Morgunblaðið - 05.09.2007, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Sigurð Jónsson
„ÞAÐ var mikill ávinningur að fá
svo marga öfluga og hátt setta vís-
indamenn sem og stefnumótandi að-
ila í þessum málum til ráðstefn-
unnar. Þetta sýnir að við
Íslendingar njótum mikillar virð-
ingar og ekki síst forseti okkar Ólaf-
ur Ragnar Grímsson. Hann fékk
mjög hástemmd þakkarorð frá þátt-
takendum sem lýstu honum sem
leiðtoga umhverfismála og umhverf-
isverndar á heimsvísu, sérstaklega
varðandi loftslagsbreytingar og
áhrif frá þeim. Það lýstu margir fyr-
irlesarar áhyggjum af framtíðinni
vegna loftslagsbreytinganna sem
við verðum nú vör við,“ sagði Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri við
lok alþjóðlegu ráðstefnunnar á Hót-
el Selfossi en hún var haldin undir
heitinu: Soils, Society & Global
Change, í tilefni af 100 ára starfs-
afmæli Landgræðslunnar í Gunn-
arsholti. Hann sagði ráðstefnuna
hafa verið haldna í samstarfi
þriggja innlendra aðila og 18 er-
lendra stofnana og góð tengsl hefðu
skapast milli aðila sem mundi nýtast
áfram. Um væri að ræða öflugasta
samráðsþing sem hér hefði verið
haldið í græna geiranum.
„Það var samþykkt mjög ítarleg
stefnumótun á ráðstefnunni um
samspil jarðvegs, þjóðfélags og
loftslagsbreytinga. Menn lögðu þar
mikla áherslu á að þáttur jarðvegs-
ins hefði verið vanmetinn í vísinda-
samfélaginu varðandi loftslags-
breytingarnar. Menn eru að gera
sér grein fyrir því í vaxandi mæli að
landhnignun af völdum jarðvegseyð-
ingar er alvarlegasta umhverf-
isvandamál heimsins. Þar sem jarð-
vegseyðing er örust þar er fátæktin
mest og henni fylgir oftast stríð og
barátta um brauðið,“ sagði Sveinn
Runólfsson .
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
flutti hátíðarávarp við upphaf hátíð-
arsamkomunnar og lagði þar
áherslu á nauðsyn þess að litið væri
á umhverfisvanda jarðarinnar í
heild. Í lokaorðum sínum lagði hann
áherslu á nauðsyn þess að þjóðum
heims tækist að sameinast um
þekkingu og reynslu yfir landamæri
og án tillits til þjóðernis. Næðist slík
eining væri hægt að skapa nýtt upp-
haf að árangri í umhverfismálum.
Hann minnti á það hvernig þróunin
hefði verið á Íslandi, frá landnámi
þegar land var grasi gróið og þar til
menn hefðu staðið frammi fyrir
mikilli uppblástursógn sem barátta
hefði hafist gegn fyrir hundrað ár-
um. Á vegferð sinni frá landnámi
hefðu Íslendingar gert mistök en
ekki af ásettu ráði. Hann sagði
þessa reynslu dýrmæta lexíu sem
nauðsynlegt væri að nýta til fram-
tíðar.
Í máli sínu lagði Ólafur áherslu á
hið mikla og dýrmæta starf sem for-
ystumenn Landgræðslunnar hefðu
unnið og þakkaði þeim baráttuna
gegn landeyðingu og þá miklu þekk-
ingu og reynslu sem þeir hefðu aflað
með starfsemi sinni. Í lok máls síns
lýsti hann von sinni um að í ljósi
reynslu Íslendinga og þeirra
áherslna sem ræddar hefðu verið á
ráðstefnunni mætti móta fram-
kvæmdaáætlun sem gæti fram-
kallað endurnýjað afl til nauðsyn-
legrar alþjóðlegrar samvinnu um
umhverfismál. „Við getum ekki beð-
ið, því tíminn skiptir öllu máli,“
sagði Ólafur Ragnar og lýsti hug-
mynd sinni í níu liðum.
Að lokinni ræðu Ólafs Ragnars
bað ungur maður frá Kenýa, Ole
Yusuf, um orðið og ávarpaði forset-
ann með þökkum og góðum óskum,
kallaði hann til sín og afhenti honum
grip til að minna á nauðsyn átaks
gagnvart gróðureyðingu í heima-
landi sínu. Ólafur Ragnar tók við
gripnum og kvaðst taka hann með
sér þegar hann ætti leið til Kenya.
Þjóðir heims bregðist við vand-
anum vegna loftslagsbreytinga
Allir þeir sem tóku til máls á há-
tíðarfundinum lögðu áherslu á nauð-
syn þess að þjóðir heims tækju
höndum saman til að bregðast við
þeim vanda sem steðjaði að jörðinni
vegna loftslagsbreytinga. Roger
Croft frá Skotlandi sagði að huga
þyrfti að fortíðinni en nauðsynlegt
væri að hvetja næstu kynslóðir til
að takast á við þetta mikla verkefni.
Halldór Þorgeirsson hjá UNFCCC
sagði næstu tvö ár afar mikilvægan
tíma og sagði það trú sína að leið-
togar heimsins myndu takast á við
umhverfisvanda jarðarinnar af al-
vöru. Zafar Adeel hjá Háskóla Sam-
einuðu þjóðanna sagði að það væri
ögrun samtímans að takast á við
þetta verkefni. Hann hrósaði sýn
Ólafs Ragnars Grímssonar á um-
hverfismálin og vísaði til árangurs
Landgræðslunnar. Dana York hjá
USDA-NRCS minnti á að Íslend-
ingar hefðu verið fyrstir til að
stofna samtök eins og Landgræðsl-
una og til að kjósa konu sem for-
seta. Hún sagði nauðsynlegt að fá
landnotendur til samstarfs í öllum
verkefnum. Rajendra K Pachauri
sem er virtur fyrirlesari benti á að
ójafnvægi á einu sviði umhverf-
ismála kallaði á erfiðleika á öðrum
sviðum. Þjóðir heims gætu þurft að
horfast í augu við gríðarlega erf-
iðleika vegna skorts á matvælum
vegna jarðvegseyðingar. Þjóðir
þyrftu að sameinast um aðgerðir til
að ná tökum á vandanum. Hann
hvatti til þess að haldið yrði áfram
að breiða út boðskap umhverfis-
verndar til þess að bregðast við að-
steðjandi hættum.
Mikilvægt að bregðast við aðsteðjandi vanda
Alþjóðlegu samráðs-
þingi um jarðvegseyð-
ingu lauk á Selfossi í
gær. Ráðstefnan var
haldin í tilefni af 100
ára starfsafmæli
Landgræðslunnar í
Gunnarsholti.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gróðureyðing Ole Yusuf frá Kenýa afhendir Ólafi Ragnari Grímssyni forseta gjöf á alþjóðlegu ráðstefnunni.
GYLFI Gunnarsson, stórsír Oddfellowreglunnar á Ís-
landi, afhenti Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðis-
ráðherra, nýuppgerða líknardeild í Kópavogi í gær við
hátíðlega athöfn. Félagar í Oddfellowreglunni á Íslandi
hafa gert upp og afhent Landspítala húsnæðið þar sem
verður dag-, göngu- og fimm daga deild fyrir sjúklinga
í líknandi meðferð. Heilbrigðisráðherra tók við fram-
lagi Oddfellowreglunnar fyrir hönd spítalans og færði
gefendum þakkir fyrir höfðinglegt framlag.
Fram kemur í fréttatilkynningu frá spítalnum að
Oddfellowreglan hafi síðan 1997 veitt fé til uppbygg-
ingar líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. „Við
opnun líknardeildar var strax áhugi á að fjölga úrræð-
um fyrir sjúklinga í líknandi meðferð og 1. janúar 2006
fluttist Heimahlynning Krabbameinsfélagsins yfir til
LSH og líknar- og ráðgjafarteymi spítalans var form-
lega tengt starfseminni. Enn á ný hefur Oddfellowregl-
an á Íslandi sýnt stórhug í verki, nú með því endurnýja
ónotað húsnæði við hlið líknardeildarinnar þar sem
rekin verður dagdeild fyrir þá einstaklinga sem þiggja
líknandi meðferð og dvelja heima,“ segir m.a. í tilkynn-
ingunni. Fram kemur að á dagdeildinni verður lögð
áhersla á forvarnarstarf, meðferð og eftirlit einkenna
ásamt endurhæfingu til að viðhalda sjálfsbjargargetu
og stuðla að sem mestum lífsgæðum. Dagdeildin verður
til að byrja með opin þrjá daga í viku frá kl. 9:00 –
16:00. Einnig verður göngudeild opin einn morgun í
viku með það að markmiði að stuðla að tengslum sjúk-
linga við sérhæfða líknarþjónustu fyrr í sjúkdómsferl-
inu. Síðar í haust hefst starfsemi fimm daga deildar
sem verður opin mánudaga til föstudaga og mun starf-
semi hennar auka möguleika á hvíldarinnlögnum og
styttri legum til endurhæfingar og meðferðar erfiðra
einkenna.
Húsnæðið afhent Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala, Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, Gylfi Gunnarsson, stórsír Oddfellowreglunnar á Íslandi, Dóra Halldórsdóttir, hjúkrunardeildar-
stjóri líknardeildar, og Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir líknardeildar, við afhendinguna í gær.
Endurbætt húsnæði líknardeildar
SVAR hefur borist frá Geir H.
Haarde forsætisráðherra við fyrir-
spurn Guðna Ágústssonar, formanns
Framsóknarflokksins, um áform rík-
isstjórnarinnar um breytingar á
skipulagi Stjórnarráðsins sem kunni
að verða á dagskrá á haustþingi. Kvað
Guðni að skort hefði á heildarstefnu
við breytingar sem gerðar voru á
sumarþingi og sagði það ekki einka-
mál stjórnarflokkanna að ganga til
breytinga á verkefnum Stjórnarráðs-
ins.
Reglugerð breytt um áramót
Í svari sínu segir Geir að greint hafi
verið frá megindráttum í endurskoð-
aðri verkaskiptingu og á sumarþingi
hafi verið lagt fram frumvarp um
breytingar á lögum um Stjórnarráð
Íslands, sem samþykkt var sem lög
nr. 109/2007.
„Forsætisráð-
herra mun undir-
búa breytingar á
[reglugerð um
Stjórnarráð Ís-
lands nr. 3/2004]
sem ætlað er að
taka gildi um
næstu áramót. Í
mörgum tilfellum
kallar verkefnatilfærsla einnig á
breytingar á sérlögum, vegna þess að
tiltekinna ráðherra er þar getið sér-
staklega, og mun ríkisstjórnin flytja
heildstætt frumvarp þar að lútandi nú
í haust,“ segir í svarinu, en þar er
einnig gert ráð fyrir að flytja þurfi
frumvörp til nýrra sérlaga. Þing-
mönnum muni því gefast tækifæri til
að fjalla um áformin.
Frumvarp lagt
fram í haust
Geir H. Haarde
Forsætisráðherra svarar bréfi Guðna
STÓR sumarbústaður sem stendur í
sumarbústaðalandinu Heiðarbyggð
við Geldingsá í Vaðlaheiði stór-
skemmdist í bruna í gærkvöldi. Ekki
var talið að fólk hafi verið í bústaðn-
um og náði slökkvilið Akureyrar
fljótt tökum á eldinum sem var tölu-
verður. Í gærkvöldi var unnið að því
að rífa klæðningu af húsinu til að
komast að glæðum.
Eldurinn kom upp um klukkan 19
og sendi bæði lögreglan á Akureyri
og slökkvilið Akureyrar allt tiltækt
lið að eldinum.
Sumarbústaður skemmd-
ist í bruna við Akureyri
Eldur Bústaðurinn sem brann, í
Vaðlaheiðinni, gegnt Akureyri.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson