Morgunblaðið - 20.07.2007, Side 18
18 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
DÚÓIÐ Paradís leikur í dag listir
sínar á hádegistónleikum Ket-
ilhússins. Hafdís Vigfúsdóttir leik-
ur á flautu og Kristján Karl Braga-
son á píanó. Tónleikarnir hefjast á
slaginu kl. 12 og standa yfir í um 50
mínútur.
Í fréttatilkynningu um tón-
leikana segir: „Það er fátt meira
hressandi en að taka smá forskot á
helgina og gera sér glaðan dag
strax í hádeginu. Fólk mætir síðan
endurnært í vinnuna eftir hádegið
og er enn betur í stakk búið að
njóta helgarinnar en ella.“
Miðaverð er 1.000 kr. en hægt er
að kaupa sér miða á Paradís við
innganginn.
Paradís í
hádeginu
AKUREYRI
VERSLUNARSTAÐURINN forni
á Gásum verður endurreistur um
helgina. Gestum gefst þá færi á að
upplifa starfshætti og menningu síð-
miðalda með hjálp frá innlendum og
erlendum kaupmönnum ásamt ýmsu
handverksfólki.
Þar verður mikið líf, eins og kem-
ur fram í fréttatilkynningu um við-
burðinn: „Víðsvegar um kaupstaðinn
mun eyfirskt og danskt handverks-
fólk, íklætt miðaldaklæðnaði, vinna
að leður- og vattarsaumi, ullarþæf-
ingu, vefnaði og tálgun. Miðalda-
tónlist mun hljóma um kaupstaðinn,
brennisteinn úr Námafjalli verður
hreinsaður og hleypt verður af fall-
byssu af þeirri gerð sem tíðkaðist í
Evrópu á miðöldum.
Hugaðir gestir geta reynt sig við
bogfimi og steinakast og fylgst með
riddurunum, brynjuðum að erlend-
um sið, skylmast. Kaupmennirnir og
handverksfólkið kemur að sjálf-
sögðu hlaðið vörum í kaupstaðinn og
því viðbúið að perlur, gler, skart,
sverð, hnífar, skeiðar, litað band og
fleiri skemmtilegir hlutir ættaðir frá
miðöldum skipti um eigendur.“
Engin greiðslukort á miðöldum
Minjasafnið á Akureyri, Hörgár-
byggð og Akureyrarstofa standa að
baki endurreisn Gásakaupstaðar.
Einnig hefur innlent og erlent
handverksfólk unnið að því í vetur
að gera markaðinn meira spennandi
en á síðasta ári, þegar um 1.300
manns heimsóttu Gásir.
Friðrik V mun elda súpu í mið-
aldastíl sem verður seld gegn vægu
gjaldi til styrktar Gásaverkefninu.
Áhugasömum gefst einnig kostur á
að fá leiðsögn um sögustaðinn báða
dagana sem hátíðin fer fram. Rétt er
þó að geta þess að þar sem greiðslu-
kort tíðkuðust ekki á miðöldum rru
gestir beðnir að hafa með sér reiðufé
til að vera gjaldgengir á mark-
aðnum.
Lýkur með fallbyssuskoti
Markaðurinn verður opinn frá kl.
10–16 báða dagana. Hann mun verða
opnaður á laugardegi þegar Sigrún
Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri set-
ur kauptíðina með fornum hætti. Í
kjölfarið mun Valur Þór Hilmarsson
umhverfisfulltrúi Ferðamálastofu
segja nokkur orð. Kauptíðinni lýkur
svo á sunnudaginn með fallbyssu-
skoti sem sendiherra Dana á Íslandi,
Lasse Reimann, hleypir af.
Síðustu tvö ár hefur Ferðamála-
stofa veitt Gásaverkefninu styrki
sem nýttir hafa verið til þess að
koma upp salernisaðstöðu á Gásum.
Hún mun gera það mögulegt að
gestir geta staldrað lengur við á
svæðinu og notið miðaldamenningar
og náttúrunnar á svæðinu.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. fyrir
fullorðna, 250 kr. fyrir 13 ára og
yngri en þeir sem eru minni en mið-
aldasverð borga engan aðgangseyri.
Þat mælti mín móðir, at
mér skyldi kaupa
Merkar miðaldir Um helgina verður tímaflakk um síðmiðaldir á Gásum.
Gásir munu iða af
lífi um helgina
Í HNOTSKURN
»Gásir eru við Hörgárósa íEyjafirði, 11 km norðan
við Akureyri.
»Hvergi á Íslandi eru varð-veittar jafnmiklar mann-
vistarleifar um verslunarstað
á miðöldum.
»Gásir voru helsti versl-unarstaður á Norðurlandi
á miðöldum og er staðarins
víða getið í fornritum frá 13.
og 14. öld.
»Á síðasta ári komu um1.300 manns á miðalda-
markaðinn, sem sífellt fer
stækkandi.
www.gasir.is
ENGAR ákveðnar
reglur gilda um gerð
hringtorga í vegakerf-
inu en þar sem þau
tengjast á einn eða
annan hátt við þjóðvegi
er gjarnan um sam-
vinnuverkefni Vega-
gerðarinnar og við-
komandi sveitarfélags
að ræða, að sögn Jó-
hanns Bergmanns,
deildarstjóra nýfram-
kvæmda Vegagerðar-
innar á suðvestursvæði
landsins.
Hringtorg eru með
mismunandi hætti í
Reykjavík. Íbúar í
Árbæ hafa bent á að
gömlu hringtorgin sitt
hvorum megin við Suð-
urlandsveg, þ.e. annars
vegar við Bæjarháls og
hins vegar við Hádeg-
ismóa, séu börn síns
tíma, flöt og aðeins
þökulögð, meðan önnur
hringtorg í nágrenninu
eins og svonefnt
Rauðatorg á mótum
Suðurlandsvegar og
Breiðholtsbrautar og hringtorg á
Bæjarhálsi séu snyrtileg og jafnvel
skrýdd blómum og trjám.
Ámundi Brynjólfsson, skrifstofu-
stjóri mannvirkjaskrifstofu á fram-
kvæmdasviði Reykjavíkurborgar,
segir að á undanförnum árum hafi
borgin gert meira en áður í því að
gera hringtorg fallegri með aðstoð
landslagsarkitekta og um leið reynt
að stuðla að því að þau gerðu það að
verkum að ökumenn drægju úr
hraða bifreiða sinna. Þessi vinna
beindist fyrst og fremst að nýjum
torgum og sér vitanlega hefði ekki
verið óskað eftir breytingu á um-
ræddum hringtorgum í Árbæ, þótt
full ástæða væri til þess.
Vegagerðin á Suðurlandsveginn
og tengingar inn á hann. Jóhannes
Bergmann segir að þegar um sam-
vinnuverkefni Vegagerðarinnar og
sveitarfélags sé að ræða sjái Vega-
gerðin gjarnan um framkvæmdina
en frumkvæði um gerð og breyting-
ar komi frá sveitarfélaginu.
Engar reglur um
gerð hringtorga
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
MIKIL landmótun hefur átt sér
stað í Básaskarði við Kjóavelli í
Kópavogi en á svæðinu verður mik-
ið og stórt hesthúsahverfi í framtíð-
inni.
Jarðvegsfylling hefur staðið yfir á
Kjóavöllum í mörg ár. Þar eru fyrir
nokkur hesthús og til stendur að
bæta um betur og reisa mikla
hesthúsabyggð með tilheyrandi
reiðvegum og æfinga- og keppnis-
völlum. „Þarna verður stærsta reið-
höll landsins,“ segir Gunnar I.
Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi,
og bætir við að byggingarfram-
kvæmdir hefjist á næsta ári.
Í næsta nágrenni er risið glæsi-
legt knattspyrnuhús og næsta skref
í þeirri uppbyggingu er bygging
Knattspyrnuakademíu Íslands með
tveimur handboltavöllum í fullri
stærð, líkamsræktarstöð og sund-
laug. Gert er ráð fyrir að næsta
áfanga ljúki að ári.
Gert klárt fyrir hesthúsabyggð,
reiðstíga og reiðhöll á Kjóavöllum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Atgangur Mikil uppfylling hefur átt sér stað á Kjóavöllum að undanförnu með tilheyrandi akstri og ryki.
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Góður próteingjafi fyrir unga sem aldna.
Wheat grass