Morgunblaðið - 05.09.2007, Page 6
EF fram fer sem horfir mun brot-
um gegn valdstjórninni fjölga tölu-
vert í ár frá fyrri árum. Eftir
fyrstu átta mánuði ársins hefur
verið tilkynnt um 73 tilvik þar
sem lögreglumenn eru beittir of-
beldi, en á öllu árinu í fyrra var
um að ræða 96 tilvik. Ef litið er til
meðaltals áranna 2000-2005 var
um 19% fjölgun á þessum brotum
á síðasta ári.
Mikið hefur verið rætt um minni
virðingu fyrir lögreglumönnum
þjóðarinnar að undanförnu, ekki
síst í tengslum við tíðar uppsagnir
lögreglumanna á árinu. Bent hef-
ur verið á lág laun lögreglumanna
sem ástæðu, í samhengi við aukna
áhættu í starfi, t.d. vegna ofbeld-
isverka.
Fleiri brot
gegn valdstjórn
6 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„VIÐ ERUM að skríða í 1.100 laxa,
það hefur hreinlega verið mok síð-
an byrjaði að rigna,“ sagði Ingvi
Hrafn Jónsson við Langá á Mýrum.
Síðustu tvær vikur má segja að hafi
verið fantagóð veiði á Vesturlandi,
loksins þegar fór að rigna. „Eins og
ég var búinn að að segja þá var lax-
inn mættur, hann hefur bara legið
bak við steina og í holum og beðið
eftir betri aðstæðum til að hreyfa
sig. Það eru yfir 900 gengnir fram
á fjall hjá okkur,“ sagði Ingvi
Hrafn. Veitt er til 20. september í
Langá. „Þetta er svo rífandi gang-
ur að ef það heldur svona áfram
getum við alveg náð 1.500 löxum.“
Flóð í Grímsá
„Það er búið að vera gott hér síð-
ustu daga, frábært vatn, en þetta er
aðeins of mikið af því góða,“ sagði
Jón Þór Júlíusson leigutaki Gríms-
ár, en þá var áin búin að vera í flóði
í tvo daga og óveiðandi. Síðustu
holl í Grímsá hafa verið að veiða 30
til 50 laxa á átta stangir.
„Annars hefur veiðin verið jöfn
og þétt í allt sumar, Grímsá hefir
ekki farið niður í grjót eins og til að
mynda Laxá í Kjós. Laxinn hefur
verið dreifður í allt sumar og ágæt
veiði, þótt júlí hafi ekki verið til að
hrópa húrra fyrir.“
Veiðin í Grímsá og Tunguá nálg-
ast 800 laxa og sagðist Jón Þór
gæla við að ná 1.000 fiskum fyrir
lokin, 22. september.
936 úr Elliðaánum
Rífandi gangur er í Dalaánum
þessa dagana. Blaðamaður kom við
í Flekkudalsá fyrir helgi og þar
voru hollin að fá 10 til 17 fiska á
stangirnar þrjár og var áin þá kom-
in í um 180 laxa og nálgaðist veiði-
tölurnar frá í fyrra er veiddust 200
laxar. Starfsmaður á dekkjaverk-
stæðinu í Búðardal sagði gríðar-
góða veiði í öðrum ám á svæðinu,
eins og Laxá í Dölum og Fáskrúð.
„Er haustið bara ekki orðið besti
laxveiðitíminn?“ spurði hann.
Veiðinni er lokið í Elliðaánum og
eru lokatölurn 936 laxar. Er það
betri veiði en 2006 þegar veiddust
900. Mikið er af laxi enn í ánum til
hrygningar og veiddust 20 laxar
síðasta daginn, sem þykir afar gott.
Dýrðaróður um laxveiðiár
Glæsileg ný bók um bestu lax-
veiðiár heimsins, A Celebration of
Salmon Rivers, kemur út 13. sept-
ember næstkomandi. Bókin er gef-
in út í samvinnu við Verndarsjóð
viltra laxastofna (NASF) og Orra
„Hefur hreinlega verið
mok síðan byrjaði að rigna“
Morgunblaðið/Einar Falur
Átök Örn Helgason glímir við lax í veiðistaðnum Tungufljóti, í Tunguá sem er þverá Flekkudalsár á Fellsströnd.
Mjög góð laxveiði
á Vesturlandi
Í HNOTSKURN
» Langá er að skriða í 1.100laxa en Ingi Hrafn Jóns-
son segir rífandi gang í veið-
inni.
» 40 löxum betri veiði íElliðaánum í ár en í fyrra.
» Leigutaki Grímsár vonasttil að veiðin nái 1.000 löx-
um en hún nálgast nú 800.
» Glæsileg bók sem hyllirbestu laxveiðiárnar við
Atlantshaf kemur í verslanir
13. september. Fjallað er um
tólf íslenskar ár í bókinni. efi@mbl.is
Vigfússon, og er Mál og menning
útgefandi hér á landi. Bókina prýða
ljósmyndir eftir R. Randolph Aston
en Karl Bretaprins ritar formál-
ann.
Fjallað er um á sjötta tug veiði-
svæða í bókinni, þar á meðal um
tólf íslenskar ár. Ýmsir höfundar
rita um árnar, t.d. Jóhannes Nordal
um Vatnsdalsá, Uffe Elleman-
Jensen um Laxá í Leirársveit, Orri
Vigfússon um Selá, Þórarinn Sig-
þórsson um Laxá í Kjós, Bjarni Júl-
íusson um Norðurá, Steinar Lúð-
víksson um Langá og Tom
McGuane um Haffjarðará.
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
EKKERT varð úr því að Vinnumála-
stofnun stöðvaði starfsemi tveggja
undirverktaka Arnarfells, fyrirtækj-
anna Hunnebek Polska og GT verk-
taka, í gær. Stofnunin yfirfer nú
gögn frá Hunnebek um 30 starfs-
menn þeirra við Hraunaveitu Kára-
hnjúkavirkjunar, m.t.t. þess hvort
þeim hafi verið greidd laun skv. ís-
lenskum launatöxtum. Voru menn-
irnir óskráðir en hafa nú fengið
bráðabirgðaskráningu og segir Giss-
ur Pétursson, forstjóri Vinnumála-
stofnunar, málin muni skýrast frek-
ar í dag. Skráningarmál GT
verktaka, sem unnið hafa fyrir Arn-
arfell, munu einnig hafa verið í ólagi
og því þótti ástæða til að kanna
þeirra mál einnig hjá stofnuninni.
Á launaskrá hjá Arnarfelli
Gísli R. Rafnsson, staðarstjóri
Arnarfells við Kárahnjúkavirkjun,
sagði í gær að fyrirtækið legði höf-
uðáherslu á að framkvæmdir gengju
vel og örugglega og sjálfsagt hefði
eitthvað mátt betur fara í skráning-
armálum hjá Hunnebek og GT verk-
tökum. Hann fullyrðir að umrædd-
um starfsmönnum hafi verið greitt
yfir taxta. Þessi mál verði hins vegar
leyst svo allir megi vel við una. Þann-
ig hefðu GT verktakar skilað inn
gögnum til Vinnumálastofnunar um
helgina varðandi þá þrjátíu og fimm
starfsmenn sem vinna við Hrauna-
veitu og mennirnir þrjátíu frá
Hunnebek færu væntanlega inn á
launaskrá hjá Arnarfelli sem laun-
þegar. Skil á launagögnum til yfir-
trúnaðarmanns starfsmanna virkj-
unarinnar yrðu á fimmtudag, svo
sem beðið hefði verið um. Um 330
manns vinna nú við Hraunaveitu og
mun fjölga í 380 í næsta mánuði.
Starfsmennirnir á
launaskrá hjá Arnarfelli
Málin sögð verða leyst farsællega svo allir megi vel við una
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fóðring Starfsmenn Arnarfells vinna hörðum höndum að borun og fóðr-
ingum í Jökulsárveitugöngum og vinna þar á mörgum stöðum samtímis.
ELDSUPPTÖK í sumarbústað í
Norðurkotslandi í Grímsnesi á
föstudag eru rakin til rafmagns.
Tæknideild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu hefur enn ekki
skilað endanlegri niðurstöðu en
hallast að rafmagni frekar en öðru.
Samkvæmt upplýsingum frá Sel-
fosslögreglu er ekkert sem bendir
til þess að brotist hafi verið inn í bú-
staðinn. Jafnframt voru engin
merki um íkveikju.
Sumarbústaðurinn gjöreyðilagð-
ist í brunanum en hann var orðinn
alelda áður en slökkviliðsmenn frá
Selfossi komu á vettvang.
Engin merki
um íkveikju
FJÓRAR umsóknir bárust um starf
borgarritara, en frestur til að sækja
um það rann út 28. ágúst.
Umsækjendurnir eru Birgir
Björn Sigurjónsson, mannauðsstjóri
Reykjavíkurborgar, Garðar Lárus-
son rafmagnstæknifræðingur,
Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar,
og Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
doktorsnemi. Magnús Þór Gylfason
hefur gegnt starfinu tímabundið.
Fjórar umsóknir bárust
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Sýnum í dag glæsilega 116,9 fm 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í
góði fjölbýli, ásamt stóru tvöföldu stæði í bílageymslu á þessum
vinsæla & barnvæna stað í Kópavogi. Íbúðin er: Forstofa/hol,
þvottahús, 2 barnaherbergi, hjónaherbergi, stofa/borðstofa, eld-
hús og gott hol sem nýtt er sem sjónvarpskrókur. Eigninni fylgja 2
geymslur ásamt stóru stæði í bílageymslu. V. 30,2 millj.
Jóhann s: 8-600-399 sölumaður frá Fasteign.is
verður á staðnum.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 17.30–18.30
LÆKJARSMÁRI 7 2.h.h