Morgunblaðið - 11.09.2007, Síða 36

Morgunblaðið - 11.09.2007, Síða 36
Við erum svolítið eins og Mogginn; reynum að breyta ekkert voðalega miklu í einu, en laga okkur aðeins til öðru hverju … 40 » reykjavíkreykjavík Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is KANADÍSKI leikstjórinn Dean DeBlois er hrif- inn af eyjum. Fyrsta myndin hans gerðist á Hawaii, sú næsta gerist á Íslandi og sú þriðja væntanlega á Írlandi þar sem hann vann í fjögur ár – og hann telur Nýja-Sjáland einnig upp þegar hann fjallar um uppáhaldsstaði sína. Þegar ég heyri í honum frá Los Angeles byrjum við viðtalið á hefðbundinni veðuröfund, ég vil sólskinið og steikjandi hitann í LA og hann vil rigninguna sem dynur á gluggunum upp við Rauðavatn. Hann er tvítyngdur, úr enskumælandi fjöl- skyldu en sótti franskan skóla á mærum Quebec og Ontario. Eftir að hafa lært teiknimyndagerð í Toronto fékk hann þó sína eldskírn við þá iðju á Írlandi þar sem Don Bluth hafði sett upp stúdíó. Þar var hann í fjögur ár (og mun væntanlega snúa aftur til að taka næstu mynd sína, The Banshee and Fin Magee) áður en Disney réð hann og eftir að hafa unnið við Mulan var hann ráðinn ásamt Chris Sanders til að leikstýra teiknimyndinni Lilo & Stitch þar sem afskipt hawaiiísk stúlka tekur að sér snarvitlausa geimveru sem hún finnur í hundaathvarfinu. Kafbátatónlist undir handritaskrifum Þegar Sanders gekk inn á meðleikstjóra sinn þegar hann sat við handritaskrif spurði hann iðu- lega: „Hvaða kafbátahljóð eru þetta eiginlega?“ Kafbátahljóðin komu frá Ágætis byrjun Sigur Rósar sem DeBlois hafði iðulega á fóninum við skriftir og eftir að hafa kynnst hljómsveit- armeðlimum á tónleikum héldu þeir sambandi. Þegar fyrirhuguð heimildamynd um Íslandsför hljómsveitarinnar árið 2006 virtist ætla að sigla í strand spurðu þeir svo DeBlois ráða. Og í kjölfar- ið var hann ráðinn. „Mér var gefið allt óunna efnið og þurfti að gefa því persónulegt sjónarhorn – það var það sem framleiðendunum og bandinu sjálfu fannst vanta. Þannig að allt sem við tókum upp snerist um að skapa samhengi, búa til nánd við hljómsveitina – bæði sjónrænt og einnig í því hvernig við sögðum söguna.“ Myndin hlaut nafnið Heima og er að stórum hluta byggð á dagbók Johns Bests, fram- kvæmdastjóra Sigur Rósar, sem finna má á heimasíðu sveitarinnar (sigur-ros.is). „Þetta var mögnuð saga. Að jafnstór sveit taki sumarið í að halda fría óauglýsta tónleika fyrir Íslendinga, slíkt er fáheyrt í tónlistarbransanum. Í Ameríku reyna flestir að flýja ræturnar og hypja sig úr heimabænum um leið og þeir geta.“ Hann segir þó hættu á að Ísland sé að fjarlægjast upprunann, rétt eins og Írland gerði. Að fjarlægjast ræturnar „Írland fór í gegnum þetta fyrir um áratug. Þegar þeir urðu hluti af Evrópusambandinu komu skyndilega mikil erlend áhrif og erlendir pen- ingar, allt varð skyndilega mjög kapítalískt á stað sem hafði í raun ekki verið það áður. Allar þessar stórkostlegu gömlu byggingar voru rifnar og nýj- ar stórbyggingar settar í staðinn. Þetta fór að snúast um peninga – það er mjög sorglegt fyrir írska menningu að sjá þennan sjarma týnast svona – og þegar ég gekk um Ísland fannst mér að það væri hætta á því sama hér.“ Geimverur og álfar Leikstjórinn og sögupersónurnar DeBlois sést hér með Jónsa og aðrir Sigur Rósar-menn lauma sér á litlu myndirnar á meðan Lilo & Stitch taka sporið. hljómsveitir koma fram á hátíðinni, en þær eru Celestine, Diabolus, Drep, Dys, I Adapt, Kimono, Skítur, South-Coast Killing Company og Retron. Þótt sveitirnar séu mjög ólíkar eiga þær það allar sameig- inlegt að spila tónlist sem er ólík flestu öðru sem heyra má í síbylju dæguriðnaðarins. TÓNLISTARHÁTÍÐIN Sköllfest verður haldin í Hellinum í Tónlist- arþróunarmiðstöðinni, Hólmaslóð 2, í kvöld. Þetta er annað árið í röð sem hátíðin er haldin, en markmið hennar er að kynna nokkrar af at- hyglisverðari jaðarhljómsveitum landsins, auk erlendra jaðarsveita. Stærsta nafnið á hátíðinni í ár er vafalaust bandaríska dauðarokks- sveitin Blacklisted. Sveitin er frá Fíladelfíu og í fréttatilkynningu frá aðstandendum Sköllfest kemur fram að það sé heiður að fá þessa stríðsmenn þjóðveganna hingað til lands, en sveitin hefur ferðast mjög víða til tónleikahalds. Níu íslenskar Sköllfest festir sig í sessi Blacklisted Sveitin spilar enga popptónlist, það er ábyggilegt! Morgunblaðið/Kristinn Harðkjarni I Adapt er á meðal þeirra íslensku sveita sem koma fram. Sköllfest fer fram í Hellinum, Hólmaslóð 2, og hefst klukkan 18.00 í kvöld. Miðaverð er 1.000 krónur og ekkert aldurstakmark er að hátíðinni. Pítsur verða seld- ar á staðnum.  Fimm myndir koma til greina sem framlag Íslands til Óskarsverð- launanna 2007. Þær eru Mýrin, Köld slóð, Foreldrar, Astrópía og Veðramót. Kosningin fer fram með rafrænum hætti dagana 24-27 sept- ember og verður öllum á kjörskrá ÍKSA sendur rafrænn kjörseðill. Óskarstilnefningarnar verða svo tilkynntar 22. janúar. Og Óskarinn hlýtur …  Það eru talsverðar hrókeringar á íslenskum blaða- og tímarita- markaði um þessar mundir. Þór- arinn Þórarinsson hefur tekið við ritstjórn Mannlífs af Reyni Trausta- syni sem réð sig sem annan tveggja ritstjóra DV fyrir skömmu. Þá hef- ur Loftur Atli Eiríksson verið ráð- inn ritstjóri Séð og heyrt í stað Mikaels Torfasonar, sem samdi um starfslok sín hjá útgáfufélaginu Birtíngi í gær. Mikael var aðalrit- stjóri tímarita hjá félaginu en hann lætur af störfum að eigin ósk, að því er fram kemur á fréttavef Mannlífs. Hrókeringar í blaðabransanum  Þau leiðu mistök urðu í Flugu gærdagsins að vitlausar myndir voru tengdar vitlausum viðburðum. Þannig voru t.d. Logi Bergmann, Auðunn Blöndal og félagar ekki á Sinfóníudeginum heldur á dag- skrárkynningu Stöðvar 2 - eða öllu heldur; myndirnar voru teknar þar, það kæmi hins vegar vitaskuld ekki á óvart að jafnmiklir lífskúnstnerar og þeir félagar hafi einnig brugðið sér á Sinfóníudaginn … Flugan flögraði inn um rangar dyr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.