Morgunblaðið - 05.09.2007, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GUÐFRÍÐUR
Lilja Grétars-
dóttir tekur til
starfa sem
framkvæmda-
stýra þingflokks
Vinstrihreyfing-
arinnar – græns
framboðs í sept-
ember. Guð-
fríður Lilja er
með BA-próf í
sagnfræði og stjórnmálafræði frá
Harvard-háskóla í Bandaríkjunum
og mastersgráðu í hugmyndasögu
og heimspeki frá Cambridge-
háskóla í Bretlandi.
Hún hefur starfað sem al-
þjóðaritari á alþjóðasviði Alþingis
frá árinu 2001. Hún starfaði m.a.
sem framkvæmdastjóri þingmanna-
nefndar um norðurskautsmál þar
sem hún vann að ýmsum verkefnum
er lúta að náttúruvernd á norð-
urslóðum.
Í síðustu kosningum skipaði Guð-
fríður Lilja annað sætið í Suðvest-
urkjördæmi og er varaþingkona
Vinstri grænna.
Hún er fyrsta konan sem gegnt
hefur embætti forseta Skák-
sambands Íslands og Skák-
sambands Norðurlanda.
Guðfríður Lilja býr með Stein-
unni H. Blöndal, hjúkrunarfræðingi
og ljósmóður.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
tekur við starfinu af Drífu Snædal
sem áfram mun gegna starfi fram-
kvæmdastýru Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs.
Framkvæmda-
stýra þing-
flokks Vinstri
grænna
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
HARALDUR Jo-
hannessen hefur
verið ráðinn rit-
stjóri Við-
skiptablaðsins við
hlið Jónasar Har-
aldssonar rit-
stjóra. Haraldur
er hagfræðingur
frá Háskóla Ís-
lands og hefur
starfað sem sér-
fræðingur í Greiningardeild Lands-
banka Íslands frá árinu 2006.
Haraldur var aðstoðarmaður um-
hverfisráðherra á árunum 2004 til
2006. Haraldur var blaðamaður á
viðskiptablaði Morgunblaðsins á ár-
unum 2000 til 2004.
Nýr ritstjóri
Viðskiptablaðs
Haraldur
Johannessen
Doktorsvörn við
raunvísindadeild
Háskóla Íslands
fer fram föstu-
daginn 7. sept-
ember. Þá ver
Ingibjörg G.
Jónsdóttir, líf-
fræðingur, dokt-
orsritgerð sína:
Stock structure,
spawning stock
origin and the contribution of the
different spawning groups to the
mixed stock fishery of cod (Gadus
morhua L.) in Icelandic waters.
Andmælendur verða dr. Cynthia M.
Jones, prófessor við Old Dominion
University í Bandaríkjunum og dr.
Anthony J. Fowler, sérfræðingur
við South Australian Research and
Development Institute í Ástralíu.
Dr. Lárus Thorlacius, forseti
raunvísindadeildar, stjórnar at-
höfninni sem fer fram í hátíðarsal
Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla
Íslands, Aðalbyggingu og hefst
klukkan 13.
Doktorsvörn
í líffræði
Ingibjörg G.
Jónsdóttir
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
MIKILL áhugi er háskólanámi í
rússnesku sem farið er að kenna að
nýju í Háskóla Íslands eftir nokkurra
ára hlé. 21 nemandi skráði sig í námið
í haust og segir Guðrún J. Bachmann,
kynningarstjóri Háskóla Íslands, að
skólinn sé mjög ánægður með að-
sóknina.
Fleiri nemendur en reiknað
hafði verið með
„Þetta er meira en við reiknuðum
með á fyrsta árinu eftir að kennslan
hefst aftur,“ segir Guðrún. Áhuginn
sé áreiðanlega m.a. sprottinn af því að
rússneska sé stórt málsamfélag og þá
nýtist rússneska ýmsum sem stundi
viðskipti.
Rússneska var síðast kennd við HÍ
árið 2002, en þá var hún kennd sem
aukagrein til 30 eininga. Nú er farið
að kenna rússneskuna til BA-prófs
sem aðalgrein og aukagrein auk þess
sem unnt verður að stunda MA-nám í
þýðingarfræðum.
Samningar liggja fyrir milli Há-
skóla Íslands og Moskvuháskóla um
samstarf um kennslu, rannsóknir og
stúdentaskipti í tengslum við
rússneskunámið. Guðrún segir að
Viktor I. Tatarintsev, sendiherra
Rússlands á Íslandi, eigi heiðurinn af
því að hafa komið samstarfinu á.
Fjárfestingarfélagið Samson, í eigu
feðganna Björgólfs Guðmundssonar
og Björgólfs Thors Björgólfssonar,
styrkir rússneskunámið næstu þrjú
árin, um 8 milljónir króna á ári.
Að sögn Guðrúnar gerði styrkur-
inn útslagið í því að hægt væri að
byggja námið upp.
Þrír kennarar munu sjá um
kennslu í rússneskunni. Í hópi þeirra
er sendikennarinn Olga Korotkova en
hún er doktor í málvísindum frá
Mosvkuháskóla.
Rússneskukennslan hófst síðastlið-
inn mánudag. Við það tækifæri komu
nemendur, velunnarar námsins, þeir
Viktor I . Tatarintsev, Björgólfur
Guðmundsson og rektor saman. Bauð
rektor hinn nýja sendikennara vel-
kominn til starfa við skólann.
21 nemi í rússnesku sem
nú er kennd að nýju við HÍ
Morgunblaðið/G. Rúnar
Velunnarar Rektor HÍ, Kristín Ingólfsdóttir, nemendur í rússnesku og velunnarar námsins, Viktor I . Tatarintsev
og Björgólfur Guðmundsson, komu saman í vikunni og buðu nýja sendikennarann velkominn.
„TÓBAKSFORVARNIR á Íslandi
standa mjög vel og við sjáum góðan
árangur á því sviði,“ segir Bára Sig-
urjónsdóttir, verkefnisstjóri tóbaks-
varna hjá Lýðheilsustöð. Í gær opn-
aði Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra vefinn reyklaus.is, en í fram-
haldinu tekur Reyksíminn við
rekstri vefjarins. Guðrún Árný Guð-
mundsdóttir er verkefnisstjóri
Reyksímans.
Fjölga þarf úrræðum
„Í evrópskum samanburði má þó
segja að við þurfum að fjölga úr-
ræðum sem við höfum til að hjálpa
fólki að hætta tóbaksnotkun,“ segir
Bára. „Við fórum þess vegna af stað
og fengum leyfi til að þýða og stað-
færa norska síðu.“ Hún segir að
með tilkomu síðunnar megi orða
það sem svo að í netheimum sé hægt
að fá bæði stuðning og ráðgjöf. Síð-
an var tilbúin fyrir nokkru og ein-
ungis var eftir að opna hana form-
lega.
Bára upplýsir að kannanir sýni að
70-80% þeirra sem reykja langi til
að hætta. Reyksíminn tekur nú yfir
rekstur vefjarins, en Reyklaus.is er
gagnvirkur vefur þannig að þeim
sem hafa samband í gegnum síðuna
er svarað. Einnig er spjallsvæði þar
sem hægt er að spjalla við aðra í
sömu stöðu, þ.e. vilja hætta að
reykja.
„Auk þess er hægt að halda dag-
bók og aðrir geta skrifað inn á hana,
ef þess er óskað. Í raun má segja að
þarna sé um að ræða stuðning og
ráðgjöf í netheimum,“ segir Bára.
„Auðvitað er þetta hugsað fyrir
alla en við vonum að við náum líka
til unga fólksins, því vitað er að
margir krakkar sem komnir eru í
framhaldsskóla vilja gjarnan hætta
að reykja.“
Kostnaður 26-27 milljarðar
Á síðunni eru margs konar upp-
lýsingar; m.a. bestu ráðin til að
hætta, um reykleysislyf, jafnframt
því sem þar er að finna kynning-
armyndband um síðuna.
Þar sem síðan hefur verið notuð, í
Noregi og Svíþjóð, hefur hún gefið
mjög góða raun.
Bára hnykkir á því í lokin að
reykingar landsmanna, á verðlagi
2005, kosti samfélagið 26-27 millj-
arða á ári og þess vegna sé það mjög
þjóðhagslega hagkvæmt að sem
flestir hætti að reykja.
Heilbrigðisráðherra opnaði vefinn reyklaus.is formlega
Stuðningur og ráð-
gjöf í netheimum
Morgunblaðið/Golli
Opnun vefjarins Guðlaugur Þór Þórðarson skoðar vefinn reyklaus.is.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær karlmann á fertugs-
aldri af ásökunum um kynferðisbrot
gegn konu á svipuðum aldri. Ekki
þótti sannað að konunni hefði verið
þröngvað til samræðis, en bæði hún
og ákærði eru greindarskert.
Fjölskipaður héraðsdómur, skip-
aður héraðsdómurunum Jónasi Jó-
hannssyni og Páli Þorsteinssyni
ásamt Gunnari H. Birgissyni sál-
fræðingi, komst að þeirri niðurstöðu,
meðal annars með vísun í vitnisburð
sérfræðivitna, að óvarlegt væri að
slá því föstu að ákærði hefði notfært
sér andlega fötlun konunnar.
Í vitnisburði sálfræðings og geð-
læknis kom fram að ekki væri hægt
að fullyrða um hæfni ákærða til að
skynja og meta mörkin milli sam-
þykktra kynlífsathafna og kynferð-
islegrar misnotkunar, sér í lagi ef
skilaboð til hans væru ekki skýr og
afdráttarlaus.
Auk þessa var framburður kon-
unnar óljós hvað mörg atriði varðaði.
Sagðist hún m.a. við yfirheyrslu ekki
hafa hreyft andmælum við því að
ákærði hefði klætt hana úr buxum og
nærbuxum, en breytti þeirri frásögn
þegar hún var spurð um sama atriði
öðru sinni – bar þá við að hún hefði
sagt nei. Framburður ákærða þótti
hins vegar trúverðugur og staðfast-
ur, en hann sagði samræðið með vilja
konunnar.
Sýknaður af nauðgun
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
Í formi til framtí›ar
Skráning er hafin í flessi vinsælu átta vikna
a›halds-og lífsstílsnámskei› fyrir konur.
www.hreyfigreining.is