Morgunblaðið - 03.08.2007, Side 22

Morgunblaðið - 03.08.2007, Side 22
|föstudagur|3. 8. 2007| mbl.is daglegtlíf Þrefalda má uppskeru í þróun- arlöndum með lífrænni ræktun að mati vísindamanna við há- skólann í Michigan. » 25 vistvænt Það þarf ekki að vera flókið að útbúa dýrindismáltíð á fjöllum. Halla Hauksdóttir lumar á góð- um ráðum. » 24 matur Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Það eru tímamót hjá HreimiErni Heimissyni söngvara íLandi og sonum í ár því núeru tíu ár síðan hann kom fyrst fram á þjóðhátíð í Eyjum með áðurnefndri hljómsveit. „Það mynd- ast alltaf einstök stemning í Eyjum og samheldnin er mikil á meðal hátíð- argesta. Það veit í raun og veru eng- inn við hverju á að búast, þegar veðr- ið er annars vegar, en allir eru komnir til þess að skemmta sér. Það gerir sér enginn sérstaka ferð til Eyja þessa helgi til þess að vera með leiðindi og neikvæðni.“ Í ár ætlar hann hins vegar að halda uppi stuðinu með Vigni Snæ Vigfús- syni, betur þekktur sem Vignir gítar- leikari í Írafári. „Við Vignir eru miklir vinir og höf- um spilað mikið saman. Leiðir okkar lágu saman árið 2004 og köllum okk- ur bara Hreimi og Vigni. Það er ekk- ert flóknara. Við ætlum að spila þjóðhátíðarlög og fleiri stuðlög til þess að skemmta fólkinu í dalnum,“ segir söngvarinn sem samið hefur þrjú þjóðhátíðarlög. „Lífið er ynd- islegt“ sem er var lagið árið 2001, „Vináttu“ sem hljómaði árið á eftir en árið 2005 stilltu þeir Vignir saman strengi sína og úr varð lagið „Með þér“. Fótboltafíkill í sjálfboðavinnu En það eru ekki allar helgar eins og verslunarmannahelgin. Tónleikar um venjulegar helgar eru þó frekar regla en undantekning hjá tónlistar- manninum. „Um helgar reyni ég auð- vitað að vera með fjölskyldunni minni, eiginkonu og barni eins mikið og ég get. Í sumar höfum við reyndar ekki náð að fara eins mikið í útilegu og við höfum ætlað en við höfum gaman af ferðalögum. Ég er algjör íþróttaálfur og fyrir nokkrum árum byrjaði ég í golfi og það fer dálítill tími í það. Ég ákvað að taka það fastari tökum fyrir tveimur árum en það er nú eins og það er. – Hvað ertu með í forgjöf? „12,5.“ – Það er nú ágætt. „Ja, þetta er svolítið í blóðinu,“ segir Hreimur og glottir. „En ég rokka upp og niður og get átt hræði- lega hringi, einmitt vegna þess að ég er ekki nógu duglegur að æfa mig. – Ertu í einhverjum öðrum íþrótt- um? „Ég er svolítill fótboltafíkill. Ég elska fótbolta, held með Liverpool í ensku deildinni en ég fylgist með miklu fleiri liðum eins og Manchester United, mér finnst þeir spila skemmtilegan bolta. Ég reyni líka að fara öðru hvoru á völlinn hér heima. Ég er svolítill Framari í mér og vinn svolítið fyrir þá í sjálfboðavinnu.“ Eitthvað fyrir alla fjölskyldumeðlimi Hverju myndirðu mæla með fyrir fjölskyldufólk um helgar? „Ég mæli með því að fjölskyldur skipuleggi helgarnar gróflega til þess að fá sem mestu út úr helgunum. Hjón hafa oft ólík áhugamál og til þess að koma til móts við alla fjöl- skyldumeðlimi þarf oft að skipu- leggja hluti. Ferðalag getur bara ver- ið ferðalag og stundum getur allur dagurinn bara farið í að leita að tjald- stæði og tjalda. Það er svo mikilvægt að tala saman. Þá kemur kannski í ljóst að besta lausnin er að fara í sum- arbústað þar sem golfvöllur er ná- lægt! Helgar eiga að vera eins mikil fjölskyldufrí og hægt er.“ Morgunblaðið/G. Rúnar Skipulagður Hreimur ætlar að spila í Eyjum um helgina, en venjulega skipuleggur hann helgarnar fyrir fjölskylduna, golfið og fótboltann. Tími fyrir fjöl- skylduna og golfið Ljósmynd/Sæþór Þjóðhátíð Það finnst mörgum ómissandi að bregða sér til Eyja um Verslunarmannahelgina. Svalasti grillmaturinn: Úrbeinaður svínahnakki með grillkartöflum og kaldri sósu. Besti útileguslagarinn: What’s up með 4 Non Blondes. Hnitmiðaðasta heimadekrið: Popp secret, Coca Cola og höfuðnudd frá konunni. Heitasti golfvöllurinn: G.K.G. og Strönd, reyndar er alveg klikkað að spila í Eyjum. Hreimur mælir með: Þeim Aðalsteini Stefánssyni og Aleksej Iskosfannst tími til kominn að hverfa frá hinumhagsýna, danska einfaldleika undangeng- inna áratuga þegar þeir hönnuðu ,Ornametrica- ljósakrónurnar. Þeir vildu skreyta umhverfið svo- lítið en ljósakrónurnar voru upphaflega hannaðar fyrir kirkjur, banka og hótel. Form ljósakrón- unnar og útlit er breytilegt en hana má draga sundur og saman líkt og harmonikku. Eigandinn hefur því mjög frjálsar hendur um það hvernig geómetrískt form ljósakrónunnar er hverju sinni. – Aðalsteinn, vildirðu skapa nýja ljósakrónu fyr- ir hvern dag vikunnar? „Það var ekki alveg það,“ segir hann og hlær. „En tilgangurinn var að ljósakrónan gæti lagað sig að hvaða rými sem er. Mynsturbreytingarnar voru ófyrirséðar en eru afar skemmtilegur eiginleiki. Það má alveg breyta krónunni þannig að ný króna birtist á hverjum degi vikunnar.“ Enginn danskur einfaldleiki Ljósakrónan ,,Ornametrica“ er meðal þeirra muna sem eru á sýningunni Magma/Kvika og nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum. www.listasafnreykjavikur.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.