Morgunblaðið - 05.09.2007, Side 28

Morgunblaðið - 05.09.2007, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigurdór SævarHermundarson fæddist að Norður- braut 21 í Hafn- arfirði 2. febrúar 1934. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 27. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sólveig Sigurjónsdóttir, húsfreyja í Hafnar- firði, f. 2. 8. 1912, d. 8. 2. 1980 og Her- mundur Þórðarson, bifreiðarstjóri í Hafnarfirði, f. 12. 8. 1903, d. 4. 4. 1992. Foreldrar Sólveigar voru Halldóra Ísleifs- dóttir, f. 8. 4. 1883, d. 19. 4. 1953 og Sigurjón Eyjólfsson, f. 2. 11. 1883, d. 21. 10. 1954. Foreldrar Hermundar voru Herdís Jónsdóttir, f. 28. 4. 1863, d. 20. 4. 1905 og Þórður Bjarna- son, f. 22. 9. 1854, d. 8. 7. 1932, fósturforeldrar Hermundar voru Kristín Bjarnadóttir, föðursystir hans, f. 14. 3. 1856, d. 6. 6. 1940 og Sigurður Magnússon, f. 26. 5. 1864, d. 22. 9. 1914. ríður Arndal, forstöðumaður, f. 1952, gift Jóni Sigurðssyni, hús- gagnabólstrara, f. 1952. Börn þeirra eru: a) Stefán, f. 1975 kvæntur Jónu Bjarnadóttur, f. 1974. Þau eiga Soffíu, f. 1999 og Karólínu, f. 2003. b) Sigrún, f. 1978 og c) Sólveig, f. 1980. 2) Sig- rún Guðný Arndal, fulltrúi, f. 1955, gift Sveini Pálssyni, bygg- ingameistara, f. 1953. Börn þeirra eru: a) Páll, f. 1974, kvæntur Arndísi Mogensen, f. 1977. Þau eiga Matthías Hlífar, f. 1997, og Pétur Sigurdór, f. 2002. b) Hjörtur, f. 1980. Dóttir hans er Lilja Rún, f. 2003. c) Helga, f. 1981. d) Hjalti, f. 1989. Sigurdór hóf ungur að starfa við verslun Jóns Mathiesen í Hafnarfirði og sinnti þar ýmsum störfum. Einnig vann hann við hellulagnir með Bjarna bróður sínum. Hann vann við byggingu hafnarinnar í Straumsvík og þeg- ar álverið var tekið í notkun árið 1969 fór hann að vinna þar, fyrst í kerskála, en frá árinu 1980 á lagernum. Þar starfaði hann til ársloka 2003 er hann lét af störf- um vegna aldurs. Hann var félagi í Kiwanis- klúbbnum Eldborgu í Hafnarfirði í fjölda ára. Útför Sigurdórs fer fram frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn 5. september og hefst athöfnin kl. 13. Sigurdór var elst- ur fjögurra bræðra. Næstur honum var Bjarni Birgir, skip- stjóri og fram- kvæmdastjóri í Hafnarfirði, f. 11. 8. 1935, d. 11. 8. 1996, svo Hermundur Hafsteinn, f. 8. 10. 1938, d. 21. 3. 1939 og loks Sigurður Kristinn, ritstjóri í Reykjavík, f. 26. 5. 1944. Sigurdór var al- inn upp í Hafnarfirði hjá móður- foreldrum sínum og móðursystur sinni Önnu Sigurjónsdóttur, f. 6. 3. 1911, d. 29. 7. 1990 en var alla tíð í nánu sambandi við foreldra sína og bræður. Þann 11. 12. 1971 kvæntist Sig- urdór Sigrúnu Helgu Ólafs- dóttur, f. 30. 8. 1930. Foreldrar hennar voru Hlíf Matthíasdóttir, húsfreyja, f. 27. 4. 1899, d. 10. nóv.1996 og Ólafur Gísli Magnús- son, skipstjóri, f. 23. 9. 1893, d. 24. 3. 1961. Sigrún á tvær dætur frá fyrra hjónabandi: 1) Hlíf Sig- Mig langar að minnast Sigga, eins og Sigurdór var oftast kall- aður, en fyrst þegar við hittumst var það á planinu við hús tilvonandi tengdamóður minnar, hann að hitta tilvonandi eiginkonu sína og ég til- vonandi eiginkonu mína. Fljótlega þá um haustið giftu þau Rúrý sig og hófu búskap á Álfaskeiði í Hafn- arfirði. Eftir essi fyrstu kynni hafa leiðir okkar legið óslitið saman. Siggi var einstaklega geðprúður maður og hvers manns hugljúfi og minnist ég þess ekki að hafa séð hann skipta skapi, þótt skaplaus væri hann ekki. Á fyrstu búskapar- árum okkar hjóna vorum við hjónin að byggja og ég að læra og okkar fyrsta barn komið, en þá var ekki eins auðvelt að koma börnum í pössun og er í dag og varð það úr að Siggi og Rúrý tóku elsta son okkar í pössun og var hann hjá þeim í Hafnarfirði í rúmt hálft ár. Eftir þetta leit Siggi hálfpartinn alltaf á elsta son okkar sem sinn eigin son, en ætíð passaði hann að gera ekki upp á milli barna- barnanna. Siggi lifði fyrir það að geta stjanað við barnabörnin og ekki síður barnabarnabörnin, þegar þau komu og var óþreytandi við að hlaupa eftir öllum duttlungunum í þeim. Allt frá upphafi hefur verið yndislegt að koma inn á heimili Sigga og Rúrýar, alltaf tekið á móti manni sem þeirra syni og ætíð hægt að leita til þeirra ef eitthvað bjátaði á. Þau hjón höfðu einstak- lega gaman af því að ferðast og eru þær ófáar ferðirnar sem við höfum farið með þeim hjónum hér innan- lands og einnig nokkrar erlendis, hver ferð annarri betri. Á öllum þessum ferðum okkar var Siggi ætíð fljótur að finna einhvern til að spjalla við, hvort sem það var bóndi uppi í sveit eða ungversk fjölskylda í næstu íbúð, alltaf gat Siggi rætt við alla, hvaða mál sem þeir töluðu. Siggi var Gaflari í húð og hár og kom það berlega í ljós þegar þau hjón voru að taka ákvörðun um það að flytja af Álfaskeiðinu, þá vildi Siggi ekki fyrir nokkurn mun flytja úr Hafnarfirði, en Hafnarfjörður var mjög þröngt skilgreindur í kringum gamla bæinn, en það átti eftir að breytast þegar þau fluttu síðan á Vellina í Hafnarfirði en þar kunni hann ágætlega við sig. Einn draum áttum við synir mínir, en það var að fara með Sigga á fót- boltaleik í Manchester, en af því varð því miður ekki, hann fylgist bara með liðinu að ofan. Ég sakna Sigga og votta Rúrý og ættingjum samúð mína. Sveinn. Mig langar til að minnast stjúp- föður míns með nokkrum orðum. Hann kvaddi þennan heim eftir stutta, en erfiða sjúkdómsbaráttu og hlaut friðsælt og fallegt andlát. Siggi kom inn í líf okkar systr- anna vorið 1971 þegar hann fór að draga sig eftir mömmu. Þau giftu sig í desember það ár, stuttu eftir við fluttum að Álfaskeiði 72 í Hafn- arfirði þar sem þau höfðu keypt sér íbúð. Siggi var einn sá mesti Hafnfirð- ingur sem ég hef kynnst og hann gat varla hugsað sér að búa annars staðar. Það var örugglega ekki auðvelt fyrir Sigga að koma inn á heimilið með okkur, tveimur unglingsstelp- um, sem höfðu búið einar með móð- ur sinni í nokkur ár. En okkur kom strax vel saman. Hann umbar dynt- ina í okkur og tók okkur með mesta jafnaðargeði og vildi helst allt fyrir okkur gera. Meira að segja að lána mér bílana sína, sem honum þótti mjög vænt um. Mér er minnisstætt þegar ég eitt sinn var á bílnum og keyrði utan í steinvegg. Það var erfitt að bíða eftir að hann kæmi heim þann dag og þurfa að segja honum frá þessu óhappi. En hann tók því með hinni mestu ró og sagði „Við látum bara gera við þetta“. Og ekki orð um það meir. Þetta jafn- aðargeð var einkenni hans. Hann var ekki að æsa sig yfir hlutunum. Sigga þótti mjög gaman að ferðast. Þau mamma ferðuðust heil- mikið, bæði innanlands og utan. Þegar ég bjó enn hjá þeim fór ég stundum með þeim í ferðir, t.d. í Landmannalaugar og Skaftafell. Mér eru einnig mjög minnisstæðar allar ferðirnar með honum og mömmu um Suðurnesin og Selvog- inn. Hann þekkti víða til og gat allt- af sagt frá einhverju skemmtilegu. Og svo var ómissandi að stoppa í einhverri fjöru og rölta um og hirða eitthvað skemmtilegt, svo sem rekaviðarkubba, skeljar og netakúl- ur. Þetta endaði svo auðvitað allt í geymslunni hjá þeim og var fátt notað nema e.t.v. netakúlurnar sem sumar eru ennþá til. Það var alveg sama hverju mér datt í hug að safna eða draga með mér heim, allt- af var pláss fyrir það. Siggi studdi reyndar skemmtilega við söfnunar- áráttu mína, því hann var alltaf að gauka að mér einhverju skemmti- legu alveg fram undir það síðasta. Fyrst voru það kannski gömul hús- gögn, en svo gat það verið gömul bók eða bréf eða ýmsir smámunir sem honum höfðu áskotnast á lífs- leiðinni. Þá var þessu oftar en ekki laumað að mér án þess að segja neitt – og svo beið hann. Og auðvit- að var forvitni mín vakin og ég spurði. Þá stóð ekki á svörum, yfir- leitt áttu hlutirnir einhverja sögu. Siggi var afskaplega barngóður og hændust afabörnin öll að honum og svo einnig langafabörnin. Hann sýndi þeim hlýju og áttí líka oft eitthvað gott að gefa þeim. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast Sigga og deila með honum hluta af ævi minni. Ég mun minnast hans með hlýju og væntumþykju og þökk fyrir margar ánægjulegar stundir. Þennan stutta tíma sem Siggi lá á krabbameinsdeild Landspítalans var afskaplega vel hugsað um hann og færi ég starfsfólkinu þar, fyrir hönd fjölskyldunnar, bestu þakkir fyrir hlýju og góða umönnun. Hlíf S. Arndal. Nú er afi Siggi í Hafnarfirði far- inn frá okkur og verður hér eftir bara til í minningum okkar. Þær eru allar góðar, minningarnar um hann afa. Og amma Rúrý er þar aldrei fjarri, enda voru þau afar samrýmd. Allt frá bernskuminning- um mínum og fram á síðustu daga einkennast þær af gjafmildi, gam- ansemi og hlýju. Í gamla daga var hvergi betra að gista en í Hafnarfirði. Sérstaklega þó fyrir jólin, því jólasveinninn í Hafnarfirði gaf miklu meira í skó- inn en heima hjá mér. Afi laumaði gjarna að manni beiskum brjóst- sykri, sem hann átti alltaf nóg af, þegar lítið bar á. Hann bauð manni líka alltaf í nefið, með glotti á vör. Þegar unglingsárin nálguðust var afi líka duglegur að fara með mann út á einhverja sveitavegi á Lödu Sportinni og leyfa manni að keyra. Hápunktur minninganna er þó að sjálfsögðu ferðin sem við Palli fór- um með afa og ömmu til Costa del Sol. Þar urðu til fjölmörg ógleym- anleg minningabrot sem hafa verið rifjuð upp ótal sinnum á góðum stundum. Kjúklingurinn hjá Pepe, piparinn í hvítvíninu, ríka herfan, skrýtna „Bourbon“-kókið, úlfald- areiðin í Marokkó og steinaldarhót- elið, svo eitthvað sé nefnt. Það var fyrst eftir að við fluttum heim frá Lundi fyrir tveimur árum, sem dæturnar Soffía og Karólína fengu gott tækifæri til þess að kynnast afa og ömmu. Það var gaman að sjá hvernig samband þeirra við afa speglaði bernsku- minningar mínar um afa minn. Soffía og Karólína drógust mjög að afa Sigga, hann hafði einstakt lag á að umgangast börn og virtist ekki þurfa að hafa neitt fyrir því. Nóg var að rétta úr höndina, orð virtust nær óþörf. Teiknimyndirnar, rétta kexið, dúkkuleikir og þolinmæði hjálpuðu líklega til. Heimsókn ömmu og afa til okkar í Lundi er mjög eftirminnileg. Við vorum þakklát fyrir svo auðsýndan áhuga á okkar högum í útlöndum. Við söknum afa mikið og það er Sigurdór Sævar Hermundarson ✝ Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR DÓRA JÓNSDÓTTIR, Skjóli, (áður Kleppsvegi 118), Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 28. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 6. september kl 15.00. Jón Þórir Gunnlaugsson, Halldór Gunnlaugsson, Bára Fjóla Friðfinnsdóttir, Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir, Einar Þórir Dagbjartsson, Sigurður Ingi Gunnlaugsson, Þóra Gerða Geirsdóttir, Hrafnkell Gunnlaugsson Þráinn Gunnlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTMUNDUR BJÖRNSSON, Tjarnarlundi 10B, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 6. september kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknar- stofnanir. Fanney Kristmundsdóttir, Viðar Kristmundsson, Dóróþea Reimarsdóttir, Guðmundur Björn Kristmundsson, Sigríður Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RAGNA S. FRIÐRIKSSON, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 30. ágúst. Útförin auglýst síðar. Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir, Gunnar Magnússon, Huld Goethe, Sigurður Hreinn Hilmarsson, Þorbjörg Ásmundsdóttir, Björgvin Hrafn Hilmarsson, May, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra eiginkona, móðir og amma, SÓLRÚN SVERRISDÓTTIR, Lækjargarði, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánu- daginn 3. september. Ari G. Öfjörð, Jóhanna Ósk Öfjörð, Guðmundur Lárus Öfjörð, Salome Huld Gunnarsdóttir, Emilía Sól Guðmundsdóttir, Patrekur Þór Guðmundsson, Sigurður Hans Arason Öfjörð, Hafsteinn Birgir Arason Öfjörð, Ásgeir Arason Öfjörð, Hugi Rafn Öfjörð, Emilía Sól Guðmundsdóttir og Patrekur Þór Guðmundsson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HÖRÐUR HERMANNSSON, Munkaþverárstræti 13, Akureyri, lést laugardaginn 1. september á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 7. september kl. 14.00. Svala Fanney Steinþórsdóttir, Sigþór Harðarson, Signý Sigurðardóttir, Guðrún Björg Harðardóttir, Friðrik Viðar Sverrisson, Hermann Harðarson, Herborg Sigfúsdóttir, Njáll Harðarson, Marsibil Fjóla Snæbjarnardóttir afa og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.