Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30.
Vinnustofan opin kl. 9-16.30. Postu-
línsmálun kl. 9. Gönguhópur kl. 11.
Postulínsmálun kl. 13.
Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handavinna
kl. 8-16, smíði/útskurður kl. 9-16.30,
leikfimi kl. 9, Boccia kl. 9.45.
Bólstaðarhlíð 43 | Á morgun fimmtu-
dag 6. sept. byrjar myndlist kl. 9, kine-
sioligi/jógaleikfimi kl. 9 og bókband kl.
13. Uppl. í síma 535-2760. Hár-
greiðsla, böðun, almenn handavinna,
morgunkaffi/dagblöð, spiladagur-
brids/vist, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Opin handa-
vinnustofa kl. 13-16. Í félagsmiðstöð-
inni Norðurbrún 1 er spiluð félagsvist
miðvikudaga kl. 14. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan í Gullsmára 9 er opin mánu-
daga og miðvikudaga kl. 10-11.30. S.
554-1226. Skrifstofan í Gjábakka er
opin á miðvikudögum kl. 15-16. S. 554-
3438. Félagsvist er spiluð í Gullsmára
á mánudögum kl. 20.30, en í Gjábakka
á miðvikudögum kl. 13 og á föstudög-
um kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Kópavogi, ferða-
nefnd | Farið verður í berjaferð
fimmtudaginn 6. september. Brottför
frá Gullsmára kl. 13 og Gjábakka kl.
13.15. Leitað verður berja í Hvalfirði og
nágr. Eigið nesti. Verði veður óhag-
stætt til berjatínslu verður farið í
óvissuferð „út í bláinn“. Skráning í fé-
lagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði,
Stangarhyl 4, kl. 10. Dagsferð 8. sept.
Grillveisla í Goðalandi, farþegar sæki
farmiðann sem fyrst, s. 588-2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl.
9.30. Handavinnustofan opin, leið-
beinandi við kl. 10-16. Félagsvist kl. 13.
Glerlist kl. 13. Söngur kl. 15.15, Guðrún
Lilja mætir með gítarinn. Heitt á könn-
unni til kl. 16. Bobb kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl.
9.05 myndlist. Kl. 10 ganga. Kl. 11.40
hádegisverður. Kl. 13 postulínsmálun
og kvennabrids.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Kvennaleikfimi í Kirkjuhvoli kl. 9, 9.50
og 10.45. Brids í Garðabergi, heitt á
könnunni, skráning í félagsstarfið, opið
kl. 12.30-16.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10 dansæfing í
samstarfi við FÁÍA, undirbúningur fyrir
sýningu með gestum frá Reykjanesbæ
á Breiðholtsdegi 7. sept., nánar kynnt í
fjölmiðlum. Spilasalur opinn frá há-
degi. Uppl. á staðnum og s. 575-7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9-16.30 handa-
vinna. Kl. 9-12 útskurður. Kl. 11-12
ganga. Kl. 12-12.30 hádegismatur. Kl.
13-16.30 brids. Kl. 15-15.30 kaffi.
Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnuð kl.
9. Píla kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa
hjá Sigrúnu kl. 9-16. Jóga kl. 9-12, Sól-
ey Erla. Samverustund hefst kl. 10.30
með lestri nýrrar bókar. Kynning á
vetrarstarfinu kl. 13.30, kaffi og með-
læti, Heiða Baldvinsdóttir mætir með
gítarinn og leiðir söng. Allir velkomnir.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni kl.
10.30. Leikfimi f.byrjendur kl. 10.30.
Leikfimi í salnum kl. 11. Verslunarferð í
Bónus kl. 12. Handverks- og bókastofa
kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Opin handavinnustofa
kl. 9-12, opin smíðastofa kl. 9-16.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla/
fótaaðgerðir. Kl 9-12 aðstoð v/böðun.
Kl. 9.15-16 handavinna. Kl. 10-12
spænska – byrjendur. Kl. 10-12 sund.
Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl.
12.15-14 verslunarferð í Bónus. Kl. 13-
16 tréskurður. Kl. 14.30-15.45 kaffiveit-
ingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.30, handavinna kl. 9-16.30, morg-
unstund kl. 10, verslunarferð kl. 12.30,
upplestur kl. 12.30, bókband kl. 13,
söngur og dans kl. 14. Félagsmiðstöðin
er opin öllum aldurshópum. Uppl. í
síma 411-9450.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund í há-
deginu í dag. Söngur, hugleiðing, fyr-
irbænir. Súpa og brauð gegn vægu
gjaldi. Opið hús fyrir eldri borgara í
safnaðarheimilinu í dag kl. 13-16.
Dægrastytting, föndur, spil, fræðsla
og ferðalög. Umsjón hafa Vilborg
Edda og Margrét Snorradóttir, öldr-
unarfulltrúar Árbæjarkirkju.
Áskirkja | Velkomin í samverustund:
Hreyfing og bæn kl. 11 í umsjá Mar-
grétar djákna.
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn
er í Holtakoti kl. 10-12. Sr. Hans Guð-
berg Alfreðsson kemur og kynnir
barnastarf kirkjunnar. Foreldrar ungra
barna á Álftanesi eru velkomnir. Opið
hús eldri borgara er í Litlakoti kl. 13-16.
Eldri borgarar eru velkomnir. Kaffi og
meðlæti.
Dómkirkjan | Hádegisbænastund kl.
12.10-12.30. Léttur hádegisverður á
kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum má
koma á framfæri í s. 520-9700 eða
með tölvupósti til domkirkj-
an@domkirkjan.is. Allir velkomnir.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Á miðvikudögum kl. 11, súpa og brauð
á eftir.
Hæðargarður 31 | Allir velkomnir.
Skrautskrift, ættfræði, bókmenntir,
magadans, glerlist o.fl. Janus F. Guð-
laugsson íþróttafr. flytur erindi um lík-
amsrækt og vöðvauppbygginu nk.
föstudag kl. 14.30, 50 ára +. Komdu
við. S. 568-3132.
Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut
58-60. Samkoma í kvöld kl. 20. Fagn-
aðarsamkoma: Kristín Bjarnadóttir og
Kjellrun Langdal og Skúli Svavarsson.
Kaffi eftir samkomuna. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 10 for-
eldramorgunn. Kl. 10.30 gönguhóp-
urinn Sólarmegin. Öllum velkomið að
slást í för. Kl. 14.30 Kirkjuprakkarar
(1.-4. bekkur) Athugið að TTT-
hópurinn, harðjaxlahópurinn fyrir 7.
bekk, unglingakvöld fyrir 8. bekk og
Adrenalín gegn rasisma fyrir 9. og 10.
bekk verða auglýst fljótlega.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15.
Prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson.
Beðið fyrir sjúkum og hverjum þeim
sem þarf á fyrirbæn að halda og getur
fólk komið óskum þar um til prest-
anna. Einnig er altarisganga.
Vídalínskirkja Garðasókn | For-
eldramorgunn í dag kl. 10-12.30. Fyr-
irlestur mánaðarlega, kynnt sér-
staklega. Gott tækifæri fyrir mömmur
og börn að hittast og kynnast. Allir
velkomnir, pabbar og mömmur, afar og
ömmur. Heitt á könnunni.
90ára afmæli. Í dag, 5. september,er níræð Guðrún Magnúsdóttir
frá Langabotni í Arnarfirði, nú til
heimilis á Hrafnistu í Reykjavík. Hún
er að heiman í dag.
70ára afmæli. Hinn 11. septembernæstkomandi verður Jónas A.
Pálsson frá Hróarsdal sjötugur. Af því
tilefni ætlar hann að blása til afmæl-
isfagnaðar laugardaginn 8. september á
heimili sínu, Túngötu 16, Álftanesi, kl.
16. Hann vonast til að sem flestir ætt-
ingjar, sem og gamlir og nýir vinir, sjái
sér fært að samgleðjast honum á þess-
um tímamótum og þiggja veitingar. Vin-
samlegast komið klædd eftir veðri.
70ára afmæli. Sjötugur er í dag, 5.september, Þórður B. Sigurðs-
son, Kríuhólum 2, Rvk, fyrrverandi
yfirvélstjóri hjá Landhelgisgæslunni.
Hann verður ásamt konu sinni, Rósu
Ísaksdóttur, á Spáni á afmælisdaginn.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 5. september, 248. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Jesús sagði við hann: Far þú, trú þín hefur bjargað þér. Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferð-
inni. (Mark. 10,52.)
Maryam Namazie er ír-anskur mannréttinda-frömuður, húmanistiog fyrirlesari. Hún er
komin hingað til lands í boði Sið-
menntar – félags siðrænna húm-
anista, Skeptíkusar – félags trú-
lausra stúdenta,
Kvenréttindafélags Íslands og Al-
þjóðamálastofnunar Háskóla Ís-
lands.
Hope Knútsson er formaður Sið-
menntar, og segir mikinn feng að
komu Maryam hingað til lands:
„Maryam er stofnandi félagsskap-
arins Ráðs fyrrverandi múslíma á
Bretlandi, hóps einstaklinga sem
sagt hafa skilið við íslam. Markmið
hennar með framtakinu er að vekja
athygli á því að samkvæmt bókstaf
íslamstrúar varðar það við dauða-
refsingu að yfirgefa trúna, og stuðla
að framförum innan íslams,“ út-
skýrir Hope. „Maryam er einnig
mikill kvenréttindafrömuður, eft-
irsóttur álitsgjafi um Íran, Miðaust-
urlönd, trúarbrögð og stjórnmál í
hinum íslamska heimi.“
Maryam flytur fyrri fyrirlestur
sinn í dag, miðvikudaginn 5. sept-
ember kl. 12 til 13 á Hallveig-
arstöðum: „Yfirskrift fyrirlestr-
arins útleggst á íslensku Réttindi
kvenna, blæjan og íslamskt yf-
irvald. Þar ræðir hún um eigin
reynslu og þær áskoranir sem mæta
konum í hinum íslamska heimi, og
beinir sjónum sínum sérstaklega að
hlutverki blæjunnar sem hún vill
meina að sé ekki valfrjáls klæðn-
aður kvenna eins og margir vilja
halda fram,“ segir Hope.
Fimmtudaginn 6. september flyt-
ur Maryam fyrirlestur í stofu 101 í
Odda kl. 12.15 til 13:15 undir yf-
irskriftinni Afneitun trúarinnar,
fyrrverandi múslimar og áskoranir
pólitísks íslams. „Meðal umfjöll-
unarefna fyrirlestrarins er fjöl-
menning, og algild mannréttindi.
Maryam gagnrýnir meðal annars
þau sjónarmið að fjölmenning kalli
á að öll sjónarmið séu talin jafn-
rétthá, en að hennar mati verður að
taka raunhæfa afstöðu til þess að
margar þær skoðanir sem fylgja
m.a. íslömskum áhrifum eru bæði
rangar og hættulegar og eiga ekki
að vera umbornar í nafni fordóma-
leysis og fjölmenningar.“
Finna má nánari upplýsingar á
www.sidmennt.is.
Mannréttindi | Maryam Namazie með fyrirlestra miðviku- og fimmtudag
Íslam og mannréttindi
Hope Knútsson
fæddist í New
York borg 1943.
Hún lauk bache-
lorsgráðu í sál-
arfræði og heim-
speki frá City
University of
New York og
mastersgráðu í
iðjuþjálfun frá Columbia Univers-
ity. Hope var m.a. formaður Geð-
hjálpar um 5 ára skeið, stofnandi og
formaður Félags nýrra Íslendinga,
Fjölmenningarráðs og var formað-
ur Iðjuþjálfafélags Íslands í 22 ár.
Hún var einn af stofnendum Sið-
menntar, og hefur verið formaður
félagsins í rúman áratug. Hope er
gift Einari Knútssyni flugv. og eiga
þau börnin Tryggva og Kötlu.
Tónlist
DOMO Bar | Jazzklúbburinn Múlinn býður
upp á söngvaskáldakvöld með ungum og
upprennandi lagahöfundum ásamt tón-
leikum með Straight Ahead Quartet með
gítarsnillingunum Jóni Páli Bjarnasyni og
Andrési Þór Gunnlaugssyni í fararbroddi.
Söngvaskáldakvöld hefst kl. 20.30 og jazz-
tónleikar kl. 22. Aðgangseyrir 1.000 kr.
Fyrirlestrar og fundir
Krabbameinsfélagið | Skógarhlíð 8 í
Reykjavík. Góðir hálsar, stuðningshópur
um krabbamein í blöðruhálskirtli, verður
með rabbfund í dag kl. 17. Kaffi á könnunni.
Norræna húsið | Auðlindir og umhverfi. Í
dag kl. 10-12 flytur Andrew Campbell, for-
stjóri ástralska ráðgjafarfyrirtækisins
Triple Helix Consulting sem starfar á sviði
sjálfbærni, erindið „Landnytjar og fjárfest-
ingar hins opinbera í vísindum“. Kl. 12.15-13
flytur dr. Ian Hannam, sem kemur frá Uni-
versity of New England og starfar fyrir
Australian Centre for Agriculture and Law,
erindið „The Natural Heritage Trust of
Australia Legislation: Integrated Environ-
mental Law Implementation in Australia“.
Allir velkomnir.
OA-samtökin | Gula húsið, Tjarnargötu 20,
Reykjavík. OA-fundur alla miðvikudaga kl.
20.15-21.15. Tekið er á móti nýliðum kl.
19.45. Allir velkomnir, það má koma of
seint.
Fréttir og tilkynningar
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun á miðvikudögum kl. 14-17
Tekið við hreinum fatnaði og öðrum varn-
ingi þriðjudaga kl. 10-15. Sími 551-4349.
Netfang: maedur@simnet.is
Frístundir og námskeið
Vinahópur | Brids á Hótel Sögu í hliðarsal
frá kl. 13 í dag. Allir velkomnir.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborg-
arsvæðinu | Félagsvist í kvöld í Hátúni 12.
Allir velkomnir.
Forvarnaáætlanir – Verkefnisstjórnun
Nám í Forvarnaskólanum er að hefjast
Eftirfarandi er m.a. tekið fyrir í Forvarnaskólanum:
• Ýmis samfélagsleg og pólitísk álitamál sem varða forvarnir.
• Kenningar um lýðheilsu og skilgreiningar á forvörnum.
• Lög og reglur sem afmarka forvarnir.
• Grundvallaratriði varðandi rannsóknir í áfengis- og vímuefnamálum og
forvörnum.
• Mat á árangri forvarna.
• Kenningar og rannsóknir á áhættuhegðun ungmenna.
• Líffræðileg verkun og lyfjaáhrif, áhrif vímuefnaneyslu á heilsu fólks og
hegðun.
• Íhlutunar- og meðferðarúrræði á Íslandi, einkum fyrir ungt fólk.
• Lögð er áhersla á að nemendur geti að náminu loknu sett upp
og verkstýrt forvarnaáætlunum.
Sjá nánar á
www.forvarnir.is
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá:
Ráðgjafarskóli Íslands, pósthólf 943, 121 Reykjavík,
netfang: stefanjo@xnet.is – Sími 553 8800 – Fax 553 8802
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Íbúasam-
tökum Laugardals:
„Íbúasamtök Laugardals mótmæla
harðlega tillögu að breytingu á deili-
skipulagi fyrir Laugardal austur
vegna lóðar merktrar Holtavegur
29b, skv. vefsíðu Skipulags og bygg-
ingarsviðs dags. 21. júní, 2007. Tillag-
an felur í sér byggingu 2ja hæða fjöl-
býlishúss á mikilvægu útivistarsvæði.
Svæðið sem um ræðir er við túnfótinn
á Langholtsskóla og mun byggingin
skerða mjög framtíðarmöguleika
skólans til útikennslu. leikja og nýt-
ingar skólagarða.
Athygli skal vakin á því að Laug-
ardalurinn er bæði borgargarður og
hverfisgarður og hafa íbúar við Laug-
ardal og aðrir borgarbúar notað
svæðið til margs konar útivistar,
leikja og samkomuhalds. Heildar-
skipulag fyrir dalinn skortir og á und-
anförnum árum hefur æ stærri hluti
dalsins verið settur bak við girðingar
eða lagður undir steypu. Í dag eru að-
eins eftir um 10–15% af grænum, opn-
um og gjaldfrjálsum svæðum fyrir al-
menning en aðgengi að slíkum
svæðum telst til grundvallarlífsgæða
og stuðlar að alhliða heilbrigði íbúa í
hverfinu og borgarbúa allra.
Nú í haust er fyrirhugað íbúaþing
um framtíð Laugardals. Blikur eru á
lofti varðandi framtíð Laugardalsins
sem sameiginlegs garðs allra borgar-
búa. Víðs vegar um Laugardalinn eru
uppi hugmyndir um byggingu mann-
virkja. Staðreyndin er sú að íbúar
telja fyrir löngu nóg komið af steypu,
stáli og malbiki í dalnum sem upp-
haflega var ætlað það hlutverk að
vera opið grænt íþrótta- og útivist-
arsvæði. Í öllum skipulags- og stefnu-
mótunarskjölum borgarinnar er mik-
ilvægi þess hlutverks hans ítrekað og
um það hefur ríkt mikil sátt. Þess ut-
an má minna á undirskriftir um
34.000 borgarbúa sem fyrir nokkrum
árum mótmæltu þáverandi bygging-
aráformum í dalnum. Íbúasamtök
Laugardals telja fráleitt að ráðstafa
bútum úr dalnum áður en íbúaþingið
um framtíð dalsins fer fram.
Íbúasamtök Laugardals (ÍL) mót-
mæla þessari deiliskipulagsbreytingu
harðlega og skora á borgaryfirvöld að
verja Laugardalinn fyrir frekari
mannvirkjagerð.“
Vilja ekki
meiri stein-
steypu og
malbik
Fréttir
í tölvupósti