Morgunblaðið - 20.07.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 17
AUSTURLAND
voru afskaplega vingjarnlegir,“ seg-
ir í bréfinu frá Len og Leonard Mal-
colm, frá Birkenhead við ána Mer-
sey, en þar er strákunum einnig
hrósað fyrir að tala góða ensku, sem
hjálpar óneitanlega í þessu starfi.
Peningarnir frá Englandi fara í
sérstakan sjóð sem verður notaður
til uppákomu í lok sumars, en í hann
fer þjórféð úr töskuburðinum.
Vinnulaunin eru notuð til að greiða
ferðakostnað liðsins.
Eftir Gunnar Gunnarsson
Egilsstaðir | Fjórða flokki karla í
knattspyrnu hjá Hetti á Egilsstöðum
barst nýverið 18 þúsund króna ávís-
un frá enskum hjónum. Hjónin voru
hluti af hóp sem dvaldist á Hótel
Héraði í lok maí en strákarnir hafa
séð um töskuburð á hótelinu í sum-
ar.
„Ég hreifst mest af fótboltastrák-
unum sem báru töskurnar – þeir
Fengu rausnarlegt
þjórfé fyrir töskuburð
Óvænt aukalaun Auður Anna Ingólfsdóttir, hótelstjóri á Hótel Héraði, af-
hendir fyrirliða Hattarliðsins, Kristófer Erni Kristóferssyni, þjórféð.
Morgunblaðið/Gunnar Gunnarsson
Eftir Sigurð Aðalsteinsson
Jökulsárhlíð | Verið er að gera til-
raunir með uppgræðslu eyra Jökuls-
ár á Dal úti í Jökulsárhlíð. Undanfar-
ið hafa ábúendur í nágrenni eyranna
kvartað út af sandfoki sem verið hef-
ur óvenjuþrálátt í sumar.
Að sögn Eiríks Magnússonar,
bónda í Hólmatungu, hefur verið
mikið sand- og moldrok í sumar.
,,Það er samt ekki eins mikið og fyrir
tveimur árum þegar verið var að
ryðja jarðveginum af stíflustæðinu
við Kárahnjúka í ána, þá var mun
meira sand-, mold- og leirfok en nú,
þó það sé ærið og smjúgi inn um öll
híbýli og skemmi viðkvæm raftæki
og gólf, sagði Eiríkur.
Alls óvíst um árangur
Á dögunum voru menn frá Land-
bótasjóði Norður-Héraðs, sem sér
um uppgræðslu vegna Kárahnjúka-
virkjunar samkvæmt samningi við
Landsvirkjun, að gera tilraun til að
hefta sandfokið með því að sá
grasfræi og dreifa áburði á foksvæð-
unum við Hnitbjörg og Surtsstaði í
Jökulsárhlíð.
Áburði og fræi var dreift með
tveimur stórum traktorum og gerð
tilraun til að valtra yfir dreifingar-
svæðið til að reyna að auka árangur
sáningarinnar. Eiríkur Magnússon
og Veturliði Kristjánsson, bóndi á
Surtsstöðum, voru að vinna að sán-
ingunni ásamt mönnum frá Land-
bótasjóði þegar fréttaritara bar að
garði og sögðu þeir þetta vera tilraun
til að hefta sandfokið, en alls óvíst
með árangurinn, sögðust þó vona að
þetta skilaði einhverjum árangri.
Gera tilraun til upp-
græðslu Jökulsáreyra
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Engin smásmíði Stórar dráttarvélar eru notaðar við sáningu og áburð-
ardreifingu á vegum Landbótasjóðs Norður-Héraðs og Landsvirkjunar.
LANDIÐ
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Hornafjörður | „Krakkarnir okkar
eru strax byrjaðir að æfa sig á
vellinum. Þetta er kærkomið,“ seg-
ir Ragnhildur Einarsdóttir, for-
maður undirbúningsnefndar fyrir
unglingalandsmót UMFÍ á Horna-
firði. Frjálsíþróttavöllurinn á
Sindravöllum á Höfn er tilbúinn
fyrir mótið sem fram fer sam-
kvæmt venju um verslunarmanna-
helgina.
Frjálsíþróttavöllurinn er stærsta
framkvæmdin sem Sveitarfélagið
Hornafjörður leggur í vegna ung-
lingalandsmótsins. Nú er búið að
leggja gerviefni á hlaupa- og
stökkbrautir. Vegna hagstæðs veð-
urfars tókst að gera það á til-
settum tíma en oft hefur dregist
fram á síðustu daga að ganga frá
völlunum fyrir mótin. „Það er kær-
komið að ljúka þessu svona tím-
anlega þannig að menn geti notað
síðustu vikurnar til að vinna að
öðrum undirbúningi,“ segir Ómar
Bragi Stefánsson, starfsmaður
UMFÍ, sem er framkvæmdastjóri
unglingalandsmótanna.
Glæsileg aðstaða
Hann segir að staðan á Höfn sé
glæsileg og er ánægður með vinnu
heimafólks. Það eina sem ekki hef-
ur gengið upp er bygging nýrrar
sundlaugar en það er af tækni-
legum ástæðum. Ómar Bragi segir
að eigi að síður hafi verið ákveðið
að keppa í sundi í gömlu litlu laug-
inni. Þátttakendur viti af því fyr-
irfram.
Keppt verður í tíu íþróttagrein-
um á unglingalandsmótinu að
þessu sinni, fleiri greinum en áður.
Keppt verður í knattspyrnu á
Sindrasvæðinu og krakkablaki,
auk frjálsra íþrótta, og körfubolta í
íþróttahúsinu sem er á þessu sama
svæði. Þá verður keppt í golfi,
hestaíþróttum, mótókrossi, skák
og glímu. Ekki hefur áður verið
keppt í krakkablaki og mótókrossi
á unglingalandsmóti.
„Ég veit ekki við hverju má bú-
ast. Veðrið mun hafa áhrif,“ segir
Ragnhildur sem auk þess að vera
formaður unglingalandsmótsnefnd-
ar er formaður Ungmennasam-
bandsins Úlfljóts sem býður til
mótsins. Hún vonast til að 800 til
1000 keppendur taki þátt og þeim
fylgi 8 til 10 þúsund manns í heild-
ina. Miðar hún þá við reynsluna af
síðustu mótum.
Leikir og skemmtun
Unglingalandsmótið er ekki ein-
ungis íþróttahátíð fyrir 11 til 18
ára táninga, heldur vímuefnalaus
fjölskylduhátíð. Samhliða íþróttun-
um er boðið upp á fjölbreytta af-
þreyingu, leik og skemmtun fyrir
fjölskyldurnar. Ómar Bragi segir
að lögð verði áhersla á hafa leiki
og keppni í gangi allan tímann til
að hafa ofan af fyrir yngri krökk-
unum, sem ekki hafi aldur til að
keppa á mótinu sjálfu. Þá eru
kvöldvökur öll kvöldin, með hljóm-
sveitum og skemmtikröftum. Að
sjálfsögðu verður efnt til móts í
Hornafjarðarmanna og til stendur
að halda Þórbergsleika þar sem
þrautir verða valdar í anda skálds-
ins frá Hala.
Unnið hefur verið að undirbún-
ingi mótsins í tvö ár en af auknum
krafti í eitt ár. Nú stendur loka-
spretturinn yfir. „Þetta hefur verið
mjög skemmtilegt,“ segir Ragn-
hildur Einarsdóttir um upplifun
sína af starfinu.
Undirbúningi að ljúka
fyrir unglingalandsmót
Ljósmynd/Ómar Bragi Stefánsson
Fyrsta æfingin Frjálsíþróttavöllurinn á Höfn í Hornafirði er tilbúinn, tím-
anlega fyrir unglingalandsmót. Unglingarnir tóku strax til við æfingar.
Gerviefni komið
á íþróttavöllinn
Í HNOTSKURN
»Tíunda unglingalandsmótUMFÍ verður haldið á
Hornafirði 3. til 5. ágúst.
»Mótið er íþrótta- og fjöl-skylduhátíð með áherslu á
11 til 18 ára börn og unglinga.
»Unglingalandsmótin eruhaldin á hverju ári. Að ári
verður mótið í Þorlákshöfn. Sund Notast verður við gömlu
sundlaugina á Höfn við keppni á
unglingalandsmótinu. Fram-
kvæmdir eru hafnar við nýja laug
en hún verður ekki tilbúin.
HLAUPTU
TIL
GÓÐS 18.
ÁGÚST!
18. ÁGÚST
2007GLITNIS
REYKJAVÍK
UR
MARAÞON
Nú getur
þú hlau
pið fyrir
gott mál
efni að e
igin vali
í
Reykjavík
urmaraþo
ni Glitnis
. Glitnir
greiðir 5
00 kr. ti
l
góðgerða
rmála á
hvern kí
lómetra
sem viðs
kiptavinir
*
bankans
hlaupa og
3.000 k
r. fyrir sta
rfsmenn.
Skráðu þ
ig á www
.glitnir.is
og hlaup
tu til góð
s.
Allir sigra
18. ágús
t!
*Viðskipt
avinir í V
ild, Náms
vild,
Gullvild o
g Platínu
m.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA