Morgunblaðið - 11.09.2007, Page 19
Einbeittar Stúlkur úr Grunnskólanum á Blönduósi teikna gömlu kirkjuna en
sett hefur verið á laggirnar verkefni í Grunnskólanum sem felur það í sér
hvaða augum krakkarnir í skólanum sjá kirkjuna og hvernig þau vilji að hún
líti út. Sýning á þessum verkum nemenda verður svo í kirkjunni síðar í haust.
Ellefti september er í huga margra
tengdur við hryðjuverkin í Banda-
ríkjunum þegar árás var gerð á tví-
buraturnana. En 11. sept. er samt
sem áður annað og meira en dagur
hryðjuverka því margir eiga ljúfar
minningar tengdar þessum degi. Til
að mynda hér á Blönduósi veit ég um
þrenn hjón sem gefin hafa verið sam-
an í hjónaband þennan dag og halda
þau sambönd enn, þannig að það er á
valdi hvers og eins hvort hann tengir
hlutina hryðjuverkum, hjónabandi
eða bara allt öðru.
Sumri hallar hausta fer um það efast
enginn. Eftir þurrt og til þess að gera
hlýtt sumar er nú loksins farið að
rigna svo um munar. Í veðurkortum
eru menn farnir að sjá slyddu og jafn-
vel stöku él. Haustið er svo sann-
arlega að ganga í garð með öllum
þeim birtingarformum uppskerunnar
sem hugsast getur. Bændur heimta
fénað af fjöllum, flestir eru að taka
upp kartöflurnar sem á annað borð
settu þær niður í vor og sumir búnir
og svo mætti lengi telja.
Knattspyrnufélagið á staðnum sem
gegnir því ágæta nafni Hvöt náði
þeim góða árangri að komast upp í
aðra deild, dágóð uppskera það. Það
er alltaf ákveðinn „sjarmi“ yfir haust-
inu þegar gróður jarðar tekur á sig
náðir yfir köldustu og dimmustu vetr-
ardagana. Litbrigði jarðar verða fjöl-
breyttari og haustvindar feykja föln-
uðum laufblöðum til og frá. Þá gróður
deyr vakna til lífsins félagasamtök
sem legið hafa í dvala yfir sumarið
líkt og svo mörg fyrirtæki landsins.
Það er full ástæða til að staldra að-
eins við þann forna sið sem réttir eru.
Margir líkja þessu við góða messu
þar sem fjöldi fólks kemur saman.
Sumir til skyldustarfa en aðrir til að
sýna sig og sjá aðra. Á þessum stöð-
um hittast menn sem ekki hafa sést
árum saman og margar lognar og
sannar sögur um menn og málefni ná
hæðum sem aldrei fyrr.
Um næstu helgi verða stóðréttir í
Skrapatungu og er ekki vafi að margt
verður um manninn og hrossið en
þessar réttir hafa skapað sér fastan
sess í huga margra og veit ég að hinn
kunni hestamaður Haukur Pálsson á
Röðli hefur boðið Jóni Bjarnasyni
þingmanni í hrossasmölum eða eins
og Haukur sagði: „Við þurfum á þing-
manni að halda.“
Gamla kirkjan á Blönduósi hefur ver-
ið gefin einstaklingum sem lofa að
koma henni í viðunandi ástand innan
ekki svo margra ára. Það var mikill
einhugur um þessa ákvörðun innan
sóknarnefndarinnar og horfa menn
nú fram á bjartari tíma hjá þessari
gömlu kirkju. Það virðist sem það sé
nokkur vakning að endurgera það
sem gamalt er og má þar nefna ná-
granna gömlu kirkjunnar, Aðalgötu
11, en hafin er endurgerð á því húsi
og virðist byrjunin lofa góðu. Gamli
bærinn á Blönduósi er óðum að öðlast
sinn forna sess með fallegri og hlý-
legri götumynd. Þessi bæjarhluti er
svolítið úr leið en það er fullkomin
ástæða til að koma í gamla bæinn og
finna kyrrðina og anda að sér fersk-
um andblæ hins víðáttumikla Húna-
flóa.
BLÖNDUÓS
Jón Sigurðsson fréttaritari
Morgunblaðið/ Jón Sigurðsson
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 19
þrýstihópur sig alltaf
knúinn til að bölsótast
yfir þessum knatt-
spyrnuútsendingum –
meira af ávana en
ástríðu – og alltaf skal
Sjónvarpið falla í þá
gryfju að afsaka þær.
Kannski Víkverji og
vinir hans ættu að taka
upp á því að mótmæla
hástöfum heimildar-
myndum um stökkmýs
í hvert sinn sem þær
eru á dagskrá?
Víkverji leggur til að
stofnunin láti í eitt
skipti fyrir öll af þess-
um ósið. Knattspyrna
er ekkert til að skammast sín fyrir!
x x x
Eitthvað hafa starfsmenn sjón-varpsstöðvarinnar Sýnar verið
utan við sig þegar þeir settu saman
auglýsingu til að kynna dagskrá
stöðvarinnar nú í september. Hefur
þessi auglýsing verið spiluð reglu-
lega á stöðvum 365-miðla und-
anfarið. Dagskráin er vissulega
spennandi og myndræn framsetn-
ing auglýsingarinnar prýðileg.
Klaufaskapurinn liggur aftur á móti
í tónlistinni en undir auglýsingunni
hljómar erkismellur bandarísku
pönk-rokksveitarinnar Green Day
„Wake Me Up When September
Ends“, eða „Vektu mig þegar sept-
ember er á enda“.
Varla hafa Sýnendur stefnt að
því að áhorfendur svæfu yfir gjör-
vallri dagskrá stöðvarinnar í sept-
ember.
Það er alltaf jafndapurlegt og það
er fyrirsjáanlegt þeg-
ar Ríkissjónvarpið
byrjar að afsaka út-
sendingar frá knatt-
spyrnuleikjum, eins
og Páll Magnússon út-
varpsstjóri gerði hér í
blaðinu síðastliðinn
föstudag. Hvað er
óeðlilegt við það að
sjónvarp allra lands-
manna sýni beint frá
landsleik Íslands og
einnar helstu spark-
þjóðar veraldar, Spán-
verja, enda þótt leikar
fari fram á laug-
ardagskvöldi? Í huga Víkverja er
þetta ekki aðeins eðlilegt heldur
beinlínis skylda ríkisrekinnar sjón-
varpsstöðvar. Það er heldur ekki
eins og knattspyrna tröllríði dag-
skrá Sjónvarpsins alla daga.
x x x
Hvað var það annars sem áhorf-endur fóru á mis við á laug-
ardaginn? Ekki voru það fréttir,
þær voru sagðar á réttum tíma. Það
er heldur ekki eins og eitthvert
óviðjafnanlegt menningarefni hafi
þurft að víkja. Stendur kvöld-
dagskrá Sjónvarpsins á laug-
ardögum yfirleitt ekki saman af
gömlum hollívúddmyndum sem allir
hafa séð fyrir löngu? Og sumir oft-
ar en einu sinni.
Eigi að síður er það eins og við
manninn mælt. Í stað þess að rölta
út á leigu eða fara inn á Skjábíó
Símans finnur einhver geðvondur
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111