Morgunblaðið - 11.09.2007, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 11.09.2007, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 29 hönd í lok samkvæmanna góðu. Saga vináttu okkar Andrésar var orðin nærri sjötug þegar hann féll frá okkur öllum til mikils harms, annar úr hópnum góða úr B-bekkn- um. En minningarnar verma í öllum fjölskyldunum. Fyrir hönd fjöl- skyldu minnar votta ég fjölskyldu Andrésar dýpstu samúð og við þökkum honum öll fyrir ánægjulega samfylgd. Andrés Reynir varð öll- um hjartfólginn sem honum kynnt- ust. Páll Ásgeirsson. Vorið 1949 kvaddi bjartsýnn hóp- ur gamla skólann sinn við Grund- arstíg. Árin fjögur höfðu ekki að- eins verið ár þekkingarleitar, þau höfðu einnig verið ár vináttu og bræðralags lífsglaðs fólks. Hluti hópsins bætti við sig tveimur árum í námi. Samstaðan var einstök. Bekkjarsystkinin fóru sitt í hverja áttina, sum lögðu fyrir sig frekara nám, önnur héldu á vit ævintýranna á vinnumarkaðnum. En samstaða hópsins hélt áfram. Vinátta nær ekki að blómstra án þess að lögð sé rækt við hana. Ár- lega varð hópurinn að hittast og rifja upp gömul kynni og leita fregna af því sem á dagana hafði drifið. Berja augum skólasystkinin og taka þátt í þeim breytingum sem urðu í lífi þeirra. Verða hluttakandi í gleði þeirra og finna til með þeim ef eitthvað fór úrskeiðis. Spyrjast fyrir um þau sem ekki höfðu getað komið. Hópur skólabræðra sem bundist hafði traustum böndum í skóla fannst ekki nóg að gert. Sam- verustundirnar yrðu að vera tíðari. Þeir mynduðu klúbb sem í hverjum mánuði hefur um hádegisbil verið athvarf þessara bræðra. Enginn hópur nær árangri ef enginn er foringinn. Andrés Reynir var fæddur foringi. Það var aldrei nein leit að foringja innan hóps skólabræðra eða skólasystkinanna. Andrés sá um það sem gera þurfti. Hann var einstaklega vandvirkur við allan undirbúning hvað svo sem til stóð. Hann hafði sambandi við skólayfirvöld á stórafmælum, hann hafði samband við aðra árganga til að koma á samstöðu stórra hópa, hann undirbjó með mikilli kost- gæfni hvern einasta hádegisverðar- fund sem við skólabræður áttum. Hann var aldrei einn í sínum at- höfnum. Við hlið hans stóð Dóra hans sem var honum stoð og stytta og veitti ómetanlegan stuðning. Andrés var mikill gæfumaður. Hann var alinn upp á heimili sem var þekkt fyrir snyrtimennsku og rausnarskap. Sú arfleið fylgdi hon- um áfram þegar hann stofnaði sitt heimili. Foringinn er fallinn. Ekkert hefði Andrési verið meir á móti skapi en að við létum fánann síga við fráfall hans. Í minningu hans verðum við að treysta böndin og halda ótrauð áfram á þeirri braut sem hann markaði, skólasystur og skólabræð- ur. Við sendum Dóru og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur með þakklæti fyrir allt sem þau veittu okkur. Klúbbur skólabræðra. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Með andláti Andrésar Reynis Kristjánssonar er kær vinur fallinn frá. Hann var drengur góður, prúð- ur og staðfastur. Vinátta okkar Andrésar hófst í Miðbæjarskólanum í Reykjavík, þá tíu ára gamlir. Líkt og margir jafnaldrar þreyttum við saman fullnaðarpróf úr barnaskóla og samtímis inntökupróf í Verzlun- arskóla Íslands og komust þar með ári á undan þangað inn. Andrés var vinsæll og tók virkan þátt í fé- lagsstörfum í Verzlunarskólanum. Sökum einstakrar reglusemi Andr- ésar var honum treyst fyrir mörg- um trúnaðarstörfum af samnemend- um sínum. Meðal annars var hann kjörinn sem leiðtogi þegar stúd- entaárgangurinn fór í ferð til Dan- merkur og Norðurlanda eftir út- skrift 1951. Eftir stúdentspróf lá leið Andrésar í lögfræði við Háskóla Íslands en við fráfall föður síns hans tók hann við rekstri fjölskyldufyr- irtækisins og starfaði þar við hlið bróður síns alla starfsævina. Trún- aðarstörf Andrésar fyrir félagahóp- inn úr Verzlunarskólanum héldu áfram þegar hann kom á fót fé- lagsskap þar sem þeir sem luku verslunarprófi 1949 hittast mánað- arlega og snæða saman hádegis- verð. Þessi hefð sem hófst að frum- kvæði Andrésar hefur haldist í hartnær hálfa öld og verið ómet- anlegur vettvangur vinskapar og tryggðar. Andrés naut mikillar gæfu er hann kynntist eftirlifandi eiginkonu sinni Dóru Gígju Þórhallsdóttur en gestrisni hennar og hlýja hefur fylgt vinskap okkar gegnum árin. Heimili þeirra hjóna stóð okkur sem þau þekktu ævinlega opið og þaðan minnumst við margra góðra stunda við söng og gleðiskraf. Dóra og Andrés eru miklir listunnendur og heimili þeirra gleður auga allra sem kunna góða list að meta. Andrés Reynir reyndist mér einstakur vin- ur og var ævinlega til staðar þegar ég þurfti vináttu við. Með fráfalli hans er genginn góður drengur. Að lokum votta ég Dóru, börnum þeirra, tengdadóttur og barnabörn- um innilega samúð. Pax Vobiscum. Jón Lárus Sigurðsson. SPENNANDI Íslandsmóti í skák lauk um síðustu helgi í Skákhöllinni í Faxafeni 12. Þegar tvær umferðir voru eftir voru alþjóðlegi meistarinn Stefán Kristjánsson (2.458) og stór- meistarinn Hannes Hlífar Stefáns- son (2.568) jafnir og efstir með sex vinninga en á eftir þeim komu stór- meistarinn Þröstur Þórhallsson (2.461) og alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson (2.389) með 5½ vinning. Í tíundu og næstsíðustu um- ferð mættust Hannes og Þröstur í skák sem réð miklu um möguleika þeirra til að hampa Íslandsmeistara- titlinum árið 2007: Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson Svart: Þröstur Þórhallsson 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3 e6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 Bd6?! Að jafnaði er talið skynsamlegra að leika b7-b5. Eins og framhaldið ber með sér er ástæðan sú að ella er hætta á að hvítreita biskup svarts verði óvirkur. 8. a4!? 0-0 9. 0-0 a5 10. e4 e5 11. h3 exd4 12. Rxd4 Re5 13. Ba2 Bc5 14. Be3 Db6 15. Db3!? Da7 16. Rce2 Upp er komin áhugaverð stað þar sem hvítur hyggst byggja sókn á miðborðinu á meðan svartur reynir að þrýsta á miðborðsreitina með mönnum. Nú getur svartur tekið peðið á e4 en er það æskilegt? 16. … Bd7 Svartur hefði staðið illa eftir 16. … Rxe4? vegna 17. Dc2! og hvítur fengi vænlegt tafl eftir t.d. 17. … Rf6 18. Rxc6!. 17. Dc2 Bb6 18. Had1 c5 Afdrifarík ákvörðun þar sem nú skapast holur b5 og d5. Á hinn bóg- inn leysir svartur önnur vandamál, svo sem kemur í veg fyrir f2-f4-fram- rás hvíts. 19. Rf5 Bxf5 20. exf5 c4 21. Rd4 Rd5 22. De4 Rxe3 23. fxe3 Bxd4?! Það kann að hafa verið betra að leika 23. … Hfe8. 24. exd4 24. … f6? Betra var að reyna 24. … Hfe8 þó að hvítur stæði þá einnig vel að vígi. 25. Kh1 Rc6 26. Bxc4+ Kh8 27. Hf4 Had8 28. Be6 Re5 29. Hc1! Rf7 30. Hc7 Rd6 31. Df3 Re8 32. Hh4 h6 Hvítur hefur nú yfirspilað svartan og lætur nú kné fylgja kviði. Sjá stöðumynd 3. 33. Hxh6+! gxh6 34. Dh5 og svartur gafst upp enda óverjandi mát. Við þennan góða sigur varð Hann- es efstur ásamt Stefáni Kristjáns- syni fyrir lokaumferðina. Í henni yf- irspilaði Hannes hinn unga Hjörvar Stein Grétarsson á meðan Stefán náði ekki með hvítu að brjóta niður varnir Braga Þorfinnssonar og jafn- tefli varð niðurstaðan. Hannes Hlíf- ar varð því Íslandsmeistari í skák sjöunda árið í röð og hefur samtals orðið Íslandsmeistari í níu skipti. Ekki er ólíklegt að á næstu árum haldi hann áfram að bæta það met að hafa orðið oftast Íslandsmeistari í skák. Þeir sem koma næst honum í því efni eru þeir Eggert Gilfer og Baldur Möller en þeir unnu titilinn sjö sinnum. Lokastaða Skákþings Ís- lands, landsliðsflokks, varð þessi: 1. Hannes Hlífar Stefánsson (2.568) 8 v. af 11 mögulegum. 2. Stefán Kristjánsson (2.458) 7½ v. 3. Bragi Þorfinnsson (2.389) 7 v. 4. Róbert Lagerman (2.315) 6½ v. 5.-8. Dagur Arngrímsson (2.316), Þröstur Þórhallsson (2.461), Snorri G. Bergsson (2.301) og Jón Viktor Gunnarss. (2.427) 5½ v. 9. Ingvar Þ. Jóhannesson (2.344) 5 v. 10. Davíð Kjartansson (2.324) 4 v. 11. Lenka Ptácníková (2.239) 3½ v. 12. Hjörvar Steinn Grétarsson (2.168) 3 v. Í kvennaflokki varð keppnin hörð á milli hinnar fjórtán ára gömlu Hall- gerðar Helgu Þorsteinsdóttur og hinnar margreyndu Guðlaugar Þor- steinsdóttur. Þær voru jafnar og efstar fyrir lokaumferðina og meðan á síðustu skákunum stóð leit út fyrir á tímabili að Hallgerður yrði meist- ari þar sem Guðlaug stóð höllum fæti gegn Elsu Maríu Þorfinnsdóttur. Með mikilli seiglu tókst Guðlaugu að snúa taflinu við og innbyrða sigur og það gerði Hallgerð- ur einnig gegn Jó- hönnu Björgu Jó- hannsdóttur. Hallgerður og Guð- laug þurfa að tefla einvígi um titilinn en lokastaðan í kvennaflokknum varð annars þessi: 1.-2. Guðlaug Þor- steinsd. (2.130) og Hall- gerður Þorsteinsd. (1.808) 7½ v. af 8 mögul. 3. Harpa Ingólfsdóttir (2.030) 5½ v. 4.-5. Tinna Kristín Finn- bogadóttir (1.661) og Sigurlaug Friðþjófsdótt- ir (1.845) 4 v. 6. Elsa María Þorfinns- dóttir (1.693) 3 v. 7. Jóhanna Björg Jó- hannsdóttir (1.632) 2½ v. 8. Sigríður Björg Helga- dóttir (1.564) 2 v. 9. Hrund Hauksdóttir (1.145) 0 v. Í áskorendaflokki urðu Jón Árni Halldórsson (2.175) og Þorvarður Fannar Ólafsson (2.156) efstir og jafnir með sjö vinninga af níu mögulegum. Þeir unnu sér þar með rétt til að taka þátt í landsliðs- flokki að ári. Guðni Stefán Pétursson (2.107) varð þriðji með 6½ vinning en Sverrir Örn Björnsson (2.095) og Jó- hann Ragnarsson (2.037) deildu fjórða sætinu með sex vinninga. Nánari upplýsingar um Íslandsmót- ið er að finna á www.skak.is og á heimasíðu mótshaldara, www.skak- samband.is. Orkuveita Reykjavíkur var bakhjarl mótsins. Laugalækjarskóli Norðurlandameistari Norðurlandamót í liðakeppnum skóla var haldin um síðustu helgi. Lið Laugalækjarskóla varði meist- aratitil sinn með miklum yfirburðum á Norðurlandamóti grunnskóla- sveita sem haldin var í Lavia í Finn- landi. Það munaði fimm vinningum á Norðurlandameisturunum og næsta liði. Sem fyrr var Torfi Leósson liðs- stjóri sveitarinnar. Barnaskólasveit Grunnskóla Vestmannaeyja lenti í öðru sæti á Norðurlandamótinu í Ör- sundsbro í Danmörku. Eyjapeyjarn- ir nutu leiðsagnar Helga Ólafssonar stórmeistara og stóðu sig mjög vel þar sem þeir voru eingöngu hálfum vinningi á eftir sænska liðinu sem varð hlutskarpast á mótinu. Lið Menntaskólans í Reykjavík lenti í fjórða sæti af fimm sveitum á Norð- urlandamóti framhaldsskólasveita sem fram fór í Lundi í Svíþjóð. Hinn reyndi liðsstjóri Ólafur H. Ólafsson fylgdi sveitinni til Skánar. Nánari upplýsingar um öll þessi mót er að finna á www.skak.is. Hannes Íslandsmeistari í níunda sinn daggi@internet.is Helgi Áss Grétarsson SKÁK Skákhöllin, Faxafeni. SKÁKÞING ÍSLANDS 2007 28. ágúst til 8. september 2007 Stöðumynd 3 Íslandsmeistarinn Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson sýndi sterkan karakter eftir tvo töp í röð á Íslandsmótinu og vann sinn níunda meistaratitil. Mikið vildi ég að þær fréttir sem ég fékk í síðustu viku væru ekki sannar. Tjörvi var alltof ungur til að kveðja þennan heim, en hans bíður greinilega stórt og mikið verkefni á betri stað. Þann tíma sem ég dvaldist með fjölskyldunni í Svíþjóð þegar Tjörvi var þar í meðferð verð ég ætíð þakk- lát fyrir. Það sem þeir bræður fundu ekki uppá að leika sér að, hvort sem það voru bílar eða lestar, púðar sem urðu að hundakofa eða litla eldhúsið þar sem stundum var eldað í eða seldur ís og ekki hef ég tölu á hversu oft var horft á Emil í Kattholti. Tjörvi Freyr Freysson ✝ Tjörvi FreyrFreysson fædd- ist í Reykjavík 22. mars 2005. Hann andaðist á barna- spítala Hringsins þriðjudaginn 21. ágúst sl. Útför Tjörva var gerð frá Árbæjar- kirkju í Reykjavík 29. ágúst sl. Ég fór oft upp á Barnaspítala Hrings- ins til að heimsækja hetjuna hann Tjörva þegar hann var þar. Það var ótrúlega mikið sem var lagt á þennan litla kropp og en alltaf var stutt í brosið bjarta. Ég veit það hefur verið tekið vel á móti Tjörva og að hans verður vel gætt. Ég bið góðan Guð að styrkja Frey, Elfu, Valdimar Frey, ömmur og afa og fjölskyldurnar á þessum erfiðu tím- um. Minningin um Tjörva mun ávallt lifa í hjarta mínu. Góða nótt, sofðu rótt og dreymi þig vel, Tjörvi minn. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Arna Huld frænka. Lokað Fyrirtækið verður lokað í dag, þriðjudaginn 11. september frá kl. 14.00 vegna útfarar ANDRÉSAR REYNIS KRISTJÁNSSONAR. MYNDBANDAVINNSLAN & HLJÓÐRITI Hátúni 6b, Reykjavík. Lokað Fyrirtækið verður lokað í dag, þriðjudaginn 11. september frá kl. 14.00 vegna útfarar ANDRÉSAR REYNIS KRISTJÁNSSONAR fyrrverandi forstjóra. FÖNIX ehf Hátúni 6a, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.