Morgunblaðið - 05.09.2007, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 37
Það er íslenskt mannlíf í sinnifjölbreyttustu mynd sem ber
fyrir augu á ljósmyndasýningunni
„Augnagaman“ í sýningarsal
Orkuveitunnar en hann ber heitið
100°. Þar sýnir nú ljósmyndarinn
og blaðamaðurinn Mats Wibe
Lund, í tilefni þess að 70 ár eru
liðin frá fæðingu hans í Noregi.
Óhætt er að segja að Mats hafi
lagt sitt af mörkum til íslenskrar
menningarsögu síðan hann kom
fyrst hingað til lands á 6. áratugn-
um og einkum þó eftir að hann
settist hér að.
Mats hefur unnið markvisst aðþví að skrásetja í mynd –
einkum úr lofti – þéttbýlisstaði,
bújarðir og eyðibýli á Íslandi en
myndirnar eru aðgengilegar á
www.mats.is. Hann hefur því
ferðast geysivíða á Íslandi og
kynnst mörgum.
Myndirnar sem eru til sýnis nú
tók Mats á ferðalögum um landið
en margar þeirra hafa áður birst
sem landkynningarefni í tímarit-
um og blöðum, aðallega erlendis.
Myndirnar eru úrval verka fráHasselblad-tímabili ljós-
myndarans (þ.e. þær eru teknar á
Hasselblad-myndavél sem skýrir
ferningslögun þeirra) á árunum
1956-1974. Þær fela í sér merki-
lega og skemmtilega heimild um
íslenskt samfélag á þessum tíma
og endurspegla næmt auga og
hlýju í garð fólksins (og dýralífs)
sem er glaðlegt og athafnasamt:
heyskapur, sjómennska, vega-
vinna, sólböð, flug, síldarvinnsla,
sundferðir og samkomur af ýmsu
tagi eru meðal þess sem ungir sem
aldnir ástunda, vítt og breitt um
landið.
Lestur ljósmynda getur falið ísér ákveðna „stúdíu“ með til-
liti til þeirra upplýsinga sem þær
veita um sögu og stað, tísku eða
tíðaranda. Hluti af ánægjunni, sem
skoðun mynda Mats veitir, felst
einmitt í slíkum lestri og er ekki
laust við að nostalgían svífi þar yf-
ir vötnum – enda eru þær vitn-
isburður um liðna tíð.
Það er því vel til fundið hjáMats að fá rithöfundinn Sjón
til samstarfs við sig, en Sjón legg-
ur hverri mynd til stuttan sýning-
artexta sem sprottinn er af
„lestri“ hans á myndunum. Text-
arnir birta næma og hug-
myndaríka innsýn, þar tvinnast
saman íhugun og ímyndun. Mynd-
in „Menntskælingar“ (1964) verður
t.d. kveikja frásagnar af blekbletti
(eftir próftöku) á hanskaklæddum
fingri. Samkvæmt texta Sjóns til-
heyra drengirnir á hafnarbakk-
anum á myndinni „Strákar –
Reykjavíkurhöfn“ (1966) veiði-
félaginu „Ufsabönum“. Tvíræðni
textanna ýtir undir ímyndunarafl
sýningargesta: er þetta sannleikur
(sem skáldið þekkir af eigin raun)
eða tilbúningur?
Merkingarvíddin sem textarnirfela í sér er þannig oft
skáldleg – eða í formi skemmti-
legra eftirþanka eða athugasemda
á borð við „Austræn áhrif í
Reykjavík. Enginn varð samur.
Hvorki í sinni né í baki“, en sá
texti fylgir „Heilsuræktinni“
(1972) þar sem konur sjást standa
á haus. Sjón rifjar líka upp gamla
siði: vegagerðarmenn fengu „kaffi
og franskbrauð með kindakæfu“ í
kaffitímanum – hvað annað?
Hér er um sannkallað „augna-gaman“ að ræða – sem einn-
ig vekur til umhugsunar. Sýningin
stendur til 7. september.
Mynd og texti
» Sjón rifjar líka uppgamla siði: vegagerð-
armenn fengu „kaffi og
franskbrauð með kinda-
kæfu“ í kaffitímanum –
hvað annað?
Hvalfjörður „Mats hefur unnið markvisst að því skrásetja í mynd – einkum
úr lofti – þéttbýlisstaði, bújarðir og eyðibýli á Íslandi.“
annajoa@simnet.is
AF LISTUM
Anna Jóa
EDDIE Edwards, eða Eddie the
Eagle eins og flestir Bretar kalla
hann, var fyrsti breski skíðastökkv-
arinn sem keppti fyrir hönd Bret-
lands á Ólympíuleikunum. Þetta var
árið 1988 og skortur á skíðabrekkum
í Bretlandi til að æfa sig í var ekki
eina hindrunin, öllu verra var loft-
hræðsla Eddies sem og nærsýni hans
sem þýddi að hann þurfti ávallt að
nota gleraugu sem iðulega fylltust
móðu þegar á keppni stóð. En þrátt
fyrir að stökkva styst allra vann hann
hug og hjörtu almennings sem varð
kveikjan af skammlífum tónlistarferli
(en hann gaf út lagið „Fly Eddie Fly“
og söng einnig finnska útgáfu lagsins
sjálfur, „Mun nimeni on Eetu“) og
núna er bíómyndin væntanleg en þar
mun Steve Coogan leika örninn Ed-
die. Eddie er nokkuð sáttur við leik-
aravalið en hafði þó reiknað með því
þegar kvikmyndarétturinn var seldur
að Tom Cruise eða Brad Pitt yrðu
ráðnir til verksins.
Lofthræddi
skíða-
stökkvarinn
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Ást? Steve Coogan og Jackie Chan
ásamt óþekktri stúlku á góðri stund.
MEGAS treður upp í Laugardals-
höllinni hinn 13. október næstkom-
andi ásamt hljómsveitinni Senuþjóf-
unum.
Frá og með deginum í dag geta
áhugasamir fjárfest í miða á herleg-
heitin en ekki er ólíklegt að margir
láti til leiðast þar sem plata Megasar
og félaga, Frágangur, er ein sú vin-
sælasta hér á landi um þessar mund-
ir.
Boðið verður upp á númeruð sæti
í Höllinni og miðafjöldi er takmark-
aður við 2.500 stykki.
Tónleikahaldarar fullyrða að
Megas muni flytja nýtt efni í bland
við gamalt á tónleikunum og því er á
ferðinni viðburður sem enginn aðdá-
andi Megasar ætti að láta framhjá
sér fara.
Megas í
Höllinni
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Tónleikar Megas og Senuþjófarnir
á Miklatúni á Menningarnótt.
Forskot í fasteignaleitinni
Fasteignavefurinn
Óvitar! Frábær fjölskyldusýning. Forsala hafin!
Frumsýning 15. september kl. 20. UPPSELT
Áskriftarkortasala hafin!
Vertu með!
Sunnud. 16/9 kl. 20 UPPSELT
Fimmtud. 20/9 kl. 20 örfá sæti
Föstud. 21/9 kl. 20 UPPSELT
Laugard. 22/9 kl. 20 örfá sæti
Fimmtud. 27/9 kl. 20 örfá sæti
Föstud. 28/9 kl. 20 sala hafin
Laugard. 29/9 kl. 20 sala hafin
Fimmtud. 4/10 kl. 20 sala hafin
www.leikfelag.is
4 600 200
LÍK Í ÓSKILUM
Í kvöld kl. 20 upps. Lau 8/9 kl. 20 upps.
Sun 9/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20
LADDI 6-TUGUR
Fim 6/9 kl. 20 upps. Fös 7/9 kl. 20 upps.
Sun 16/9 kl. 20 Fim 20/9 kl. 20
SÖNGLEIKURINN ÁST
Fös 7/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20
Lau 15/9 kl. 20 Fim 20/9 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Mið 12/9 kl. 20 Mið 19/9 kl. 20
Mið 26/9 kl. 20
SÖNGLEIKURINN GRETTIR
Sun 9/9 kl. 20 Lau 15/9 kl. 20
Lau 22/9 kl. 20
KILLER JOE
Fim 6/9 kl. 20 Fim 13/9 kl. 20
DAGUR VONAR
Fim 13/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20
HAUSTSÝNING Íd
Sun 9/9 kl. 20 Sun 16/9 kl. 20
POUL KREBS
Tónleikar fim 13/9 kl. 21 Miðaverð 3.200
HÖRÐUR TORFA
Tónleikar fös 14/9 kl. 19:30 og 22:00
Miðasala 568 8000 - borgarleikhus.is
Sinfóníudagurinn
Vorblót að hausti
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur nýtt
starfsár með sérlega glæsilegum upphafs-
tónleikum. Á efnisskránni eru flunkuný
Mozart-hylling Atla Heimis Sveins-
sonar, fiðlukonsert eftir Mozart sjálfan,
þar sem einleikarinn snjalli, Ari Þór
Vilhjálmsson, sýnir kúnstir sínar og loks sjálft Vorblótið
eftir Stravinskíj, sem með sanni má telja áhrifamesta
tónverk 20. aldarinnar.
FIMMTUDAGINN 6. SEPTEMBER KL. 19.30
upphafstónleikar í háskólabíói
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Ari Þór Vilhjálmsson
Atli Heimir Sveinsson ::: Alla turca o.s.frv...
Wolfgang Amadeus Mozart ::: Fiðlukonsert nr. 3
Ígor Stravinskíj ::: Vorblót
545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Hljómsveitarmeðlimir
kynna hljóðfæri sín
og spjalla við gesti,
trúðurinn Barbara leiðir fólk
um svæðið og „vitringarnir þrír“ veita
ráðgjöf um áskriftaleiðir. Dagskránni
lýkur með stuttum, aðgengilegum
tónleikum fyrir alla fjölskylduna.
Tveir heppnir gestir vinna áskrift
að tónleikum Sinfóníunnar
í vetur.
Fyrsti konsert er frír
Skráning og upplýsingar á www.sinfonia.is
VIÐ BJÓÐUM ALLA, UNGA SEM
ALDNA, VELKOMNA Í HÁSKÓLABÍÓ
LAUGARDAGINN 8. SEPTEMBER
KL. 13.00. AÐGANGUR ÓKEYPIS.
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
www.heimili.is
Vesturberg
Endaraðhús - Auðveld kaup
Gott 130 fm endaraðhús og sérstandandi 30 fm bílskúr. Húsið er á einni
hæð og í því eru þrjú svefnherb., Afgirtur bakgarður í suður og hellulögð
verönd. Nýlegt glæsilegt eldhús með vandaðri innréttingu og innbyggð-
um góðum tækjum. Áhvílandi rúmlega 21 m. á 4,15%. V. 33,9 m.
Nánari upplýsingar veitir Bogi Molby Pétursson fasteignasali.