Morgunblaðið - 05.09.2007, Síða 29

Morgunblaðið - 05.09.2007, Síða 29
skrítið að hugsa til ömmu Rúrýjar án afa Sigga, þið voruð svo sam- rýmd og genguð samstiga í gegnum lífið. Stefán, Jóna, Soffía og Karólína. Elsku afi. Enn á ég erfitt með að trúa að þú sért farinn. Nú er víst komið að kveðjustund og því langar mig að rifja upp nokkrar góðar minningar. Það sem einkennir allar minn- ingar um afa Sigga er endalaus þol- inmæði og leikgleði hans. Alltaf var afi til í að skutlast með okkur út um allt, leyfa okkur að stýra Lödunni, fara í bíó, í Kringluna og allt sem manni datt í hug. Ég sé fyrir mér andlitið á afa lýsast upp þegar við komum í heimsókn. Alltaf var eitt- hvað spennandi til að sýna manni, segja manni frá eða fótboltaleikir til að horfa á með strákunum. Ég man sérstaklega eftir því þegar afi var einhvern tíma búinn að kaupa fjarstýrðan bíl og ég var ekki viss hvor var spenntari, afi eða við krakkarnir. Útilegurnar og sum- arbústaðaferðirnar er eitthvað sem má ekki gleyma að nefna. Ég hef ekki tölu á hversu margar ferðir voru farnar. Alltaf var sama fjörið, alltaf jafn spennandi að fá að vera í tjaldvagninum hjá afa og ömmu og alltaf nennti afi að rölta með okkur um svæðið eða leyfa okkur að prófa að stýra Lödunni á afskekktum sveitavegi. Ég veit ekki hversu oft afi hefur skutlað mér út um allar trissur, á jólahlaðborð, í rútuna og bara hreinlega út um allt. Alltaf var gott að fá far hjá afa. Eitt skipti sem unglingur hafði ég þó ekki alveg þolinmæði fyrir öruggum akstri afa. Það er enn gert grín að því hvað ég var óþolinmóð þegar ég fór með afa og ömmu upp í Reykholt í Biskupstungum á Vestfirðingamót og mér fannst afi keyra svo hægt að ég hélt að við kæmumst aldrei á leiðarenda. Ættfræði er áhugi sem ég tel mig hafa tekið upp eftir ýmsum í fjöl- skyldunni og þar á meðal afa. Afi var alltaf svo fljótur að kveikja að þessir og hinir væru svona og svona tengdir. Ég hef alltaf dáðst að þess- um hæfileika. Afi gat alltaf svarað spurningum um hvernig þessi eða hinn frændi, nú eða frænka, var tengdur manni. Vinir mínir hafa í gegnum tíðina oft ekki alveg skilið þegar ég fer að tala um þrjá afa og þrjár ömmur. Þrátt fyrir að afi Siggi hafi verið stjúpi hennar mömmu, þá hefur hann alltaf verið jafnmikill afi minn og hann væri pabbi hennar mömmu. Ég var því þeirrar gæfu njótandi að eiga „auka afa“ og er ég svo þakklát fyrir það. Það er svo ómetanlegt að eiga góðar minningar til að gleðjast yfir og það er alveg öruggt að það er af nægu að taka þegar kemur að afa Sigga. Elsku afi. Ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna. Takk fyrir allt og allt. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin; nú einn ég sit um vetrarkvöld. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Sjáumst síðar. Þín, Helga. Hann afi Siggi í Hafnó er dáinn. Það er erfitt að trúa því en það er gott að hann fékk hvíldina eftir veikindin. Okkur fannst við alltaf ofsalega heppnar að eiga afa eins og afa Sigga. Ef við ættum aðeins tvö orð til að lýsa afa myndum við segja „sterkan“ og neftóbak. Þegar við vorum litlar var nefnilega voða sport að fá sterkan brjóstsykur hjá afa og að sníkja í nefið hjá honum með tilheyrandi hnerraköstum. Þegar við frændsystkinin fengum að fara með rútu til Reykjavíkur og afi og amma komu og sóttu okkur á Umferðarmiðstöðina var afi alltaf tilbúinn að fara með okkur í bíltúra um gamla bæinn í Hafnarfirði og segja okkur sögur af fólki sem hafði búið í húsunum í gamla daga. Afi var nefnilega Gaflari inn að beini og kunni margar skemmtilegar sögur um bæinn sinn. Það brást sjaldan að við færum með honum og ömmu í Bókabúð Böðvars á Reykjavíkur- veginum og við fengum að velja okkur dúkkulísur svo safnið var orðið ansi stórt, bæði heima og líka hjá afa og ömmu. Seinna, þegar við fórum báðar að vinna á Súfistanum í Hafnarfirði, bjó Sigrún hjá afa og ömmu og Sól- veig kom stundum og gisti, þá var afi alltaf til í skutl í og úr vinnu. Hjá ömmu og afa væsti ekki um okkur. Að koma heim úr skólanum á fimmtudegi og sjá þá afa og ömmu að taka upp úr pokunum úr Fjarðarkaupum var nánast vikuleg- ur viðburður. Afi ljómaði sem sólin þegar hann dró upp gúmmulaðið sem hann vissi að Sigrúnu fannst svo gott og reyndi að telja henni trú um að amma hefði endilega viljað kaupa það. Hann afi, og amma líka, vildi nefnilega alltaf allt fyrir mann gera og stundum, kannski, náðum við ekki að þakka honum nóg fyrir. Það var gaman að afi treysti sér til að koma í heimsókn í sumar og drekka kaffi í sólinni á pallinum hjá Sigrúnu þótt hann hafi verið slapp- ur. Við erum óendanlega þakklátar fyrir að Sólveig skuli hafa verið á Íslandi síðustu vikuna áður en afi fór og fengið að kveðja hann vel. Takk elsku afi, fyrir allt. Saknaðarkveðja, Sigrún og Sólveig. Það eru ekki allir svo lánsamir að eiga foreldra. Ég hins vegar hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga tvenna foreldra, ef svo má segja. Fyrsta árið mitt fékk ég að vera hjá ömmu Rúrý og afa Sigga á Álfaskeiðinu meðan foreldrar mínir komu yfir sig húsnæði í Hvera- gerði. Ég myndaði tengsl við afa og ömmu sem hafa verið órofin síðan, tengsl sem hafa látið mér líða eins og ég ætti tvenna foreldra. Alltaf gat ég leitað til þeirra og þótti fátt betra en að taka rútuna í bæinn á föstudegi þar sem afi Siggi sótti mig á Umferðarmiðstöðina. Þaðan var brunað á Lödu Sportinni í Fjörðinn, yfirleitt með viðkomu á Kentucky Fried Chicken. Ég gat nefnilega látið dekra við mig í afa- og ömmuhúsi þegar systkinin mættu og tóku af mér foreldra- dekrið. Afi Siggi var alltaf til í að fara með afastrákinn hingað og þangað, hvort sem um ræddi Sæ- dýrasafnið, í bíóferðir, á íþrótta- kappleiki, í knattspyrnuskóla eða upp í Hamar að leita að tröllum. Á unglingsárunum fékk ég ómetan- lega reynslu á gamla veginum inn að Kaldárseli þar sem ég fékk að keyra Lödu Sportina út í eitt. Þol- inmæðin sem afi sýndi mér og allt sem afi og amma gerðu fyrir okkur systkinin og frændsystkinin krist- ölluðust í Spánarferðinni sem þið buðuð okkur Stebba frænda í. Þar fóruð þið með okkur í allar ferðir sem hægt var að fara í á þremur vikum og uppskáruð virkniverð- launin fyrir hjá Hemma Gunn far- arstjóra! Síðustu ár fannst mér, Dísu og strákunum okkar ekkert betra en að koma í heimsókn, þar sem við rifjuðum yfirleitt upp gamlar stundir. Strákarnir mínir dáðu langafa sinn sem þreyttist ekki við að bera í þá kex og ís á meðan horft var á teiknimyndir í sjónvarpinu og nýjustu leikföngin skoðuð í auglýs- ingum. Það er ekki sjálfgefið að eiga eins gott samband við langafa sinn og strákarnir mínir áttu. Þín er sárt saknað á mínu heimili, elsku afi minn. Við áttum alltaf eftir að fara saman á Old Trafford, það verður að bíða betri tíma. Ég minn- ist þín með bros á vör og ætla að taka í nefið og sporðrenna brauð- sneið með mysing á afmælisdaginn þinn héðan í frá, þér til heiðurs. Páll afastrákur. Kæri frændi. Þá er komið að leiðarlokum. Ég hugsa aftur og man eftir glettna brosinu þínu. Ég lítil stúlka og þú alltaf að stríða. Ég man eftir fallegu konunni þinni, henni Sig- rúnu. Hún lifir mann sinn sem hún hugsaði svo vel um. Þið voruð falleg hjón og ég á góðar minningar um ykkur. Kær kveðja til ykkar allra sem eigið um sárt að binda eftir fráfall Sigga frænda. Sólveig Sigurðardóttir. Hann Sigurdór, traustur vinur og félagi, er fallinn frá. Sigurdóri kynntumst við þegar hann starfaði hjá Íslenska álfélag- inu sem starfsmaður í kerskála og er eftirlifandi kona hans Sigrún Helga Ólafsdóttir, hún Rúrý, vin- kona okkar og frænka. Á sínum tíma eða fyrir nærri þrjátíu árum tóku sig saman nokkr- ir samstarfsmenn hjá ÍSAL, sem allir höfðu gaman af að ferðast, og mynduðu með sér ferðahóp. Hóp- urinn ferðaðist bæði innanlands og erlendis. Eftir svona langan tíma er margs að minnast úr ferðum okkar. Okkur er þó sérstaklega minnis- stæð ferð sem við fórum sex saman til Flórída, hvað gott var að geta alltaf treyst á minni Sigurdórs og ratvísi. Minnisstæðar eru einnig all- ar hálendisferðirnar okkar saman og kom þá vel í ljós hið góða lund- arfar Sigurdórs, hann skipti sjaldan skapi, sama á hverju gekk. Þau hjón störfuðu bæði í Kiw- anishreyfingunni og þar kom einnig vel í ljós samviskusemi hans og trú- mennska, ásamt því hve minnugur og talnaglöggur hann var. Eftir slys, sem Sigurdór varð fyr- ir í kerskálanum hjá ÍSAL fluttist hann á vörulager fyrirtækisins og var þá talið auðveldara að leita til hans en að fletta upp í tölvu því hann var alltaf með það alveg á hreinu hvar viðkomandi vara var geymd. Eftirtektarvert var hið góða sam- band Sigurdórs við dætur Sigrúnar og þeirra fjölskyldur, sem hann tók sem sínum og var hann góður afi. Við kveðjum hann Sigurdór með söknuði. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Rúrý, við sendum þér, dætrunum, barnabörnunum og öðr- um ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Magnús og Sylvía. Í dag verður borinn til grafar fé- lagi okkar, Sigurdór Hermundar- son. Hann gerðist félagi í Kiwanis- klúbbnum Eldborgu í Hafnarfirði fyrir um 20 árum. Hann var ætíð mjög traustur og tryggur félagi, sem gott var að leita til og þau verk sem hann tók að sér vann hann af einstakri kostgæfni og trúmennsku, sem var ríkur þáttur í hans lífi. Við fráfall þessa félaga okkar er höggvið skarð í raðir okkar Eld- borgarfélaga og mun hans verða sárt saknað. Eftirlifandi eiginkona Sigurdórs er Sigrún Helga Ólafsdóttir, sem er starfandi í Sinawik, sem er klúbbur eiginkvenna Kiwanismanna. Henni og öðrum aðstandendum Sigurdórs sendum við innilegar samúðarkveðjur. Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því, sem eilíft er. (Vald. Briem) Félagar í Kiwanisklúbbnum Eldborgu í Hafnarfirði MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 29 Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa, og langalangafa, SIGURGEIRS MAGNÚSSONAR húsgagnasmiðs. Sérstakar þakkir til deildar 2B á Hrafnistu í Hafnar- firði fyrir góða umönnun og yndislegt viðmót. Bára Sigurgeirsdóttir, Vagn Gunnarsson, Ægir Fr. Sigurgeirsson, Hrönn Sigurgeirsdóttir, Hrólfur S. Jóhannesson, Friðrik Sigurgeirsson, Hólmfríður Karlsdóttir, Þórdís Sigurgeirsdóttir, Eyjólfur Baldursson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls HANSÍNU EINARSDÓTTUR, Ísafirði. Einar Valur Kristjánsson, Guðrún Aspelund, Kristinn Þ. Kristjánsson, Berglind Óladóttir, Steinar Örn Kristjánsson, María Valsdóttir, Ólöf Jóna Kristjánsdóttir, Björgvin Hjörvarsson, Guðmundur A. Kristjánsson, Svanhildur Ósk Garðarsdóttir Birgir Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Einlægar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, NIKÓLÍNU KARLSDÓTTUR, Blómsturvöllum 39, Neskaupstað. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heimahjúkr- unar og Fjórðungssjúkrahúsins í Neskaupstað fyrir einstaka umönnun. Karl Birgir Júlíusson, Gerður María Gunnarsdóttir, Stefanía María Júlíusdóttir, Þórleifur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGVAR BJÖRNSSON, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður Nóatúni 30, lést miðvikudaginn 22. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Björn Ingvarsson, Erla Margrét Sverrisdóttir, Agnes Ingvarsdóttir, Eiríkur Már Pétursson, börn og barnabörn. ✝ Maðurinn minn, FRIÐGEIR KEMP, Hólavegi 20, Sauðárkróki, lést sunnudaginn 2. september. Jarðarförin auglýst síðar. Elsa Geirlaugsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.