Morgunblaðið - 11.09.2007, Side 21

Morgunblaðið - 11.09.2007, Side 21
heilsa MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 21 Hallmundur Kristinssontileinkar vísukorn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra: Ísland verður elskuríkt og með stefnu þjála, enda boðuð aukin mýkt utanríkismála. Sigrún Haraldsdóttir bætir við: Bráðum gróa brunnin tún, batnar snauðra hagur. Það ljótasta sem leyfir hún er léttur koddaslagur. Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir að gefnu tilefni: Burt úr Írak flugvél fer með fret og læti. Allur kemur okkar her í einu sæti. Húsvíkingurinn Sigurjón Pálsson yrkir á slóðinni: sigpal.blog.is. Hann orti kveðju til vinar sem ætlaði út á lífið: Góða helgi gamli minn. Gangi þér allt í haginn. Þrönga veginn þetta sinn, þræddu nú í bæinn. Auðunn Bragi Sveinsson yrkir um ellina sem bíður langlífra: Það grætur enginn gamlan mann, sem grafar leggst í þró, því öllum finnst, að hafi hann í heimi lifað nóg. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Af mýktinni ÞAÐ er mið nótt og nýfædda barnið þitt grætur eins og það eigi lífið að leysa. Og þú hugsar hvort svefnleys- ið sé komið til að vera. Svo þarf þó alls ekki að vera og því er um að gera fyrir glænýjar mömmur og pabba að laga sig að breyttum að- stæðum því foreldrahlutverkið er stórfenglegt ævintýri alla daga og allar nætur. En vissulega getur fullorðna fólk- ið fundið til þreytu eftir mislangar vökunætur og þótt engar töfralausn- ir séu til á vandamálinu mættu ný- bakaðir og þreyttir foreldrar til- einka sér eftirfarandi ráð, sem koma frá bandarísku sjúkrastofnuninni Mayo Clinic.  Sofðu þegar barnið þitt sefur. Slökktu á símanum, feldu þvotta- körfuna og hunsaðu óhreinu diskana í vaskinum því húsverkin geta beðið.  Ekki leika ofurmömmu í gest- gjafahlutverki er vinirnir koma í heimsókn. Leyfðu þeim heldur að hafa ofan af fyrir barninu svo þú getir hvílt þig.  Endurheimtu svefnherbergið ef barnið heldur einhverra hluta vegna fyrir þér vöku.  Stilltu vaktara barnsins miðað við hve hátt barnið grætur því það er engin nauðsyn að liggja andvaka og hlusta á hvern einasta and- ardrátt.  Skiptist á næturverkunum svo bæði nái einhverri hvíld.  Seinkaðu eða frestaðu því óum- flýjanlega í stað þess að rjúka til og gefa við fyrsta grát.  Biddu um hjálp þegar þú þarfn- ast hennar og taktu því fegins hendi þegar vinir og ættingjar bjóðast til að passa. Þú þarft ekk- ert endilega að fara út heldur gætir þú einfaldlega notað frítím- ann til að hvílast í eigin herbergi. Ef þú átt í vandræðum með að sofna er tækifærin bjóðast skaltu passa upp á að umhverfið sé svefn- vænt. Passaðu að rúmdýnan og koddinn séu þægileg, slökktu á sjón- varpinu og hafðu herbergið svalt og dimmt. Forðastu nikótín, koffín og alkóhól. Að lokum: Það er ekkert að því að henda sér upp í rúm þegar færi gefst. Ef þú dottar ekki á næsta hálftímanum drífðu þig þá fram úr og taktu þér eitthvað fyrir hendur. Þegar syfjan læðist upp að þér á ný skaltu gera aðra tilraun á kodd- anum. Ef þú heyrð harða baráttu við að ná svefni eftir eins til tveggja vikna baráttu skaltu ráðfæra þig við lækninn þinn því ýmsar undirliggj- andi ástæður geta komið í veg fyrir að þú náir verðskuldaðri og nauð- synlegri hvíld. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Barnsgrátur Nýbakaðir foreldrar geta vissulega þurft að laga sig að breyttum aðstæðum þegar barn kemur í heiminn. Glænýir foreldrar þurfa líka hvíld Fréttir í tölvupósti Hundshaus eftir Morten Ramsland „Kauptu hana, lestu hana, mæltu með henni við ættingja og vini …“ Weekendavisen „Hundshaus er hreint frábær ættarsaga. Óhefluð og fyndin. Skörp og hjartnæm.“ Information „Djörf, áhrifarík og dásamleg.“ Daily Express Tveir húsvagnar eftir Marinu Lewycku höfund bókarinnar Stutt ágrip af sögu traktorsins á úkraínsku, sem kom út í íslenskri þýðingu fyrir ári. „Fram úr hófi fyndin.“ Times Literary Supplement „Tveir húsvagnar er fyndin, snjöll og glöggskyggn.“ The Guardian „Fyrri bók hennar var skemmtileg, þessi er jafnvel enn betri.“ The Sunday Times Skáktyrkinn eftir Robert Löhr „Ef þú hreifst af Ilminum muntu líka láta heillast af Skáktyrkjanum. Töfrandi skáldsaga um morð og launráð sem grípur þig föstum tökum frá fyrstu síðu.“ Harper’s Bazaar „Margslungin og gamansöm.“ Publisher’s Weekly „Einstaklega skapandi og hugvitsamlegt verk.“ Kirkus Review Bókmenntahátíðin í Reykjavík 2007 NÝJAR KILJUR Kynnið ykkur áhugaverða dagskrá Bókmenntahátíðar á www.bokmenntahatid.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.