Morgunblaðið - 11.09.2007, Side 14

Morgunblaðið - 11.09.2007, Side 14
Eftir Kristján Jónsson og Boga Þór Arason TVEIR helstu ráðgjafar George W. Bush Bandaríkja- forseta um málefni Íraks hófu í gær að svara spurningum þingmanna í Washington um stöðu mála og munu yf- irheyrslurnar standa í tvo daga. Um er að ræða þá David Petraeus, hershöfðingja og yf- irmann bandaríska heraflans í Írak, og Ryan Crocker, sendi- herra Bandaríkjanna í Írak. Petraeus sagði að Banda- ríkjaher hefði náð að mestu þeim markmiðum sem Bush setti þegar hann fjölgaði í bandaríska herliðinu í Írak. Væntanlega yrði hægt að fækka smám saman í herafl- anum í Írak um 30.000 her- menn fyrir mitt næsta ár. Petraeus sagði að um 2.000 bandarískir hermenn í Írak yrðu kallaðir heim síðar í mán- uðinum og 3.500-4.000 her- menn til viðbótar ekki síðar en um miðjan desember. Fjórar hersveitir færu síðan frá Írak fyrir júlí á næsta ári og eftir yrðu þá um 130.000 bandarísk- ir hermenn, eða álíka margir og í janúar þegar byrjað var að fjölga hermönnunum. Petraeus sagði að ekki yrði hægt að taka ákvörðun um frekari brottflutning her- manna frá Írak fyrr en í fyrsta lagi í mars á næsta ári. Hershöfðinginn við- urkenndi að árangurinn af hernaðinum hefði verið upp og ofan en sagði að þegar á heild- ina væri litið hefði dregið úr ofbeldinu í Írak. Petraeus lagðist gegn til- lögu demókrata um að meg- inhluti herliðsins yrði kallaður heim í byrjun næsta árs. „Ótímabær heimkvaðning herliðs okkar myndi líklega hafa hrikalegar afleiðingar,“ sagði hann. Crocker sendiherra kvaðst telja að hægt yrði að tryggja „öryggi, stöðugleika, lýðræði og frið í Írak“ og þokast hefði í rétta átt í þeim efnum. Geta ráðið úrslitum Stjórnmálaskýrendur hafa sumir sagt að yfirheyrslurnar og þær ályktanir sem þing- menn muni draga af þeim geti ráðið úrslitum um það hvort Bush takist að halda til streitu stefnu sinni um að hvika hvergi í Írak. Margir og þá einkum þingmenn demókrata vilja að ákveðin verði tíma- setning brottfarar heraflans frá Írak. Sumir vilja jafnvel að brottflutningurinn verði haf- inn strax. Fleiri bandarískir hermenn eru nú í Írak en nokkru sinni fyrr, eða um 168 þúsund, eftir að þeim var fjölgað um 30.000. Var fjölgunin liður í þeirri stefnu Bush að reyna að efla öryggi óbreyttra borgara í landinu. Nouri al-Maliki, forsætis- ráðherra Íraks, sagði í ræðu á þingi í gær að stefna Bush hefði orðið til þess að öryggi borgaranna hefði aukist, árás- um í Bagdad hefði fækkað um 75% síðan í ársbyrjun. Ný skoðanakönnun í Írak bendir til þess að almenningur sé ósammála Maliki og telji nýja stefnu Bandaríkjamanna alls ekki hafa aukið öryggi í landinu. Um tveir af hverjum þremur aðspurðum segja að það hafi þvert á móti minnkað og nýja stefnan orðið til að minnka líkur á sáttum milli stríðandi fylkinga. Rösklega helmingur, eða 53%, segir samt að erlenda herliðið eigi ekki að fara fyrr en búið sé að bæta öryggi í landinu. Petraeus segir hernaðarleg markmið að mestu hafa náðst í Írak en varar við of hraðri heimkvaðningu Hermönnunum fækki smám saman AP Samráð David Petraeus (til vinstri) og Ryan Crocker ræðast við áður en yfirheyrslurnar í þinghúsinu hefjast. 14 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT VINSÆLDIR Mahmouds Abbas forseta hafa aukist meðal Palest- ínumanna frá því að Hamas- hreyfingin náði Gaza-svæðinu á sitt vald, ef marka má skoðanakönnun sem birt var í gær. Hún bendir einnig til þess að 73% Palest- ínumanna séu andvíg valdatöku Hamas á Gaza-svæðinu í júní, en hún varð til þess að Abbas vék Hamas úr palestínsku þjóðstjórn- inni og skipaði nýja stjórn á Vest- urbakkanum. Samkvæmt könnuninni styður 31% Palestínumanna Hamas en 48% Fatah og hefur munurinn á fylgi hreyfinganna aukist um sjö pró- sentustig frá því í júní. Um 59% sögðust myndu kjósa Abbas ef for- setakosningar færu fram nú, en 36% Ismail Haniyeh, forsetaefni Hamas og fyrrverandi forsætisráð- herra. Abbas ræddi við Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, í Jerúsal- em í gær og þeir skipuðu samninga- nefndir sem eiga að undirbúa al- þjóðlega friðarráðstefnu sem George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur boðað í nóvember. Olmert hét því einnig á fundinum í gær að láta palestínska fanga lausa áður en föstumánuður músl- íma, ramadan, gengur í garð. Stjórn Ísraels hafði áður hafnað þeirri kröfu Palestínumanna. AP Friðarumleitun Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Ehud Ol- mert, forsætisráðherra Ísraels, á skrifstofu Olmerts í Jerúsalem í gær. Stuðningurinn við Abbas eykst en fylgi Hamas minnkar YFIRVÖLD í Kólumbíu handtóku í gær leiðtoga stærsta eitur- lyfjasmyglhrings landsins, Dieogo Montoya, sem er á lista banda- rísku alríkislög- reglunnar, FBI, yfir þá sem hún leggur mesta áherslu á að handtaka. Montoya var handtekinn án mótspyrnu í litlu bóndabýli í fjallahéraðinu Valle del Cauca. Yfirvöld sögðu þetta mesta sigur í baráttu þeirra við eitur- lyfjasmyglara frá því að Pablo Es- cobar, leiðtogi Medellin-smygl- hringsins, var skotinn til bana árið 1993. Yfirvöld telja að smyglhringur Montoya hafi með aðstoð eitur- lyfjasmyglara frá Mexíkó flutt um 500 tonn af kókaíni til Bandaríkj- anna á árunum 1990 til 2004. Tveir hershöfðingjar voru reknir og 26 hermenn handteknir fyrir mánuði þegar í ljós kom að þeir voru á mála hjá smyglhringnum. Kókaínbarón handtekinn Diego Montoya A.M.K. 29 manns – þ.á m. björg- unarmenn – létu lífið í sprengingu í flutningabíl, sem flutti sprengiefni, 40 mínútum eftir að bíllinn lenti í árekstri í Mexíkó í gær. Tugir létu lífið IINNLÖGNUM á sjúkrahús vegna hjartaáfalla hefur fækkað um 17% síðan reykingar voru bannaðar á almenningsstöðum í Skotlandi í mars á síðasta ári. Færri hjartaáföll ENGINN náði kjöri í fyrri umferð forsetakosninga í Gvatemala á sunnudag. Kosið verður á milli kaupsýslumanns, Alvaro Colom, og fyrrverandi hershöfðingja, Otto Perez Molina, 4. nóvember. Kosið aftur PORTÚGALSKA lögreglan lauk í gær við skýrslu sem hún hyggst af- henda saksóknurum er ákveða hvort ákæra eigi bresku hjónin Gerry og Kate McCann fyrir að bana fjögurra ára dóttur sinni, Madeleine, fyrir slysni. Hjónin ákærð? Islamabad. AFP. | Stjórnvöld í Pak- istan sendu Nawaz Sharif, fyrrver- andi forsætisráðherra, rakleiðis úr landi á ný en hann flaug til Islama- bad frá London í gærmorgun. Sha- rif hefur verið í útlegð í sjö ár en hugðist snúa aftur heim til Pakist- ans og freista þess að fara fyrir her- ferð gegn núverandi forseta, Pervez Musharraf, og verða þess valdandi að hann hrökklaðist frá völdum. Við komuna til Islamabad neitaði Sharif að afhenda vegabréf sitt og ruddist lögregla þá um borð í vél þá sem flutti hann til landsins. Hann var handtekinn á grundvelli gam- allar ákæru um spillingu en síðan færður um borð í farþegaflugvél sem hélt áleiðis til Jeddah í Sádi- Arabíu fjórum klukkustundum eftir að Sharif kom til Pakistans. Herinn í Pakistan rændi völdum af Sharif árið 1999 og fór Musharraf fyrir valdaráninu. Sharif var sakaður um spillingu og settur í fangelsi en síð- an sendur í útlegð til Sádi-Arabíu ári seinna. Gerði samkomulag um lausn hans úr fangelsi ráð fyrir því að hann yrði þar til 2010. Í kjölfar þess að hæstiréttur Pakistans ákvað að Sharif væri heimilt að snúa aftur tilkynnti hann hins vegar að hann hygðist snúa aftur og fara fyrir stjórnarandstöðunni í landinu. Musharraf hefur sætt sívaxandi gagnrýni heima fyrir, sem erlendis, m.a. fyrir að neita að láta af emb- ætti æðsta yfirmanns hersins, um leið og hann er forseti. Með því að vísa Sharif þegar úr landi á ný hef- ur Musharraf lamað getu hans til athafna en ákvörðunin er hins vegar líkleg til að auka enn á óvinsældir forsetans. Sharif sendur rak- leiðis aftur úr landi AP Útlagi Nawaz Sharif ræðir við fréttamenn á leiðinni til Islamabad. Fékk aðeins að staldra við í Pakistan í fjórar klukkustundir AFGANSKUR maður fer með bænirnar sínar nálægt grafreit Tadjíkans Ahmeds Shah Masood í Panjshir í Afganistan í gær, um 100 km norður af höfuðborginni Kabúl. Þess var minnst í gær að sex ár eru liðin frá því að útsendarar hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Laden réðu Masood af dögum – og í dag verður þess minnst vestur í Bandaríkjunum að sex ár eru liðin frá hryðju- verkaárásunum á New York og Washington sem kost- uðu um 3.000 manns lífið. Masood var stundum kall- aður „Ljónið frá Panjshir“ vegna framgöngu sinnar í stríði Afgana við Sovétmenn á níunda áratug síðustu aldar. Seinna meir barðist hann gegn talíbönum. AP Minntust morðsins á Masood

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.