Morgunblaðið - 20.07.2007, Side 23

Morgunblaðið - 20.07.2007, Side 23
hrærið vel í á meðan. Dreifið á nokkrar bökunarplötur með bök- unarpappír undir og látið þorna í nokkra klukkutíma, eða yfir nótt, eða hitið í ofni á um 50°C í 30 mín- útur. Gott er að nota kókosflögur út í. Skipta má út þurrkuðu ávöxtun- um fyrir aðra t.d. má nota döðlur og þurrkuð epli í staðinn fyrir banana og rúsínur svo dæmi sé tekið. Einnig er gott að setja ristaðar kókosflögur út í. Einnig má nota hörfræ, sesam- fræ og margt annað í staðinn fyrir sólblómafræ. Banana-, döðlu- og möndlustangir (20 stykki) 460 g þurrkaðir bananar 200 g heilar möndlur 120 g þurrkaðar döðlur 4 msk appelsínu- eða eplasafi Maukið möndlurnar í matvinnslu- vél þangað til þær eru orðnar frekar fínlegar, samt ekki að dufti. Setjið í stóra skál. Maukið banana og döðlur með appelsínusafanum, Bætið við meira ef ykkur finnst þurfa. Þetta ætti ekki að verða að algjöru mauki samt, meira eins og þétt deig. Blandið öllu saman með höndun- um og hnoðið vel eða notið hrærivél og deigkrók. Mótið stangir (ég miða við 40 g) og pakkið hverjum og ein- um inn í plast. Það má auðvitað móta kúlur, kubba o.s.frv. allt eftir smekk. Það er góð tilbreyting að setja eins og 1 tsk. af kanil saman við. Glútenlausir bananamuffins 200 g hrísgrjónamjöl 60 g kartöflumjöl 30 g maísmjöl 2 tsk. vínsteinslyftiduft 1⁄2 tsk. heilsusalt 3-4 stórir vel þroskaðir bananar 110 g ávaxtasykur 1 egg, lauslega hrært 1 eggjahvíta, lauslega hrærð 1 msk. kókosfeiti eða ólífuolía 90-120 sojamjólk eða vatn Hitið ofninn í 200°C. Sigtið saman allt mjöl ásamt vínsteinslyftiduftinu í stóra skál. Í annarri skál skuluð þið stappa banana vel. Hrærið sykrin- um, egginu, mjólkinni og olíunni saman við. Hellið blauta hráefninu saman við það þurra og blandið þangað til allt er orðið vel blautt. Setjið í muffinsform og bakið í 20- 25 mínútur. Gott er að bæta söx- uðum valhnetum eða pecanhnetum saman við. Grillsósa Abdalla Hamisi (Meðlæti fyrir 5-6) l laukur, smátt skorinn 1 rauð paprika, skorin í smáa bita 3 tómatar, vel þroskaðir, skornir smátt 1 tsk. duft af sætri, reyktri papriku 1 chilli, skorinn smátt, má líka nota paprikuduft eða chilliduft 3-4 hvítlauksrif söxuð smátt 2-3 cm engifer, afhýddur og saxaður smátt. 3 msk. byggmaltsíróp eða hlynsíróp 2 msk. tómatmauk 2 msk. mangómauk 3 msk. edik 1 tsk. sjávarsalt 1 tsk. karríduft 1 grænmetisteningur ásamt 1⁄4-1⁄2 lítrum af vatni Setjið allt hráefni í djúpa pönnu og látið malla í um 30 mínútur. Kælið. Frábær grillsósa með grill- uðum mat og góð marenering fyrir grænmeti. Líka er gott að baka fisk með sósunni, t.d. í álpappír. www.cafesigrun.com MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 23 að svarta krossinum og bakkanum. Sú sundaðferð felur í sér að höfuðið fer aldrei ofan í vatnið og leið því Víkverja mun betur enda er útsýnið í Vest- urbæjarlauginni mun betra fyrir ofan vatns- yfirborðið. Barnaleg hræðsla Vík- verja snýst þó ekki um hættuna á höfuðáverkum heldur annað og mun verra. Í æsku var Víkverji haldinn óstjórnlegri hræðslu við hvali í öllu vatni sem hann dýfði tánum í. Sterk- ust var hræðslan í djúpu lauginni á Spáni þar sem ungVíkverja var talin trú um að enginn væri botninn – svo djúp væri laugin. Víkverja finnst botnlausar laugar enn vera hinn fullkomni íverustaður fyrir martraðarhvali. Hræðslan var svo sterk að einhvern veginn fylgdi hún Víkverja alla leið heim í baðið. Hver veit nema martraðarhvalir komist upp niðurföll og geti ferðast um í pípulögnum af ýmsu tagi. Hvernig annars er hægt að út- skýra hin undurfurðulegu hljóð sem því fylgja að taka tappann úr? Víkverja er spurn. Mennirnir eru mis-jafnir og sund- laugarnar með. Sund- laug Árbæjar og Sundlaug Kópavogs fá báðar toppeinkunn í stjörnubók Víkverja en Vesturbæjarlaugin vermir botninn. Í Vest- urbæjarlauginni ríkir þó ákaflega skemmti- leg stemning enda hef- ur líklega ekki margt breyst þar undanfarna áratugi – hvorki hús- búnaður né fastagest- ir. Stór mínus er þó hversu heit laug- in er, ef hægt er að svitna umlukinn vatni – þá tókst Víkverja það! Víkverji verður hins vegar að við- urkenna barnalega hræðslu sem greip hann af offorsi í ferð sinni þangað. Af einhverjum ástæðum sést ósköp lítið niðri í vatninu í Vesturbæjarlauginni. Þegar sundmaður nálgast bakkann sést ekki stóri svarti krossinn fyrr en sundmaðurinn er kominn ískyggilega nálægt – en svarti krossinn á einmitt að vekja athygli á því að bakkinn sé að nálgast höfuðið – eða öfugt. Víkverji stóð sig hins vegar trekk í trekk að því að skipta yfir í svokallað „kellingasund“ rétt fyrir aðkomuna       víkverji skrifar | vikverji@mbl.is VÍSINDAMENN segjast nú hafa fundið nýja leið til að greina sér- lega lífshættuleg blöðruhálskirtils- krabbamein frá þeim hættuminni. Þeir segja þessa tímamótaupp- götvun geta bjargað mörgum karl- manninum frá því að undirgangast ónauðsynlega skurðaðgerð, sem í mörgum tilvikum hefur hvimleiðar og lamandi aukaverkanir á kyn- getuna þegar upp er staðið. Sum hægvaxta Ólíkt mörgum krabbameinum þarfnast aðeins sum blöðruháls- kirtilskrabbamein meðferðar því mörg hver eru mjög hægvaxta og hafa þar af leiðandi litla hættu í för með sér á heilsu manna. En þetta er nauðsynlegt að greina svo hægt sé að gera sér grein fyrir því hverjir eru í raunverulegri lífshættu og hverjir ekki, segja sérfræðingar. Og það verður hægt, samkvæmt nýrri rannsókn, sem birt var sl. mánudag og sagt var frá á netmiðli NBC, en rann- sóknin sýnir hvernig erfðafræðileg afbrigði innan æxlisfrumna geta gefið frá sér hættumerki ef sjúk- lingurinn er hugsanlega haldinn banvænni tegund krabbameinsins. „Þetta kemur til með að auka fullvissu okkar um hvort krabba- meinið ætlar að verða ágengt eða værukært. Það er einmitt það sem við þurfum að vita því margir karlmenn með blöðruhálskirt- ilskrabbamein eru meðhöndlaðir á mjög róttækan hátt, en líklega þurfa tveir þriðju þessarra karla enga meðferð,“ sagði Colin Coo- per, prófessor hjá bresku krabba- meinsmiðstöðinni, í samtali við Reuters. Genabreyting sem getur haft afdrifarík áhrif á lífslíkur Cooper útskýrði hvernig einstök genabreyting gæti haft afdrifarík áhirf á lífslíkur. Menn vita að venjulega inniheldur blöðruhálskirtilskrabbamein sam- runa á genunum TMPRSS2 og ERG. Nýja rannsóknin leiddi hins- vegar í ljós að í 6,6% tilfella tvö- faldaðist þessi samruni með því að búa til banvæna samsetningu, sem þekkt er sem 2+Edel. Sjúklingar með 2+Edel hafa aðeins 25% lífs- líkur eftir átta ár í samanburði við 90% lífslíkur þeirra, sem ekki varð vart neinna genabreytinga á þessu svæði. „Tvöföldun samruna er slæmar fréttir, en nákvæmlega hvernig þessi tvöföldun gerir æxlin ágeng- ari er enn ekki fullljóst,“ segir Cooper og bætir við að burtséð frá virkni gangverksins vonist hann til að farið verði að nota próf, sem mæli 2+Edel hættuna með núverandi tækni til að meta hvort eða hvers konar meðferð sé viðeigandi að bjóða mönnum með blöðruhálskirtilskrabbamein upp á. AP Blöðruhálskirtilskrabbamein Það eru einkum á karlmenn sem komnir eru yfir fimmtugt sem fá þessa tegund krabbameins. Próf sker úr um nauðsyn skurðaðgerðar ÁNÁFENGIS HVER BER ÁBYRGÐ? SKEMMTUMOKKUR ÍSUMAR! VEL UNGLINGUM FYLGIR ÁBYRGÐ E N N E M M / S ÍA / N M 2 6 9 2 8 Viltu fá frítt í bíó? Lumar þú á blaðburðarkerru í geymslunni? Ef þú hringir í okkur í síma 569 1440 sækjum við kerruna samdægurs og færum þér bíómiða fyrir tvo að launum. Þú getur einnig skilað kerrunni til Morgunblaðsins í Hádegismóum 2. B ÍÓ M IÐ I BÍ ÓM IÐ I H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 7 -0 9 8 9

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.