Morgunblaðið - 20.07.2007, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
HLJÓÐ OG MYND VIPSALURINNER BARA LÚXUSER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
THE TRANSFORMERS FORSÝND kl. 11 POWERSÝNING B.i.10.ára DIGITAL
THE TRANSFORMERS FORSÝND kl. 11 POWERSÝNING LÚXUS VIP
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 B.i.10.ára
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 B.i.10.ára DIGITAL
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 LÚXUS VIP
EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BLIND DATING kl. 8 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
OCEAN'S 13 kl.10:10 B.i.7.ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 B.i.10.ára
/ ÁLFABAKKA
HARRY POTTER 5 kl. 4 - 6 - 7 - 9 - 10 B.i. 10 ára DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 6 LEYFÐ
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára
eeee
FGG - Fréttablaðið
eeee
ÓHT - Rás2
"LÍFLEG SUMAR-
SKEMMTUN"
eee
L.I.B. TOPP5.IS
eee
S.V. MBL.
SÝND MEÐ ÍSL
ENSKU
OG ENSKU TAL
I
eeee
Morgunblaðið
eeee
RUV
eeee
DV
eeee
Tommi - Kvikmyndir.is
Ég man nú eftir því þegarég fór á þjóðhátíð í Eyjumá yngri árum hvað mikið
var hlegið að þeim stelpum sem
voru lengi að pakka og hugsa um
í hvaða fötum þær myndu líta best
út í útilegunni. Sumar fóru jafnvel
og keyptu sér nýja boli og tóku
með sér „bjútíbox“ uppfullt af
meiki og hárspreyi til að líta sem
best út. Alvöruútilegulið lét ekki
standa sig að verki við slíka iðju
heldur pakkaði bara því niður
sem hentaði best í útileguna en
var auðvitað líka nokkuð flott.
66°N regngallinn, gúmmítútturnar
og lopapeysan voru þar fremst í
flokki og síðan mátti lauma mask-
ara með.
Þar sem ég fór á Hróars-
keldutónlistarhátíðina fyrstu
helgina í júlí rifjuðust upp fyrir
mér árin á þjóðhátíð þar sem pæj-
urnar skulfu úr kulda undir
sjoppuskyggnunum á meðan lopa-
peysuliðið skemmti sér.
Eins og þegar hefur komiðfram var Hróarskelduhátíðin
frekar blaut, drullug og köld
þetta árið og því lítið annað að
gera, ef maður ætlaði að njóta
tónlistarinnar, en að klæða sig í
stígvél og regngalla frá toppi til
táar. Það gerði ég að minnsta
kosti og flestir voru líka svo skyn-
samir en síðan voru hinir sem ætl-
uðu ekki að missa „kúlið“ þrátt
fyrir veður og aðstæður.
Tíska nær nefnilega inn á svona
tónlistarhátíðir sem og allt annað
og helstu áhrifavaldar þetta árið á
Hróarskeldu virtust vera
skötuhjúin fyrrverandi Kate Moss
og Pete Doherty eins og þau sáust
klædd á Glastonbury-tónlistarhá-
tíðinni árið 2005. Það árið á Gla-
stonbury var mikil drulla en eins
og vanalega voru Kate og Pete
töff og virðast hafa skapað ein-
hverja tónlistarhátíðartísku í kjöl-
farið.
Kate sást þá ekki öðruvísi en í
litlum gallastuttbuxum eða í mjög
stuttum kjól og í svörtum háum
Wellington-vaðstígvélum. Pete var
í þröngum gallabuxum og auðvit-
að með litla svarta hattinn.
Þannig birtist mynd af þeim
vaðandi í drullunni á Glastonbury
í öllum blöðum eftir hátíðina og
sú mynd stóð mér oft fyrir hug-
skotssjónum á Hróarskeldu. Þar
voru margar stelpurnar með lærin
ber í stígvélunum, í stuttum kjól-
um eða stuttbuxum við og með
miðjuskipt hárið slegið. Samsetn-
ing sem hefði virkað vel ef ekki
hefðu fylgt með bláir leggi og
skjálfandi varir stóran hlut hátíð-
arinnar eða fram á sunnudag þeg-
ar sólin skein loksins.
Ég dáðist að þessum stelpum að
gefa ekki eftir af ímyndinni þrátt
fyrir að allar aðstæður hefðu gef-
ið tilefni til annars, einnig vor-
kenndi ég þeim að vera svo fastar
í tískunni að ekki væri hægt að
láta út af bregða til að láta sér
líða betur. En tískan er víða kvöl,
það er ekki aðeins á Hróarskeldu
sem leggir verða bláir til að fylgja
í fótspor tískufyrirmyndarinnar.
Konur úti um allan heim láta
kveljast í stuttum pilsum, támjó-
um skóm, óþægilegum nærbuxum
og níðþröngum gallabuxum.
Samkvæmt breskri könnun semgerð var í kjölfar Gla-
stonbury-hátíðarinnar í ár og birt-
ist m.a. á Metro.co.uk snúast tón-
listarhátíðir í dag næstum því
orðið meira um fötin sem eru tek-
in með en böndin á sviðinu og er
„Kate Moss-áhrifunum“ þakkað
fyrir það.
Sagt er að 1⁄3 af konunum sem
fara á tónlistarhátíðir kaupi sér
alveg nýjan fataskáp fyrir þær og
getur undirrituð vel trúað því
m.v. tískustraumana á Hróars-
keldu.
Klæðaburður Kate Moss á Gla-stonbury hefur haft víðtæk-
ari áhrif en á tónlistarhátíðir. Eft-
ir að hún sást skarta
Wellington-stígvélum hafa þau
hlotið nýjan sess og stígvél yf-
irhöfuð í tískuheiminum. Þau
þykja nú ekki eingöngu hæf til
sveitaverka heldur er ekkert
skammarlegt við að skarta þeim í
mannfjölda eins og á tónlist-
arhátíðum eða fjölförnum versl-
unargötum. Hver stórstjarnan á
eftir annarri hefur sést í Well-
ington við ýmis tækifæri og jafn-
vel í glampandi sól.
Það er svo sem ekki langt síðan
það þótti töff að klæðast hvítbotna
gúmmítúttum hér á landi dags
daglega og stígvélaklæddar stúlk-
ur sjást oft í miðbænum en þá oft-
ast í lítríku gúmmíi. Það fer lítið
fyrir Víking- eða Nokia-stígvél-
unum niðri í bæ, enn sem komið
er, en aldrei að vita nema þau
verði helsta „trendið“ á þjóðhátíð
í Eyjum í ár.
Með glamrandi tennur í gúmmístígvélum
AF LISTUM
Ingveldur Geirsdóttir
» Sagt er að 1⁄3 af kon-unum sem fara á tón-
listarhátíðir kaupi sér
alveg nýjan fataskáp
fyrir þær og getur und-
irrituð vel trúað því m.v.
tískustraumana á Hró-
arskeldu.
Morgunblaðið/Ingveldur
Yfirgefin Fólk tók ekki stígvélin með sér heim af Hróarskeldu.
Fyrirmyndir Kate Moss og Pete Doherty
eins og þau voru á Glastonbury 2005 og
komu með því af stað ákveðinni tónlist-
arhátíðartísku.
ingveldur@mbl.is