Morgunblaðið - 20.07.2007, Qupperneq 40
… aðalástæðan kvað
vera leikarinn Tom
Cruise sem er af ýmsum lágt
skrifaður í Þýskalandi … 42
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
ÍSLENSKÆTTAÐI leikstjórinn Vito Rocco vann
nýlega stuttmyndakeppni vefsíðunnar MySpace
þar sem verðlaunin voru ein milljón punda og
rennur féð í fyrstu mynd leikstjórans í fullri
lengd. Móðir Rocco, Kristín Finnbogadóttir flutti
til Englands á sjötta áratugnum til þess að verða
leikkona. Rocco ætlaði sjálfur að verða leikari
eins og foreldrar hans en komst að þeirri niður-
stöðu að hann yrði aldrei nógu góður leikari og
ákvað að færa sig bak við myndavélina. Hann
byrjaði að gera stuttmyndir með félögum sínum
en um það leyti sem þeir voru orðnir blankir
fengu þeir boð um að gera tónlistarmyndband
fyrir Finnann Jimmy Tenor.
Eftir það fékk hann tækifæri til þess að gera
fleiri stuttmyndir auk þess sem hann leikstýrði
þætti í sjónvarpsþáttaröðinni Úlfaþytur í úthverfi
(Suburban Shooter) sem sýndir hafa verið á RÚV
og Rocco lýsir sem „bresku útgáfunni af Despe-
rate Housewives.“
Bless, grimmi heimur
En það er stuttmyndin „Goodbye, Cruel
World“ sem hefur borið hróður hans víðast og
það var hún sem tryggði honum sigur í stutt-
myndakeppninni Movie MashUp á MySpace, en
um 800 myndir voru skráðar til keppni. Myndin
fjallar um ungan dreng sem er út undan og gaml-
an mann sem hann vingast við, sögusvið sem
Rocco segir afar hefðbundið í breskum kvik-
myndum. Munurinn er hins vegar sá að þegar
gamli maðurinn er látinn lætur stráksi eins og
ekkert sé. Hann sendir þann gamla á dansleik
eldri borgara með hjálp fjarstýrðs hjólastóls og
talstöðvar. Sjálfur lýsir Rocco aðalpersónunum
tveimur sem utangarðsmönnum og segir þetta
þeirra sjálfstæðisyfirlýsingu – þeir þurfa ekki á
öðrum að halda.
Breski leikstjórinn Kevin McDonald (Last
King of Scotland og Touching the Void) sat í dóm-
nefnd og var mjög hrifinn af mynd Rocco sem
hann taldi meira en tilbúinn til þess að leikstýra
mynd í fullri lengd, „þeir eru allir miklu betri en
ég þegar ég var að byrja,“ fullyrðir McDonald um
Rocco og tvo aðra keppendur. McDonald er hrif-
inn af þeirri hugmynd að nota MySpace við leik-
araval í bíómyndir og Rocco sjálfur talar um að
notendur vefsíðunnar hafi gaukað mörgum góð-
um hugmyndum að honum varðandi framhaldið.
Músarhjörtu sem slá í fortíðinni
Myndin sem Rocco ætlar að nota verðlaunaféð í
er Faintheart, hvers slagorð er „May the Norse
be With You,“ en það er ekki nóg með að hún vísi
með því í tvær uppáhaldsmyndir nörda heimsins
heldur er hún líka um téða nörda. Nánar tiltekið
þá sem taka miðaldaskylmingarnar svo alvarlega
að þeir safna liði og setja á svið bardaga með öllu
tilheyrandi, þá sem láta sér ekki nægja að leika
hlutverkaleiki heima hjá sér heldur fara út og
gera þetta í alvörunni. Aðalpersónan er Richard,
einmana sölumaður á daginn en hugprúð bar-
dagahetja um helgar. Konan hans fær nóg af tvö-
falda lífinu og þá fyrst reynir á hetjuna sem þarf
að vinna fjölskyldu sína aftur. Rocco sjálfur er
nýkominn frá eyjunni Man þar sem hann eyddi
næstsíðustu helgi í rannsóknir. „Þeir eru með vík-
ingalangskip sem þeir fengu frá Noregi,“ segir
hann með stolti. Hann telur að líklega séu um 2-
3000 manns á Englandi sem berjast í slíkum bar-
dögum reglulega. Þeir eru úr öllum stéttum en
flestir séu þeir að flýja rútínukenndan hversdag-
inn. Þá er konunum sífellt að fjölga. „Margir öfl-
ugustu bardagamennirnir eru konur. Venjulega
hafa þetta bara verið karlar en konur hafa barist
fyrir rétti sínum til þess að berjast.“
Rocco reiknar með að verðlaunaféð dugi fyrir
kostnaði enda hafi þau ekki átt krónu fyrir viku.
En bíómyndir eru dýrar, þessi er sannarlega í
ódýrari kantinum. Meðalmynd í Bretlandi kostar
1,8 milljónir punda þannig að milljónin á eftir að
hverfa hratt.
Aðspurður um áhrifavalda segir hann fyrstu
myndir Aki Kaurismäki og Woody Allen í miklu
uppáhaldi, sömuleiðis John Cassavetes, Baz
Luhrman og myndir á borð við Sling Blade og 101
Reykjavík – og nefnir að lokum að hann myndi
svo sannarlega vilja gera mynd á Íslandi, en hing-
að er hann kominn í stutta heimsókn ásamt öðr-
um fjölskyldumeðlimum.
Dauður maður á dansleik
Morgunblaðið/G.Rúnar
Góður félagsskapur Leikstjórinn Vito Rocco í félagsskap höggmynda í Hnitbjörgum, garði Einars Jónssonar, myndhöggvara.
Óvenjulegar húsmæður Rocco hefur áður leikstýrt þætti í þáttaröðinni Suburban shootout.
myspace.com/mymoviemashup2
Heyrst hefur að bresku diskó-
rokkararnir í Franz Ferdinand séu
væntanlegir til landsins á ný og þá
sennilega um miðjan september.
Einnig fylgir sögunni að gleðipopp-
sveitin fjöruga, Sprengjuhöllin,
muni hita upp fyrir Bretana. Lag
Sprengjuhallarinnar, „Verum í
sambandi“ hefur verið gríðar-
vinsælt að undanförnu og verður til
að mynda á nýjustu Pottþétt-plöt-
unni. Þá hefur verið staðfest að
Sprengjuhöllin muni hefja upp-
tökur á væntanlegri breiðskífu
sinni í Gróðurhúsinu nú á mánudag.
Upptökustjórn verður í höndum
Valgeirs Sigurðssonar en hann hef-
ur áður stýrt upptökum listamanna
á borð við Björk og Bonnie Prince
Billy.
Hitar Sprengjuhöllin
upp fyrir Ferdinand?
Lítið hefur
farið fyrir hljóm-
sveit allra lands-
manna, Stuð-
mönnum, upp á
síðkastið. Ýmsir
meðlimir sveit-
arinnar eru í
sumarfríi um
þessar mundir en
aðrir eiga víst
náðuga daga
með nýjustu og yngstu meðlimum
Stuð-fjölskyldunnar. Sveitin mun
þó snúa sér aftur að spilamennsku
innan nokkurra vikna og fastir
póstar á borð við hljómleika í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum um
Verslunarmannahelgina, verða á
sínum stað. Reikna má með því að
Valgeir Guðjónsson taki þar lagið
með félögum sínum en óvíst er
hvort Þórður Árnason gítarleikari
verður með en hann sagði skilið við
sveitina fyrir nokkru.
Velta (og vagg)
á Stuðmönnum
Valgeir
Guðjónsson
Hin íslensk-
ættaða Helga
Stephenson var
ein sjö kvenna í
kvikmyndum
sem heiðraðar
voru við sérstaka
athöfn á Hyatt
hótelinu í
Toronto á mið-
vikudaginn.
Helga, sem m.a. stýrði hinni virtu
kvikmyndahátíð í Toronto á ár-
unum 1987 til 1993, er nú heiðurs-
formaður dagskrárnefndar Kvik-
myndahátíðar í Reykjavík. Þá
starfar hún við hátíðir víða um
heim, m.a. á Kúbu og í Kanada.
Helga Stephenson
heiðruð í Toronto
Helga Stephenson