Morgunblaðið - 20.07.2007, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 20.07.2007, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand TÓMATSÓSA? VIÐ VORUM BÚIN MEÐ TÓMATANA MÉR TÓKST ÞAÐ! ÉG FÓR OG NÁÐI Í BÓK AF SAFNINU! JÁ! ÞETTA VAR BARA MJÖG ÁNÆGJULEGT OG ÞROSKANDI... ÞETTA VAR EKKERT MÁL! ÞETTA VAR MEIRA AÐ SEGJA FREKAR GAMAN ÉG ER ENNÞÁ MJÖG UNGUR... HVER VEIT NEMA ÉG GERI ÞETTA AFTUR! AF HVERJU ER SVONA KALT HÉRNA INNI?!? HÆKKAÐU Í HITANUM SVO ÞAÐ SÉ LÍFT HÉRNA INNI! ÉG ER MEÐ BETRI HUGMYND KOMDU HINGAÐ ÚT HVAÐ ER ÚTI? VERTU AÐEINS HÉRNA ÚTI... ÞÉR Á EFTIR AÐ FINNAST HÚSIÐ HLÝTT Á EFTIR ÉG ÆTLA AÐ SEGJA BLÖÐ- UNUM FRÁ ÞÉR PABBI! ÞETTA ER FÍNN VEITINGASTAÐUR! HVER HLEYPTI YKKUR INN?!? ÞESSI ÞARNA! SVONA SEMJA BRÚÐULEIKARAR TALAÐU VIÐ HÖNDINA! MAMMA! KALLI KALLAÐI MIG FÍFL! BARA VEGNA ÞESS AÐ HÚN HENTI Í MIG SKÓ! HANN VAR AÐ GRETTA SIG! HÚN BYRJAÐI! HVAÐ ERTU AÐ GERA MEÐ SKIPURIT? ÉG ÞARF HJÁLP VIÐ AÐ SKILJA ÞETTA ALLT ÞANNIG AÐ ÞÚ ÆTLAR AÐ VINNA FYRIR JAMESON EFTIR ALLT SAMAN? JÁ, ÉG GET EKKI LÁTIÐ ÞIG SJÁ FYRIR MÉR ALLA ÆVI ÉG FÆ KANNSKI EKKI JAFN HÁ LAUN OG ÞÚ... EN ÉG GET SÉÐ TIL ÞESS AÐ VIÐ HÖFUM ÞAK YFIR HÖFUÐIÐ ÉG SÉ AÐ ÞÚ GETUR GENGIÐ Á ÞVÍ LÍKA dagbók|velvakandi Nýr íslenskur afreksíþrótta- maður: Óðinn Björn Þorsteinsson kúluvarpari ÞAÐ voru ánægjuleg tíðindi sem bárust frá Hafnarfirði sl. mánudags- kvöld. Nýr afreksíþróttamaður, Óð- inn Björn Þorsteinsson kúluvarpari, kastaði þá yfir nítján metra múrinn og steig jafnframt inn á svið alþjóð- legrar íþróttagetu. Ég vil leyfa mér að óska honum og þjálfara hans, Eggerti Bogasyni, til hamingju. Nú þarf að styðja við Óðin Björn næstu skref til heimsárangurs og ættu einkaðilar svo og Frjálsíþrótta- samband Íslands að gera honum kleift að ná alla leið á næstu stórmót og styrkja hann ríkulega fjárhags- lega. Það má ætla að einungis nokkr- ir tugir kúluvarpara, dreifðir yfir gjörvalla heimskringluna, séu nú fyr- ir framan hann á gildandi heimslista. Óðinn Björn skipar sér nú í sveit með hetjum íslensks fullveldis – sveit kastara íslenskra frjálsíþrótta- og kraftagarpa Íslands. Halldór Eiríkur S. Jónhildarson. Takið strætó með bros á vör VAR hún ekki eitthvað lík þessu aug- lýsingin sem birtist á strætó? Gott og vel, við eigum ekki bíl á mínu heimili og notum því strætó hvern dag og eru bílstjórar svo og farþegar mis- jafnir hverju sinni. Dóttir mín sem, ber út Morgunblaðið og ætlaði að stytta sér leið með þunga blaðakerru frá Eddufelli með leið nr. 4 kl. 19.30 á sunnudagskvöldi varð fyrir miklum sóðakjafti erlends bílstjóra. Hann sagði á bjagaðri íslensku „drullaðu þér inn, helvítis kerling“ að henni heyrðist. Hún varð svo reið og særð yfir slíkum móttökum að hún hreytti í hann á móti að hann væri best geymdur á þeim stað sem hann væri frá. Nú er mér spurn, er það leyfilegt að bílstjórar, þótt að erlendir séu, hreyti slíkum ósóma í farþega sem á sér einskis ills von? Segja svo við yf- irboða sína, „ég kann ekki íslensku, hún hlýtur að hafa misskilið mig.“ Ég þykist vita að hann beri þessu við. Við þetta má bæta að leið 12 kom rétt eftir þessum og tók dóttir mín þann vagn án nokkurra átaka. Ég vil taka það fram að dóttir mín er eng- inn krakki, hún er kona, orðin 40 ára. Farþegi. Týnd kisa KISAN okkar fór að heiman eftir hádegi þriðjudag- inn 17. júlí. Hún er aldrei vön að vera nema stutta stund í burtu svo við höfum áhyggj- ur af henni. Íbúar í nágrenni Látra- sels eru beðnir að athuga hvort hún hafi lokast inni í geymslum eða á öðrum slíkum stöð- um. Páfagaukur fannst HIMINBLÁR páfagaukur með hvítan haus fannst í bílageymslu við Lyngháls 4 í gær, 19. júlí. Upplýsingar í síma 696-1177. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is SONY digital-myndavél fannst á áningarstað á fjallveginum Bröttubrekku laugardaginn 30. júní sl. Síðasta mynd tekin á myndavélina fylgir hér með og er greinilega tekin á þeim stað sem hún fannst. Upplýsingar í síma 692 0532. Kannast þú við fólkið? FRÉTTIR STJÓRN Fjórðungssambands Vest- firðinga lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af stöðu mála vegna sam- dráttar í aflaheimildum í þorski og telur brýnt að fyrirhugaðar mót- vægisaðgerðir verði útfærðar hratt og vel og teknar til framkvæmda strax í haust. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi fjórð- ungssambandsins 17. júlí sl. Í ályktuninni segir að ljóst sé að sveitarfélög, fyrirtæki og heimili verði fyrir mikilli tekjuskerðingu vegna samdráttarins og því sé nauðsynlegt að líta sérstaklega til þess að styrkja tekjustofna sveitar- félaganna til að þau geti eflt innviði sína. Þá telur stjórn fjórðungs- sambandsins mikilvægt að aðstoða þau fyrirtæki sem hvað verst verða úti þannig að þau komist yfir þá erfiðleika sem framundan eru án þess að segja upp starfsfólki. Stjórn Fjórðungssambands Vest- firðinga leggur jafnframt til að sveitarfélög á Vestfjörðum vinni eigin tillögur að mótvægisaðgerð- um, kynni þær fyrir stjórnvöldum og vinni að framgangi þeirra í sam- vinnu við stjórnvöld. Lýsir stjórnin sig reiðibúna til þess að vinna með stjórnvöldum að frekari útfærslu mótvægisaðgerða nú sem endranær. Sveitarfélög móti tillögur KARNIVAL leikjanámskeiða á veg- um frístundamiðstöðvarinnar Tónabæjar verður haldið í dag, föstudag. Hátíðin hefst kl. 11 með skrúðgöngu frá útvarpshúsinu við Efstaleiti að Tónabæ, Safamýri 28. Skemmtidagskrá stendur yfir við Tónabæ til kl. 15. Karnivalið hefur verið fastur lið- ur í sumarstarfinu undanfarin ár. Þar koma börn af öllum sumarnám- skeiðum, á vegum frístundamið- stöðvarinnar, saman og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá, borða pylsur og skemmta sér og öðrum. Dagskrá karnivalsins er eftirfar- andi: Kl. 11 – Mæting í útvarpshús – lagt af stað í skrúðgöngu þegar allir eru til. Kl. 11.30 – Brekkusöngur. Kl. 12 – Matur. Kl. 12.30 – Atriði á sviði. Kl. 13 – Opið starf (sumargrín, leik- ir, veltibíll.) Kl. 14-15 – Leikjanámskeiðahóp- arnir ráða hvenær þeir leggja af stað heim. Karnival leikja- námskeiða Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.