Morgunblaðið - 20.07.2007, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Kveðja, þín frænka,
Eygló Alexandra.
HINSTA KVEÐJA
✝ Magnús Alex-andersson fædd-
ist í Neðri-Miðvík í
Aðalvík 27. janúar
1930. Hann lést á
hjartadeild Land-
spítalans við Hring-
raut hinn 11. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru Al-
exander Hall-
dórsson bóndi í
Neðri-Miðvík, f. 5.
janúar 1880, d. 13.
október 1959, og
kona hans Jóna
Georgína Bjarnadóttir húsfreyja,
f. 12. júlí 1893, d. 21. febrúar
1933. Systkini Magnúsar og af-
komendur þeirra eru: 1) Frið-
rikka Jónína, f. 1921, d. 1925, 2)
Kristjana, f. 31. maí 1923, d. 28.
september 2002 3) Gróa, f. 25. júlí
1924, d. 19 september 2002, m.
Gísli Hilmar Hansen, f. 1927, d. 28
ágúst, 1969. Börn þeirra eru Al-
exander Björn, f. 1963, hann á tvö
börn og Gunnar Hilmar, f. 1966,
maki Gyða Traustadóttir. 4) Hall-
dór Alexander, f. 19. nóvember
1927, m. Eygló Guðjónsdóttir, f.
1935. Börn þeirra eru: Sigríður, f.
1963, maki Karl Kristján Jónsson,
Jóna Kristjana, f. 1966, maki Rík-
harður Sveinsson, þau eiga son, f.
2007, Hrafnhildur, f. 26. sept-
ember 1969, dóttir hennar er
Eygló, f. 1990, Sólveig, f. 1971,
Grétar Örn Magnússon (sonur
Eyglóar), f. 1961 maki Kristín
Friðbjörnsdóttir, þau eiga sam-
tals sjö drengi. 5) Drengur, f. 27.
janúar 1930, d. 27. janúar 1930.
Er móðir Magnúsar lést þá fór
Magnús í fóstur til hjónanna Guð-
bjarts Jónssonar, f.
1903, d. 1971, og
Halldóru Kristínu
Magnúsdóttur, f.
1895, d. 1947. Hann
bjó árið 1933 á Tröð
í Bjarnadal í Önund-
arfirði og fluttist
svo til Flateyrar og
bjó þar frá
árinu1933 til ársins
1936. Um það leyti
veiktist Halldóra
fósturmóðir Magn-
úsar og þurfti að
flytja suður til að
leita sér lækninga og þá fluttist
Magnús til hjónanna Sigríðar
Pálmadóttur og Hjartar manns
hennar á Ísafirði og bjó þar á vet-
urna á meðan hann stundaði
barnaskólanám á Ísafirði og
dvaldi á sumrin á Engidal á Ísa-
firði. Um fermingu fluttist Magn-
ús til Reykjavíkur og dvaldi einn
vetur á Héraðsskólanum á Reykj-
um í Hrútafirði og lærði bifvéla-
virkjun í Iðnskólanum í Reykja-
vík. Magnús starfaði mest við
bifvélavirkjun á starfsferli sínum
en einnig við m.a. sjómennsku,
Andakílsvirkjun, á Keflavík-
urflugvelli, á Stokksnesi á Horna-
firði og fleiri stöðum og vann síð-
ast í Stálsmiðjunni í Reykjavík,
einnig starfaði hann eitt ár í Osló í
Noregi.
Magnús átti að baki glæsilegan
feril í taflmennsku á sínum yngri
árum og vann hann til fjölda verð-
launa á þeim vettvangi og var
sterkur skákmaður.
Útför Magnúsar verður gerð
frá Dómkirkjunni Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Ástkær frændi okkar, hann
Magnús, er látinn eftir erfið og
langvinn veikindi.
Minningarnar um Magga
streyma fram í hugann og ylja
okkur systrum svo sannarlega um
hjartarætur.
Þegar við systur vorum ungar
stúlkur kom Maggi eitt sinn á
æskuheimili okkar og bauð okkur í
bíltúr á Sædýrasafnið, hann bauð
okkur upp á ís og pylsur. Þetta var
ógleymanlegur dagur og minntust
við þessarar ferðar í mörg ár á eft-
ir. Við fjölskyldan vorum eitt sinn
á leið norður í Eyjafjörð þegar við
urðum fyrir því óláni að það kvikn-
aði í vélinni í bílnum okkar. Maggi
kom strax og gerði við vélina í
bílnum svo við gátum haldið áfram
ferðinni. Svona var hann Maggi,
alltaf að bjóða fram aðstoð sína.
Hann kíkti alltaf á bílana hjá
okkur systrum og gerði allt sem í
hans valdi stóð til að gera við þá ef
þeir voru bilaðir.
Maggi hafði fágaðan og dýran
smekk og var alltaf óaðfinnanlega
klæddur, stundum var hans eins
og greifi til fara. Hann var dugleg-
ur að fara í bæinn að skoða mann-
lífið og kíkti oft í Kolaportið.
Síðustu tíu ár bjó hann í íbúð á
Austurbrún og voru það hans
bestu ár. Hann átti fallegt og hlý-
legt heimili og ljómaði allur þegar
hann sýndi íbúðina og gat svo
sannarlega verið stoltur af.
Hann tefldi oft á sínum yngri ár-
um og fékk marga verðlaunapen-
inga fyrir og líka verðlaunabikar
1961 sem skákmeistari Ísfirðinga.
Maggi hafði sterkar skoðanir á
mönnum og málefnum, var hlé-
drægur í margmenni. Hann var lit-
ríkur persónuleiki og frásagnir
hans voru ávallt mjög kryddaðar.
Oft gat hann verið mjög kúnstugur
og gat oft sett upp hin ýmsu svip-
brigði og sýnt takta sem við systur
gátum oft grátið af hlátri yfir.
Hann gat verið þrjóskur og fastur
fyrir og ef hann beit eitthvað í sig
var erfitt að breyta þeirri skoðun.
Við systurnar fórum oft í bíltúr
með hann og borðuðum með hon-
um á ýmsum stöðum. Hann hafði
mikinn áhuga á skíðum og átti fal-
leg gönguskíði sem hann notaði í
bláfjöllum og nágrenni Reykjavík-
ur.
Um tíma bjó Maggi í Noregi og
vitnaði oft í þá dvöl sem gaf hon-
um mjög mikið en hann ferðaðist
lítið utanlands.
Við systur erum ríkari að hafa
haft hann Magga og munum alla
tíð hugsa til hans með stolti og
virðingu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Takk fyrir allt, elsku Maggi.
Sigríður, Jóna Kristjana,
Hrafnhildur og Sólveig.
Magnús Alexandersson var aldr-
ei kallaður neitt annað en Malex í
Taflfélaginu. Hann setti svo sann-
arlega svip á starfsemi Taflfélag-
ins á Grensásárunum á áttunda og
níunda áratugnum.
Magnús lét sig sjaldan vanta á
þriðjudags- og fimmtudagsmótin
og stóð sig yfirleitt með ágætum.
Hann var kröftugur baráttumaður
á skákborðinu og sókndjarfur með
afbrigðum. Fórnirnar dundu á
manni við fyrsta tækifæri og þótt
þær þyldu nú ekki allar njög nána
skoðun voru þær varhugaverðar.
Magnús Alexandersson átti sér-
stakan þátt í skáklegu uppeldi
unglinganna í Taflfélagi Reykja-
víkur á Grensásveginum. Það að
geta varist og séð við árásarstíl
Magnúsar, sem einkenndist af
fórnum og fléttum og haft af hon-
um sigur, bar merki um að
ákveðnum skáklegum þroska væri
náð og vænta mætti stærri umbun-
ar úr höllu skákgyðjunnar Cassiu.
Magnús tók sigri jafnt sem
ósigri af jafnaðargeði hins sanna
íþróttamanns. Hann var kvikur,
hnyttin í tilsvörum og oftast stutt í
íbyggið brosið. Um leið og ég, fyr-
ir hönd Taflfélags Reykjavíkur,
kveð Magnús Alexanderson með
þakklæti votta ég öllum aðstand-
endum okkar dýpstu samúð. Minn-
ingin um Malex, okkar góða fé-
laga, lifir áfram í Taflfélagi
Reykjavíkur.
Óttar Felix Hauksson,
formaður TR.
Kynslóðabilið var mikið þegar
ég sem lítill drengur hóf að mæta
á skákæfingar hjá Taflfélagi
Reykjavíkur sem þá var til húsa á
Grensásvegi í Reykjavík. Við vor-
um ungir og efnilegir guttar sem
tefldu innan um alla gömlu kall-
ana. Sumir af þeim eldri voru ekki
par hrifnir af að við værum að
mæta á kvöldæfingarnar, þeir
vildu fá að tefla sínar rólegheitas-
kákir og jafnvel reykja við skák-
borðið eins og þá tíðkaðist. Magn-
ús, eða Malex eins og hann var
ætíð kallaður, var ekki einn af
þeim. Hann hafði alltaf gaman af
því að tefla við okkur unglingana.
Hann hafði litríkan skákstíl og
tefldi ávallt upp á fórnir og mikinn
gauragang. Hlátrasköllin heyrðust
langar leiðir og þurftu skákstjórar
oft að áminna okkur um að hafa
hljótt.
Erfitt er að ímynda sér að Mal-
ex hafi verið traustur skákmaður
en svo var raunin. Í lok fimmta
áratugarins og í upphafi þess
sjötta tefldi Magnús á fjölmörgum
skákmótum og gerði mikið af
jafnteflum. Minnisstætt er skák-
mót þar sem Magnús var búinn að
gera átta jafntefli í jafnmörgum
skákum og vildi andstæðingur
hans í síðustu umferð ekki semja
um skiptan hlut og varð Magnús
því að vinna þá skák sem og hann
gerði. Síðari árin tefldi hann
ánægjunnar vegna en lítið síðasta
áratuginn eða svo. Flestir muna
eftir Malex með vindil í munnvik-
inu og voldugt yfirvaraskeggið og
svo skríkti í honum meðan hann
var að undirbúa næstu fórn.
Magnús hitti ég nokkrum sinn-
um sl. tvö ár. Hann átti við veik-
indi að stríða og lá um tíma á
hjartadeild Landspítala. Hann
sagði mér ýmsar sögur frá því
þegar hann sem ungur maður að-
stoðaði við skákæfingar hjá Tafl-
félagi Reykjavíkur þegar félagið
var til húsa í Grófinni í miðbæ
Reykjavíkur. Hann sagði mér
skemmtilegar sögur af litríkum
skákmönnum sem flestir eru falln-
ir frá. Einnig voru frásagnir af fá-
tækt og erfiðum lífsskilyrðum, t.d.
á eftirstríðsárunum.
Magnús var mannvinur og þótti
honum ávallt sælla að gefa en
þiggja. Mörgum minnimáttar kom
hann til aðstoðar í fátækt, enda
hafði hann sjálfur upplifað hana.
Rætur Magnúsar lágu vestur á
Hornstrandir eða í Efri-Miðvík og
í Engidal við Ísafjörð þar sem
hann dvaldi oft á sumrin. Átti
hann margar ánægjulegar minn-
ingar þaðan.
Samúðarkveðjur sendi ég ætt-
ingjum Magnúsar.
Ríkharður Sveinsson.
Magnús
Alexandersson
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi.
Minningargreinar
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og mágur,
FREDRICK S. MANN,
andaðist sunnudaginn 24. júní í Jacksonville,
Flórida.
Minningarathöfn fer fram í Dómkirkjunni,
föstudaginn 27. júlí kl. 13:00.
Elizabeth Mudge Mann,
William H. Mann, Mary Anne Mann,
Lawrence B. Mann,
Meredith, Sarah, Kristina, Eric
og Zackary Mann,
Björg Berndsen.
✝
Eiginmaður minn,
BALDVIN HALLDÓRSSON
leikari,
verður jarðsunginn frá Neskirkju, mánudaginn 23. júlí kl. 13:00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hins látna er bent á Minningarsjóð MND félagsins á Íslandi.
Vigdís Pálsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RÓSA HALLDÓRA HJÖRLEIFSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Reykhólakirkju, laugardaginn
21. júlí kl. 14.00. Jarðsett verður á Stað á
Reykjanesi.
Helga Játvarðardóttir,
Halldóra Játvarðardóttir,
Ámundi Jökull Játvarðsson, Lovísa Hallgrímsdóttir,
Jón Atli Játvarðarson, Dísa Guðrún Sverrisdóttir,
Þórunn Játvarðardóttir, Þórarinn Þorsteinsson,
María Játvarðardóttir, Hugo Rasmus,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
STEINUNN INGIRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
áður Þúfubarði 4,
andaðist aðfaranótt þriðjudagsins 19. júlí.
Að ósk hinnar látnu verður útför hennar gerð í
kyrrþey.
Sverrir Berg Guðjónsson, Guðríður Valtýsdóttir,
Guðjón Steinar Sverrisson, Sigríður Jenný Halldórsdóttir,
Ágústa Valdís Sverrisdóttir, Ólafur Stefán Arnarsson.
✝
Elskulegur bróðir minn og móðurbróðir,
AXEL SVAN KORTSSON
vélstjóri
frá Akri,
Sandgerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þriðjudaginn
17. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd annarra ættingja,
Laufey Svala Kortsdóttir,
John E. K. Hill.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
JÓNA FRIÐFINNSDÓTTIR,
Kristnibraut 6,
Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hring-
braut, miðvikudaginn 18. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Jóhannes B. Long,
Berglind Long,
Íris Long, Guðmundur Guðjónsson,
Helen Long, Jón Ingi Hilmarsson
og barnabörn.