Morgunblaðið - 20.07.2007, Side 14

Morgunblaðið - 20.07.2007, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT BÚIST er við að á morgun, laug- ardag, verði til- kynnt um niður- stöður forseta- kosninga á Ind- landi. Útlit er fyrir að Pratibha Patil hafi verið kosin forseti, en hún er 72 ára og yrði þá fyrsti kvenkyns forseti landsins. Patil er fulltrúi stjórnar- flokkanna og talið var að auðvelt yrði að tryggja henni kosningu í indverska þinginu en annað kom á daginn; baráttan var lituð af hneykslismálum tengdum fjöl- skyldu hennar. Samkvæmt könn- unum hafa indverskar konur flykkst að baki kynsystur sinni, ákafar að sjá konu í valdastöðu. Fyrsta konan á forsetastóli Pratibha Patil LEITAÐ er að um 50 ólöglegum innflytjendum nærri Kanaríeyjum, en bát þeirra hvolfdi í gær. Þegar hefur tekist að bjarga 48 manns. Í fyrra komu meira en 31.200 inn- flytjendur til eyjanna. Hvolfdi við Spán BANDARÍKJAFORSETI kvaðst í gær hafa íhugað að beita hervaldi í Darfur í Súdan til að stöðva „þjóðar- morð“ en hafnað þeirri hugmynd. Íhugaði hernað YFIR 50 manns biðu bana í þremur sprengjutilræðum í Pakistan í gær. Alls hafa nær 200 manns látið lífið í hrinu tilræða sem hófst eftir árás hermanna á mosku stuðnings- manna talibana í vikunni sem leið. Reuters Ólga Stjórnarandstæðingar mót- mæla blóðsúthellingum í Pakistan. Yfir 50 féllu Lissabon. AFP, AP. | Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bret- lands, tók í gær formlega við nýju hlutverki sínu sem sérlegur sendi- maður Kvartettsins svonefnda í málefnum Mið-Austurlanda. Blair átti fund með leiðtogum Kvartettsins – Sameinuðu þjóð- anna, Bandaríkjanna, Evrópusam- bandsins og Rússlands – í Lissabon í gær. Á fundinum voru Ban Ki- moon, framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Javier Solana, æðsti embættismaður Evrópusambands- ins í utanríkismálum, auk gestgjaf- ans Luis Amado, utanríkisráðherra Portúgals. Eftir fundinn kvaðst Blair vera ánægður með umboð sitt sem sendimaður Kvartettsins og kvaðst vongóður um að sér tækist að stuðla að friði milli Ísraela og Palestínumanna. Er þetta í fyrsta skipti sem leiðtogar Kvartettsins koma saman frá því því að Hamas- hreyfingin náði Gaza-svæðinu á sitt vald eftir harða valdabaráttu við Fatah, hreyfingu Mahmouds Ab- bas, forseta Palestínumanna. Condoleezza Rice sagði að hvorki Kvartettinn né Bandaríkjastjórn léði máls á viðræðum við Hamas. Utanríkisráðherra Portúgals, for- ystuþjóðar Evrópusambandsins þetta misserið, tók í sama streng. Margir telja að erfitt verði fyrir Blair að ná árangri vegna takmark- aðs umboðs hans og þeirrar afstöðu að ekki komi til greina að semja við Hamas. Honum hefur aðeins verið falið að efla stofnanir Palestínu- manna og hjálpa þeim að koma á lögum og reglu á svæðum þeirra. Rice kvaðst þó vongóð um að störf Blairs og friðarráðstefna, sem Bandaríkjaforseti hefur boðað í haust, verði til þess að skriður kæmist á friðarumleitanirnar. Blair ánægður með umboðið Í HNOTSKURN » Miðstjórn FrelsissamtakaPalestínumanna (PLO) heim- ilaði í gær Mahmoud Abbas for- seta að skipuleggja forseta- og þingkosningar eftir að Hamas náði Gaza-svæðinu á sitt vald. » Leiðtogi Hamas sagði aðhreyfingin myndi hindra kosningarnar. „Með því að flýta kosningunum er verið að snið- ganga vilja palestínsku þjóðar- innar og þessi tilraun er dæmd til að mistakast,“ sagði hann. AÐ minnsta kosti tuttugu og sex biðu bana og fimmtán slösuðust þegar sjö hæða bygging hrundi til grunna í borginni Bombay (Mumbai) á Indlandi í fyrrinótt. Ótt- ast var að nokkrir til viðbótar lægju enn í rústum byggingarinnar en björgunarfólk vann að því í gær að reyna að finna þá. Miklar rigningar settu þó strik í reikninginn. Ætt- ingjar fólks í húsinu biðu milli von- ar og ótta eftir fréttum. Í húsinu voru nokkrar verslanir, einnig heilsugæslustöð og þar var ennfremur íbúðarhúsnæði. Ekki var ljóst hvað olli hruni bygging- arinnar en rannsókn er hafin af hálfu yfirvalda. Ein kenning var þó sú að lélegt sement hefði verið not- að þegar húsið var reist fyrir tutt- ugu árum.AP 26 fórust þegar hús hrundi Eftir Ástu Sóleyju Sigurðardóttur astasoley@mbl.is MYNDBANDSUPPTAKA af flugslysinu í Sao Paulo í Brasilíu sýnir flugvélina koma inn á flug- brautina á óvenjulega miklum hraða en vélin rann af flugbrautinni, yfir fjölfarinn veg og inn í vöru- hús handan vegarins. Tæplega 200 manns týndu þar lífi. Á myndbandinu sést sambærileg vél fara flugbrautina á 11 sekúndum en vélin sem fórst fór sömu vegalengd á aðeins þremur sekúndum. Mikil reiði hefur vaknað í Brasilíu vegna slyss- ins í Sao Paulo en 181 lík hefur náðst úr flakinu af þeim 186 sem voru í vélinni en enginn af þeim lifði slysið af. Þrjú lík hafa fundist í byggingunni sem vélin lenti á, 11 manns eru á spítala, þar af fjórir í lífshættu, og fimm manns er enn saknað. Aðal- orsök slyssins er talin vera flugbrautin en hún hef- ur legið undir gagnrýni fyrir að vera of stutt og mjög hál í rigningu. Cezar Britto, formaður Félags lögfræðinga í Brasilíu, sagði slysið hafa verið fyrirsjáanlegan harmleik og bætti við að trúverðugleiki brasilíska flugkerfisins hefði farist ásamt vélinni og hinum látnu. Flugmaður í Sao Paulo sagði, í viðtali við dagblaðið O Globo, brautina hála eins og sápu og að yfirvöld hefðu aldrei átt að leyfa vélinni að lenda. Slysið ekki einsdæmi Síðastliðinn mánudag, daginn fyrir slysið, höfðu tvær vélar runnið af sömu flugbraut en þó án þess að slys hlytist af. Í mars síðasliðnum hafði Boeing 737 einnig lent í erfiðleikum á brautinni. Alþjóð- legir sérfræðingar í flugöryggismálum hafa lengi varað við hættum flugbrautarinnar og þá sérstak- lega í rigningu. Flugvallaryfirvöld hafa reynt að laga brautina og var nýlega lagt nýtt malbik en það er ekki orðið nógu hart til að gera rákir í það, en rákirnar leiða mesta regnvatnið í burtu. Rákirnar verða gerðar í ágúst eða september en brautin verður nú lokuð í 20 daga og verður ekki notuð í mikilli rigningu þar til rákirnar hafa verið gerðar. Armando Schneider Filho, yfirmaður brasilísku flugmálastjórnarinnar, sagði engan möguleika á að hál brautin hefði orsakað slysið og að brautin hefði verið athuguð 20 mínútum fyrir slysið. Brautin hefði verið blaut en engin vatnssöfnun hefði átt sér stað. Jim Burin, sérfræðingur í flugöryggi, sagði hins vegar vatnssöfnun á flugbrautinni líklegustu or- sökina. Forseti Brasilíu hefur beðið lögreglu að rann- saka hvort farið hafi verið eftir settum reglum við endurnýjun flugbrautarinnar en ýmsir alþjóðlegir rannsóknaraðlilar munu einnig rannsaka slysið. Deila um orsök flugslyss  Mikil reiði í Brasilíu vegna flugslyss sem kostaði nær 200 manns lífið  Myndbandsupptaka sýnir vélina lenda á flugbrautinni á of miklum hraða AP Syrgja Ættingjar hinna látnu stíga um borð í flugvél TAM-flugfélagsins á leið til Sao Paulo. Fræðsla og nánari upplýsingar á www.or.is www.or.is Umhverfi Nesjavallavirkjunar og Hengilssvæðið er með vinsælustu útivistarsvæðum á landinu, tilvalin til náttúruskoðunar og gönguferða. Það er einnig skemmti- leg upplifun að fræðast um hið tæknilega stórvirki, Nesjavallavirkjun. Um svæðið liggja merktar gönguleiðir og fræðslustígar í boði eru skoðunar- ferðir um virkjunina fyrir einstaklinga og hópa. Gestamóttaka er opin í sumar, mánudaga til laugardaga kl. 9:00 - 17:00 og sunnudag kl.13:00 - 18:00. ÍS L E N S K A S IA .I S O R K 3 80 04 0 6. 2 0 0 7 Íslensk vísindi - vistvæn orka Komdu í heimsókn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.