Morgunblaðið - 20.07.2007, Page 24

Morgunblaðið - 20.07.2007, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÍSLAND OG AFGANISTAN Í Morgunblaðinu í gær var skýrtfrá nýrri skýrslu varnarmála-nefndar brezka þingsins um stöðu mála í Afganistan. Það er ekki að ástæðulausu, að brezk þingnefnd sendir frá sér nýja skýrslu um þetta efni. Bretar eru nú með rúmlega 7.000 hermenn í Afganistan og ástandið þar fer versnandi en ekki batnandi. Talibönum vex ásmegin. Í skýrslu brezku þingnefndarinnar er fjallað um framlag Atlantshafs- bandalagsins til átakanna í Afganist- an og þar er lýst áhyggjum nefnd- arinnar yfir því, að einstök aðildarríki bandalagsins séu treg til að senda hermenn til Afganistans eða til að fjölga hermönnum þar, ef ein- hverjir eru fyrir í landinu. Í viðtölum brezku þingmannanna við ráðamenn á Spáni kom t.d. í ljós, að þar var stuðningur talinn meðal al- mennings við uppbyggingarstarf í Afganistan en ekki við þátttöku í hernaðaraðgerðum. Í Þýzkalandi var þingmönnunum bent á stjórnarskrár- ákvæði í þýzku stjórnarskránni, sem gerði Þjóðverjum erfitt um vik að taka þátt í hernaðarumsvifum Atl- antshafsbandalagsins í Afganistan. Nú er það svo, að við Íslendingar, sem aðildarríki að Atlantshafsbanda- laginu berum sömu ábyrgð á ákvörð- unum um að bandalagið sendi herlið til Afganistans eins og bæði Bretar, Spánverjar og Þjóðverjar sem og öll önnur aðildarríki bandalagsins. Hins vegar gerir enginn kröfu til þess að við sendum þangað herlið, þar sem við höfum engum her á að skipa. En hvaða skuldbindingar felast í aðild okkar að þeirri ákvörðun, að Atlantshafsbandalagið taki þátt í að- gerðum í Afganistan? Þær skuldbind- ingar hafa lítið verið ræddar hér en þær hljóta að vera til staðar. Sjálf- sagt hefur það verið vegna þeirra skuldbindinga, sem við tókum að okk- ur ákveðin verkefni á Kabúlflugvelli, sem endaði með dauða tveggja stúlkna eins og kunnugt er. Sjálfsagt hefur það verið vegna þeirra skuld- bindinga, sem við sendum jeppasveit- ir til Afganistans en önnur þeirra var kölluð heim frá norðurhluta landsins eins og fram kom á sínum tíma. Hverjar eru þessar skuldbinding- ar? Er ekki tími til kominn, að utan- ríkisráherra upplýsi þjóðina um það í hverju þær eru fólgnar og hvernig þeim er fylgt eftir. Erum við í hópi þeirra aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins, sem brezka þingnefnd- in telur að standi ekki við skuldbind- ingar sínar innan Atlantshafsbanda- lagsins? Voru gerðir einhverjir fyrirvarar af hálfu íslenzkra stjórnvalda, þegar við tókum þátt í því með öðrum aðild- arríkjum Atlantshafsbandalagsins að ákveða þátttöku þess í hernaðarað- gerðum í Afganistan. Gerðum við grein fyrir því, að það mundi verða erfitt fyrir Íslendinga að standa und- ir þeim kröfum, sem bandalagið mundi gera til aðildarríkja sinna? Það er æskilegt að utanríkisráð- herra upplýsi þetta. REKSTUR LSH Er það alveg nauðsynlegt að áreftir ár birtist fréttir þessefnis að Landspítali – há- skólasjúkrahús greiði ekki reikninga þegar komið er fram yfir mitt ár og fjármagni starfsemi sína með því að borga birgjum dráttarvexti sem nema 600-700 þúsund krónum á degi hverjum? Það er hægt að ráða all- marga starfsmenn fyrir þá upphæð. Það getur ekki verið að þetta séu viðunandi rekstraraðferðir fyrir þennan spítala. Í samtali við Morgunblaðið í gær segir Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Félags íslenzkra stór- kaupmanna, m.a.: „Þetta er alla vega í fjórða ef ekki fimmta skiptið á fimm árum sem ég hef sent erindi vegna þessa en það hafa aldrei verið nein bein viðbrögð við því. Spítalinn fær líklega á ein- hverjum tímapunkti fjármagn til að greiða niður skuldir, spurningin er aðeins hvenær og hversu mikið.“ Fram hefur komið að ógreiddir reikningar spítalans nema nú um 700 milljónum króna. Guðlaugur Þór Þórðarson, hinn nýi heilbrigðisráðherra, segir í samtali við Morgunblaðið í gær: „Það er augljóst að skynsamlegra væri að LSH tæki lán hjá ríkinu en hjá birgjum. Hins vegar segir það sig sjálft að þegar svona staða er uppi duga skammtímalausnir ekki til. Vandamálið er stórt og ekki nýtt af nálinni og sýnir að fara verður yfir þessi mál heildstætt. Þá vinnu höfum við hafið.“ Það er gott að svo er. Ítrekaðar fréttir af þessu tagi vekja annars vegar spurningar um rekstur spítal- ans og hins vegar um stjórnsýsluna í heilbrigðiskerfinu yfirleitt. Ætla verður í ljósi endurtekinna vanda- mála að Alþingi vanmeti fjárveiting- ar til spítalans ár eftir ár eða geri óraunhæfar kröfur til hans um sparnað sem ekki sé hægt að fylgja af þeirri einföldu ástæðu að starfsfólk spítalans verður að lækna veikt fólk. Það þýðir ekki að byggja rekstur spítalans á sjálfsblekkingum ár eftir ár. Landspítali – háskólasjúkrahús er auðvitað kjarninn í heilbrigðiskerfi okkar. Þótt sjálfsagt sé að gera kröfu til þess að spítalinn sé rekinn á eins góðan og hagkvæman hátt og mögu- legt er má ekki ganga svo langt í kröfum um niðurskurð kostnaðar að spítalinn geti ekki sinnt hlutverki sínu. Það er ekki fráleitt að segja að stundum hafi verið gengið of langt í slíkum kröfum. En nú hefur ungur og framtaks- samur maður tekið við forystu heil- brigðisráðuneytisins og þá er við því að búast að sams konar fréttir birtist ekki að ári liðnu. Stofnunin og starfsfólkið eiga ann- að betra skilið en svona fréttir. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Páll Matthíasson legguráherslu á að samfélags-geðlækningar verðibyggðar út frá Reykja- vík,“ segir Sigmundur Sigfússon, geðlæknir á Akureyri. „Það getur verið hagnýtt, en ég held að það verði að vera sérstakt fólk sem vinnur á hverjum stað, ekki fólk sem er að fara frá stóru stofn- uninni á hverjum degi. Á Land- spítalanum er þekkingin og þar eru sérfræðingarnir, en það er einnig hægt að gera hlutina á þann hátt sem við höfum gert þá. Þessi útibúahugsun, að einn lækn- ir sinni t.d. Keflavík einn mán- uðinn og annar læknir hinn mán- uðinn, það kemur ekki eins út og til dæmis hér á Akureyri. Starfs- hópurinn verður að samsama sig við hverfið sem hann er að vinna í.“ Kynntist svæðis- geðlækningunum í Ósló Sigmundur hefur starfað við geð- deildina á Akureyri frá árinu 1984 en kynnti sér samfélagsgeðlækn- ingar áður en hann hóf störf fyrir norðan. Sjálfur notar Sigmundur orðið „svæðisgeðlækningar“ um hugtakið sem hefur verið þýtt sem „samfélagsgeðlækningar“ (e. Communitive Mental Health, no. Distriktpsykiatri). „Í hópi sér- fræðinga sem stunduðu nám með mér við Norræna heilsuháskólann í Gautaborg voru nokkrir svo rót- tækir að þegar við heimsóttum stórt geðsjúkrahús var iðulega spurt: „Hvenær ætlið þið að leggja þessa stofnun niður?“ Boð- skapurinn var sá að dreifa þjón- ustunni út á meðal fólks og fækka plássum á stóru geðspítulunum því að það var augljóst öllum að þeir voru óhollir fólki, sem voru þar mjög lengi. Ég leysti af í Ósló í Noregi sumarið 1992 og fylgdist með hvernig þeir byggðu upp úthverf- aþjónustu. Þar vann ég í hverfa- miðstöð sem þjónaði 100 þúsund manna svæði og starfaði í velferð- arhópi sem samanstóð af læknum, sálfræðingum og hjúkrunarfræð- ingum. Eitt af því sem gert var var að að fara heim til sjúklinga, sem var nýtt fyrir mér. Fyrrver- andi langtímasjúklingar geð- sjúkrahúsanna voru þá komnir í íbúðir og farnir að fóta sig í lífinu. Þá rann upp fyrir mér ljós að margt sem við gerum hér á Ak- ureyri flokkast undir svæð- isbundna geðheilbrigðisþjónustu.“ Ekki nýjar af nálinni Af tali Sigmundar er augljóst að samfélags- eða svæðisgeðlækn- ingar eru ekki nýjar af nálinni. Hann kynntist þeim í Noregi við upphafa níunda áratugarins og tekur fram að Brynjólfur Ingv- arsson geðlæknir og stamstarfs- maður Sigmundar kynntist sam- bærilegum straumum frá Stokkhólmi um svipað leyti. Frá því þá hafa þeir fikrað sig í þá átt að setja upp módel fyrir geðheil- brigðisþjónustuna á Akureyri sem byggist á þeim grunni: „Mér hefur fundist sérkennilegt að setja samfélagsgeðlækningar í þann búning að þessi hugsun sé glæný. Og skrýtið að heilbrigð- isyfirvöld skuli ekki hafa stefnt að því að taka upp slíka þjónustu fyrr þar sem verið hefur góð reynsla af henni í nágrannalönd- unum,“ segir Sigmundur. Ekki „útibú“ heldur svæð- isþjónustu í þéttbýliskjörnum „Margir hafa þá mynd af geð- lækningum og geðlæknum að við séum bara á geðdeildum þar sem veikasta fólkið er. Það er ekki reyndin. Við getum sinnt miklu fleira fólki ef við erum ekki að einskorða okkur við spítala þann- ig að hver fagmaður nýtist fleir- um og fleiri fjölskyldum. Við höfum skyldur við íbúa ákveðins svæðis og sinnum þeirra kalli. Það er það sem felst í svæð- isbundnu þjónustunni: Við höfum þjónustukvöð við Eyjafjarð- arsvæðið, þetta 21 þúsund manna svæði á milli fjallanna.“ Í þessu samhengi nefnir Sigmundur að margir geðlæknar í Reykjavík starfi á einkastofum, þar sem þeir hafa ekki kvöð að taka inn nýtt fólk, og geta unnið lengi með sömu sjúklingana. „Ég mundi vilja sjá krafta geð- læknanna meira á geðheilbrigð- issetrum eða -miðstöðvum tengd- um heilsugæslunni í þéttbýliskjörnum eins og á Akra- nesi, Selfossi og Keflavík, þar sem mannfjöldinn er sambæri- legur og hér á Akureyri. V málið er hins vegar að þa itt að fá fagfólk í svoleiðis þótt það kæmu til fjárveit Það er auðveldara að fá m skap á Reykjavíkursvæðin sem fólkið býr. En lækna búa í Reykjavík gætu unn miðstöðvum í þeim þéttbý kjörnum sem ég nefndi. Slík teymi gætu lagt væ felli inn á litlu sjúkrahúsi með þeim starfsmönnum létta verulega á Landspít sem ekki er vanþörf á að mati, bæði göngudeildinni legudeildinni. Það sem hin hugsunin um að geðlækna flestir spítalalæknar og le irleitt áherslu á spítalann miðpunkt.“ Þegar Sigmundur er in ir ástæðu fyrir því hvers ekki sé sjálfgefið að miða arnar út frá Landspítalan svarar hann: „Það sem er Morgunblaðið/Hjálmar S. Bry Áhersla á samfélagið „Umræðan er góð, orð eru til alls fyrst og að Landspítalinn eflist og styrkist. En ég hef efasemdir um að þa hugsa svæðisgeðheilbrigðisþjónustuna út frá Landspítalanum,“ Sigmundur Sigfússon, geðlæknir á Akureyri. „Gagnlegt að þ rætur fólksins“ Í HNOTSKURN »Geðdeildin á Akureskiptist í þrjár einin Á spítalanum sjálfum er bráðalegudeild og göng deild. »Þriðja einingin er ddeild sem er utan sp alans. Þar fer fram féla þjálfun fólks sem er að undir sig fótunum í teng við áfangaheimili sem A ureyrarbær hefur bygg »Að auki veitir deildiþjónustuaðilum utan alans ráðgjöf, t.d. heilsu gæslustöðvum og fé- lagsþjónustu. Geðdeildin á Akureyri byggir starf sitt m. a. á samfélagsgeðlækn- ingum, sem verið hafa í umræðunni eftir við- tal við Pál Matthíasson í Morgunblaðinu 23. júní sl. Hjálmar Stefán Brynjólfsson ræddi við Sigmund Sigfússon geðlækni um starfið sem þar fer fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.