Morgunblaðið - 11.09.2007, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 25
KÆRA ríkisstjórn og aðrir ís-
lenskir ráðamenn!
Ég vil óska ykkur til hamingju
með velsældartilveru
ykkar! Það væri frá-
bært að geta farið í
verslun og keypt í
matinn – lambasteik
og tilheyrandi, fínan
eftirrétt og öl… Það
er munur, en hjá
þeim sem sjaldan
hafa efni á öðru en
kjötfarsi, bjúgum og
sláturkepp einstaka
sinnum... Var svo ein-
hver að minnast á
bíó? – Já, það var fyr-
ir rúmum 10 árum
sem ég fór síðast á bíó, hef engan
afgang fyrir slíkan munað af mín-
um tryggingabótum. Upphæðin
frá Tryggingastofnun ríkisins er,
að frádregnum skatti, 88.054 kr. á
mánuði. Ég er svo ein af þeim
heppnu sem fá greiddan lífeyr-
issjóð, 44.655 krónur frá lífeyr-
issjóði ríkisstarfsmanna, fyrir
kennslustörf í tæp 14 ár. Þetta
eru samtals 132.709 krónur á mán-
uði – auk þess svolítil mánaðarleg
lífeyrissjóðsgreiðsla, kr. 6.854, eða
kr. 4.406 kr. að skatti frádregnum,
fyrir að hafa starfað sem lækna-
ritari í 9 ár. Samtals gera þetta
137.115 kr. nettó á mánuði. Ég
borga rétt tæplega 80 þúsund
krónur í húsaleigu á mánuði, nota
tölvu og borga síma, – það gera
um 14 þúsund á mánuði – 94 þús-
und kr. alls. Ég er slæm í fótum
og þarf að nota bíl – bensín og
bílatryggingar kosta 16 þús. á
mánuði til jafnaðar, þetta gerir
samtals um 110 þús. kr. Útvarp og
sjónvarp eru 2.194 kr. á mánuði –
þ.e. 112.194 kr. Hvað fleira þarf
að borga? Rafmagn, spara þar og
borga um 1.800 kr. á mánuði. Dag-
blað 1500 kr. á mánuði – samtals
kr.115.494.Afborgun af einu láni
10 þúsund. – Samtals alls um
126.000 – eftir verða rúmar 10
þúsund krónur fyrir afganginn –
mat, hreinlætisvörur, föt – væri
það eitthvað fleira – t.d. ferð til
Reykjavíkur? Og auðvitað enginn
afgangur fyrir afmæl-
isgjafir fyrir börnin –
hvað þá jólagjafir.
Hef ég efni á að fara í
leikhús ?– ekki mögu-
legt sl. 15 ár.
Kannske er þetta til-
vera eins og Íslend-
ingar lifa almennt –
ég veit það ekki. Mér
er þó ljóst að stór
hópur eldra fólks í
landinu stendur í
sömu sporum og ég –
hópur eldri borgara.
Hef barist fyrir til-
veru minni og fjölskyldunnar alla
tíð og á 3 uppkomin börn með fjöl-
skyldur og þau hafa nóg með sig.
Ég hef aldrei verið upp á aðra
komin og er of stolt til að biðja
um fjárhagslega aðstoð.Nema –
einu sinni. Því að fyrir síðustu jól
braut ég odd af oflæti mínu og
bað um aðstoð hjá fjölskylduhjálp
Akureyrar . Mér bauðst 21 þús-
und króna upphæð – en að sjálf-
sögðu skattskyld greiðsla þannig
að í minn hlut komu tæpar 14 þús-
und krónur. Ég hefði jú getað
keypt steik – lítið jólatré og jólaöl
fyrir upphæðina; kaus þó að vera
hjá syni mínum um jólin – hefði
hvort sem er lítið getað keypt til
hátíðabrigða – hvað þá haldið jóla-
boð.
Í sumar komu svo þær „gleði-
fregnir“ að ég gæti fengið mér
vinnu án þess að tryggingabætur
TR yrðu skertar – en sú rausn!
En málið var ekki svo einfalt því
að þegar ég reyndi að sækja um
vinnu fékk ég hana hvergi! Hvern-
ig hékk þetta saman? Rík-
isstjórnin hafði í velvild sinni bent
á að nú gæti ég fengið mér vinnu
án þess að þurfa að óttast skerð-
ingu á bótunum sem fram til
þessa var reglan. Þannig að 60 ára
varð ég öryrki og mátti ekkert
vinna nema því aðeins að trygg-
ingagreiðslur væru stórskertar.
En nú bregður svo við að þegar
ég hef náð sjötugsaldri þá má ég
áhyggjulaus fá mér vinnu! Það var
sannarlega vel til fundið hjá hinni
skilningsríku ríkisstjórn! Nefndi
einhver vanþakklæti?
En hvað með lán? Engin til að
fara í nám eða á námskeið? En,
nei, það var ekki möguleiki vegna
lágra launa, auk skerðingar á bót-
unum sem kæmu seinna.
Mér finnst í dag að dyrnar út í
samfélagið hafi lokast, ég er
greinilega ekki velkomin í þessu
ríka þjóðfélagi, sem sér vaxt-
armöguleika sína aðallega felast í
fjármögnun og ávöxtun peninga.
Albert Schweitzer sagði eitt
sinn að mælikvarðinn á menning-
arstig hvers þjóðfélags væri í
beinu hlutfalli við þá tillitssemi og
virðingu sem þjóðfélagið auðsýndi
eldri kynslóðinni.
Innri verðmæti hverrar þjóðar
eru um leið sá grundvöllur sem
hún byggir á tilveru sína. Ef sá
grundvöllur veikist þá riðar sam-
félagið til falls.
Ef viðhorf og siðferðishug-
myndir þegnanna spillast og úr-
kynjast verður þjóðfélagið sjúkt
og ofbeldi, virðingarleysi gagnvart
náunganum, eigingirni, tillitsleysi
og græðgi verða stöðugt meira
áberandi. Horfum á íslenskt þjóð-
félag í dag – sjáum við þessi ein-
kenni?
Eru eldri borgarar óvelkomn-
ir í íslensku þjóðfélagi?
Esther Vagnsdóttir tekur dæmi
um kjör eldri borgara sem fær
greiðslu frá Tryggingastofnun
ríkisins og lífeyrissjóði
»Mér finnst í dag aðdyrnar út í sam-
félagið hafi lokast, ég er
greinilega ekki velkom-
in í þessu ríka þjóð-
félagi...
Esther Vagnsdóttir.
Höfundur er kennari á Akureyri.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 7. september var
spilað á 13 borðum. Meðalskor var
312. Úrslit urðu þessi í N/S:
Bjarnar Ingimars. – Friðrik Hermanns. 354
Jens Karlsson – Björn Karlsson 353
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 334
Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 332
A/V
Björn Björnsson – Haukur Guðmss. 365
Jón Hallgrímss. – Bjarni Þórarinsson 362
Guðni Ólafsson – Ingólfur Þórarinsson 354
Óli Gíslason – Stefán Ólafsson 347
Bridsfélag Reykjavíkur
Nú er spilamennska hjá BR að
hefjast eftir sumarfríið. Þriðjudag-
ana 11. og 18. september fer fram
Monrad-tvímenningur. Besta sam-
anlagða skor telur til verðlauna.
Spilað verður í Síðumúla 37 alla
þriðjudaga kl. 19. Spilurum (og
sveitum) verður í fyrsta skipti boðið
upp á árskort sem viðbót við 10
skipta kortin. Best að panta árskort-
in á fyrsta spilakvöldinu til að þau
nýtist sem best.
Minnt er á veglega einmennings-
keppni í lok vetrar þar sem 24 brons-
stigahæstu spilarar fá keppnisrétt.
Dagskrá, úrslit o.fl. á heimasíðu BR:
bridge.is/br
Fréttir á SMS
TRACY CHEVALIER ÁRITAR
Metsöluhöfundurinn Tracy Chevalier
áritar bækur sínar í bókabúð M&M að
Laugavegi 18, í dag kl.17:00
J E N T A S www.jentas.com
„Þetta er bók sem ætti
að lesast af öllum...“
Mbl.
NEISTAFLUG
STÚLKA MEÐ
PERLUEYRNALOKK
„Neistafl ug er
sjónræn dásemd.“
The Times
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni,
ekki í síma eða á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.
Nýskráð fyrirtæki
1. Sérstök verslun í Kringlunni. Er með einkaleyfi fyrir sinni vöru.
Það er mjög sérstakt að fá verslunarpláss núna. Langur biðlisti.
Einstakt tækifæri. Besti sölutíminn framundan.
2. Leikskóli í nýlegu húsnæði sem fylgir einnig með í pakkanum. Öll
tæki úti sem inni. Staðsettur á einstökum stað þar sem húsnæðið
hækkar og hækkar í verði með tímanum. Tekur á milli 50-60 börn
og alltaf umfram eftirspurn. Hægt að yfirtaka áhvílandi lán.
3. Leigumiðstöð með mörgum stúdíóíbúðum og góðri sameiningu.
Allt til staðar. Allir staðir fullbókaðir af góðum leigjendum sem
borga. Öruggar miklar tekjur. Ýmiss skipti koma til greina.
Möguleiki að stækka húsið mikið.
4. Vel þekkt járnsmíðaverkstæði í Hafnarfirði. Næg vinna. Fastir
viðskiptavinir. Allt til alls, öll tæki og áhöld. Húsnæðið fylgir
með.
5. Lítil skóverslun með stuttan opnunartíma en selur nær eingöngu
stóra skó og flytur inn heimsfræga þæginda og hollustuskó. Þarf
að flytjast eða sameinast öðru sambærilegu fyrirtæki.
6. Einstaklingsfyrirtæki sem framleiðir dýnur í hjólhýsi, báta,
sumarbústaði, barnaheimili og fl., allt úr svampi. Þægileg vinna
sem getur verið hvar sem er á landinu. Kennsla fylgir. Laust strax
vegna veikinda eiganda. Ótrúlega hagstætt verð.
Höfum traustan löggil. kaupanda af fasteignasölu.
Sterkur fjárfestir er að koma til landsins og vill kaupa hlut í
stóru fyrirtæki eða allt fyrirtækið. Mjög fjársterkur. Fullur
trúnaður. Það gæti borgað sig að hafa samband.