Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 20.07.2007, Blaðsíða 48
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 201. DAGUR ÁRSINS 2007 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA www.ostur.is Grill og ostur – ljúffengur kostur! KOMINN Í VERSLANIR »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» „Við værum ekki á lífi í dag án þeirra“  Tveir franskir flugmenn eru komnir til byggða eftir að fisvél þeirra brotlenti á Grænlandsjökli. „Við værum ekki á lífi í dag án þeirra,“ sögðu flugmennirnir um danska björgunarmenn sem björg- uðu þeim. »Forsíða Íslendingar verði að liði  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra ræddi í gær við for- seta og forsætisráðherra Palest- ínumanna. Þeir lögðu áherslu á að alþjóðasamfélagið, þ. á m. Íslend- ingar, þyrfti að aðstoða við að byggja upp samfélag Palest- ínumanna. » 2 Reglum kirkjunnar breytt  Lagt verður til á kirkjuþingi í haust að starfsreglum við ráðningu presta verði breytt þannig að þær verði skýrari. » 4 SKOÐANIR» Staksteinar: Stórbrotið verkefni Forystugreinar: Ísland og Afganistan | Rekstur LSH Ljósvaki: Að vera Frida Kahlo UMRÆÐAN» »MEST LESIÐ Á mbl.is Velferð íþróttamanna Lítil saga frá Vestfjörðum Upplifðu Reykjanesskagann Tengjast höfundarréttarbrot …? Viktor Þór í fimmta sinn á palli Nýi forsetabíllinn bara bóla? Fagmenn fáist við öryggisbúnað Evrópukappakstur við hlið … BÍLAR » 3 " (8 , ' ( 9   :   .  . . .  .  .  . . . . .  . . . * 1$6    .  . . . . .  ;<==>?@ AB?=@-9CD-; 1>->;>;<==>?@ ;E-11?F-> -<?11?F-> G-11?F-> 7@-2?>-1@ H>C>-1AHB- ;? B7?> 9B-9@7'@A>=> Heitast 18 °C | Kaldast 10 °C Suðlæg átt, 5–13 m/s, hvassast vestast. Dálítil rigning um landið vestanvert en bjart norðan og austan. » 10 Sæbjörn Valdimars- son er sæmilega hrifinn af nýjustu mynd Tarantinos og gefur henni þrjár stjörnur. »41 KVIKMYNDIR» Sæmilegur Tarantino TÓNLIST» Stórtónleikar voru haldn- ir á Ingólfstorgi. »43 Pierce Brosnan sem er hvað þekktastur fyrir að leika James Bond ætlar að ljá Tomma togvagni rödd sína. »41 FÓLK» Bond sem Tommi? ÍSLENSKUR AÐALL» Emilía fékk mikið af brúðargjöfum. »45 KVIKMYNDIR» Leikkonan Hanna Schy- gulla er væntanleg. »47 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Vinsælust án kynlífs og kjaftas. 2. Ömmu hent á haugana 3. Lauk stúdentspr. á tveimur á́rum 4. Eig. Goldf. og dansari sýknuð SÓPRANSÖNGKONAN Arndís Halla Ásgeirsdóttir mun syngja hlutverk Zerbinettu úr verkinu Ari- adne auf Naxos eftir Richard Strauss í Íslensku óperunni í haust. Arndís Halla er búsett í Berlín í Þýskalandi og vegnar vel í list sinni þessa dag- ana. „Ég er til að mynda nýbúin að gefa út disk hérna úti, ætla svo að reyna að gefa hann einnig út heima í haust.“ Arndís hefur mótað einkar persónulega „eigin-tónlistarstefnu“ á umræddri hljóðskífu; hún syngur annars vegar svokallað „klassíkur- popp“ – „í því heyrist litur af Íslandi, maður heyrir íslensku hljómana, fimmundirnar, rytmann ...“ – og hins vegar má heyra svokallaða „kross- klassík“, en „þá tek ég frægar óp- eruaríur og legg þær svo saman við aðrar músíkstefnur.“ | 15 Arndís Halla Arndísi Höllu vegnar vel í Berlín VITO Rocco, enskur leik- stjóri af íslensk- um ættum, vann eina milljón punda (122 milljónir króna) í stutt- myndakeppni sem vefsíðan MySpace.com stóð fyrir. Milljónin er ætluð til þess að hjálpa sigurveg- aranum að gera sína fyrstu mynd í fullri lengd. Rocco vann verðlaunin fyrir myndina „Goodbye, Cruel World“ sem varð hlutskörpust þeirra 800 sem skráðar voru í keppnina. Hann ætlar að nota verð- launaféð til þess að gera gam- anmynd um karlmenn sem eyða helgunum í að sviðsetja bardaga vík- inga og riddara fornaldar. | 40 Vann milljón pund á MySpace Vito Rocco kvik- myndaleikstjóri. ÍSLENDINGAR eru miklir athafnamenn og hafa und- anfarin misseri ekki síst tekið til hendinni í Danmörku. Sigurður Strandeng er einn þeirra, en fyrirtæki hans Holiday Invest vinnur nú að því að reisa stærðar frí- stundabyggð við Frederikshavn, eins og Morgunblaðið greindi frá í maí. Nú hefur Sigurður náð samningum við einn nafnkunnasta mann í golfheiminum, skoska stjörnukylfinginn Colin Montgomerie, um hönnun og byggingu 18 holna golfvallar við frístundabyggðina, sem kallast Palm City. „Hann er mjög þekktur og vel metinn vallarhönn- uður og hefur hannað 20–30 velli um allan heim, en hann á engan völl í Skandinavíu ennþá,“ segir Sig- urður. „Þetta verður líka fyrsti völlurinn sem mun bera nafn hans því hann mun heita The Montgomerie Co- urse at Palm City, en ætli hann verði ekki í daglegu tali bara kallaður The Monty Course.“ Aðrir vellir sem Montgomerie hefur hannað eru m.a. í Kína, Írlandi og Dúbaí. Hann hefur sjálfur sagst stefna að því að hanna spennandi velli sem ögri kylf- ingnum, en taki jafnframt mið af náttúrulegu umhverfi á svæðinu. Völlinn sem Sigurður stendur fyrir mun Montgomerie hanna í nánu samstarfi við European Golf Design, en það er dótturfyrirtæki European Tour sem rekur evrópsku mótaröðina. Að sögn Sigurðar mun Montgomerie verða viðloðandi verkefnið frá upp- hafi til enda og auk þess verða viðstaddur opnunina á vellinum, sem áætlað er að verði í september 2010. „Það hittist skemmtilega á því Ryder Cup-mótið verður haldið á svipuðum tíma á Celtic Manor-vellinum í Wa- les, sem er einmitt hannaður af Montgomerie,“ segir Sigurður og útilokar ekki að Palm City-völlurinn verði síðar vettvangur álíka stórmóta. Frístundabyggðin samanstendur af tæplega þúsund íbúðum ásamt stórum þjónustukjarna þar sem verður vatnagarður, veitingastaðir o.fl. Eignirnar eru byggð- ar sem heilsárshús og segir Sigurður að aðstaðan öll, þar með talinn golfvöllurinn, verði aðgengileg allt árið um kring. „Við stílum mikið inn á Dani sem markhóp, en líka nágrannaþjóðirnar, og ég held þetta sé alveg tilvalið fyrir Íslendinga, að geta skellt sér á golfvöllinn og ströndina til skiptis.“ Byggir golfvöll með Colin Montgomerie Sigurður Strandeng stendur í stórræðum Starfsbræður Sigurður og Montgomerie munu eiga í samstarfi næstu árin við byggingu golfvallarins í Palm City, en Montgomerie er meðal frægustu kylfinga í heimi og meðal þeirra allra sigursælustu í evrópsku mótaröðinni. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.