Morgunblaðið - 05.09.2007, Page 34

Morgunblaðið - 05.09.2007, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Börnin okkar eiga betra skilið JÆJA, nú er komið haust, skólinn er byrjaður og kennararnir gleðjast eins og svo oft áður yfir því að þeir eru taldir vera ein mikilvægasta stétt þjóðfélagsins. Í flestum fjölmiðlum birtast slík ummæli, sérlega þegar erfitt gengur að manna skólana. Og ráðamennirnir á Íslandi klóra sér á bak við eyrun og virðast ekki skilja hvernig stendur á því að of fáir sækja í uppeldisstörfin. Skoðum bara launaseðlana svona til gamans. Grunnskólakennari, 56 ára gamall með yfir 25 ára starfs- feril, fær fyrir 100% starf 247.810 kr. Eftir öll gjöld og skatta heldur hann eftir einungis 177.520 kr. Þetta þykir samt herramannskaup miðað við lús- arlaunin sem stuðningsfulltrúar, skólaliðar, starfsfólk á skóla- bókasöfnum og þeir sem vinna í frí- stundastarfinu fá. Til þess að kennslan geti farið fram með eðlilegum hætti eru marg- ir kennarar beðnir um að taka að sér yfirvinnu. Sumir eru fegnir því að fá tækifæri til að afla sér aukatekna. En kennarastarfið er slítandi og markar sín spor á efri árum og sumir vilja helst minnka við sig álagið en eru samt til í að „redda málunum“. Í sumum skólum verður að hafa hærri nemendatölu í bekkjunum, sumstaðar þarf að skera niður kennslu – og þá aðallega í verklegum greinum. Sumstaðar er ráðið ófag- lært fólk í kennslu. Hvar eru þá þessi háfleygu mark- mið um einstaklingsmiðað nám? Að allir eigi að fá kennslu við sitt hæfi? Allir ættu að sjá það að með vaxandi nemendafjölda í hverjum hópi fær hvert barn minni athygli og umönn- un. Einnig er sorglegt að vita að þau börn sem hafa sína hæfileika á verk- legu og listrænu sviði fá sífellt minna fyrir sinn snúð. Mörg börn með sér- þarfir fá ekki þann stuðning sem þau ættu að fá. Í fréttunum var sagt að skólastjórar hefðu neitað að taka börn með sérþarfir inn í sinn skóla. Hvers vegna skyldi það vera? Einn „erfiður“ nemandi getur nefnilega „rústað“ allri kennslunni ef ekkert úrræði er til staðar. Allir átta sig sennilega á því að þreyttur kennari sem vinnur miklu meira en fullt starf er ekki eins góður kennari og sá sem lætur 100% vinnu eða jafnvel hlutastarf duga og mætir hress í skólann. Allir foreldrar vita þetta: Þegar maður er útkeyrður af vinnuálagi þá er maður ekki skemmtilegasti félagi barnanna sinna. En verst af öllu er sú stað- reynd að þegar við kennarar förum í kjarabaráttu þá kemur það okkur í koll hvað við vorum fúsir við að bjarga skólastarfinu með því að taka að okkur yfirvinnu. Þá verða reikn- aðar út einhverjar meðaltekjur sem eru langt fyrir ofan það sem við fáum fyrir 100% vinnu. Þá nefnilega spyr almenningur: „Hvað eru kenn- ararnir að væla, þeir eru með svo góðar tekjur!“ Ég vil að yfirvinna kennara verði úr sögunni. Að kenn- arar geti lifað á sínu kaupi í 100% starfi, geti mætt glaðir og úthvíldir í vinnu til þess að taka á móti mátu- lega stórum hópi af börnum. Að það sé hægt að sinna hverju barni sem skyldi. Að við fáum nóg af stuðnings- aðilum með okkur í bekk sem geta sinnt nemendum með sérþarfir. Þá myndi ekki bitna á hinum börnunum hve mikinn tíma sum börn taka frá kennaranum. Okkar börn eiga betra skilið en það neyðarástand sem ríkir í mörg- um skólum hér á landi ár eftir ár. Úrsúla Jünemann, grunnskólakennari. Drykkja ALLIR eru agndofa og hræddir út af drykkjunni og dópinu í borginni og víðar. Fyrr á tímum voru dansstaðir opnaðir kl. 21 um helgar og barnum var lokað kl. 1. Að vísu var mikið um partý frá 18-20, síðan var skundað á skemmtistaðina til að vera ekki lok- aður úti, vegna örtraðar. Ástandið er orðið svo svakalegt vegna opnunar kráa til morguns, að ég sé ekki tilganginn nema að kráar- eigendur græða meira, illu heilli. Reynum að bjarga mannslífum og forðast limlestingar, lokum börum fyrr. Virðingarfyllst, Sigríður Björnsdóttir. Hjólreiðamenn af erlendu bergi brotnir hafa sett svip sinn á Ísland í sumar. Bráðum heilsar haust og vetur. „Nú fer hver að verða síðastur“, gætu ferðalangarnir sem hjóluðu eftir Vesturlandsveginum, á leið til Reykjavík- ur, hafa verið að hugsa. Morgunblaðið/Kristinn Ferðamönnum fækkar Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand MÉR LEIÐIST ER ÞAÐ? ÁÁ! ÞETTA VAR EKKI SKEMMTILEGT! ÞETTA VAR ÞAÐ EINA SEM MÉR DATT Í HUG KALLI, ÉG ÆTLA AÐ GEFA ÞÉR RÁÐ... BEETHOVEN HLAUT AÐ VERA EF ÞÚ HUGSAR BARA UM SJÁLFAN ÞIG ÞÁ VERÐUR ÞÚ ALDREI ÁNÆGÐUR... ÞÚ VERÐUR AÐ HUGSA UM AÐRA AÐRA? HVERJIR ERU ÞESSIR „AÐRIR“? UM HVERN Á ÉG EIGINLEGA AÐ HUGSA? Æ, NEI! LOFTÞRÝSTINGURINN Í HERBERGINU ER OF HÁR! LÍFFÆRIN Í KALVIN ERU Í MIKILLI HÆTTU. KALVIN GÆTI LENT Í ÞVÍ AÐ FALLA SAMAN ÉG VERÐ AÐ KOMAST ÚT HÉÐAN! ÞAÐ ER OF GOTT ANDRÚMSLOFT HÉRNA INNI! KALVIN, VIÐ GETUM EKKI ALLTAF FARIÐ Á SKYNDIBITASTAÐI! FÓLK SEGIR AÐ ÞAÐ SÉ EKKI HÆGT AÐ KENNA GÖMLUM HUNDI AÐ SITJA ÞESS VEGNA PASSAÐI ÉG MIG Á ÞVÍ AÐ KENNA SNATA NÓGU MIKIÐ ÞEGAR HANN VAR HVOLPUR HVAÐ ERUM VIÐ AÐ GERA VITLAUST? ÉG SKIL EKKI ALVEG AF HVERJU RÚNSTYKKIN VERÐA ALLTAF SVONA FLÖT ÞAÐ ER MIKIÐ VESEN AÐ UNDIRBÚA ÞETTA BOÐ SAMT EKKI EINS SLÆMT OG Í FYRRA ÞEGAR MAÐUR HEFUR GERT ÞETTA ÁÐUR ÞÁ LÆRIR MAÐUR ÝMIS BRÖGÐ... EINS OG HVAÐ? FÁ HJÁLP! ÉG ER BÚIN AÐ FÆGJA SILFRIÐ... HVAÐ VILTU AÐ ÉG GERI NÆST? VILJIÐ ÞIÐ HETJURNAR EKKI AÐ ÉG TAKI MYND AF YKKUR MEÐ LEIKKONUNNI HVAÐ GET ÉG GERT? ÞAÐ VORU PETER OG TED CHAMBERS SEM BJÖRGUÐU MÉR EN EKKI ROD RAYMOND EN EF ÉG SEGI AÐ ROD SÉ LYGARI... ÞÁ FINNUR HANN BARA NÝJA LEIKKONU TIL AÐ LEIKA Á MÓTI SÉR Í MYNDINNI dagbók|velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. TRÖNUHRAUN – HAFNARFIRÐI AÐEINS TVÆR ÍBÚÐIR EFTIR Snyrtilega innréttaðar 2ja herbergja ósamþykktar íbúðir á 2 hæð- um við Trönuhraun í Hfj. Íbúðir eru 40,7 & 47,4 fm og eru opið rými með eldhúsinnréttingu í enda rýmis, baðherbergi með sturtu, tengi fyrir þvotttavél, innrétting í kringum vask, svefnherbergi með glugga á efri hæð. Vandaður frágangur á öllu. Tilvalið sem fyrstu kaup, mögulegt að fá fjármögnun allt að 9,5 millj. Verð 11,7-12,7 millj. Uppl. veitir Sveinn Eyland sölumaður Fasteign.is í gsm: 6-900-820

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.