Morgunblaðið - 03.08.2007, Side 31

Morgunblaðið - 03.08.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007 31 MINNINGAR ✝ Jón Davíðssonfæddist í Skuggahlíð í Norð- firði 7. desember 1915. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað 26. júlí síðast- liðinn. Foreldar hans voru Petra Ragnhildur Jóns- dóttir, f. á Rann- veigarstöðum í Álftafirði 8.8. 1892, d. 28.12. 1929, og Davíð Her- mannsson, f. í Skuggahlíð í Norð- firði 30.8. 1885, d. 9.10. 1963. Jón var næstelstur í hópi átta systkina. Systkini Jóns eru: Hermann, f. 18.5. 1912, d. 9.1. 1991, Jóhann Valgeir, f. 17.11. 1917, d. 25.6. 1971, Sigríð- ur, f. 3.3. 1920, Gunnar Magnús, f. 23.7. 1923, d. 26.12. 2002, Sveinn Kristinn, f. 7.7. 1925, d. 20.12. 1974, Jóna Soffía, f. 9.12. 1926, d. 30.10. 1986, og Lúðvík, f. 20.3. 1929. Jón kvæntist Gyðu Þorleifs- dóttur frá Naustahvammi í Norð- firði, f. 20.7. 1919, og eignuðust þau átta börn, þau eru: 1) Erla Bjarný, Sesselju Einarsdóttur, f. 15.11. 1962. 6) Jóhann, f. 20.5. 1952, kvæntur Ágústu Þórarinsdóttur, f. 8.8. 1947. Ágústa á eina dóttur, Guðríði, og á hún tvo drengi. 7) Bryndís Þóra, f. 11.8. 1959, gift Árna Guðjónssyni, f. 12.7. 1954, þau eiga þrjú börn, Júlíu Dröfn, Aðalheiði og Fannar. Bryndís og Árni eiga þrjú barnabörn. 8) Axel, f. 15.10. 1960, í sambúð með Ólafíu Einarsdóttur, f. 17.9. 1963. Eiga þau þrjá drengi saman, Einar Jón, Óla Frey og Ragnar. Ólafía á einnig eina dóttur, Díönu Margréti. Jón kláraði barna- skólagöngu í farskóla, að því loknu fór hann í skóla á Laugarvatni og var þar tvo vetur. Stundaði fisk- vinnu bæði á sjó og landi eða þar til að við tóku landbúnaðarstörf. Jón og Gyða hófu búskap á Sveins- stöðum í Hellisfirði 1943-1947, fluttu í Skálateig 1947 og þá voru börnin orðin þrjú, hin fimm fædd- ust svo eftir að flutt var í Skála- teig. Jón og Gyða stunduðu hefð- bundin búnaðarstörf í Skálateigi. Síðustu 30 árin hafa þau búið við hlið Leifs sonar síns og hans fjöl- skyldu og notið dyggrar aðstoðar þeirra. Útför Jóns verður gerð frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. f. 22.2. 1943, d. 3.9. 1987, gift Hans Jakobi Beck Sigfússyni, f. 19.4. 1943. Þau eign- uðust fjóra syni, Dav- íð Heiðar, Sigfús Má, Jón Finn og Hjörleif Helga. Erla og Hans eiga sjö barnabörn. 2) Valgerður, f. 6.8. 1944, gift Halldóri Hilmari Þorbergs- syni, f. 21.6. 1944, þau eiga fimm börn, Gyðu Guðrúnu, Þorstein Hreiðar, Lilju Jónu, Berglindi Völu og Valþór Hilmar. Valgerður og Halldór eiga 13 barnabörn. 3)Leifur Marinó, f. 8.10. 1946, kvæntur Jarþrúði Þór- isdóttur, f. 13.5. 1957, þau eiga fimm börn, Þóreyju Sigrúnu, Maríu Fanneyju, Sigurjón Stefán, Inga Árna og Erlu Guðbjörgu. Leifur og Jarþrúður eiga fimm barnabörn. 4) Ragnar Davíð, f. 23.8. 1947, kvænt- ur Björk Rögnvaldsdóttur, f. 3.11. 1949, þau eiga tvær dætur, Guð- laugu og Hrafnhildi. Ragnar og Björk eiga tvö barnabörn. 5) Jón Þorgeir, f. 16.12. 1948, kvæntur Afi okkar í Skálateigi, Jón Davíðs- son, er dáinn, en hann lést á 92. ald- ursári. Alla tíð var hann mjög heilsu- hraustur þangað til nú fyrir tveimur vikum síðan að hann lagðist inn á sjúkrahús, í þriðja skiptið á þessari löngu ævi. Sem betur fer var sú lega ekki löng fyrir hann. Það síðasta sem að hann talaði um og hafði áhyggjur af áður en hann dó var hvort amma hefði nóg að bíta og brenna, enda voru þau búin að hugsa um hvort annað í rúm 65 ár. Eftir að amma veiktist fyr- ir nokkrum árum síðan sá afi um að hana skorti ekki neitt, með góðri hjálp frá ættingjum, en ekki kom til greina að flytja í íbúðir aldraðra út í bæ þar sem þau undu sér svo vel í sveitinni sinni. Eitt af hans aðalverkum á heim- ilinu var að sjá til þess að baka lumm- ur svo að við barnabörnin ásamt fleir- um gætum gætt okkur á þeim þegar við komum í heimsókn, en það var fastur liður að kíkja í sunnudagskaffi til þeirra hjúa. Þá var hægt að stóla á að maður hitti einhverja af ættingj- unum og ávallt var eitthvað gott bakkelsi á borðum. Í minningunni lifir einnig sterkt hjá okkur þegar hann spígsporaði um hlaðið sitt mörgum sinnum á dag, til að sjá til þess að allt væri í lagi á bænum, og sérstaklega athugaði hann með hundana. Heyrnin hans afa var frekar döpur síðustu ár og því forðaðist hann að vera í margmenni. Hann var frekar fámáll og kynntumst við honum eitt- hvað minna en ömmu. En ávallt sá maður þó að það var stutt í húmorinn hjá honum og hann hafði gaman af að fá barnabörnin og barnabarnabörnin í heimsókn. Nótt eina dreymdi mann draum. Honum fannst sem hann væri á gangi eftir ströndu með Drottni. Í skýjum himins flöktu myndir úr lífi mannsins. Við hverja mynd greindi hann tvenns konar fótspor í sandinum, önn- ur sín eigin, hin Drottins. Þegar síðasta myndin birtist fyrir augum hans, leit hann um öxl á sporin í sandinum. Hann tók eftir því að víða á leiðinni voru aðeins ein spor. Hann sá einnig að það var á þeim augna- blikum lífsins sem hve erfiðust höfðu reynst. Þetta olli honum miklu hugarangri og hann tók á það ráð að spyrja Drottin hverju þetta sætti. „Drottinn, Þú sagðir að þegar ég eitt sinn hefði ákveðið að fylgja þér mundir þú ganga alla leiðina í fylgd með mér. En ég hef tekið eftir því að á meðan á erfiðustu stundum lífs míns hefur staðið eru bara ein spor í sandinum. Ég get ekki skilið hvernig þú gast fengið af þér að skilja mig eftir einan, þegar ég þarfnaðist þín mest.“ Drottinn svaraði: „Þú dýrmæta barn mitt. Ég elska þig, ég mundi aldrei skilja þig eftir eitt, á meðan þessir erfiðu tímar lífs þíns liðu, þar sem þú sérð bara ein spor, var það ég sem bar þig.“ (Höf. ók.) Með þessum fátæklegu orðum vilj- um við kveðja elskulega afa okkar og votta ömmu og foreldrum okkar inni- lega samúð. Minning þín er ljós í lífi okkar, hvíldu í friði elsku afi. Þín barnabörn og fjölskyldur. Að heilsa og kveðja er lífsins saga. Ekki munum við bræður eftir hvenær við komum fyrst „inn í sveit,“ eða að Skálateigi. Móðurafi og móðuramma voru órjúfanlegur hluti af uppvexti okkar austur á Norðfirði. Að lágmarki var farið „inn í sveit“ á sunnudögum þar sem stórfjölskyldan kom saman, allt að því skyldumæting. Þar voru málefni líðandi stundar krufin til mergjar og voru flestir sam- mála um að vera passlega ósammála, en eitt var þó á hreinu; Willys voru einu almennilegu jepparnir og það tók því ekki að minnast á aðrar dráttavélar en „Nallann.“ Það gat einnig oft verið gaman að vera eini „ekki-framsóknarmaðurinn“ í stof- unni sem oft taldi nokkra tugi. Afi var yfirleitt fámáll og lét aðra háværari um að leiða umræðuna en læddi svo inn einni og einni athuga- semd þegar við átti, svo eftir var tek- ið. Afi var alinn upp í Skuggahlíð í byrjun síðustu aldar og í æðum hans rann bændablóð aftur í ættir. Það kom því ekki á óvart að hann skyldi gerast bóndi, fyrst að Sveins- stöðum í Hellisfirði og seinna að Skálateigi í Norðfirði sem er næsti bær við Skuggahlíð. Norðfjörður er falleg og þéttbýl sveit og fjöllin tignarleg og hrikaleg í senn og í þessum fjallasal ólu þau afi og amma upp 8 börn, óteljandi barna- börn og sumpart enn fleiri barna- barnabörn sem voru tímabundið í vist. Við nutum þeirra forréttinda að fá að vera í vist og þó sveitastörfin hafi legið misjafnlega fyrir okkur þá erum við þakklátir fyrir það og gerði vistin okkur örugglega að betri mönnum. Breytingar á búskaparháttum og lifnaðarháttum á síðustu öld eru miklu meiri en við nútímabörnin ger- um okkur grein fyrir og það hefur örugglega oft verið erfitt og jafnvel hart í búi. Því er afrek ömmu og afa mikið að koma öllum þessum krakka- skara til manns, það var og er þeirra ríkidæmi. Sá sem þessar línur ritar hefur ekkert vit á búskap, en er jafnviss á því að um Jón Davíðsson var hægt að segja „bóndi er bústólpi.“ Afi var myndarlegur maður og bar sig vel og í samræmi við það var hans sjúkra- húslega ekki löng. Missir ömmu er mikill og mestur en þeirra líf hefur verið samofið í tæp sjötíu ár. Það er komið að kveðjustund, í bili. Davíð Heiðar, Sigfús Már, Jón Finnur og Hjörleifur Helgi Hans og Erlusynir. Dagur líður, fagur, fríður, flýgur tíðin í alda skaut. Daggeislar hníga, stjörnurnar stíga stillt nú og milt upp á himinbraut. Streymir niður náð og friður, nú er búin öll dagsins þraut. Dagur fríður, fagur líður. Föður blíðum sé þakkar gjörð. Glatt lét hann skína geislana sína, gæskan hans dvín ei, þó sortni jörð: Góðar nætur, góðar nætur gefast lætur hann sinni hjörð. (Valdimar Briem.) „Afi í sveitinni er fallinn frá“ voru orð sem ég átti ekki von á að heyra al- veg strax þó að búast megi við öllu er menn eru komnir á tíræðisaldurinn. Minningarnar streyma fram um afa, ömmu og lífið í sveitinni og hugsanir um hvernig amma mun hafa það eftir að afi er fallinn frá, því samhentari hjónum hef ég ekki kynnst. Hann var henni stoð og stytta eftir að heilsu hennar fór að hraka en amma er ótrú- lega sterk eins og sannast hefur und- anfarin ár. Ein af fyrstu minningunum úr barnæskunni var tilhlökkunin um að komast inn í sveit til afa og ömmu og var oft tekið forskot á sæluna og smá aukafrí fengið úr skólanum til að geta komist sem fyrst í sauðburðinn og vorverkin í sveitinni. Þar var yndis- legt að vera, stússast með afa í verk- unum (þó að sennilega hafi verkin mín ekki alltaf verið stór) og koma inn í mat og kaffi til ömmu. Afi hafði lifað tímana tvenna í bók- staflegri merkingu, fæddur í byrjun síðustu aldar og því uppalinn í rótgró- inni bændamenningu og hefur það sennilega mótað hann mikið. Hann var þó fljótur að laga sig að breyttum tímum í búskaparháttum án þess að taka stór stökk enda vinnusamur, stöðuglyndur og ótrúlega nægjusam- ur. Það sem einkenndi afa þó umfram allt var hans mikla geðprýði og kannski hversu orðfár hann var að eðlisfari en það var líka tekið mark á því sem hann sagði. Hann hafði góða nærveru, stutt var í gleðina og kímdi hann stundum að mér þegar ég var að klaufast með eitthvað og lagaði það síðan orðalaust, enda þurfti yfirleitt ekki mörg orð í sveitinni þar sem lífið gekk sinn vanagang og veðurfar og skepnurnar stjórnuðu daglegum verkum. Búskapurinn, fjölskyldan og amma voru afa allt enda hefur það verið ærið verk hjá þeim að koma upp stórum barnahóp, en eflaust einnig skemmti- legt. Eftir að börnin höfðu stofnað sínar fjölskyldur komu flestir afkom- endurnir saman á sunnudögum og þáðu hlaðborð hjá afa og ömmu og þá var oft gaman. Skipst var á skoðunum og lá við að þakið lyftist af húsinu þeg- ar umræðurnar náðu hámarki, þó að afi hafi oftast hlustað meira en talað. Afi var sjálfum sér líkur er við heilsuðum upp á hann og ömmu fyrr í mánuðinum, eiginlega eins og hann hefði ekkert breyst í þessa tæpu hálfa öld sem leiðir okkar lágu saman þó að heyrn og sjón hafi eitthvað verið farin að daprast. Til marks um aðlögunar- hæfni hans var hann farinn að sjá um alla eldamennskuna og meira að segja baksturinn seinustu árin þó að það hafi ekki verið alið upp í karlmönnum hans kynslóðar. Börnin mín tala oft um afa-lummurnar enda hafði afi varla undan að baka þær ofan í þau á meðan við stoppuðum þar í okkar ár- legu heimsóknum. Eitt af því sem ég var alltaf spurður um var hversu mörg hross ég ætti enda glotti afi alltaf er ég sagðist eiga á þriðja tuginn og hefur honum ef- laust þótt það nokkuð mikið hjá land- lausum manninum en á hinn bóginn held ég að honum hafi þótt vænt um skepnuáhuga minn. Elsku afi, við kveðjum þig með söknuð í hjarta en minnumst góðra tíma með þér. Amma mín, Guð gefi þér styrk til að takast á við þinn mikla missi. Jón Finnur, Guðfinna, Fróði Guðmundur, Erla Mekkín og Bára Björt. Jón Davíðsson Elsku Alla, orð mega sín lítils um það mikla óréttlæti að þú skyldir tapa í baráttunni við krabba- meinið, þú hafðir svo margt að lifa fyrir. Þú varst búin að þola miklar raun- ir undanfarin ár, það er erfitt að standa hjá og geta ekkert gert. Þegar Friðrik hringdi og sagði Aðalheiður Hrefna Jakobsdóttir ✝ AðalheiðurHrefna Jak- obsdóttir fæddist á Búðum í Fáskrúðs- firði 7. október 1948. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað 24. júlí síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Fá- skrúðsfjarðarkirkju 2. ágúst. okkur að þú værir farin þá sátum við og horfðum á skýin eins og við byggjumst við að sjá þig þar. Elsku Alla, þegar við hittum ykkur Friðrik í Reykjavík í júní þá sáum við hvað sjúkdómurinn var búin að leika þig grátt, en þú heilsaðir okkur með sama létta hlátrinum, sem við munum alltaf minn- ast, þú ert hetja sem barðist til síðasta dags. Elsku Friðrik og fjölskylda, við vottum ykkur okkar innilegustu samúð, ykkar missir er mikill og sár, megi góður guð gefa ykkur styrk í sorginni. Minningin um góða konu lifir í huga okkar. Ása og Þórður. ✝ Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGOT GAMM, Borgum, Hornafirði, lést á Landspítalanum, þriðjudaginn 31. júlí. Útförin verður gerð frá Hafnarkirkju, fimmtudaginn 9. ágúst kl. 14:00. Jarðsett verður í heimagrafreit. Ingiríður Skírnisdóttir, Krister Gustavsson, Hákon Skírnisson, Karl Skírnisson, Ástrós Arnardóttir, Sigurgeir Skírnisson, Ingibjörg Björnsdóttir, Hjördís Skírnisdóttir, Sigurður Einar Sigurðsson og barnabörn. ✝ Elskuleg mamma okkar, tengdamamma og amma, RAGNHILDUR JÓNSDÓTTIR, Austurbrún 33, Reykjavík, er látin. Útförin auglýst síðar. Stefanía Vilborg Sigurjónsdóttir, Axel Eiríksson, Jón Sigurjónsson, Inga Sólnes, Sigrún Sigurjónsdóttir, Robert A. Spanó, Stefán Sigurjónsson, Guðrún Dröfn Marinósdóttir og barnabörn. Okkar ástkæri, STEFÁN JÓNSSON, lífefnafræðingur, lést sunnudaginn 29. júlí. Útförin verður gerð frá Langholtskirkju, fimmtu- daginn 9. ágúst kl. 13:00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð MS-félag Íslands, sími 568 8620. Týr Fáfnir Stefánsson, Marta Bjarnadóttir, Sigurbjörn Ingi Sigurðsson, Jón Stefánsson, Jóhanna Lind Ásgeirsdóttir, Áslaug Högnadóttir, Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, Júlíana Rut Jónsdóttir, Ásrún Jónsdóttir, Ólafur Daði Jónsson, Hallveig Sigurbjörnsdóttir, Linda Lovísa Sigurbjörnsdóttir, makar og börn þeirra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.