Morgunblaðið - 05.09.2007, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það þýðir ekkert að stinga höfðinu ofan í stólsetuna, hæstvirtur forseti, það lyktar.
Í Vísbendingu er fjallað um um-ræðu um tekjumismun í sam-
félaginu, þar sem oft virðist sem
einn tali í austur og annar í vestur:
„Skýringin liggur í því að annars
vegar er talað um laun og hins veg-
ar allar tekjur að fjármagnstekjum
meðtöldum. Í alþjóðlegum sam-
anburði mun almennt vera notast
við fyrri mælikvarðann.“
Í skýrslu Hag-stofunnar um
lágtekjumörk og
tekjudreifingu
fyrr á árinu kom
fram að launa-
jöfnuður væri
meiri á Íslandi en
í flestum öðrum
löndum. En um
leið hefur orðið
gífurlegur uppgangur í viðskipta-
lífinu sem hefur skilað mikilli
ávöxtun hlutabréfa. „Fjármagns-
tekjur hafa aukist miklu meira en
launatekjur á undanförnum áratug.
Þær hafa tífaldast að raunvirði,
sem er ótrúlegur vöxtur,“ segir í
Vísbendingu. Þar segir líka að á
undanförnum árum hafi eigendum
hlutabréfa fækkað hér á landi. „Þar
með er ein helsta uppspretta fjár-
magnstekna uppurin fyrir þorra
fólks.“
Mikilvægt er að aðilar vinnu-markaðarins tali skýrt í að-
draganda næstu kjarasamninga og
felli ekki undir sama hatt laun og
fjármagnstekjur. Gjáin sem mynd-
ast hefur er fyrst og fremst út af
fjármagnstekjum einstaklinga. Nú
hlýtur markmiðið að vera að ná
nýjum áföngum í lækkun á tekju-
skatti launafólks. Í kjarasamning-
unum í haust getur komið upp sú
staða að ríkisvaldið verði að liðka
fyrir samningum með lækkun
tekjuskatts. Það er skref í þá átt að
jafna afkomu fólks, enda hlýtur
markmiðið að vera samsvarandi
skattlagning á öllum tekjum, jafnt
fjármagnstekjum sem launatekjum.
Ætli þetta verði innlegg í kjara-samningagerðina?
STAKSTEINAR
Peningagjáin.
Umræða um tekjumun
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
" "
# !
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
$%#&
$%#&
:
*$;<
!
"
# $ *!
$$; *!
'( )#
(
# & %#* %
=2
=! =2
=! =2
'&#)
+ !,- %.
>$ -
*
;
%
& =7
%
&
'(
'
(!
)*
" + '!
=
% #
(
! %
' " # (,
- !
/0 %11
%# 2% %+ !
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B " 3
"
"
"
"
" "
"
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Davíð Logi Sigurðsson |
4. september
Sáttatilraunir:
Írak og Norður-Írland
(…) Á ágætum blogg-
vef um norður-írsk
stjórnmál hafa menn
vissar efasemdir um
framlag Norður-
Íranna, m.a. er þetta
húmoríska komment:
did not realise that Jeffrey Don-
aldson was talking to Martin Mc-
Guiness – perhaps its the Finns who
are doing the reconciliation stuff …
Meira: davidlogi.blog.is
Ari Guðmar Hallgrímsson |
4. september
Nýútskrifaður
„Óbyggðaökumaður“
(…) Margir þaulvanir
óbyggðaökumenn hafa
komist „í hann krapp-
an“ í akstri á jöklum og
yfir vatnsföll. Tíu mín-
útna fyrirlestur getur
aldrei komið að neinum
hagnýtum notum fyrir óvanan öku-
mann. Verður þetta ekki bara til að
auka björgunarsveitum erfiði um-
fram það sem nú er, að ekki sé
minnst á slysahættuna?
Meira: sabroe.blog.is
Dögg Pálsdóttir | 4. september
Framkvæmdastjóri –
framkvæmdastýra
Ef ég man rétt voru
það kvennalistakonur
sem byrjuðu á því að
kyngreina heiti starfa
og þingmenn þeirra
kölluðu sig alltaf þing-
konur. Síðan hafa orð
eins og framkvæmdastýra farið að
sjást. Hvað er það sem kallar á
þessa aðgreiningu? Ætti ég að kalla
mig lögkonu en ekki lögmann? Síð-
ast þegar ég vissi þýðir orðið ,,mað-
ur“ bæði karlmaður og kvenmaður.
Meira: doggpals.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson |
4. september
Sóðaleg
busavígsla
Það hefur þróast upp í
hefð að nýnemar í
framhaldsskólum séu
busaðir fyrstu náms-
vikuna og teknir með
því inn í skóla-
samfélagið. Í mörgum
tilfellum er um að ræða athöfn sem
hefur ígildi þess að vera græsku-
laust gaman og fólk geti jafnvel
hlegið saman að athöfninni. Þess eru
þó dæmi á seinni árum um að farið
sé óeðlilega langt í að niðurlægja
nemendur og gera lítið úr þeim með
þessari athöfn.
Athygli vekur nú þessi busavígsla
á Ísafirði. Mér finnst það komið út
yfir öll eðlileg mörk þegar farið er að
ausa rækjumjöli og flórsykri yfir
nemendur og þau standa eftir skítug
upp fyrir haus í for og ógeði. Það er
eðlilegt kannski að gera eitthvað úr
þessari athöfn en óþarfi er að láta
krökkunum líða eins og þeir séu nið-
urlægðir fyrir framan aðra. Það að
fá þessa yfirhalningu yfir sig hlýtur
að vera í senn lexía og niðurlæging.
Kannski er það tilgangurinn? Veit
ekki satt best að segja hver tilgang-
urinn á að vera ef hrein niðurlæging
fólks er tilgangurinn.
Busavígslurnar hafa á sér blæ
þess að vera manndómsvígsla fyrir
nýnema. Í því skyni finnst sumum
allt í lagi að ganga mjög langt.
Finnst að á þessu verði að vera eðli-
leg mörk, enda er jafnan stutt á milli
þess að ganga of langt og vera með
athöfn sem eigi að vera á mörk-
unum. Það er oft ekki gott að finna
millistigið þegar að svona athöfn er
skipulögð. Í heildina yfir finnst mér
busavígsla ekki þurfa að hljóma sem
niðurlæging á nýnemum. Það er
hægt að tóna alla hluti niður. En það
er oft ekki þægilegt að finna mörkin
sem þurfa að vera til staðar.
Það er ágætt að fá fram umræðu
um þessar busavígslur. Kannski er
þetta upphafið á því að fólk hugsi sig
almennilega um. Jafnvel að það
þurfi ekki að ausa for og eða rækju-
mjöl yfir nýnema til að þeir verði
hluti samfélagsins. Hvort að mildari
og mannlegri leið sé ekki til staðar.
Það er að mínu mati kominn tími til
að þessar busavígslur verði stokk-
aðar upp með þeim hætti að nýnem-
ar haldi virðingu sinni á eftir.
Meira: stebbifr.blog.is
BLOG.IS
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
www.heimili.is
Sölusýning
Logafold 101 - Grafarvogi
Gott 250 fm parhús á tveimur hæðum með innbyggðum tvöföldum 51 fm bíl-
skúr með góðri lofthæð. Húsið stendur í enda götunnar á stórri lóð á góðum
grónum útsýnisstað. Í húsinu eru fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi og
stórar stofur. Nýtt baðherbergi og eldhús. Góður garður og góðar svalir með
miklu útsýni. Gott hús á rólegum barnvænum stað. V. 65 m. Áhv. 9 m.
Bogi Molby Pétursson tekur á móti áhugasömum í dag frá kl. 18-19.