Morgunblaðið - 05.09.2007, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.09.2007, Qupperneq 24
Tveir á deildinni með skarlatssótt íþessari viku!“ Þegar slík tilkynningbirtist á tússtöflunni í leikskólanumhríslast kalt vatn milli skinns og hör- unds hjá foreldrum sem sjá sóttarsæng sína upp reidda. „Var ekki búið að bólusetja krakk- ann fyrir þessu?“ hugsa einhverjir, „eða voru það mislingar? Má nú búast við því að leikskól- inn lamist og allt liðið leggist í bælið?“ Ef marka má Þórólf Guðnason, yfirlækni á sóttvarnasviði Landlæknisembættsins, geta foreldrar hvílt slíkar áhyggjur því skarlatssótt kemur ekki í faröldrum eins og þekkt er um aðra barnasjúkdóma. „Skarlatssótt er ekkert sérstaklega að ganga heldur er hún alltaf við- loðandi,“ segir hann. „Hún kemur upp öðru hverju og dettur svo niður þannig að þetta sveiflast svolítið. Í raun er skarlatssótt ekkert annað en A-streptókokkasýking, sem oftast kemur fram sem hálsbólga með ákveðinni teg- und af útbrotum á húð.“ Auk særinda í hálsi og hita einkennist skar- latssótt af fyrrgreindum útbrotum sem byrja í andliti og breiðast síðan um líkama barnsins. Eftir nokkra daga getur húðin tekið að flagna. Þá verður tunga barnsins eldrauð með smáum upphleyptum bólum og er stundum talað um jarðarberjatungu í því sambandi. Raunar geta fullorðnir einnig fengið sjúk- dóminn þótt hann sé algengastur hjá börnum. Skarlatssótt alltaf viðloðandi Ólíkt mörgum barnasjúkdómum gengur skarlatssótt ekki í far- öldrum heldur er hún stöðugt í gangi hjá fáum í einu. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir áttaði sig á því að nafn sjúkdómsins er senni- lega tikomumeira en uslinn sem hann veldur. Morgunblaðið/Ásdís Veikindi Skarlatssótt er streptókokkasýking sem veldur hita, hálsbólgu og útbrotum. Mælt með meðhöndlun Skarlatssótt er ekki tilkynningaskyld enda segir Þórólfur hana ekki sérstaklega skæðan sjúkdóm hér á landi. „Streptókokkasýking get- ur verið alvarleg hjá sumum en hún læknast líka oft af sjálfu sér. Hins vegar veit maður ekki hver læknar sjálfan sig og hver ekki þannig að ef krakkar eru með einkenni er mælt með því að sjúkdómurinn sé meðhöndl- aður,“ en það er gert með pensillíngjöf að sögn Þórólfs. Hann segir sjúkdóminn smitandi en þó ekki bráðsmitandi. „Það eru til meira smitandi sýk- ingar en skarlatssótt eða streptókokkar. Það getur þó verið erfitt að meta því margir eru einkennalausir og um það bil 15-20 prósent þjóðarinnar er með streptókokkasýkingu án þess að hún valdi nokkrum einkennum.“ Ekki er bólusett gegn sjúkdómnum enda ekki til bóluefni við honum. Slíkt bóluefni er þó í þróun erlendis, að sögn Þórólfs. ben@mbl.is Jarðaberjatunga M.a. má þekkja skar- latssótt á rauðri tungu alsettri bólum. Einkenni Rauð útbrot koma fram á barninu, fyrst í and- liti og svo á búk þess, höndum og fótum. heilsa 24 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ JURTAAPÓTEK Kolbrúnar grasa- læknis ehf. á Laugavegi 2 í Reykjavík hefur hlotið vottun til vinnslu, pökkunar og sölu afurða úr jurtum og jurtaolíum sam- kvæmt alþjóðlegum reglum um líf- rænar aðferðir frá Vottunarstof- unni Túni. Vottunin nær til vinnslu á líf- rænum lækningajurtum, te- og kryddjurtum, jurtaolíum og öðrum heilsu- og snyrtivörum. Með vott- un Túns er staðfest að uppruni og framleiðsla hinna vottuðu jurta og jurtaolía uppfyllir alþjóðlegar kröfur um sjálfbæra landnýtingu, söfnun jurta og vinnslu þeirra. Vottunin staðfestir að fyrir- tækið vinnur eftir alþjóðlegum stöðlum um úrvinnslu, pökkun, skráningu og merkingar lífrænna afurða. Við meðferð hinna lífrænu jurta og jurtaolía er og leitast við að varðveita næringar- og lækn- ingagildi þeirra og tryggja að hráefnin blandist ekki öðrum efn- um. Jurtaapótek Kolbrúnar grasalæknis fær vottun Áhugi Hákonar á líkams-rækt kviknaði þegarhann kynntist konu sinniUnni Stefánsdóttur og síðan hefur Hákon gert hreyfingu og líkamsrækt, ásamt hollu matar- æði, að lífsstíl sínum. „Þegar við kynntumst var hún landsliðskona í íþróttum, keppti í bæði 400 og 800 metra hlaupi. Ég vissi að ef ég ætti að hafa við henni þyrfti ég strax að byrja á því að hreyfa mig.“ Og síðan hefur Hákon ekki slegið slöku við. Í gegnum árin hefur hann synt, gengið og skokkað ásamt því að fara reglulega í rækt- ina. „Sem strákur í Flóanum í Stokkseyrarhreppi stundaði ég ekki neinar íþróttir nema hvað helst að maður færi á hestbak endrum og eins. Eftir að ég fluttist til Reykja- víkur reyndi ég aðeins við hesta- mennskuna en fannst það of bind- andi. Það var í ferðalagi á landsmót UMFÍ með fjölskyldunni fyrir um 25 árum að Hákon tók endanlega ákvörðun: „Við vorum að keyra á Hólssandi í Mývatnssveitinni, að koma frá mótinu, þegar ég bað Unni að stöðva bílinn. Ég fór svo út og skokkaði nokkra kílómetra á Hólssandinum.“ Tengdapabbi hafði betur Hreyfing hefur verið daglegur þáttur í lífi Hákonar síðan og raun- ar allrar fjölskyldunnar því synirnir tveir, Finnur og Grímur, sem nú eru uppkomnir, stunduðu frjálsar íþróttir þegar þeir voru ungir og heimasætan Harpa Dís hefur stundað dans frá barnsaldri. „Konan mín keppir enn og er skemmtilegt að segja frá því að hún tók þátt í 800 m hlaupi um daginn og hlaut besta tíma sinn í fimm ár. Hún er 56 ára,“ segir Hákon stolt- ur. Þau fara stundum saman í ræktina en Unnur fylgir þó nokkuð öðru og stífari æfingaprógrammi en Hákon. „Mér finnst líka ágætt að vera einn í þessu þótt við æfum vissulega stundum saman.“ En hvað með hann sjálfan, hefur hann sjálfur keppt í íþróttum? Það færist glettnislegt bros yfir Hákon: „Tengdafaðir minn fékk mig til að taka þátt í 800 metra keppnishlaupi fyrir nokkrum árum og er skemmst frá því að segja að hann, þá 75 ára, kom í mark á undan mér.“ Hákon skellihlær við tilhugsunina. Strætó og gönguferðir Hákoni finnst best að hafa reglu á hlutunum og hefur hann varla misst úr viku í einhvers konar lík- amsrækt síðastliðinn 20 ár. Fjöl- skyldan tók þá ákvörðun að selja annan bílinn fyrir nokkrum árum og síðan hefur hann tekið strætó í vinnuna og fer þá úr vagninum nokkrum stoppustöðvum frá vinnu- staðnum og gengur um 15-20 mín- útna leið í vinnuna og endurtekur svo leikinn á leiðinni heim. Hreyfingin og hollir lifnaðar- hættir eru líka að hans mati mik- ilvægur hluti af daglegu lífi. Hann gefur því lítið fyrir það þegar fólk fer í svokallað átak. „Oft fellur fólk til fyrri lifnaðar- hátta eða mataræðis eftir átakið. Ég hef t.d. haldið að mestu leyti sömu þyngd gegnum öll þessi ár sem ég hef stundað líkamsrækt.“ Hákon telur líka mikilvægt að fara hægt af stað og gefast ekki upp þótt árangur komi ekki strax í „Mikilvægt að gera heilbrigt líferni að lífsstíl“ Morgunblaðið/ÞÖK Á æfingu Hákon Sigurgrímsson stundar margs konar líkamsrækt og nú þegar hann er að fara á eftirlaun gerir hann ráð fyrir að eiga eftir að auka hreyfinguna enn frekar. Hákon Sigurgrímsson varð sjötugur fyrr í mánuð- inum en lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en sextugur. Hver ætli galdurinn sé bakvið gott og heil- brigt útlit? Halldóra Traustadóttir tók Hákon tali. ljós og þá sé ekki síður mikilvægt að slaka vel á í lok vinnudags eða um helgar. „Ég er oft undir miklu álagi í vinnunni og veit ekkert betra en að slaka á eftir vinnudag- inn með því að elda mat,“ segir hann og bætir við að hann trúi til að mynda staðfastlega á lækn- ingamátt góðrar tónlistar. Nú fer Hákon á eftirlaun eftir nokkra daga. Ætli hann muni þar með leggjast í helgan stein? „Ekki aldeilis og á örugglega eftir að auka hreyfinguna ef eitthvað er þar sem ég hef mun meiri tíma en áður til slíks.“ Þegar við kynntumst var hún landsliðskona í íþróttum, keppti í bæði 400 og 800 metra hlaupi. Ég vissi að ef ég ætti að hafa við henni þyrfti ég strax að byrja á því að hreyfa mig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.