Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 22
matur
22 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
M
ataráhugi minn
kviknaði ekki al-
mennilega fyrr en
við fluttum til Lund-
úna í mastersnám
2001, þó að ég hafi hætt að borða
sykur þegar ég var 12 ára gömul. Í
London bjuggum við í sex ár og með
öllu því frábæra hráefnisúrvali og
góða verðlagi kviknaði áhuginn held-
ur betur,“ segir Sigrún Þorsteins-
dóttir sem hefur frá árinu 2003 átt
sér afar fjölbreyttan uppskriftavef,
sem öllum áhugamönnum um hollt
mataræði er frjálst að nota.
„Ég setti vefinn upp aðallega til að
halda öllum uppskriftunum mínum
til haga,“ segir Sigrún, sem nú er 33
ára og gift Jóhannaesi Erni Erlings-
syni, sem er forritari og smíðaði
matarvef konu sinnar. „Ég sé alfarið
um eldamennskuna en maðurinn
minn er yfirsmakkari. Þegar þarf að
uppfæra vefinn rukkar hann fyrir í
mat og má þá velja sér eitthvað af
vefnum. Þau vinnuskipti hafa gengið
mjög vel. Hann sér hinsvegar alfarið
um kaffimálin á heimilinu enda kaffi-
áhugamaður fram í fingurgóma og
hefur m.a. dæmt á mótum og á sitt
„kaffihorn“ í eldhúsinu sem ég kem
ekki nálægt,“ segir Sigrún, sem er
sérfræðingur í aðgengismálum fatl-
aðra á Netinu.
Grænmeti og sushi í uppáhaldi
En hvers konar hráefni er í upp-
haldi hjá matgæðingnum? „Græn-
meti enda er ég grænmetisæta og
mér finnst líka voðalega gaman að
elda framandi rétti, sérstaklega frá
Austur-Afríku og Asíu. Mér finnst
gott að búa til pottrétti, sem geta
mallað lengi og duga í nokkra daga,
sér í lagi þegar vinnan kallar og svo
erum við rosalegir sushi-fíklar og
verðum að fá okkar sushi-skammta
reglulega. Ég er nýfarin að elda fisk
aftur enda eigum við þar frábært
hráefni, sem við borðum alltof lítið
af. Við erum nýflutt heim eftir sex
ára búsetu í Lundúnum. Þar
gleymdum við pínulítið að borða fisk
enda hráefnið ekki eins ferskt og
hér. Ég reyni alltaf að elda allan mat
frá grunni og hef aldrei keypt
skyndimat til að elda úr og örbylgju-
ofn hef ég aldrei átt. Ég nota góðar
olíur og ferskt, lífrænt ræktað hrá-
efni, eins og ég mögulega get.“
Hamingjuhænur
ófáanlegar
Þegar hollustan er í hávegum höfð
hvernig er þá best að haga innkaup-
unum?
„Ég kaupi aldrei unna matvöru og
aldrei neitt með aukaefnum, bragð-
efnum eða litarefnum. Ég útbý t.d.
sjálf múslíið mitt og kaupi aldrei
kex, snakk eða þvíumlíkt. Ég skoða
ítarlega innihaldslýsingar ef ég er að
kaupa vöru, sem ég þekki ekki, en
það er mér mikilvægt að varan sé
ekki einungis holl heldur líka að hún
komi ekki frá stöðum þar sem illa er
farið með fólk, dýr og landsvæði. Ég
kaupi því ekki vörur með pálmaolíu
nema varan hafi viðurkenningu þess
efnis að vinnsla á pálmaolíunni hafi
ekki skaðað regnskógana eða heim-
kynni dýra í útrýmingarhættu. Vel-
ferð dýra skiptir mig miklu máli og
ég kaupi ekki kjúklingakjöt á Íslandi
þar sem enginn aðili er með „ham-
ingjusamar hænur“. Við erum mörg-
um árum á eftir Lundúnabúum í
þeim efnum. Það er algjörlega óvið-
unandi að dýrum hafi liðið illa áður
en þeirra er neytt. Verðlag á Íslandi
er líka óviðunandi, sérstaklega á líf-
rænu og hollu hráefni því það er allt
að fjórum sinnum dýrara hér en í
London. Með því að lækka verð á
hollustuvörum er ég viss um að það
megi lækka kostnað í heilbrigð-
isgeiranum og sjúkrahúsinnlögnum
myndi fækka,“ segir Sigrún.
Alltaf á einhverjum
þvælingi
Ferðalög eru annað áhugamál
þeirra hjóna því Sigrún segir þau
alltaf á einhverjum þvælingi. „Við
löbbum upp um fjöll og firnindi,
bæði hér heima og erlendis. Við höf-
um starfað sem fararstjórar í Kenýa
og fer maðurinn minn reglulega á
Kilimanjaro. Hestamennska er líka
ofarlega á áhugalistanum og við er-
um einmitt að fara sem meðhjálp-
arar yfir Kjöl í næstu viku með tólf
þýska hestamenn,“ segir Sigrún,
sem nestaði blaðamann að lokum
með fimm hollustu-uppskriftum úr
uppskriftasafninu sínu.
Engifer- og melónudrykkur
(fyrir tvo)
2 gulrætur
1 Galia-melóna eða hunangs-
melóna, fræhreinsuð og afhýdd
2 lime (best að nota sítruspressu
en annars má kreista safann með
höndunum)
3 cm engiferbútur, afhýddur
Setjið allt í safapressu nema lime
ávöxtinn. Berið fram í háum glösum
með klökum og lime-sneiðum. Líka
má nota vatnsmelónu í þennan safa.
Þessi drykkur er fullur af holl-
ustu. Engifer er hreinsandi og gott
fyrir meltinguna og melónan er full
af vítamínum. Nota má bæði Galia-
melónu, sem er ljósgræn að innan,
eða hunangsmelónu. Lime er afar
frískandi en því má sleppa ef þið vilj-
ið sætari safa. Gott er að nota safa-
pressu fyrir þessa uppskrift en fyrir
þá sem ekki eiga svoleiðis má kaupa
gulrótarsafa og blanda restina í
blandara. Rífa engiferið fyrst og
hræra svo saman. Safinn verður þá
þykkari.
Múslí með hnetum, fræjum
og þurrkuðum ávöxtum
2 bollar haframjöl
1 bolli spelthafrar eða tröllahafrar
1 bolli speltflögur
½ bolli þurrkaðir bananar
½ bolli þurrkaðar apríkósur
½ bolli döðlur
1 bolli rúsínur
½ bolli möndluflögur
½ bolli sólblómafræ
½ bolli heslihnetur, þurrristaðar á
pönnu. Hýðið fjarlægt og saxað
gróft
¼ bolli graskersfræ
2 tsk. byggmaltsíróp, blandað sam-
an við 2 msk. af vatni. Má sleppa en
gefur gott bragð
Saxið þurrkuðu ávextina nema
rúsínurnar í litla bita og setjið til
hliðar.
Blandið haframjölinu og spelt-
höfrunum eða tröllahöfrunum sam-
an í skál ásamt sólblómafræjunum.
Sigtið allt mjöl í fíngötuðu sigti því
þá fer allt kusk úr. Blandið þurrkuðu
ávöxtunum saman við ásamt
möndluflögunum.
Blandið byggmaltsírópið saman
við vatnið og blandið vel með te-
skeið. Dreifið byggmaltsírópinu í
mjórri bunu yfir hafrablönduna og
Múslíið Eftir langa leit að góðu múslíi gafst Sigrún upp og hóf að búa til heimatilbúið múslí. Stangirnar Stútfullar próteinum og kolvetnum sem koma göngugörpum upp síðustu brekkuna.
Hollustan í hávegum
Matgæðingurinn Sigrún Þorsteinsson eldar allan sinn mat frá grunni og passar vel upp á hollmeti fæðunnar.
Grillsósan Uppskriftin er ættuð frá kokkinum Abdalla Hamisi í Mombasa í
Kenýa. En sósuna bar hann fram með risastóra Kingfish-fiskinum sem þau
hjónin höfðu veitt fyrr um daginn í Indlandshafi.
Bananamuffins Sætir og ekki of
þéttar muffins sem komu á óvart þó
maður sé ekki með glúteinóþol.
Drykkurinn Frískandi melónu-
drykkur sem er fullur af hollustu
og hreinsandi fyrir meltinguna.
Morgunblaðið/Sverrir