Morgunblaðið - 20.07.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2007 47
Verðið á Volkswagen Golf hefur aldrei verið hagstæðara. Taktu gæðin
og glæsileikann með í reikninginn og þú sérð að þetta er tækifæri sem
borgar sig að grípa. Komdu, reynsluaktu og tryggðu þér Golf.
Gerðu bílinn enn glæsilegri með sportpakka að verðmæti 280.000 kr.
• 16" álfelgur • sóllúga • leðurstýri • þokuljós
• armpúði milli framsæta • samlitur
Golf Trendline kostar aðeins 25.490 kr. á mánuði.*
1.9
9
8
.0
0
0
kr.
*M
.v
. 1
0%
ú
tb
o
rg
u
n
o
g
b
íl
as
am
n
in
g
SP
t
il
8
4
m
án
að
a.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-0
8
4
4
Volkswagen Golf er grænn bíll
HEKLA greiðir fyrir kolefnisjöfnun allra nýrra Volkswagen-bíla í eitt ár. Kolefnisjöfnun
felst í því að binda samsvarandi magn gróðurhúsalofttegunda og bíllinn gefur frá sér.
Þetta gerum við með skógrækt og landgræðslu.
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Föstudagur
<til freistinga>
12 Tónar
My Summer as a Salvation Soilder
Gaukur á Stöng
Perfect Disorder
Café Oliver
Carnival
Glaumbar
DJ Tempó
Hressó
Gotti, Eisi og DJ Maggi
Hverfisbarinn
DJ Stef
Kringlukráin
Karma
Players
Spútnik
Prikið
Elín Ey og DJ Maggi Legó
Vegamót
Símon
Laugardagur
<til lasta>
Sólheimakirkja
Hljómsveitin Hraun
Jómfrúin
Kvartett Snorra Sigurðarsonar
Café Oliver
Carnival
Glaumbar
Flass Mega kvöld
Hressó
Retro kvöld. Böddi og co
og DJ Maggi
Hverfisbarinn
DJ Jay Ó
Kringlukráin
Karma
Nasa
Burn partý
Players
Eyjakvöld
Prikið
DJ Prik og Óli Hjörtur
Vegamót
Danni Deluxe
Sunnudagur
<til sólbaða>
Café Oliver
Carnival
Morgunblaðið/Golli
Hraun Liðsmenn sveitarinnar
ásamt ungum aðdáanda. Hraun
leika á Sólheimum um helgina.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Burn Party Á NASA á morgun.
UM HELGINA ER ÞETTA HELST»
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
„EF hann fann einhvern sem
líkaði þjáning lét hann við-
komandi þjást – og naut þess.
Hann var eins og köttur sem
otar loppunni að manni, mað-
ur vissi aldrei hvort hann ætl-
aði að strjúka eða klóra.“ Svo
mælir Hanna Schygulla um
manninn sem gerði hana að
kvikmyndastjörnu, þýska
leikstjórann Rainer Werner
Fassbinder. Fassbinder lést
árið 1982 og var jafnþekktur
sem snillingur og sem brjál-
æðingur eins og raunar fleiri
jafnaldrar hans í hæfileikarík-
ustu kynslóð þýskra leikstjóra
eftirstríðsáranna. Hanna
Schygulla var aðalleikkona
Fassbinders og unnu þau
saman að yfir tuttugu mynd-
um. Hún hlýtur heið-
ursverðlaun Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðarinnar í
Reykjavík í haust þar sem
myndir Fassbinders verða í
forgrunni og mun auk þess
halda hér tónleika og hugs-
anlega halda einhvers konar
námskeið með ungum íslensk-
um leikurum. Þá verður hún
gestur „spurt og svarað“ sýn-
ingar á mynd Fassbinders.
Tónleikana kallar Schygulla
söngævisögu, Aus meinem le-
ben. Þar flytur hún ýmis lög
sem hafa haft áhrif á hana á
mismunandi æviskeiðum og er
dagskráin fjölbreytt eftir því,
rokk og ról, djass og kabar-
ettmúsík, Rolling Stones, Bob
Dylan og Lili Marlene. Schy-
gulla fæddist í Katowice árið
1943 þegar Pólland var her-
numið af Þjóðverjum. Hún
ólst upp í München og lærði
þar bókmenntir, rómönsk mál
og leiklist. En árið 1968 hitti
hún Fassbinder og lék fyrst
fyrir hann í Farandverka-
manninum (Katzelmacher). Á
hátíðinni verða meðal annars
sýndar myndirnar Bitur tár
Petru von Kant (Die Bitteren
Tränen der Petra von Kant),
Fontan – Effi Briest, Hjóna-
band Maríu Braun (Die Ehe
der Maria Braun) og Lili Mar-
leen. Aðrar Fassbinder-
myndir sem eru staðfestar eru
Ameríski dátinn (Der Amerik-
anische Soldat) og Langanir
Veroniku Voss (Die Se-
hnsucht der Veronika Voss)
og fleiri gætu bæst við auk
þess sem ekki er ólíklegt að
fleiri myndir hans verði sýnd-
ar á vegum Fjalakattarins eft-
ir að hátíðinni sjálfri lýkur. En
Schygulla hætti alls ekki að
leika þegar Fassbinder var
allur. Hún hefur búið í París
undanfarna áratugi og leikið
þar fyrir Jean-Luc Godard og
væntanlega verður nýjasta
mynd hennar, Himinbrú (Auf
der anderen Seite) einnig
sýnd á hátíðinni en henni er
leikstýrt af þýsk-tyrkneska
leikstjóranum Fatih Akin sem
átti þá mögnuðu mynd Beint
af augum (Gegen die Wand) á
hátíðinni fyrir tveim árum.
Þýsk stórleikkona
á kvikmyndahátíð
Eva Hanna Schygulla á sínum yngri árum í hlutverki Braun.