Morgunblaðið - 20.07.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 20.07.2007, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Svona Páll minn, engin ástæða til að brynna músum, þú þarf ekkert að fara að ganga í galla- buxum, strigaskóm og lopapeysu, þú getur haldið þínum „einfalda smekk“, ég verð áfram. VEÐUR Ríkissjónvarpið sýndi í fyrrakvöldmerka heimildarmynd um verk- efni sem píanóleikarinn og hljóm- sveitarstjórinn Daniel Barenboim hefur unnið að frá árinu 1999 ásamt nokkrum samstarfsmönnum sínum.     Barenboim hefurunnið að upp- byggingu sinfón- íuhljómsveitar sem er skipuð ungum hljóðfæraleikurum frá Ísrael og nokkr- um arabaríkjum í nágrenni Ísraels, frá Sýrlandi, Líb- anon, Jórdaníu, Egyptalandi og Palestínu.     Hugmyndin er stórfengleg. Aðbrúa bilið á milli þessa unga fólks undir merkjum tónlistar.     Umrædd heimildarmynd sýnirframgang þessa verkefnis frá upphafi og fram á síðustu ár. Hún bregður upp mynd af mismunandi sjónarmiðum þessa unga fólks en svo kemur líka fram hvað þau læra mikið á að kynnast hvert öðru.     Myndin sýnir líka þau hörðu átöksem Daniel Barenboim hefur staðið í við stjórnvöld í Ísrael, m.a. í tengslum við þetta verkefni.     Barenboim hefur sýnt í verki aðþað er hægt að stuðla að skiln- ingi, þekkingu og sáttum milli Ísr- aelsmanna og araba með öðrum hætti en hingað til hefur verið gert.     Hann hefur skapað fordæmi semhægt er að byggja á í framtíð- inni.     Er ekki hægt að fá þessa hljóm-sveit hingað? Í nýja tónlistar- húsið?     Væri það ekki stórbrotin opnun áhinu nýja húsi? STAKSTEINAR Daniel Barenboim Stórbrotið verkefni SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                       *(!  + ,- .  & / 0    + -                                  12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                                     :  *$;<                  ! "      "!  #  $ %  "& '    !     *! $$ ; *!   ! "   "  # $" %&$ =2 =! =2 =! =2 #"! ' ( )*+$,  <2>           -+ $  +  . /$ $ 0+  (  1# (  $ ;   " 2  2 "$ !$ ! +%"  ((  !    $" (.  /#  . % "$"  $ /       3!, 4  +      !  3    54 $66 $"%7 $ +%$' ( 3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B  . . .                 . . . . . . . . . . . .                  Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Óli Páll | 19. júlí 2007 Rómantísk máltíð Ég passa ekki inn í þetta umhverfi var það eina sem ég hugsaði í gærkvöldi þegar ég fékk mér kvöldmat á hótelveitingastaðnum. Það var einhver hall- ærislegur Benidorm-geisladiskur í gangi og ekki batnaði það þegar Hú- líó mætti með gítarinn sinn og söng fyrir gesti eins og stoltur trúbador. Það varð mikil fýla þegar ég ósk- aði eftir því að það yrði matreiddur fyrir mig fiskur … Meira: olipall2.blog.is Renata Sigurbergsdóttir | 19. júlí 2007 „Urð og grjót“ Svo lagði ég af stað í heimsreisu. Mikið af- skaplega varð ég samt þreytt á öllum þessum trjám erlendis (…), það var ekki möguleiki að sjá náttúruna fyrir þeim. Það er reyndar ástæða þess að ég ákvað að drífa í þessu bloggi akk- úrat núna á þessari stundu. Það er einhver „rollubóndi“ að telja fólki trú um það að það þurfi að græða upp landið með lúpínu, barrtrjám og fleiru … Meira: reni.blog.is Hilmar Örn Þórlindsson | 19. júlí 2007 HA, maður trúir þessu varla! Enn á ný les maður sama ruglið þegar ís- lensk lið mæta til leiks í Evrópukeppni. Það er alveg sama við hvaða lið íslensk lið spila, þá er mótherjinn alltaf firnasterkur og mun sterkari aðil- inn. Keflavík spilar við Midtjylland og segjast Keflavíkingar eiga 35% möguleika á sigri! WHAT? Sömu sögu er að segja af handboltaliðum og körfuboltaliðum … Meira: lindi.blog.is Margrét Lóa Jónsdóttir | 5. júlí 2007 Barn sem slegið er með skó? Lítið barn sem slegið er með skó – eða er barið reglulega? Barn sem er beitt of- beldi er alltaf hrætt, augasteinarnir eru kvikir og sérhver lína í andlitinu þráir vernd. Ástúð. Allar þessar líkingar og myndir sem flögra um í huga manns á venju- legum degi. Mér finnst sem Suðurlandabúar upp til sveita séu á stundum afar frumstæðir í uppeldismálum. Þeir trúa því líka að sykur sé meinhollur. Flestir nota helming af sykri á móti kaffi. Og kókómalt er vinsælasti barnadrykkurinn ef marka má aug- lýsingarnar (að sjálfsögðu helm- ingur mjólk á móti sykurkakódufti!) en svo kyssa Spánverjar líka krakk- ana sína í tíma og ótíma og gera þá dúkkulega á kvöldin. Eins og í aug- lýsingum frá 1960. Tírólastíll fyrir drengina, iðulega í pastellitum. Hvít- ir sokkar og prinsessukjólar fyrir stelpurnar – að ógleymdum öllum slaufunum og borðunum. Og svo mega börnin reyndar ekki trufla. Sem minnir mig á rithöfund- inn Vigdísi Grímsdóttur. Ein af mín- um uppáhaldssetningum eftir hana er á þessa leið: Börn trufla ekki. Börn eru líf. Framhaldið er ennþá fallegra, Vigdís talar um að það sé dauðinn – og hans hrifsikrumla – sem skekur allt … En hversvegna er fyrirsögnin á þessari færslu: Barn sem slegið er með skó? Ástæðan er einfaldlega sú að ég varð vitni að því í gærkvöldi að barn var hirt og slegið með inniskó. Hvað annað gat ég sagt en að vitna á eins fínlegan hátt og mér er unnt í áð- urnefnd orð Vigdísar? Barsmíðarnar stöðvuðust og barnið settist hjá mér. Ég byrjaði auðvitað að reyna að sýna barninu vinsemd og ástúð sem endaði með því að það sofnaði í fang- inu á mér. Ég verð stundum vitni að heimsku og ljótleika og finn þá eins og allir aðrir að það er svo ósköp fátt sem hægt er að gera. Annað en þetta vanalega: Að reyna að láta gott af sér leiða. Reyna að vera almennileg mann- eskja. Meira: margretloa.blog.is BLOG.IS SAMTÖK verslunar og þjónustu (SVÞ) vilja fela Hagstofu Íslands það hlutverk að annast verðrann- sóknir. Telja samtökin heillvænlegt að byggja á vinnu Hagstofu við út- reikninga á vísitölu neysluverðs og á óumdeildri stöðu stofnunarinnar sem óhlutdrægs fagaðila og láta hana annast þá verðmælingu sem talin er henta neytendum í landinu. Þá er það mat samtakanna að stjórn- völd þurfi að endurskoða samninga og ráðstöfun opinberra fjárveitinga til verðrannsókna í þágu neytenda. Í yfirlýsingu, sem samtökin hafa sent frá sér, árétta þau að matvöru- verð hafi haldið verðbólgu niðri á undanförnum árum. Matvara hafi hækkað um 2,7% frá árinu 2002 til ársins 2007 en vísitala neysluverðs hækkað um 21,24%. Segja samtökin það út í hött að halda því fram að verslunin hafi ekki staðið sig og skil- að lækkunum til neytenda í landinu. Hafa þau óskað eftir viðræðum við Hagstofuna í næsta mánuði vegna þessa að því er segir í yfirlýsingunni. Hagstofa annast nú þegar mjög öflugar verðrannsóknir Hallgrímur Snorrason hagstofu- stjóri segist ekki hafa heyrt í fulltrú- um SVÞ enn sem komið er en starfs- menn Hagstofunar muni að sjálfsögðu taka fulltrúum samtak- anna opnum örmum þegar að því komi. Raunar sé það svo að starfs- menn Hagstofu hitti fulltrúa SVÞ og Alþýðusambandsins tvisvar til þrisv- ar sinnum á ári og sá hópur hafi verið vettvangur ágætra skoðanaskipta um aðferðafræði við mælingar og annað slíkt. Hallgrímur segir að Hagstofan stundi nú þegar mjög öfl- ugar verðrannsóknir með því að reikna vísitölu einu sinni í mánuði. Verð á mjög mörgum vörum í fjölda verslana sé mælt með nákvæmum hætti. „Verðkannanir Alþýðusam- bandsins og Neytendasamtakanna eru hins vegar mun einfaldari og ekki jafnmarktækar og mælingar okkar. Verðsöfnun er takmarkaðri og hættan á sveiflum í niðurstöðum þeirra er meiri en í niðurstöðum Hagstofu,“ segir Hallgrímur. „Það sem vakir fyrir okkur er að fá ASÍ, SVÞ og alla sem í hlut eiga til þess að verða nokkuð sáttir um það að við séum að mæla hlutina á til- tölulega skynsamlegan hátt. Það má að sjálfsögðu alltaf gera betur en í mínum huga er þetta hins vegar frekar spurning um það hvort Al- þýðusambandið og Samtök verslun- ar og þjónustu ættu ekki að ræðast við, hreinsa andrúmsloftið og hugs- anlega leiðrétta einhvern misskiln- ing,“ segir hagstofustjóri að lokum. Hagstofa annist verðrannsóknir Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.