Morgunblaðið - 05.09.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 241. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
STRANDHÖGG
TEIKNIMYNDASÖGURNAR UM ÞÓRGNÝ
GEIMVÍKING LOKSINS Á ÍSLENSKU >> 36
VÍNVIÐUR VEX
Á SELTJARNARNESI
Í KÍLÓ́AVÍS
UPPSKERAN >> 20
NÝR VÖRULISTI
2007/08
KOMINN Í HÚS
Inn X Innréttingar • Dalvegi 10-14 • 200 Kóp.
Inn X Skrifstofuhúsgögn • Faxafen 8 • 108 Rvk
Sími 577 1170 • Fax 577 1172 • www.innx.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
FLUGFÉLAG Íslands hefur á síð-
ustu dögum hækkað verð á fjórum
hæstu fargjöldum sínum í innan-
landsflugi um sex prósent. Sem
dæmi má nefna að dýrustu far-
gjöldin fram og til baka milli Reykja-
víkur og Egilsstaða kosta 28.280 kr.,
35.560 kr. milli Reykjavíkur og
Vopnafjarðar og frá höfuðborginni
til Akureyrar kostar 23.900 kr. Eru
þetta yfirleitt sex síðustu lausu sæt-
in í hverri vél. Unnt er að finna far-
gjöld frá fjögur þúsund krónum sé
bókað með talsverðum fyrirvara,
auk ýmissa tilboða.
Í kjölfar nýjustu hækkunarinnar
segja menn á Egilsstöðum t.d. að
Flugfélagið hafi í mörg ár tapað á
ákveðnum leggjum og nú eigi að
nota tækifærið og græða meðan
stætt sé; kúfurinn sé enn á Austur-
landi og ekki samkeppni. „Þeir þurfa
að eiga fyrir vindi á næsta ári þegar
samkeppnin byrjar á fullu,“ sagði
einn viðmælenda Morgunblaðsins í
gær.
4-5% farþega í dýrustu sætin
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélagsins, segir dýrari
fargjöld koma til vegna hækkunar á
aðföngum til félagsins. „Við höfum
ekki hækkað verð síðan í fyrra.
Verðlagsþróun og launavísitala hafa
hækkað mikið og við fundið fyrir því
í okkar aðföngum. Birgjar eru að
hækka verð til okkar.“ Árni segir
jafnframt að til þess að geta áfram
haldið úti lægstu fargjöldunum hafi
verið afráðið að hækka fremur dýr-
ari fargjöldin. „Hæsta fargjaldið er
ekki mikið notað, aðeins af 4-5% far-
þega, þ.e. þeim sem bóka seinastir,
t.d. fólki í viðskiptaerindum sem
bókar sig ekki langt fram í tímann.
Að öðru leyti erum við með fargjöld
frá fjögur þúsund krónum og upp
úr.“ Árni á ekki von á frekari hækk-
unum á árinu og segir innanlands-
flugið í raun helmingi lægra en milli-
landaflug, séu fargjöld borin saman.
Milli 60 og 70% farþega bóka nú
gegnum Netið og brátt verður kaup-
endum flugmiða einnig unnt að
breyta bókunum sínum á Netinu.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Flug Fargjöld í innanlandsflugi
spanna nú frá 4.000 kr. til 36.000 kr.
Flugfar-
gjöld
hækka
Þeir sem bóka flug
síðast borga mest
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Arnarfell gerir göng, stíflur og skurði
Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar norðan og norðaustan Snæfells. Hér
sést starfsmaður Arnarfells við gangafóðringar 3 km inni í Jökulsár-
veitugöngum, sem tengja Hraunaveitu aðrennslisgöngum virkjunarinnar.
Mikill gangur er í verkinu enda þarf að ljúka mörgu áður en vetrar.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Göngin steypufóðruð
KOSTNAÐUR vegna framboðs Ís-
lands til öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna nemur nú um 250 milljónum ís-
lenskra króna og fer líklega í um 320
milljónir áður en yfir lýkur. Þetta seg-
ir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra, en stærstum hluta fjár-
munanna hefur verið varið til þess að
styrkja fastanefnd Íslands hjá SÞ í
New York, þ.e. fjölga þar starfsfólki.
Um er að ræða kostnað allt frá
árinu 2001, en 66 milljónir króna eru
eyrnamerktar framboðinu í fjárlög-
um næsta árs. Af því fé eru aðeins níu
milljónir ætlaðar í annað en styrkingu
fastanefndarinnar sem Ingibjörg seg-
ir að kunni að verða heldur lítið. „En í
öllu falli er heildarkostnaður af þessu
miklu minni en menn höfðu kannski
spáð,“ segir hún. Aðspurð segir ráð-
herrann að það kunni vel að vera að
kostnaður vegna framboðsins hafi
verið skorinn helst til mikið niður – í
kjölfar umræðu
2004 og 2005 – og
að það kunni að
þýða að hætta sé á
að menn nái ekki
settu marki. „Það
er alltaf vont að
fara út í hlutina af
hálfum hug. Þeg-
ar Ísland ákveður
að bjóða sig fram
til öryggisráðsins þá hefðu menn auð-
vitað þurft að fara í það af heilum hug
og standa bæði fyrir umræðu innan-
lands og reka þetta erindi erlendis.
Það er margt sem bendir til að það
hafi kannski ekki verið staðið nógu vel
að því. En það vinnst aldrei allt með
peningum. Við munum aldrei sem
smáþjóð reka kosningabaráttu sem
er eitthvað í líkingu við þá sem keppi-
nautar okkar, reka, Austurríkismenn
og Tyrkir.“ | Miðopna
250 milljónir í
framboð hjá SÞ
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
KORNAX hækkaði verð á hveiti um allt að 17% um
sl. mánaðamót. Kjartan Már Másson, sölustjóri
Kornax, segir að ástæðan sé helst sú að heimsmark-
aðsverð hveitis hafi hækkað um 30% í ágúst og um
60% frá því í maí. „Þetta er mesta hækkun á heims-
markaðsverði í 30 ár,“ segir Kjartan.
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra stórkaupmanna, FÍS, tekur undir þetta
og segir að „gífurlegar“ hækkanir séu í pípunum.
„Þetta er einfaldlega endurspeglun á heimsmark-
aðsverði og mun hafa áhrif á allt sem framleitt er úr
þessum afurðum,“ segir Andrés. Vöruflokkurinn er
stór; allt brauðmeti, kökur, kex o.s.frv.
„Þetta á sér margar orsakir en sú stærsta er upp-
skerubrestur sem kemur til af miklum þurrkum og
hinu gagnstæða, þ.e. flóðum. Það hefur sem sé verið
mikil ótíð,“ segir Kjartan. Þetta hafi skilað sér í
hækkun í Evrópu og íslenski markaðurinn sé mjög
tengdur heimsmarkaðsverði. Ekkert útlit sé fyrir
lækkanir heldur þvert á móti frekari hækkanir og
að síðustu tvær vikur hafi verið sérlega slæmar.
„Við hækkuðum núna um mánaðamótin um allt að
17% og það er ekki útilokað að hveiti hækki meira í
vetur ef svo fer fram sem horfir.“
Meiri áhrif á næstu mánuðum
Andrés staðfestir að áhrif hækkana erlendis á
ýmsum vöruflokkum, m.a. hveiti, kakói og smjöri,
séu farin að sjást hérlendis. „Áhrifin munu birtast
með auknum þunga á næstu mánuðum, það liggur
fyrir,“ segir hann. „Í pípunum eru gífurlegar hækk-
anir á hveiti og smjöri. Svipuð hækkun er vænt-
anleg á kakói.“ Stórir hráefnisliðir hafa hækkað um
15–20% prósent. „Það mun óhjákvæmilega hafa
áhrif á innlent vöruverð á næstu mánuðum,“ segir
Andrés.
Margir samningar birgja eru lausir um áramót
og verða þá endurnýjaðir. „Þó að þörf sé fyrir það
að setja allar hækkanir strax út í verðlagið treysta
sér ekki allir til þess strax, hvorki hér né annars
staðar. Þegar samningar eru teknir upp reglubund-
ið getur ýmislegt skeð,“ segir Andrés. Hann býst þó
frekar við að hækkanir verði komnar fram vel fyrir
þann tíma.
Hann segir miklu meiri samkeppni vera um þess-
ar vörur nú en áður. „Það mun líka hafa áhrif til
hækkunar að stjórnvöld víða um heim, ekki síst í
Bandaríkjunum, eru í síauknum mæli farin að nota
t.d. maís til að framleiða eldsneyti á bíla,“ segir
Andrés. „Það mun óhjákvæmilega leiða til þess að
eftirspurnin eftir þeim afurðum mun aukast og
verðið mun þá að sjálfsögðu hækka.“
17% verðhækkun á hveiti
Gífurlegar hækkanir í pípunum, segir framkvæmdastjóri FÍS Mesta hækk-
un heimsmarkaðsverðs á hveiti í 30 ár Helsta orsökin er ótíð að undanförnu
Í HNOTSKURN
»Kornax rekur hveitimyllu og selurhveiti á neytendamarkað og beint til
bakaría.
»Verðhækkanir á hveiti munu hafa áhrifá allt brauðmeti, kex, kökur o.s.frv.