurnýjun fyrri styrktarsamn-
ings en markmiðið er að efla svo-
kallaða Toyota-skóga sem finna
má víða um landið. Verður styrkt-
arfénu varið til ýmissa skil-
greindra verkefna, svo sem auk-
innar gróðursetningar, eflingar
viðhalds og bættrar aðstöðu til
útivistar.
Toyota-skógarnir eru sex tals-
ins: Í Esjuhlíðum, í Brynjudal, við
Reyðarfjörð, Varmaland í Borg-
arfirði og á Söndum í Dýrafirði
auk Kjarnaskógar við Akureyri.
Gróðursettar hafa verið yfir 55
þúsund trjáplöntur í Toyota-
skógunum og er gert ráð fyrir að
þeim muni stórfjölga. Í tilkynn-
ingu frá bæði Toyota og Skóg-
ræktarfélaginu lýsa báðir aðilar
yfir ánægju með samninginn. Haft
er eftir Brynjólfi Jónssyni, fram-
kvæmdastjóra Skógræktarfélags
Íslands, að samstarfið hafi verið
gott um margra ára skeið og lang-
tímahugsun hafi þar verið höfð að
leiðarljósi. „Það er því mikið fagn-
aðarefni fyrir okkur í Skógrækt-
arfélagi Íslands að endurnýja sam-
starf okkar við Toyota og setja
markið enn hærra,“ er haft eftir
Brynjólfi. Á myndinni eru: Magn-
ús Jóhannesson, formaður Skóg-
ræktarfélags Íslands, Úlfar Stein-
dórsson, forstjóri Toyota á
Íslandi, Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands og
heiðursfélagi Skógræktarfélags-
ins, og hjónin Lóa Skarphéð-
insdóttir og Magnús Kristinsson,
stjórnarformaður Toyota á Ís-
landi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Toyota
styrkir
skógrækt
STANGVEIÐIFÉLAG Reykjavíkur
hefur ákveðið að birta bréf á pólsku
þar sem pólskumælandi fólki eru
kynntar þær
reglur sem gilda
um veiðiréttindi í
ám hér á landi.
Nokkuð hefur
borið á því í sum-
ar að veitt hafi
verið í ám á höf-
uðborgarsvæð-
inu án tilskilinna
leyfa. Veiðimenn
hafa orðið varir við mikla aukningu
veiðiþjófnaðar frá síðasta ári og í
öllum upplýstum tilvikum hefur
verið um karlmenn frá Póllandi að
ræða. Því mun hafa verið gripið til
þessa ráðs.
Stangveiði-
réttindi kynnt
á pólsku
BJÖRGUNARSVEITIR á Vest-
fjörðum voru kallaðar út í gær til
að leita að þýskum hjónum sem
fóru frá Bolungarvík laust eftir kl.
tvö á báti af gerðinni Bobby.
Fólkið hafði litla sem enga
reynslu af siglingum á sjó og engin
réttindi, svaraði ekki kalli í bátinn
og var þess vegna ákveðið að hefja
leit að því.
Fólkið fannst fljótlega og reynd-
ist heilt á húfi. Taldi forsvarsmaður
bátaleigunnar að leitin hefði verið
óþörf.
Leit að bát
afturkölluð
FAXAFLÓAHAFNIR sf. og höfnin í
Qingdao í Kína undirrituðu í dag
viljayfirlýsingu
um samstarf og
samvinnu. Vilja-
yfirlýsingu þess-
ari verður fylgt
eftir með gerð
formlegs sam-
starfssamnings
sem verður und-
irritaður síðar.
Nokkur íslensk
fyrirtæki svo sem
Eimskip, Samskip og Icelandic Gro-
up eru með starfsemi í Qingdao en
að auki hefur Orkuveita Reykjavík-
ur og fleiri fyrirtæki sótt inn á kín-
verskan markað. Um þessar mundir
eru stjórnendur hafnarinnar í
Qingdao staddir á Íslandi á vegum
Eimskips þannig að ákveðið var í
tengslum við heimsóknina að efna til
samstarfs Faxaflóahafna sf. og hafn-
arinnar í Qingdao, að því er segir í
tilkynningu.
Á komandi hausti verður gengið
frá formlegu samstarfssamkomulagi
þar sem m.a. verður gert ráð fyrir
að hafnirnar skiptist á upplýsingum
um sameiginleg áhugamál svo sem á
sviði tæknimála, en stór þróun-
arverkefni eru í gangi hjá báðum
þessum höfnum.
Faxaflóahafnir
og Qingdao-
höfn ætla að
hefja samstarf
Reykjavíkurhöfn
ÆTLUÐ fíkniefni fundust við hús-
leitir í tveimur íbúðum í úthverfum
á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Karl og kona, sem bæði eru á þrí-
tugsaldri, voru handtekin vegna
rannsóknar málanna.
Konan hefur áður komið við sögu
hjá lögreglu en karlinn mjög lítið.
Húsleitirnar voru framkvæmdar
að undangengnum úrskurði Hér-
aðsdóms Reykjavíkur.
Fíkniefni fund-
ust við húsleit
GUÐMUNDUR Snæ-
björn Árnason, fyrrver-
andi verslunarmaður,
lést á Landspítalanum í
Fossvogi laugardaginn
14. júlí sl. á 97. aldurs-
ári.
Guðmundur var
fæddur 24. september
1910 á Stóra-Hrauni í
Kolbeinsstaðahreppi á
Snæfellsnesi. Hann var
sonur hjónanna Árna
Þórarinssonar prests
og síðar prófasts og
Elísabetar Sigurðar-
dóttur.
Guðmundur nam við Flensborgar-
skólann og gerðist ungur verslunar-
maður, fyrst hjá Rammagerðinni í
Hafnarstræti. Í kringum 1960 hóf
Guðmundur síðan eigin verslunar-
rekstur. Um áratuga skeið vann
hann við innrömmun og sölu á lista-
verkum, fyrst á Týsgötunni og síðar
Bergstaðastræti. Í starfi sínu kynnt-
ist Guðmundur mörg-
um af fremstu mynd-
listarmönnum þjóðar-
innar sem uppi voru á
síðustu öld.
Guðmundur gekk í
góðra vina hópi undir
viðurnefninu Ramma-
skalli, en sú nafnbót
var komin frá Örlygi
Sigurðssyni, listmál-
ara og rithöfundi, sem
nefndi Guðmund þessu
nafni í frægri afmælis-
grein sem hann skrif-
aði um Guðmund
fimmtugan. Greininni
fylgdi teikning Örlygs af Guðmundi
þar sem rammi kom í stað geisla-
baugs fyrir ofan höfuð Guðmundar.
Guðmundur var kvæntur Áslaugu
Hrefnu Sigurðardóttur, f. 12. mars
1916 og d. 5. mars 2007, í 71 ár. Þau
láta eftir sig þrjú uppkomin börn,
þau Ágústu, Kristján og Sigurð, auk
fjölda barnabarna.
Guðmundur
Snæbjörn Árnason
Andlát
ÍBV íþróttafélag hefur nú óskað eftir
því við bæjarráð Vestmannaeyja að
næturferðum verði bætt við áætlun
Herjólfs aðfaranótt miðvikudagsins
1. ágúst og aðfaranótt fimmtudags-
ins 9. ágúst.
Í beiðni ÍBV segir að ástæða
beiðninnar sé að fyrirsjáanlegt sé að
aukinn fjöldi ferðamanna muni koma
á þjóðhátíð miðað við fyrri ár og í ár
virðist stefna í stærstu þjóðhátíð
hingað til. Gríðarlegur fjöldi fyrir-
spurna, viðbrögð við forsölu og bók-
anir í flug bendi til þessa.
Bæjarráð samþykkti erindið og
tók undir óskir ÍBV. Elliði Vignis-
son, bæjarstjóri Vestmannaeyja,
hefur sent beiðnina til Vegagerðar-
innar.
Aukaferðir fullnýttar
Elliði segir allar aukaferðirnar
sem fyrir eru í samningnum um ferð-
ir Herjólfs fullnýttar.
„Þetta snertir aðra en heima-
menn, þetta er fyrst og fremst fyrir
gesti okkar sem munu nota þessar
ferðir. Ég myndi því segja að það
væru ríkir hagsmunir fyrir því að
verða við þessari beiðni okkar og á
von á því að svo verði,“ segir Elliði og
bætir við að von sé á fimm til sjö þús-
und gestum á þjóðhátíðina. Hann
segist hafa fengið jákvæð viðbrögð
hjá Vegagerðinni en engin svör enn
sem komið er.
Bæjarstjórnarfundur í dag
Á bæjarstjórnarfundi í dag verður
lögð fram beiðni til samgönguráð-
herra um að hann leggi fram áætlun
um samgöngur til Vestmannaeyja til
ársins 2010. Í tillögunni segir að fjár-
hagslegt tjón ferðaþjónustuaðila sé
verulegt vegna yfirlýsingar ríkis-
stjórnar um aukaferðir til Vest-
mannaeyja sem skapað hafi miklar
væntingar en ekki verið staðið við.
Þau óþægindi sem bæjarbúar hafi
orðið fyrir verði vart metin til fjár.
Óska eftir fleiri
Herjólfsferðum
Bréf um veiðiréttindi birt á pólsku
VEFVARP mbl.is