Morgunblaðið - 05.09.2007, Page 44
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 248. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Hveitiverð hækkar
Heimsmarkaðsverð hveitis hefur
hækkað um 60% síðan í maí, þar af
um 30% í ágústmánuði einum. Þetta
er mesta hækkun á heimsmark-
aðsverði í 30 ár. Helsta ástæða
hækkana er uppskerubrestur sem
kemur til af annars vegar miklum
þurrkum og hins vegar flóðum.
Þetta mun hafa áhrif til hækkunar á
öllu því sem framleitt er úr hveiti,
s.s. brauðmeti, kökum og kexi.
»Forsíða
250 milljónir í framboð
Kostnaður vegna framboðs Ís-
lands til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna fer líklega í um 320 millj-
ónir áður en yfir lýkur. Kostnaður-
inn nemur nú um 250 milljónum
króna. »Forsíða
Samdráttur í sementi
Verulegur samdráttur hefur orðið
á sementsmarkaði milli ára. Fram-
kvæmdastjóri BM Vallár gerir
þannig ráð fyrir 20% samdrætti milli
ára. Segir hann ljóst að þensla und-
anfarinna ára sé á undanhaldi. » 2
Mennirnir á launaskrá
Ekki kom til þess að Vinnu-
málastofnun stöðvaði starfsemi
tveggja undirverktaka Arnarfells,
fyrirtækjanna Hunnebek Polska og
GT verktaka. Stofnunin yfirfer nú
gögn frá Hunnebek um 30 starfs-
manna þeirra við Hraunveitu. » 6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Umræða um tekjumun
Forystugreinar: Rekstrarform
Orkuveitunnar | Ógnin að innan
Ljósvakinn: Skemmtileg mannamót
UMRÆÐAN»
Kaldar staðreyndir um
miðborg Reykjavíkur
Gammar nútímans
Tungumál og menning Risessunnar
3
3 3
3
3
3
4
#
!5' .
+ !
6
"1 #.
3 3 3
3 -
7%1 '
3
3
3
3 3
3 89::;<=
'>?<:=@6'AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@'77<D@;
@9<'77<D@;
'E@'77<D@;
'2=''@"F<;@7=
G;A;@'7>G?@
'8<
?2<;
6?@6='2+'=>;:;
Heitast 15 °C | Kaldast 8 °C
Vestlæg átt, 3-10
m/s, nokkuð bjart veð-
ur en stöku skúrir suð-
vestanlands og á Norð-
austurlandi. »10
Árni Matthíasson
skrifar um bók sem
fjallar um stór-
merkilegar skepnur
sem margir hafa
mikla óbeit á. »40
BÓKMENNTIR»
Áhugaverð-
ar rottur?
KVIKMYNDIR»
Nútíminn er trunta – og
frábær bíómynd. »39
Hinn eini sanni
Magnús Kjart-
ansson verður fyrsta
söngvaskáldið til að
koma fram á Domo í
vetur. »38
TÓNLIST»
Söngvaskáld
númer eitt
LEIKLIST»
Sigtryggur leysir Sigur-
jón af í rokkinu. »38
TÓNLIST»
Tónleikar til styrktar
Úlfi Chaka í Iðnó. »36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Dauðkveið fyrir að láta þukla …
2. Telur nauðgara stjórnlausan
3. Biskup segir nýja auglýsingu …
4. Óstundvísir Íslendingar spilltu …
FORELDRAR eru almennt stoltir af börnum
sínum og FH-ingurinn Leifur Helgason er eng-
in undantekning. Hann var hins vegar í óvenju-
legri stöðu á Laugardalsvellinum í fyrrakvöld,
þegar hann horfði á syni sína mætast í opinber-
um knattspyrnuleik í fyrsta sinn og leika um að
mæta uppeldisfélaginu FH í bikarúrslitum.
„Þetta var mjög sérstakt,“ segir Leifur og
bætir við að aldrei hafi vafist fyrir sér hvað
hann hugsaði þegar hann færi á völlinn fyrr en
nú. „En ég segi samt alltaf um syni mína að ég
vona að þeim gangi vel.“
Leifur lék með meistaraflokki FH 1971 til
1980, var lengi þjálfari og er nú ritari knatt-
spyrnudeildarinnar. Tveir yngri synir hans og
Sigrúnar Kristinsdóttur, Víðir 24 ára og Tómas
22 ára, fóru í gegnum alla yngri flokka FH, en
Helgi, sem er 30 ára, lætur sér nægja að fylgj-
ast með bræðrum sínum. Víðir var Íslands-
meistari með FH 2004, fór síðan til Fram og
þaðan til Fylkis. Tómas var lánaður til Fjölnis
fyrir tímabilið 2005, var aftur í herbúðum FH
árið eftir en gekk síðan til liðs við Fjölni fyrir
yfirstandandi tímabil. Hann hefur aldrei leikið í
efstu deild en eygir nú sæti þar með liði sínu og
er kominn í bikarúrslitin á móti FH eftir 2:1-
sigur Fjölnis á Fylki í undanúrslitum.
Synirnir voru í sviðsljósinu í undanúrslit-
unum og stóðu sig með prýði. Leifur bendir á
að sumarið í fyrra hafi farið í vaskinn hjá Tóm-
asi og hann hafi þurft að ná sínum vopnum.
„Hann gerði það mjög vel, reif sig áfram og var
góður allan leikinn.“ Hann var ekki síður kátur
með soninn í Fylki. „Víðir spilaði þennan leik
ágætlega. Hann hefur ekki verið mikill varn-
armaður hingað til en hefur spilað stöðu vinstri
bakvarðar mjög vel með Fylki í sumar.“
Leifur segir erfitt að fylgjast með öllum
leikjum FH, Fjölnis og Fylkis en hann geri sitt
besta. „Ég reyni að forðast það að gera upp á
milli barnanna minna,“ segir hann.
Óvenjuleg togstreita
Ritari FH horfði á syni sína í Fjölni og Fylki berjast um að fara í bikarúrslita-
leikinn á móti Íslandsmeisturunum Hefur aldrei haldið með mótherjum FH
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
LEIFUR Helgason hefur tengst FH sem Hafnfirð-
ingur, leikmaður, þjálfari og stjórnarmaður alla
tíð og nú vonar hann að hann geti fagnað tvöföld-
um sigri, Íslands- og bikarmeistaratitli, með liði
sínu. „Ég hef ekki upplifað það að halda með liðinu
sem spilar á móti FH,“ segir hann, en vonar samt
að sonurinn Tómas spili og standi sig vel með
Fjölni á móti FH í bikarúrslitaleiknum eftir mán-
uð. Synirnir búa í foreldrahúsum og segir Leifur
að þeir hafi óspart skotið hvor á annan fyrir
undanúrslitaleikinn í bikarnum en horft saman á
upptöku af leiknum þegar þeir komu heim. „Svo
fóru þeir saman í skólann,“ segir Leifur, en þeir
eru saman í sálfræði í Háskóla Íslands.
Samrýndir knattspyrnufeðgar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Alltaf í boltanum Leifur Helgason ásamt sonum sínum, Víði (til vinstri) og Tómasi (til hægri).
HÚSASMÍÐAMEISTARI sem skoðaði húsið
Hafnarstræti 98 á Akureyri í vikunni segir að
það sé í mjög góðu ástandi. „Það er gjörsamlega
heilt; ekki fúna spýtu að finna,“ sagði Hólm-
steinn Snædal við Morgunblaðið í gær og vísaði
því þar með á bug að húsið væri ónýtt, eins og
hann segir að haldið hafi verið fram.
Akureyrarbær hefur samþykkt að rífa húsið
og hefur heimilað nýbyggingu á lóðinni. Hólm-
steinn vann að endurbyggingu tveggja annarra
húsa við sömu götu, Parísar, þar sem eru nú veit-
ingastaðirnir Bláa kannan og Græni hatturinn
auk Blómabúðar Akureyrar, og Hamborgar, þar
sem er verslun 10/11, og segir að lítið mál yrði
að endurbyggja Hótel Akureyri ef áhugi væri á
því. Þjóðminjavörður sagði á dögunum að það
yrði stórslys í minjavörslu ef húsið yrði rifið. | 18
Hafnarstræti 98
í góðu ástandi Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
HLJÓMSVEITIN Sigur Rós mun spila á tónleikum sem
breska ríkisútvarpið BBC stendur fyrir og verða haldnir 24.
október nk. Tónleikarnir eru liður í því sem BBC kallar
Electric Proms og er árlegur viðburður sem miðar að því að
kynna sumar af bestu tónleikasveitum heims. Sigur Rós
mun spila órafmögnuð í Cecil Sharp House í Lundúnum og
strax í kjölfarið verður heimildarmyndin Heima frumsýnd í
Bretlandi. Hinn 5. nóvember verður myndin svo sýnd í
National Film Theatre og mun Sigur Rós einnig spila þar,
en tónleikarnir verða sýndir beint í tíu kvikmyndahúsum í
Bretlandi, á undan sýningum á Heima.
BBC mun nota bæði útvarpið, sjónvarpið og Netið til að
kynna og útvarpa tónleikunum 24. október, og því ljóst að
um er að ræða mjög mikla kynningu fyrir Sigur Rós.
Þess má loks geta að Heima verður heimsfrumsýnd á Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík 27. september.
Sigur Rós á tónleikum BBC
Morgunblaðið/Golli
Heimsfrægir? Sigur Rós á tónleikum.