Morgunblaðið - 05.09.2007, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
FJÖRLEGAR umræður sköpuðust í
netheimum í gær vegna auglýsinga-
herferðar Símans um þriðju kynslóð-
ar farsíma. Auglýsingarnar, sem Jón
Gnarr er hugmyndasmiður að og
leikur í, sýna Jesú Krist og læri-
sveina hans búa sig undir að snæða
síðustu kvöldmáltíðina. Júdas, læri-
sveinninn sem sveik Jesú, mætir of
seint til samkomunnar en Jesús hef-
ur samband með myndsíma og Júdas
spyr: „Er búið að segja gjörið þið svo
vel?“ Upp kemst um sviksemi Júd-
asar fyrir tilstilli myndsímans í aug-
lýsingunni.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, sagði auglýsinguna smekk-
lausa í fjölmiðlum í gær. Fram kom í
sjónvarpsfréttum gærkvöldsins að
það væri þó ekki ætlun Biskupsstofu
að leggja fram formlega kvörtun
vegna málsins, en þar spyrðu menn
sig hvort ekkert væri heilagt lengur.
Skiptar skoðanir á
auglýsingu Símans
Miklar umræður urðu í bloggheimum í gær um auglýsinga-
herferð Símans sem sýnir Jesú Krist í nýstárlegu samhengi
SEX réttindalausir ökumenn voru
stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um
helgina. Í Hafnarfirði tók lögreglan
karl á sextugsaldri fyrir þessar sakir
en sá sagðist hafa gleymt ökuskírtein-
inu heima. Við athugun lögreglu
reyndist maðurinn vera sviptur öku-
leyfi ævilangt. Í sama bæjarfélagi var
stöðvuð för ökumanns sem laug til
nafns og reyndi að framvísa skilríkj-
um manns sem er meira en tíu árum
yngri. Þegar sannleikurinn kom fram
varð einnig ljóst að lygamörðurinn
hefur aldrei öðlast ökuréttindi, segir í
frétt lögreglu.
Í Breiðholti hafði 16 ára stúlka
komist yfir bíl og var á rúntinum. Í
Árbæ hafði lögreglan hendur í hári 19
ára pilts sem gat ekki framvísað öku-
skírteini enda aldrei öðlast slík rétt-
indi. Pilturinn var ekki með bílbelti og
þá var eitt nagladekk undir bílnum
sem hann sagðist hafa fengið lánaðan.
Það kannaðist eigandi bílsins hins
vegar ekki við. Til viðbótar fannst
reiðhjól í bílnum. Í ofanálag reyndist
pilturinn vera ölvaður en ekki gekk
þrautalaust að fá hjá honum sýni, seg-
ir í frétt lögreglunni. Þegar átti að
láta hann undirgangast öndunarpróf
bar kauði því við að hann kynni ekki
að blása. Pilturinn fékkst þó með
semingi til að blása í mæli lögregl-
unnar og var handtekinn í kjölfarið.
Sex án
ökurétt-
inda teknir
Ljúga til nafns og bera
fyrir sig gleymsku
DRENGIRNIR tveir sem struku frá
meðferðarheimilinu Bergi í Aðaldal
síðastliðinn sunnudag hafa komið í
leitirnar. Það sást til þeirra á ver-
gangi í efra Breiðholtinu í Reykjavík
og íbúi í Möðrufelli sem kannaðist
við þá gerði lögreglu viðvart. Dreng-
irnir voru í gærkvöldi í vörslu lög-
reglunnar í Reykjavík og til stóð að
þeir myndu gista á meðferðarheim-
ilinu Stuðlum meðferðarheimili sl.
nótt. Drengirnir stálu bifreið sem
talið var að þeir myndu aka til
Reykjavíkur.
Strokupiltar
fundnir
MEÐALHITI í nýliðnum ágúst-
mánuði var um 11 stig í Reykjavík,
en það er 0,7 stigum yfir meðalllagi,
að sögn Trausta
Jónssonar, veður-
fræðings á Veð-
urstofu Íslands.
„Það telst nokkuð
gott en frá alda-
mótum hafa
ágústmánuðir
flestir verið hlý-
ir,“ segir Trausti.
Ágústmánuður í
ár hafi reynst
hlýrri en fyrir tveimur árum en
kaldari heldur en sami mánuður í
fyrra. Ágúst árin 2003 og 2004 voru
hins vegar báðir hlýrri en ágúst í ár.
Ágúst í ár er því „ekkert óskaplega
ofarlega á hitalista, heldur fremur í
meðallagi,“ segir Trausti, en miðað
er við þrjátíu ára tímabil frá 1961-
1990.
Rigning yfir meðallagi í ágúst
Ýmsum finnst sem mikið hafi
rignt í ágústmánuði, en þá féllu loks
dropar úr lofti eftir langa þurrkatíð.
Trausti segir að þó hafi ekki mikið
rignt í mánuðinum fyrr en eftir 20.
ágúst.
„Frá og með 21. ágúst rigndi mjög
mikið en fram að þeim tíma var úr-
koma undir meðallagi,“ segir hann.
Svo mikið hafi rignt síðustu dagana í
ágúst að heildarúrkoma í mánuðin-
um hafi reynst 50% yfir meðallagi.
„Það rigndi mjög hressilega seinni-
part mánaðarins,“ segir Trausti.
Fyrrihluta ágúst hafi verið fremur
þurrt og til að mynda hafi ekkert
rignt á höfuðborgarsvæðinu vikuna
12.-18. ágúst.
Mjög sólríkur mánuður
Ágúst reyndist sólríkur í höfuð-
borginni og voru sólskinsstundir
206, sem er 51 stund yfir meðallagi.
„Það er ekki oft sem er mikið meiri
sól í ágúst, en þó voru stundirnar
fleiri [í mánuðinum] árið 2004.“ Svo
þurfi hins vegar að fara aftur til
sumarsins 1971 til að finna sólríkari
ágústmánuð.
Trausti segir að á landsbyggðinni
hafi almennt verið gott veður í
ágúst. „Í Stykkishólmi, þar sem
mælingar ná aftur til ársins 1845, er
sumarið í ár í fimmta sæti,“ segir
Trausti. Í Bolungarvík sé árið í ár
einnig í fimmta sæti yfir hlýindi, en
mælingar þar hafa staðið í um 100
ár.
Á báðum stöðum hafi nokkur hlýj-
ustu sumranna verið á síðustu sjö
árum. „Í Vestmannaeyjum er sum-
arið í 4-6 sæti frá upphafi mælinga
þar,“ bætir Trausti við. Ágúst hafi
þó verið daufastur sumarmánuð-
anna þriggja. Til að mynda hafi næt-
urfrost á Suðurlandi verið með
meira móti, þótt lágmarkshiti í
Reykjavík hafi ekki farið lægra en í
4,9 stig, að sögn Trausta.
Hann segir að á Norðurlandi hafi
hitafar í ágúst aðeilis verið í með-
allagi, eða 10 stig. Hið sama gildi um
sólskinsstundir, sem hafi verið í
meðallagi í mánuðinum. Sumarið í
heild var hlýtt í Reykjavík, sé hitinn
borinn saman við fyrri ár. „Ef við
teljum júní, júlí og ágúst, er sumarið
í fjórða til fimmta sæti frá upphafi
mælinga,“ segir Trausti, en farið var
að mæla hitastig árið 1871. Trausti
segir að árið 2004 hafi sumarhitinn í
heild verið svipaður og í ár, en þá
hafi hins vegar verið hlýjast í ágúst
og kaldast í júlí. Aðeins sumrin 1991,
1939 og 2003 hafi mælst hlýrri.
Trausti segir það þó hafa ein-
kennt sumarið að þótt tíðini hafi ver-
ið góð hafi engar hitabylgjur komið.
Margir dagar hafi verið hlýir, ekki
síst í júlí, en engin met hafi fallið.
„Það var óvenjulega hægur kafli frá
10. júní og fram yfir verslunar-
mannahelgi,“ segir Trausti. Þótt
héldist að mestu þurrt sunnanlands
eftir verslunarmannahelgi „var
vindasamara og ekki alveg jafn blítt
veður“, segir Trausti.
Um 11 stiga meðalhiti í
borginni í ágústmánuði
Ágúst víðast góður en hiti í meðallagi fyrir norðan Sumarmánuðirnir
þrír í hópi þeirra fimm hlýjustu í Reykjavík frá upphafi mælinga árið 1871
Morgunblaðið/Ómar
Í HNOTSKURN
»Trausti segir að á Veður-stofunni ljúki sumrinu ekki
opinberlega fyrr en í lok sept-
ember.
»Þetta sé vegna þess að þeg-ar Veðurstofan var stofnuð
árið 1920 og fyrstu 30 starfsár
hennar hafi oftast verið mjög
hlýtt í september.
»Þá hafi tekið við skeið kald-ari septembermánaða.
»Á síðari árum hafi septem-ber oft verið ágætur og í
fyrra hafi meðalhiti verið ná-
lægt meðalhitanum í ágúst í ár.
Trausti Jónsson
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
♦♦♦
FASTEIGNIR – FLÓRÍDA
Pétur Sigurðsson fasteignasali frá
The Viking Team of Lighthouse
Properties of America
er með kynningarfund í kvöld kl. 20
í Sal frímerkjasafnara Síðumúla 17.
Haldinn verður fyrirlestur um hvernig
fasteignakaup í Flórída ganga fyrir sig.
Að loknum fyrirlestri mun Pétur
svara spurningum frá áhugasömum.
Í boði er gríðarlegt magn fasteigna.
„VIÐ höfum þá skýru stefnu að við
ætlum ekki að einkavæða OR, það
er alveg ljóst. Hún er í eigu borg-
arinnar að tæpum 95%, og það eru
engin áform uppi um að breyta
því,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri. Heitar umræður
voru á borgarstjórnarfundi í gær
um hlutafélagavæðingu Orkuveitu
Reykjavíkur, en Vilhjálmur sagði
þar að tryggja ætti opinbert eign-
arhald á henni í lögum. Samfylk-
ingin lagði á fundinum til að aukinn
meirihluta þyrfti til að samþykkja
sölu Orkuveitunnar. „Ég tek enga
afstöðu til þess,“ segir Vilhjálmur.
Opinbert eignarhald í lögum
Axel Jón Birgisson | 4. september
Ekki með trúarpúlsinn
„Ég er sammála Jesú í símaauglýs-
ingunni að Júdas er doldill vitleys-
ingur. Það er gaman. Í aðra röndina
finnst mér eins og þjóðkirkjan sé ekki
með trúarpúls þjóðarinnar á hreinu.
Hvaða venjulega manni finnst þetta
ekki skemmtilegt...og flott?“
Meira: axel.blog.is
Eiríkur I. Ingvarsson | 4. september
Smekklaus
„Hefði veraldarsagan verið önnur
ef 3G-símarnir hefðu komið fyrr?
Nei. Frelsunaráformið var til frá
upphafi og fóru leikar eins og við
var að búast. Ég held að þessi aug-
lýsing verði tekin út. Hún er Sím-
anum ekki til framdráttar. Ég er
mest hissa á þeim mæta manni Jóni
Gnarr.“
Meira: velur.blog.is
Gunnar K. Björgvinsson | 4. september
Jólaræða biskups
„Ég man nú ekki sjónvarpspredikun
blessaðs biskupsins á jólunum orð
fyrir orð, enda komnir nokkrir mán-
uðir síðan...En ég man ekki betur en
að einn af meginboðskapnum hafi
verið þessi: GUÐ ER ALVEG
GRÍÐARLEGUR HÚMORISTI.
EINN SÁ MESTI Í HEIMINUM!“
Meira: jarm.blog.is
Sigurpáll Ingibergsson | 4. september
Frjáls samkeppni
„Nú getur fólk tjáð skoðun sína, flutt
viðskiptin frá Símanum til Vodafone.
Það er frjáls samkeppni. Það er það
eina sem eigendur Símans skilja. Þá
hugsa þeir sig tvisvar um næst þeg-
ar tvíræðir brandarar verða notaðir.
Annars er auglýsingin vel unnin og
mikið í lagt.“
Meira: fiskholl.blog.is