Morgunblaðið - 20.07.2007, Síða 45

Morgunblaðið - 20.07.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 45 / AKUREYRI / KEFLAVÍK NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is STÆRSTA GRÍNMYND SUMARSINS FRÁ LEIKSTJÓRA BRUCE ALMIGHTY Guð hefur stór áform... en Evan þarf að framkvæma þau Evan hjálpi okkur TRANSFORMERS FORSÝND kl. 9 POWERSÝNING B.i. 10 ára HARRY POTTER kl. 6 - 10 B.i. 10 ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ BLIND DATING kl. 8 LEYFÐ eee L.I.B. - TOPP5.IS eee H.J. - MBL eeee KVIKMYNDIR.IS ÁSTIN ER BLIND HEFURÐU UPPLIFAÐ HIÐ FULLKOMNA STEFNUMÓT?STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS tv - kvikmyndir.is eee LIB, Topp5.is WWW.SAMBIO.IS THE TRANSFORMERS FORSÝND kl. 12 POWERSÝNING B.i. 10 ára HARRY POTTER 5 kl. 6 - 9 B.i. 10 ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ FORSÝND Í KVÖLD REYKJAVÍK • KEFLAVÍK • AKUREYRI POWERSÝNING ÞEIRRA STRÍÐ OKKAR HEIMUR FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG KEMUR STÆRSTA MYND SUMARSINS FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS Lýstu eigin útliti Já, þegar stórt er spurt, ég er ljóshærð, græn augu, meðalhá. Hefurðu séð Degalógana/Boðorðin 10 eftir Kristof? (Og ef ekki, horfðu þá á hana hið snarasta!) (Spurt af síð- asta aðalsmanni, Baltasar Kormáki) Nei, ég á hana eftir, sé fram á videókvöld í kvöld! Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Það fer held ég enginn leikari neitt sérstaklega í taugarnar á mér. En svona yfir höfuð þá fer það í taugarnar á mér þegar leikarar leika alltaf sömu týpuna, eins og þeir geti ekki skipt um karakter. Hvaða bók lastu síðast? Ég verð því miður að við- urkenna að ég er voðalega lítill bókaormur og þar af leiðandi man ég hreinlega ekki hvað ég las síðast! Á hvaða plötu hlustar þú mest þessa dagana? Ég er alltaf með iPod og þar eru allir diskarnir sem ég vil hlusta á. En ég er búin hlusta mikið á Mika-diskinn, hann er góður. Hvað uppgötvaðir þú síð- ast um sjálfa þig? Að ég væri gift kona, mjög skemmtileg upp- götvun! Besta lag allra tíma? Hallelujah. Hefurðu þóst vera veik til að sleppa við vinnu eða skóla? Nei, það hef ég ekki gert, hef ekki samvisku í það. Geturðu farið með ljóð? Já, ég hugsa að ég gæti það alveg en ég er samt ekki mikið fyrir það að semja ljóð. Með hverjum myndirðu helst vilja syngja dúett? Það fer eftir því hvort maður er að hugsa á íslenskan mælikvarða eða erlendan, en ég held að ég myndi velja Sir Elton John! Er líf eftir Nylon? Já, það er líf eftir Nylon. Heimurinn er fullur af tækifærum og ég er spennt að takast á við það sem tekur við. Áttu mikið af fötum úr næloni? Nei, aðallega sokkabuxur. Hver var besta brúð- kaupsgjöfin? Við fengum svo mikið af yndislegum gjöfum að það er erfitt að segja hver væri uppá- halds. Ég held að ég verði bara að segja að þær voru allar uppáhalds. Hvaða kvikmynd eða sjónvarpsefni hefur haft mest áhrif á þig? Myndin The Secret. Það er ein magnaðasta mynd sem ég hef á ævi minni séð! Hún hefur hjálpað mér að sjá lífið í allt öðru ljósi. Mæli með henni fyrir alla. Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar á morgnana og það síð- asta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? EMILÍA BJÖRG ÓSKARSDÓTTIR UNDANFARNIR DAGAR HAFA HELDUR BETUR VERIÐ VIÐBURÐARÍKIR HJÁ AÐALSMANNI VIKUNNAR ÞVÍ HÚN GEKK AÐ EIGA UNNUSTA SINN TIL NOKKURRA ÁRA Á LAUGARDAGINN OG TILKYNNTI SVO AÐ HÚN VÆRI HÆTT Í NYLON Á MÁNUDAGINN. UM ÞESSAR MUNDIR ER HÚN HINS VEGAR Í BRÚÐKAUPSFERÐALAGI. Samviskusöm Emilía á aðallega sokkabuxur úr næloni. O.C. LEIKKONAN unga Mischa Barton hefur hætt að mæta í Holly- woodpartí. Hún segist vera orðin þreytt á stanslausum þrætum og baktali sem á sér stað í Hollywood. „Þegar ég kom til Hollywood vissi ég ekkert um þessa vinnu og eignaðist ekki sem bestu vinina. Maður gerir nokkur mistök á þess- um aldri og það tók mig tíma að finna vinina sem ég get verið full- komlega róleg með. Ég vil halda einkalífinu fyrir mig, þú finnur ekki meira en fjóra eða fimm sanna vini í kringum mig. Persónan sem birtist í slúðurblöðunum er ekki ég. Þegar ég sé mig í blöðunum hugsa ég, „Hver er þessi stúlka?“ Ég vil láta lítið á mér bera og er yfirleitt róleg en fjölmiðlar hafa skapað falsaðar sögur um ungar Hollywood- persónur þar sem allir hanga sam- an og allir þekkja alla. En það gæti ekki verið fjær sannleikanum,“ seg- ir Barton sem lenti í ónáðinni hjá Parísi Hilton eftir að hún sakaði hótelerfingjann um að vera öfund- sjúk vegna velgengni annarra. Þreytt á þrætum og baktali Reuters Mischa Barton LEIKKONAN Nicole Kidman bjargaði meðleikara sínum Hugh Jackman frá eitruðum sporðdreka við tökur á nýrri mynd sem þau fara með hlutverk í. En þau eru að leika í nýrri mynd Baz Luhrmann Australia sem er tekin í heimalandi þeirra Ástralíu. Í einu atriðinu á Kidman að skríða í svefnpoka með Jackman undir berum stjörnuhimni. En þeg- ar leikkonan var við það að skríða í pokann tók hún eftir að Jackman var kominn með miklu hættulegri bólfélaga. „Nicole dróg djúpt andann þegar Hugh opnað svefnpokann því hún sá eitraðan sporðdreka undir öðr- um fætinum á honum. Hún sagði Hugh rólega að hreyfa sig ekki, beygði sig niður og kom sporðdrek- anum eldsnöggt í hattinn sinn, gekk svo út í skóginn og sleppti honum þar,“ sagði maður sem var viðstaddur atvikið. „Þegar við spurðum hana hvers vegna hún hefði ekki bara stappað ofan á honum sagði hún: „Ég myndi aldrei drepa dýr. Allar lífverur hér hafa sinn tilgang. Þessi átti bara ekki heima í svefnpokanum hans Hughs.““ Dýravinur Nicole Kidman

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.