Morgunblaðið - 11.09.2007, Qupperneq 44
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÉG ER spennt fyrir lokaskákina og auðvitað væri
gaman að vinna þetta,“ segir Hallgerður Helga
Þorsteinsdóttir, fjórtán ára skákstúlka, sem vakið
hefur verðskuldaða athygli í skákheiminum. Hún
og Guðlaug Þorsteinsdóttir komu jafnar í mark á
Íslandsmóti kvenna sem lauk nú um helgina og
munu þær tefla einvígi um titilinn í október.
Ástæða þess að ekki er hægt að tefla lokaskákina
fyrr er m.a. sú að Hallgerður er nk. fimmtudag á
leið til Króatíu þar sem hún tekur þátt í Evrópu-
meistaramóti ungmenna í skák sem stendur í tvær
vikur. En hvernig kviknaði áhugi Hallgerðar á
skákinni? Hallgerður segist hafa teflt síðan hún var
fjögurra ára og kynnst henni í Ísaksskóla.
Krefjandi að halda einbeitingunni
Hallgerður hefur teflt af krafti síðustu ár og tók
fyrst þátt í Íslandsmóti kvenna í fyrra þar sem hún
lenti í 3. sæti, auk þess sem hún hefur þrisvar áður
tekið þátt í Evrópumóti ungmenna í skák, á Grikk-
landi árið 2003, á Krít 2004 og í Frakklandi 2005.
Aðspurð segir Hallgerður skákina afar skemmti-
lega íþrótt. „Þetta getur verið erfitt á köflum og
krefjandi að halda einbeitingunni. En þetta getur
líka verið mjög gaman þegar vel gengur.“ Spurð
hvernig hún undirbúi sig fyrir mót segist Hall-
gerður fá ágæta þjálfun m.a. hjá Helga Ólafssyni.
„Þar eru lagðar línur fyrir byrjanir og viðbrögð við
ákveðnum leikjum,“ segir Hallgerður og tekur
fram að það hjálpi líka að stúdera fyrri skákir and-
stæðinga sinna með það að markmiði að kanna hvar
styrk- og veikleikar mótherjans liggi.
En Hallgerði er fleira til lista lagt, því hún leggur
stund á fiðluleik auk þess að æfa handbolta. Að-
spurð viðurkennir hún að flókið geti verið að púsla
þessum þremur tímafreku áhugamálum sínum
saman. „Það kemur sennilega bráðum að því að ég
þarf að forgangsraða og velja,“ segir hún. „En ég
mun alla vega halda áfram að tefla á meðan ég hef
brennandi áhuga á skákinni og gaman af henni.“
Gaman þegar vel gengur
14 ára stúlka á möguleika á að verða Íslandsmeistari kvenna í skák Á leið
á Evrópumeistaramót ungmenna Leggur stund á fiðluleik og æfir handbolta
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölhæf Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir viðurkennir að flókið geti verið að púsla saman tíma-
frekum áhugamálum en auk taflmennskunnar leggur hún stund á fiðluleik og æfir handbolta. Skákskýring | 29
ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 254. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Flugfreyjur og -þjónar
funduðu í gærkvöldi
Félagsfundur Flugfreyjufélags
Íslands var haldinn í gærkvöldi þar
sem uppsagnir flugfreyja og -þjóna
voru harmaðar og tillögur komu
fram um mótvægisaðgerðir. Mikil
samstaða var á fundinum. » Forsíða
10.500 kaupsamningar
Um helgina var fjöldi kaupsamn-
inga um fasteignir kominn í 10.500
en var 11.700 allt árið í fyrra. Heild-
arvelta þinglýstra samninga var 321
milljarður til 7. september en var
allt árið í fyrra 269 milljarðar. » 2
Enn órói
Úrvalsvísitala aðallista kauphallar
OMX á Íslandi lækkaði um 2,83% í
gær. Órói á hlutabréfamörkuðum
heims heldur áfram og eitt af því
sem nú veldur evrópskum fjár-
festum áhyggjum er að breskir
bankar standa frammi fyrir endur-
fjármögnun skulda. » 13
Mikið magn
skotvopna
Lagt hefur ver-
ið hald á á sjö-
unda tug skot-
vopna í aðgerðum
lögreglunnar það
sem af er ári. Það er meira en allt ár-
ið í fyrra. » Forsíða
Fækkað í herliðinu
David Petraeus, hershöfðingi og
yfirmaður bandaríska heraflans í
Írak, svaraði í gær spurningum
þingmanna í Washington og sagði að
hernaðarlegu markmiðin í Írak
hefðu náðst að mestu. Væntanlega
yrði hægt að fækka smám saman í
heraflanum um 30.000 hermenn fyr-
ir mitt næsta ár. » 14
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Ljósv. skapaði líka 11.9.
Stakst: Virðingarleysi við lögreglu
Forystugrein: Málfrelsi, réttindi og
gildi
UMRÆÐAN»
Gigtarráðstefnan Reuma 2007
Barnafjölskyldur í vanda
Ljósberi sannleikans
Eru eldri borgarar óvelkomnir?
1
1 1 21 1
1 1 21 3& 4#&, )
5& &/
&,&
1
1
1
21
122
1 1
2122
1 + 6/ # 1
1
1 1 21 1 12
21 7899:;<
#=>;9<?5#@A?7
6:?:7:7899:;<
7B?#66;C?:
?8;#66;C?:
#D?#66;C?:
#0<##?E;:?6<
F:@:?#6=F>?
#7;
>0;:
5>?5<#0)#<=:9:
Heitast 11 °C | Kaldast 6 °C
Vestlæg átt, víða
5–10 m/s en 13–18
á annesjum norð-
austan til. Skúrir
víða um land. »10
Arnvid Meyer var
mikill hugsjónamað-
ur og hjálpaði ung-
um djössurum við að
koma sér á fram-
færi. » 37
TÓNLIST»
Krafta-
verkamaður
FÓLK»
Hátíðarmyndir frá Fen-
eyjum og MTV. » 39
Kvika, Gárur,
Doktor RÚV, Metal,
Furðufuglar og
Endurvinnslan á
meðal nýrra þátta á
dagskrá í vetur. » 40
ÚTVARP»
Vetrardag-
skráin kynnt
TÓNLIST»
Svartlistasveit stígur á
svið á Sköllfest. » 36
BÓKMENNTIR»
Pallborð um innflytj-
endabókmenntir. » 41
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Komst ekki út af salerninu
2. Britney Spears vakti litla hrifn.
3. Lögreglan segir DNA-sýni örugg
4. Andlát: Ásgeir Elíasson
DEAN DeBlois, leikstjóri væntanlegrar tónleika-
myndar Sigur Rósar, Heima, þreytti frumraun
sína sem leikstjóri með Lilo & Stitch. Hann er
kanadískur og býr í Los Angeles um þessar
mundir en þó virðast eyjar vera honum mun hug-
leiknari og í kjölfar mynda sem gerast á Hawaii
og Íslandi mun sú næsta væntanlega verða tekin
á Írlandi. Og undir öllum handritaskrifum hljóm-
ar tónlist Sigur Rósar. | 36
Heima frá Hawaii
Þremenningar Jónsi, Stitch og Dean DeBlois.
MANNANAFNANEFND (MNN) hefur í úr-
skurði hafnað nafninu Valgard þar sem rithátt-
urinn -rd brýtur í bága við íslenskt málkerfi. Til að
eiginnafn verði samþykkt þarf nafnið að uppfylla
fimm skilyrði: Nafnið skal taka íslenska eign-
arfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku
máli og það má ekki brjóta í bága við íslenskt mál-
kerfi. Einnig skal það ritað í samræmi við almenn-
ar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum
rithætti þess. Eiginnafn má ekki vera nafnbera til
ama og skilyrði er að stúlkur fái kvenmannsnafn og
drengir karlmannsnafn.
MNN hefur úrskurðað að eiginnafninu Berk sé
hafnað þar sem það brýtur í bága við íslenskt mál-
kerfi. Nefndin hefur samþykkt nafnið Thór og
millinafnið Mýrmann, m.a. vegna þess að það er
dregið af íslenskum orðstofnum. Eiginnafnið Úna
hefur verið samþykkt en kvenmannsnafnið Kristal
þykir líkjast karlmannsnafninu Kristall of mikið og
var því hafnað bæði sem eiginnafni og millinafni.
Karlmannsnöfnin Rikki, Haddi og Álfar teljast
uppfylla ákvæði laga um mannanöfn og hafa verið
samþykkt og jafnframt kvenmannsnafnið
Bernódía. Nefndin hefur samþykkt kvenmanns-
nöfnin Malía, Gísla og Jarún. Millinafnið Austan
fékk samþykki nefndarinnar og sömuleiðis eig-
innöfnin Ótta, Júlíetta, Sólrós, Matthilda, Karí og
Hjörtfríður. Nöfnin Debora og Nenna hafa fengið
samþykki auk karlmannsnafnsins Hrafntýr. Olav
og Merkúr hafa verið samþykkt og færð í manna-
nafnaskrá en nöfnunum Jamie, Reese, Carlo, Ant-
onio og Francisco hafnaði mannanafnanefnd.
Má ekki heita Valgard
Nöfnin Rikki, Haddi og Álfar færð í mannanafnaskrá