Morgunblaðið - 20.07.2007, Side 27

Morgunblaðið - 20.07.2007, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 27 Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is EITT af því sem laðar fólk að ströndum Íslands eru vitarnir. Áð- ur var vitavörður oft búsettur á staðnum og vinsælt af ferðafólki að knýja dyra hjá honum og fá að skoða vitann. Nú eru vitaverðirnir horfin stétt og engir á stöðunum með lyklavöld. Oftast er því komið að lokuðum dyrum en vitinn gegn- ir samt hefðbundnu hlutverki sínu áfram. Áhugafólk um ferðamennsku og söguleg mannvirki hefur vakið at- hygli á nýju hlutverki vitanna og leitað leiða til að opna þá fyrir ferðafólki. Erlendis eru gamlir vit- ar víða einir eftirsóttustu ferða- mannastaðirnir. Yst og syðst á Snæfellsnesi er einn af glæsilegustu vitum lands- ins, Malarrifsviti, og nýtur hann sérstakrar verndar sem slíkur. Nú í sumar hefur vitinn fengið nýtt hlutverk sem sýningarstaður. Þar er til sýnis fjöldi ljósmynda af þeim margbrotna manni Þórði Halldórssyni frá Dagverðará og myndlistarmaðurinn Ásdís Arn- ardóttir sýnir þar myndverk sín. Við opnun sýninganna tók ung- ur söngvari, Unnar Geir Unn- arsson, lagið í vitanum og að sjálf- sögðu söng hann Brennið þið vitar. Hljómburðurinn reyndist frábær og mjög sérstakur. Það eru Hollvinasamtök Þórðar Hall- dórssonar frá Dagverðará sem standa að sýningunum, en opið er um helgar og fólk streymir nú hundruðum saman í vitann. Stundum hefur verið gantast með vitanefnið og margur orðið að hálfvita og menningarvita. Mal- arrifsviti er svo sannarlega enginn hálfviti, 24 m hár og frábær út- sýnisstaður og stendur vissulega undir nafni sem „menningarviti“. Þessi rúmlega 60 ára gamli viti hefur opnað dyr sínar í sumar fyr- ir ferðafólki og fengið nýtt hlut- verk auk þess gamla. Og ekki spillir umhverfið með malarkamba og hraunklappir sem aldan hefur leikið sér við á einstökum sum- ardögum að undanförnu. Hér hef- ur náttúran, sagan og menningin ofist saman og yfir öllu vaka Lóndrangar. Í skjóli þeirra hefur lágfóta sitt greni og nú leika yrð- lingarnir sér við göngumenn, enda byssur Þórðar refaskyttu frá Dag- verðará þagnaðar. Menningarviti er nú réttnefni yfir vitann á Malarrifi og vonandi verður svo áfram. Vitarnir við strendur landsins kalla á ný hlut- verk og margir henta eflaust vel fyrir sýningar af ýmsu tagi og tónlistarflutning. Þá eru víða góð húsakynni og þar er gott að næra andann og sálina. Yfir Malarrifi gnæfir Snæfellsjökull og er hægt að biðja um meira?. Góða ferð undir Jökul. REYNIR INGIBJARTSSON, formaður Hollvinasamtaka Þórðar Halldórssonar frá Dagverðará. Menningarvitinn á Malarrifi Frá Reyni Ingibjartssyni MIKIÐ þakka ég Þorgrími Gest- syni fyrir að birta rétta gerð af vísu nokkurri um Elías Mar og til- drög hennar. Á þeim skamma tíma sem vinnst til að skrifa minning- argrein bar ég þá gerð sem ég hafði lært undir marga menn. Sumir efuðust um að hún væri rétt en kunnu samt ekki neina aðra í heild. Svo ég lét þessa flakka. Gott er að hún hefur þó orðið til þess að sú rétta komst til skila. Vísan eins og ég lærði hana og tildrög hennar er engu að síður dæmi þess hvernig stökur geta gengist í munni og samt verið smellnar. Orðbragðið var ekkert annað en eðlilegur hálfkæringur milli kunningja. Ég er satt að segja ekki viss um að Elías hafi sjálfur kunnað vísuna rétt því hann gerði enga athugasemd þeg- ar ég fór eitt sinn með hana í kunningjahópi að honum við- stöddum. En kannski hefur hann bara haft gaman af hvernig búið var að brengla hana. ÁRNI BJÖRNSSON, Bræðraborgarstíg 4, 101 Reykjavík Vísan um Elías Mar Frá Árna Björnssyni VIÐ vorum á leið í spennandi ferðalag vestur á firði og vorum komin á Patreksfjörð þegar maðurinn minn horfði löngunar- augum yfir fjörðinn og sagðist langa svo að sjá Látrabjarg. Ég vissi að það var mikill fjallvegur og ég er frekar smeyk við að keyra í háum brekkum og mjóum vegum, en mig hefir alltaf langað til að komast þangað líka, svo við fórum auðvit- að, það er afskaplega fallegt þarna all- staðar. Við höfðum rætt um að fara ekki að Breiðavík (ég veit ekki af hverju, og þó veit ég það.) En þegar við höfð- um séð hið til- komumikla Látra- bjarg, sagðist ég vera svöng og við skyldum fá okkur að borða í Breiðavík. Breiðavík er á mjög fallegum stað, strönd- in svo hrein með há fjöll í kring. Þegar við vorum búin að dást að umhverfinu komum við inn í vina- legt hús og var tekið vel á móti okkur, starfsfólkið fágað og bros- andi, við pöntuðum mat. Húsmóðirin, Birna Mjöll Atla- dóttir, kom og talaði við okkur og sagði að þetta væri nú gleðilegur og sannkallaður Íslendingadagur, en það komu tveir bílar á eftir okkur, Íslendingar líka. Hún sagði að Íslendingar væru alveg hættir að koma til þeirra, þeir færu framhjá út að Látra- bjargi og svo framhjá aftur, síðan þessi öm- urlega umfjöllun um staðinn var í öllum fréttum í vetur. Ég vil bara segja frá hvað okkur þótti gott að koma þarna. Þó alvarlegir hlutir hafi gerst þarna fyrir tugum ára þá er þessi staður mjög til fyr- irmyndar í dag. Mér persónulega finnst Þingvellir með sínu landslagi og Al- mannagjá eitt það fal- legasta landslag sem ég veit um, en við Öx- ará, þar sem ungum saklausum stúlkum var drekkt og þar voru Íslendingar að verki, fyllist hugurinn hryllingi og sorg. Ég mun samt aldr- ei sneiða hjá Þing- völlum þess vegna. Ég vil því segja að þeir sem koma á Vestfirði og fara þessa leið út að Látrabjargi ættu endilega að koma við í Breiðavík og njóta þess. Ég hef aldrei komið þangað fyrr eða séð fólkið þar fyrr og er ekki að tala fyrir neinn nema sjálfa mig. Mig tekur það bara sárt að umræðan í okkar litla þjóðfélagi skuli bitna á saklausu fólki sem vinnur hart fyrir sér. Það er hart að fjölmiðlar hafi svo mikinn mátt að geta eyðilagt fyrir saklausu fólki sem hefir komið sér upp góðum gisti- og veitingastað á þessum fallega stað. Og það vegna þess að þessir hræðilegu hlutir áttu sér stað fyr- ir tugum ára og eru þeim alls óviðkomandi. Ég vil bara þakka fyrir frábæra gestrisni og vona að Íslendingar verði margir sem njóti þess að sjá þessa fallegu staði sem Vestfirðir bjóða upp á og láti ekki Breiðavík fram hjá sér fara. Lítil saga frá Vestfjörðum Það er gott að koma við í Breiðavík segir Guðrún Ída Stanleysdóttir Guðrún Ída Stanl- eysdóttir » Stundumgeta fjöl- miðlar gert lífið erfitt fyrir óvið- komandi fólki. Þurfa núverandi ábúendur í Breiðavík að gjalda fyrir mis- tök annarra? Höfundur er sjúkraliði. UNDANFARIÐ hefur umræða sprottið upp um gólfefni í íþrótta- húsum hér á Akureyri. Þar fremstir í flokki hafa farið körfu- knattleiksmenn með Guðmund Oddsson í fararbroddi. Menn hafa lengi deilt um hvort sé betra að hafa parket eða dúk í íþrótta- húsum, en rannsóknir og reynslan hafa sýnt að parket er heppi- legra gólfefni til íþróttaiðkunar en dúkur. Á Akureyri eru að- eins þrjú nothæf íþróttahús, tvö upp á brekku og eitt í þorp- inu. Af þessum þrem- ur íþróttahúsum eru aðeins tvo lögleg, bæði á brekkunni, en hafa þó takmarkað notagildi. Íþróttahöll- in okkar gamla hefur runnið sitt skeið, þakið lekur en menn vinna þó hörðum höndum að reyna að laga það. Einnig er gólf- dúkurinn ónýtur og hefur eflaust átt sinn þátt í því þegar tveir körfuknattleiksmenn í fremstu röð slitu þar hásin og öflugur hand- boltamaður krossband auk fjölda annarra meiðsla. Hitt íþróttahúsið í bænum sem löglegt er er íþrótta- húsið við Lundaskóla, en rétt eins og í Höllinni er dúkur þar á. Þriðja íþróttahúsið í bænum er íþróttahúsið við Síðuskóla sem því miður er ekki löglegt þar sem það er of lítið ásamt því að dúkur er þar á gólfum. Þar sem ekki er lengur hægt að spila alvöru körfuknattleik í Höll- inni neyddist meistaraflokkur Þórs í körfuknattleik að spila heimaleiki sína í litla íþróttahús- inu við Síðuskóla, með undanþágu frá KKÍ. Þrátt fyrir þetta vann meistaraflokkur karla alla sína leiki og ávann sér á ný réttinn til þess að spila í efstu deild. Sá böggull fylgir þó skammrifi að Körfuknattleikssamband Íslands hefur, eðlilega, sett þá reglu að lið þurfi að spila heimaleiki sína á parketi og því mun körfuknatt- leikslið Þórs í framtíðinni, ef ekk- ert verður að gert, þurfa að draga sig úr keppni meðal þeirra bestu vegna þess að það mun ekki enda- laust fá undanþágur frá reglunum. Af hverju mun Þór ekki fá endalaust und- anþágur? Jú, vegna þess að KKÍ vill að félögin búi körfu- knattleiksfólki mann- sæmandi aðstæður sem stefna ekki heilsu þeirra í voða og hefur reynslan sýnt að gott parket er það besta gólfefni sem völ er á. Finnst mönnum það skrítið að öll lið í NBA spili á parketi en ekki á dúk? Eða að flest lið í evrópskum körfuknattleik spili á parketi? Reynslan hefur sýnt að parket er betra en dúkur. Þó að það meiðist ekki fleiri í kappleikjum á dúk en á parketi, hefur það sýnt sig að álagsmeiðsli eru algengari þar sem lið æfa á dúk en á park- eti. Í norskri rannsókn sem gerð var á árunum 1989-1991 sem Myk- lebust, Strand og félagar gerðu á norskum handknattleiksmönnum kemur fram að lítill munur er á meiðslum leikmanna í kappleikjum miðað við gólfefni. Hinsvegar, þegar meiðslatíðnin var skoðuð miðað við hvernig gólfefni var not- að við æfingar, sást greinilega að fleiri meiddust á æfingum þar sem gólfdúkur var en á parketi. Þetta leiðir líkum að því að álagsmeiðsli séu algengari þar sem gólfdúkur er en parket. Í Bandaríkjunum líta menn á íþróttamenn sem fjárfestingu og ekkert annað. Því taka þeir ekki óþarfa áhættu með ástand fjár- festingar sinnar. Ljóst er að reynslan frá Bandaríkjunum sýnir að parket er betra gólfefni en dúkur og því hljóta sömu lögmál að gilda hér. Einnig er það skrýtið að Handknattleikssamband Ís- lands hefur ekki gert sömu kröfur og Körfuknattleikssamband Ís- lands því klárlega erum við að tala um velferð íþróttamanna okkar og ekki síst barna okkar sem eru að iðka þessar íþróttir. Því vil ég hvetja bæjarfulltrúa sem og stjórn Fasteigna Akureyr- arbæjar að fara að fordæmi Reykjavíkurborgar og setja sér það markmið að leggja parket hið minnsta í Íþróttahöllina á Ak- ureyri, ekki endilega á morgun heldur gefa þeim sem vinna hörð- um höndum við körfuknattleik sem og aðrar innanhússíþróttir loforð um að parket verði lagt á. Eins og staðan er í dag er óvissan mikil, körfuknattleiksfólk á Ak- ureyri veit ekki hvert framhaldið verður. Eigum við kannski á hættu að draga okkur úr keppni þeirra bestu í framtíðinni ef ekk- ert verður að gert? Rétt eins og í fyrirtækjarekstri gerir óvissan skilyrðin erfiðari, og því vil ég enn og aftur biðja bæj- aryfirvöld um ákvörðun svo að körfuknattleiksfólk sem og þeir sem stunda aðrar innanhúss- íþróttagreinar geti tekið ákvörðun um framtíðina. Velferð íþróttamanna Sölmundur Karl Pálsson skrifar um gólfdúk og parket í íþróttahúsum » Ljóst er að reynslanfrá Bandaríkjunum sýnir að parket er betra gólfefni en dúkur og því hljóta sömu lögmál að gilda hér á landi Sölmundur Karl Pálsson Höfundur er nemi í samfélags- og hagþróunarfræði við Háskólann á Ak- ureyri. Rækjuverksmiðja til sölu Til sölu er eign þrotabús Miðfells hf., Ísafirði, fasteignin Sindragata 1, Ísafirði, ásamt öllum vélum og tækj- um til rækjuvinnslu. Um er að ræða eina fullkomnustu rækjuverksmiðju landsins með 5 pillunarvélum og 3 laservélum, svo og fullkominni pökkunarstöð. Æskilegt er að kaup- tilboð nái til allra lausamuna í hús- inu sem tilheyra rækjuvinnslu. Nánari upplýsingar eru gefnar á Fasteignasölu Vestfjarða að Hafnarstræti 19, Ísafirði, sími: 456 3244. fax: 456 4547 netfang: eignir@fsv.is Tæknilegar upplýsingar um verksmiðjuna gefur Albert Haraldsson, s: 899 1195 Óskað er eftir tilboðum í ofangreindar eignir eigi síðar en föstudaginn 10. ágúst 2007, kl. 16,00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.