Morgunblaðið - 11.09.2007, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viltu gerast ferðaráðgjafi?
Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn hér á landi sem býður upp á
alþjóðlegt nám frá IATA/UFTAA, sem eru alþjóðleg samtök flugfélaga
og ferðaskrifstofa, og útskrifar skólinn á hverju ári „ferðaráðgjafa“ til
starfa hjá flugfélögum, ferðaskrifstofum og við aðra ferðaþjónustu.
Með aukningu ferðamanna hefur þörfin eftir fólki með slíka menntun
aldrei verið meiri. Flestir, sem útskrifuðust í vor, fengu starf innan
ferðaþjónustunnar að loknu námi. www.menntun.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
HEILDARVELTA þinglýstra
kaupsamninga um fasteignir á land-
inu til 7. september var tæplega 321
milljarður króna en 269 milljarðar
allt árið í fyrra. Fjöldi kaupsamninga
var kominn í tæplega 10.500 um
helgina en var um 11.700 allt árið
2006.
Ýmsar ástæður
Haukur Ingibergsson, forstjóri
Fasteignamats ríkisins, segir að
margir þættir hafi áhrif á mikla fast-
eignasölu. Í því sambandi nefnir
hann til dæmis fólksfjölgun, mikla at-
vinnu, kaupmáttaraukningu, hag-
vöxt, bjartsýni og fjölbreytt framboð
húsnæðis. Þá segir hann að sumarfrí
geti dregið tímabundið úr gerð kaup-
samninga og hærri vextir hafi alltaf
áhrif í þá átt.
Á vef Fasteignamats ríkisins kem-
ur fram að 864 kaupsamningum um
fasteignir var þinglýst við sýslu-
mannsembættin á höfuðborgarsvæð-
inu í ágúst 2007. Heildarvelta þeirra
nam 25,3 milljörðum króna og með-
alupphæð á hvern kaupsamning var
29,3 milljónir króna. Kaupsamning-
um fækkaði um 13,5% og veltan
minnkaði um 20,4% miðað við júlí
2007. Kaupsamningum fjölgaði um
108,2% og veltan jókst um 110,2% í
ágúst samanborið við ágúst 2006.
Vakin er athygli á því að ekki sé
hægt að túlka meðalupphæð kaup-
samnings sem meðalverð eigna og
þar með sem vísbendingu um
verðþróun vegna þess að hver kaup-
samningur geti verið um fleiri en eina
eign auk þess sem eignir séu misstór-
ar, misgamlar og svo framvegis.
Fleiri löggiltir fasteignasalar
Samfara breyttum lögum 2004 hef-
ur löggiltum fasteignasölum fjölgað
um 20% og eru nú um 240 í Félagi
fasteignasala en hátt í 1.000 manns
starfa innan greinarinnar.
Ingibjörg Þórðardóttir, formaður
Félags fasteignasala, segir að æ fleiri
hafi sótt sér menntun á þessu sviði og
nú sé til dæmis boðið upp á tilskilið
nám við Háskóla Íslands og Háskól-
ann í Reykjavík. Lögin leggi líka þá
skyldu á þá, sem reki fasteignasölur,
að þeir eigi meira en 50% starfsem-
innar og það ýti á menn að afla sér til-
skilinnar menntunar. „Það er af hinu
góða að fólk með þekkingu og mennt-
un starfi við þetta fag,“ segir Ingi-
björg. Hún bætir við að í Noregi og
Svíþjóð séu löggiltir fasteignasalar
um 95% starfsliðsins í greininni en
hérlendis aðeins um 25%. Ástandið
sé þó að batna.
Of margir réttindalausir
Formaðurinn segir að lögum sam-
kvæmt eigi fasteignasali að standa að
skjalagerðinni og yfirfara hana.
Þannig sé að verki staðið hjá löggilt-
um fasteignasölum en sama sé ekki
upp á teningnum þar sem byggt sé á
sölumönnum án réttinda. Í þessu
sambandi nefnir hún til dæmis Re/
max-sölurnar og fleiri og bendir á að
þar séu kannski 15 til 20 löggiltir
fasteignasalar með samtals hátt í 200
starfsmenn. Á slíkum stöðum sé
hætta á að ráðgjöfin sé í molum og
þetta sé mikið vandamál, því neyt-
endur geri almennt ekki greinarmun
á þeim sem hafi sérfræðikunnáttu og
hinum sem hafi hana ekki. „Allt of
margir réttindalausir starfa við fast-
eignasölu og fasteignakaupandi á
rétt á að fá þá ráðgjöf sem hann þarf
allt ferlið frá fólki með nauðsynlega
kunnáttu,“ segir Ingibjörg.
Veltan um 52 milljörð-
um meiri en síðasta ár
Í HNOTSKURN
» Aukin umsvif á fast-eignamarkaði eru m.a.
rakin til fólksfjölgunar, kaup-
máttaraukningar, mikillar at-
vinnu og almennrar bjartsýni.
» Í Noregi og Svíþjóð eru95% þeirra, sem starfa við
fasteignasölu, löggiltir fast-
eignasalar en hér á landi að-
eins 25%. Ástandið er þó held-
ur að skána.
SÁLUMESSA til minningar um
Luciano Pavarotti var sungin í
Dómkirkju Krists konungs í Landa-
koti síðdegis í gær.
Ítalskir og íslenskir tónlistar-
menn fluttu tónlist úr ítölskum óp-
erum. Þeirra á meðal voru Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Pamela De Sensi,
Jóhann Friðgeir Valdimarsson og
Leone Tinganelli.
Italia Azzurra, félag Ítala á Ís-
landi, stóð á bak við tónleikana.
Fjölmargir vottuðu Luciano Pav-
arotti virðingu sína með því að rita
nafn sitt í sérstaka minningarbók,
sem lá frammi í Landakotskirkju
við athöfnina. Næstu daga verður
hægt að rita nafn sitt í minning-
arbókina í aðalræðisskrifstofu Ítal-
íu á Laugavegi 71. Morgunblaðið/Sverrir
Til minn-
ingar um
Pavarotti
JÓN Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair Group, sagði eftir fund með
flugmönnum í gær að hann ætti ekki
von á að það yrði frekari röskun á
áætlunum félagsins vegna deilu um
forgangsrétt flugmanna. „Menn
voru sammála um að finna lausn
frekar en að halda áfram að hnýta
þetta mál,“ sagði hann eftir fundinn.
Annar fundur er fyrirhugaður á
morgun. Jón Karl sagði ekki ómögu-
legt að reka félagið án þess að unnin
væri yfirvinna. Málið snerti bæði
skipulagsþætti sem og kjarasamn-
ingsatriði. „Við mönnum fyrirtækið
miðað við það að sinna þeim flug-
áætlunum sem liggja fyrir en þegar
breytingar verða, s.s. breytingar á
áætlunum, veikindi og fleira, þá get-
ur þurft að kalla inn varamenn,“
sagði hann.
Jóhannes Bjarni Guðmundsson,
formaður Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, FÍA, sagði, að stjórn-
endur Icelandair og FÍA væru sam-
mála um að niðurstaða yrði að fást í
deilu um hvort forgangsréttar-
ákvæði í samningi flugmanna næði
til leiguflugsverkefna dótturfyrir-
tækja Icelandair. Hann var bjart-
sýnn á framhaldið og taldi líklegt að
samkomulag næðist í þessari viku
sem gilti fram að næstu kjarasamn-
ingum. Jóhannes vonaðist til þess að
ekki yrði röskun á flugi en benti á að
ályktun FÍA um að flugmenn ynnu
ekki umfram vinnuskyldu væri í
fullu gildi.
Á ekki von á
frekari röskun
Tekið á málinu í næstu kjaraviðræðum
♦♦♦
DEILAN um þau
áform Banda-
ríkjastjórnar að
koma upp eld-
flaugavarna-
kerfum í Pól-
landi og
Tékklandi,
tengsl Atlants-
hafsbandalags-
ins við Rússland
og deilan um
framtíð Kosovo-héraðs verða efst
á baugi á ársfundi þingmanna-
samtaka NATO í Reykjavík 5.-9.
október.
Á meðal annarra mála sem rædd
verða á fundinum eru aðgerðir
NATO í Afganistan, breytingar á
skipulagi bandalagsins, tengslin
við samstarfsríki og lýðræð-
isþróunin í löndum við Svartahaf.
Um 340 þingmenn sitja fundinn
og alls er búist við hátt í þúsund
gestum í tengslum við hann. Á
meðal gestanna verða Jaap de
Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri
NATO, og Sali Berisha, forsætis-
ráðherra Albaníu. Sturla Böðv-
arsson, forseti Alþingis, og Geir H.
Haarde forsætisráðherra ávarpa
þingmennina á lokadegi fundarins.
Þetta er í fyrsta skipti sem árs-
fundur samtakanna er haldinn hér
á landi.
Ræða deilurnar
við Rússland
Jaap de Hoop
Scheffer
„ÞETTA er í fyrsta skipti sem
Eystri-Rangá fer yfir fimm þúsund
laxa, og í fyrsta skipti sem nokkur
laxveiðiá fer yfir þann múr,“ sagði
Einar Lúðvíksson, umsjónarmaður
Eystri-Rangár, við Morgunblaðið í
gærkvöldi. Áin gruggaðist í gær-
dag og veiddust 124 laxar – sem
varð til þess að fimm þúsund laxa
múrinn var brotinn.
Einar sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í ágústmánuði telja að áin
myndi ná fimm þúsund löxum en
markið hefur verið sett hærra eftir
góða veiði að undanförnu. „Mér
sýnist sem Eystri-Rangá fari í það
minnsta í sex þúsund laxa, og jafn-
vel meira.“
193 laxar á einum degi
Veiðitíminn var framlengdur um
tíu daga og verður veitt fram í
október. Einar segir að byrjun
veiðitímabilsins hafi verið erfið en í
kringum 20. júlí hafi laxinn farið að
flæða um ána. „Við eigum eftir að
veiða í um þrjátíu daga, en við
framlengdum vegna þess hversu
mikið er af laxi, auk þess sem mikil
eftirspurn er eftir veiðileyfum.“
Meðalveiði í Eystri-Rangá er um
2.400 laxar, þannig að veiðin hefur
þegar verið tvöfölduð á við með-
alár. Mest var veitt á einum degi í
síðustu viku, alls 193 laxar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Metveiði Tveir félagar hala inn
laxa í Eystri-Rangá.
Komin yfir
fimm þús-
und laxa
Nýtt Íslandsmet
sett í Eystri-Rangá