Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 9
FRÉTTIR
Allur sumarfatnaður
á hálfvirði
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Kvart-
buxurnar
á 3.900 kr
komnar
aftur
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
laugard. opið í Bæjarlind kl. 10-15
en lokað í Eddufelli.
ú t
s a
l a
3 0
- 7
0 %
a f
s l á
t t u
r
KRINGLUNNI
SMÁRALIND
TÆMUM
VIÐ BÚÐINA
VEGNA
BREYTINGA
H Æ Ð A M Á RA 4
S Í M I 5 4 4 595 9
Kr.1000
Kr.2000
Kr.5000
Kr.8000
4 VERÐFLOKKAR
NÚ
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460
www.belladonna.is
Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
Útsala
Höfum bætt við
vörum á
30-50%
afsl. á útsöluna
Stærðir 38-60
VEGINUM sem liggur að fjallinu
Keili hefur verið lokað. Liggur hann
um land Stóru-Vatnsleysu og
hyggst eigandinn, Sæmundur Þórð-
arson, setja upp hlið til að takmarka
umferð um svæðið. Þetta gerir hann
til að mótmæla því, að í breyttu að-
alskipulagi sveitarfélagsins Voga
verður stór hluti jarðar hans frið-
lýstur. „Það er verið að taka allan
umráðarétt af mér í sambandi við
nýtingu svæðisins. Menn ætla að
friðlýsa svæðið allt saman, meira
eða minna.“
Sæmundur segir að í raun hafi að-
eins einn aðili fyrir utan hann sjálf-
an rétt til að fara um veginn en það
er Hitaveita Suðurnesja. Almenn-
ingur hiki hins vegar ekki við að
nota hann en sökum mikils hrað-
aksturs í bland við mikla þurrka í
sumar er vegurinn mjög illa farinn.
Hann segir þá spurningu koma upp í
kjölfarið hvort það sé í hans verka-
hring að laga veginn.
Að sögn Sæmundar hefur hann
einu sinni sótt um styrk til að við-
halda veginum en fékk þau svör að
ekki væri kostað til vega sem ekki
lægju að byggðu bóli. Spurður hvort
ætlunin með hliðinu sé því að vekja
athygli á slæmu ástandi vegarins
ásamt því að mótmæla friðlýsing-
aráformunum segir Sæmundur það
ekki hafa verið hugmyndina.
Að sögn Róberts Ragnarssonar,
bæjarstjóra í Vogum, er verið að
skoða allt aðalskipulag sveitarfé-
lagsins eins og beri að gera sam-
kvæmt lögum. Lokun vegarins bitni
fyrst og fremst á útivistarfólki sem
hafi áhuga á að ganga á Keili og
Trölladyngju eða skoða nálægar
náttúruperlur.
Athyglisvert er að menn eru ekki
á einu máli um hvert vegurinn ligg-
ur en Sæmundur segir það mesta
misskilning að vegurinn liggi að
Keili. Hann liggi upp á Höskuldar-
velli.
Aðalskipulagstillagan
er enn til umræðu
Róbert segir aðalskipulagstillög-
una enn sem komið er bara vera til
umræðu. Hún hafi verið kynnt Sæ-
mundi og hann hafi öll tækifæri til
þess að gera athugasemdir við hana.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að
náma í landi Sæmundar verði nýtt
áfram og hún stækkuð en aðrar
námur verði ekki teknar á svæðinu.
Að sögn Sæmundar sér Vegagerðin
um gröft í námunni og hefur efni úr
henni m.a. verið notað við tvöföldun
Reykjanesbrautar. Vegagerðin
borgar Sæmundi fyrir afnotin en
hann segir hana hafa staðið sig illa í
að halda henni í lagi; mikið hafi ver-
ið skemmt sem ekki sé unnt að laga
aftur. „Þegar Vegagerðin þarf á efni
að halda, þá tekur hún það bara en
ef sveitarfélagið hefur vald til að
neita Vegagerðinni um það þá er
það eitthvað nýtt. Það neitar henni
enginn um efni.“
Vegur að Keili lokaður almenningi
Keilir Ekki mikið fjall en ákaflega fallega formað. Nú er deilt um veg, sem
liggur upp á Höskuldarvelli skammt frá fjallinu.
SAKSÓKNARI efnahagsbrota mun
ekki gefa út ákærur í nokkrum mál-
um, færri en tíu, sem búið er að rann-
saka fyrr en í haust, sökum dóms
Héraðsdóms Norðurlands eystra frá
því á miðvikudag. Þá komst dómur-
inn að því að saksóknarinn hefði ekki
heimild til að gefa út ákærur.
Dómurinn féll í máli gegn fjórum
einstaklingum sem sakaðir eru um að
hafa nýtt sér kerfisvillu í heimabanka
Glitnis. Með því högnuðust þeir sam-
an um ríflega þrjátíu milljónir króna.
Í niðurstöðu dómsins segir að í lög-
um um meðferð opinberra mála komi
fram að með ákæruvald fari ríkissak-
sóknari og lögreglustjórar, þar á
meðal ríkislögreglustjórar. Í reglu-
gerð um rannsókn og saksókn efna-
hagsbrota, sem tók gildi 1. janúar
2007, kemur þá fram að saksóknara
efnahagsbrota sé falin rannsókn á til-
greindum brotum og meðferð þeirra
fyrir dómstólum. Einnig að hann
annist ákæruvald ríkislögreglustjór-
ans vegna efnahagsbrota. „Í 1. mgr.
2. gr. framangreindrar reglugerðar
er saksóknara efnahagsbrota falið að
taka ákvörðun um hvort höfða skuli
mál á grundvelli rannsóknar sem
hann hefur látið framkvæma. Hann
höfði mál í nafni saksóknara efna-
hagsbrota og flytji þau fyrir héraðs-
dómi nema ríkissaksóknara beri að
höfða málið samkvæmt fyrirmælum
laga um meðferð opinberra mála.
[…] Af þessu verður ráðið að sak-
sóknara efnahagsbrota sé með fram-
angreindri reglugerð í raun falið
sjálfstætt ákæruvald,“ segir í dómn-
um.
Dómurinn kemst að þeirri niður-
stöðu að ekki verði talið að heimild
felist í lögreglulögum til að stofna
embætti sjálfstæðs handhafa ákæru-
valds enda séu meginreglur um
ákæruvaldið í lögum um meðferð op-
inberra mála. Var málinu því vísað
sjálfkrafa frá dómi.
Enginn stórskaði
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota, segir að búið
sé að áfrýja dómnum til Hæstaréttar
og dóms hans verði beðið áður en
fleiri ákærur verða gefnar út. „Þetta
eru aðeins nokkur mál og við bíðum
bara með það að gefa þær út, þetta er
enginn stórskaði,“ segir Helgi sem
vonast til að Hæstiréttur taki málið
fyrir í lok ágúst eða byrjun septem-
ber.
Saksóknarinn segir að ef Hæsti-
réttur staðfesti dóminn muni hann
gefa út ákærur með tilvísun í ríkis-
lögreglustjórann. Hann segir túlkun
héraðsdóms ranga, saksóknari efna-
hagsbrota sé ekki sjálfstætt embætti
en aðeins starfsmaður ríkislögreglu-
stjóra. „En hvernig sem þetta fer er
þetta rökstuðningur fyrir því að drífa
af þessa endurskoðun á lögum um
meðferð opinberra mála. Þetta yrði
þá tekið fyrir þar og gengið frá til
framtíðar þannig að ekki vefjist fyrir
neinum.“
Unnið er að endurskoðuninni um
þessar mundir og verður hún án efa
tekin fyrir þegar Alþingi tekur aftur
til starfa.
Útgáfu nokkurra
ákæra frestað
Saksóknari efnahagsbrota segir þá nið-
urstöðu héraðsdóms að heimild skorti
til að gefa út ákærur engan stórskaða
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík