Morgunblaðið - 11.09.2007, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁVALLT er nóg af bílstjórum flutn-
ingabifreiða sem vanrækja skyldur
sínar, þegar kemur að því að festa
farm með lögboðnum hætti. Einn af
þeim var í umferðinni í gærmorgun
og eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd hefði hæglega getað farið
illa.
Morgunblaðið fékk Ágúst Mo-
gensen, forstöðumann Rannsókn-
arnefndar umferðarslysa, til að
benda á þá þætti, sem betur hefðu
mátt fara á palli bifreiðarinnar.
„Það sem maður rekur fyrst augun
í á þessari mynd er brettið sem
liggur á pallinum með farmi á. Ég
fæ ekki séð hvort farmurinn er fest-
ur við pallinn eða aðeins brettið en
vona að hann hafi verið vel festur,
annars hefði brettið hæglega getað
færst til. Í öðru lagi nær farmurinn
út fyrir pallinn og í þriðja lagi er
farmurinn bundinn en það ættu að
vera styttur þarna.“
Einnig bendir Ágúst á að af
myndinni að dæma virðist sem
farmurinn sé við það að detta af
pallinum. „Farmurinn hallast
ískyggilega mikið. Þetta er svolítið
skrítið því svo virðist sem nóg pláss
sé á pallinum. Ég skil ekki hvers
vegna brettið fær allt þetta pláss en
svo er hinu raðað saman. Þarna
hefði ég viljað hafa farminn inni á
pallinum og styttur til að gæta
hans.“
Í reglugerð um hleðslu, frágang
og merkingu farms segir m.a. að til
varnar hliðarskriði skuli vera stytt-
ur, annaðhvort utan með eða í
miðju, eða skjólborð sem skulu ná
a.m.k. hæð efri brúnar farms. Einn-
ig kemur þar fram að farminn skuli
skorða af tryggilega og festa við
ökutækið. Gengið skal frá farmi
þannig að ekki sé hætta á að hann
hreyfist eða falli af ökutækinu.
Morgunblaðið/Júlíus
Farmurinn hallast
ískyggilega mikið
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
HITAVEITA
Suðurnesja hefur
átt fund með
Skipulagsstofnun
þar sem kynnt
voru alls sex
svæði á Reykja-
nesskaga þar sem
HS fyrirhugar
borun rannsókn-
arholna. Svæðin
eru við Trölladyngju, Köldunámur,
Austurengjahver, Hveradali í Krísu-
vík, Sandfell og Eldvörp.
Afstaða til borunar tekin á
hverju svæði fyrir sig
Að sögn Stefáns Thors, skipulags-
stjóra ríkisins, varð niðurstaðan sú að
stofnunin mælti með að því að rann-
sóknarborun á öllum framangreind-
um borsvæðum yrði tilkynnt í einu
lagi til stofnunarinnar, sem tæki
ákvörðun um matsskyldu, en síðan
yrði tekin afstaða til borunar rann-
sóknarholu á hverju svæði fyrir sig.
Allar rannsóknarboranir eru til-
kynningarskyldar til Skipulagsstofn-
unar, sem metur á grundvelli um-
sagna frá lögboðnum umsagnar-
aðilum hvort borun eigi að vera háð
mati á umhverfisáhrifum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Skipulagsstofnun hafa verið tilkynnt-
ar rannsóknarholur á Reykjanes-
skaga við Trölladyngju, á Hellisheiði,
á Ölkelduhálsi, við Hverahlíð og á
Stóra-Skarðsmýrarfjalli, í Innstadal
og Fremstadal, í Köldukvíslarbotnum
og í Grændal. Auk þess hafa verið til-
kynntar alls fimm holur á Þeista-
reykjum, þar af tvær sem boraðar
hafa verið á borplani sem er fyrir en
var útvíkkað.
Úrskurðir féllu um rannsóknarbor-
anir í Grændal þar sem lagst var gegn
framkvæmdinni og um jarðhita-
nýtingu á Reykjanesi þar sem lagst
var gegn borun einnar holu af þrem-
ur.
9 holur taldar matsskyldar
Inntur eftir því hvaða rannsóknar-
holur hafi verið ákvarðaðar mats-
skyldar að undanförnu segir Stefán
það ekki hafa verið raunina með tvær
holur við Trölladyngju, sjö holur á
Hellisheiði, tvær holur á Ölkelduhálsi
og þrjár holur við Hverahlíð, tvær
holur í Köldukvíslarbotnum, auk
þeirra fimm holna sem boraðar hafa
verið á Þeistareykjum. Hins vegar
hafi tvær rannsóknarholur á Ölkeldu-
hálsi, ein í Innstadal, ein á Stóra-
Skarðsmýrarfjalli, tvær í Fremstadal
og þrjár á Reykjanesskaga verið tald-
ar matsskyldar.
Boranir tilkynnt-
ar allar í einu
Stefán Thors
Í HNOTSKURN
»Hitaveita Suðurnesja fyr-irhugar borun rannsókn-
arholna á sex svæðum á Reykja-
nesskaga.
»Skipulagsstofnun hefur óskaðeftir því að allar rannsókn-
arholur HS séu tilkynntar í einu
lagi til stofnunarinnar.
»Allar rannsóknarborholur erutilkynningarskyldar til Skipu-
lagsstofnunar, sem síðan metur
hvort þær séu matsskyldar.
Skipulagsstofnun fengið tilkynningu um
rannsóknarborholur á 11 svæðum
LÉTTABÁTUR varðskipsins Týs
dró í gær pólsku skútuna Syrenku til
lands í Keflavík en segl hennar rifn-
uðu og þar að auki bilaði vélin úti fyr-
ir Garðskaga klukkan rúmlega þrjú í
gær. Um borð voru níu manns og
voru þeir allir óhultir.
Svo heppilega vildi til að Týr var
staddur skammt undan þegar kallið
barst og tók aðeins um 20 mínútur
fyrir skipið að sigla að skútunni.
Þegar seglin rifnuðu var stíf suð-
vestanátt og mældist vindstyrkur
um 13 m/s í Garðskagavita.
Á leið til Vestmannaeyja
Skútan var dregin inn í Keflavík-
urhöfn og í gærkvöldi var áhöfnin
þegar byrjuð að kanna seglabúnað,
aðgæta varaseglið o.s.frv. Skútan
mun hafa verið á leiðinni til Vest-
mannaeyja þegar óhappið varð.
Seglin rifnuðu og
vélin gafst upp
Léttabátur Týs dró skútu til hafnar
ÚLFUR Chaka Karls-
son, tónlistar- og
myndlistarmaður, lést
á Landspítalanum
sunnudaginn 9. sept-
ember sl., 31 árs að
aldri. Hann hafði átt
við hvítblæði að stríða
mörg undanfarin ár en
banamein hans var
lungnabólga í kjölfar
erfiðrar aðgerðar sem
hann gekkst undir fyrr
á árinu. Foreldrar Úlfs
eru Anna Th. Rögn-
valdsdóttir og Charles Dalton. Eig-
inkona hans er Sigrún Hólmgeirs-
dóttir, en þau gengu í hjónaband sl.
fimmtudag, 6. september. Sama dag
voru fjölmennir tónleikar haldnir
honum til stuðnings í Iðnó þar sem
fjölmargir vinir hans komu fram.
Úlfur var m.a. í hljómsveitinni
Stjörnukisa sem vann Músíktilraun-
ir fyrir röskum áratug.
Hann var alla tíð mjög
virkur í íslensku tón-
listarlífi auk þess sem
hann vann að myndlist.
Úlfur útskrifaðist úr
Listaháskóla Íslands
árið 2003 og hélt á
skólaárum sínum þrjár
sýningar; einkasýning-
ar og samsýningar.
Hann stundaði nám í
Háskóla Íslands í jap-
anskri sögu og menn-
ingu árin 2004-2005.
Eftir það hélt hann í framhaldsnám í
myndlist í Center of Contemporary
Art, CCA, í Japan 2005-2006 og lauk
þaðan prófi. Auk tónlistar og mynd-
listar fékkst Úlfur Chaka við hönnun
og bókakápuskreytingar, en hann
hannaði m.a. sérstæða Lesbók fyrir
Morgunblaðið, helgaða myndlist, ár-
ið 2004.
Andlát
Úlfur Chaka Karlsson
FORNLEIFAFRÆÐINGAR sem
hafa unnið við rannsóknir á fyr-
irhuguðum virkjanasvæðum í neðri
hluta Þjórsár hafa fundið fjóra
landnámsskála. Rannsóknirnar eru
liður í mótvægisaðgerðum vegna
virkjanaframkvæmda.
Fjallað er um fornleifafundinn á
vef Landsvirkjunar og kemur þar
m.a. fram að það eru Bjarni F. Ein-
arsson, fornleifafræðingur hjá
Fornleifastofunni ehf., og sam-
starfsmenn hans sem hafa grafið
niður á skálana fjóra en þeir eru við
Urriðafoss, í landi Þjótanda, undir
Skarðsfjalli og gegnt Haga. Bjarni
telur mögulegt að einn skáli til við-
bótar leynist á svæðinu, í landi
Herríðarhóls. „Það að finna
óþekkta skála varpar skýrara ljósi
á landnámið hérna. Skálarnir
tengjast allir Þjórsá sem hefur allt-
af verið mikil laxveiðiá. Áin hefur
greinilega dregið að sér frjálsa
menn sem hafa viljað setjast að við
ána til að nýta hana,“ er haft eftir
Bjarna. Hann telur að skálinn í
landi Þjótanda hafi verið reistur
nokkrum áratugum eftir 871 og
byggir það á gjóskulagsrannsókn.
Morgunblaðið/Sigurður
Fundur Fornleifafræðingarnir Brynhildur Baldursdóttir og Inga Hlín Valdimarsdóttir grafa eftir fornminjum í
landi Þjótanda en þar hefur fundist forn skáli. Til hægri er Ármann Guðmundsson, nemi í fornleifafræði.
Fornir skálar við Þjórsá
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur, frá
29. maí sl., þar sem ákvörðun sýslu-
mannsins í Reykjavík um að synja
um uppboð á 77,78% hlutafjáreignar
Jóns Ragnarssonar í Hótel Valhöll
ehf. er felld úr gildi.
Jón Ragnarsson sagði fyrir dómi
að hann hefði afsalað til tveggja
barna sinna hluta af hlutafjáreign-
inni, alls um 60%, í maí 2006 – og
lagði fram ljósrit þess efnis. Beiðni
um fjárnám var ekki tekin fyrir fyrr
en í september 2006.
Dómurinn taldi hins vegar að ekki
hefðu verið færðar fullnægjandi
sönnur á að Jón hefði ekki verið eig-
andi bréfanna, enda hefðu ekki legið
fyrir upplýsingar um að aðilaskiptin
hefðu farið fram með þeim hætti sem
lög og samþykktir félagsins áskilja.
Synjun
sýslumanns
felld úr gildi
SAMHJÁLP og Reykjavíkurborg
hafa fundið og sæst á framtíðarhús-
næði fyrir kaffistofu Samhjálpar en
Jórunn Frímannsdóttir, formaður
velferðarráðs, vildi í gær ekki greina
frá því hvar henni hefði verið valinn
staður. Vonast er til að hún verði
opnuð eftir tvær til þrjár vikur.
„Þetta er húsnæði á hentugum
stað, það er laust og hægt að koma
því í stand þannig að þar geti kaffi-
stofan verið til framtíðar,“ sagði Jór-
unn. Áður en greint yrði frá stað-
arvalinu í fjölmiðlum yrði málið
kynnt í nágrenni kaffistofunnar.
Um 60-70 manns hafa reitt sig á
máltíðir á kaffistofu Samhjálpar.
Húsnæði
fundið
♦♦♦